Alþýðublaðið - 22.12.1973, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 22.12.1973, Blaðsíða 5
Alþýðublaðsútgáfan hf. Stjórnmála- ritstjóri Sighvatur Björgvinsson. Fréttastjóri Sigtryggur Sigtryggsson. Ritstjórnarfulltrúi Bjarni Sigtryggs- i son. Ritstjóri og ábyrgðarmaður Freysteinn Jóhannsson. Aðsetur rit- stjórnar, Skipholti 19. Simi 86666. Af- greiðsla: Hverfisgötu8-10. Sími 14900. Auglýsingar: Hverfisgötu 8-10. Sími 86660. Blaðaprent hf. LÍÐUR AÐ JÚLUM Enn liður að jólum. Hátið kyrrðarinnar mitt i upplausn og ringulreið nútimans. Hátið friðar- ins i heimi, þar sem ófriðurinn bálar og brennur. Hátið ljóssins mitt i svartasta skammdeginu. Hátið sannleikans i veröld lyginnar. Sú hátið, þar sem vonin horfist örvæntingarfull i augu við gruninn — jafnvel vissuna. öldum saman hefur mannkynið barist fyrir þvi að reyna að bæta sjálft sig og þann heim, sem það lifir i. Trúarbragðahöfundar hafa reynt að gróðursetja sæði kærleikans i sálir mann- anna. Mannvinir hafa reynt að kenna mannfólk- inu að elska meðbræður sina og mannkyninu að umbera sina eigin galla. Stjórnmálamenn hafa reynt að búa þjóðum heims réttlátt stjórnarfar og tryggja, að allir fái sinn réttmæta skerf af uppskerunni. Visindamenn hafa reynt að tendra ljósin i myrkrinu og að skapa mannkyni meiri möguleika til að þekkja heim sinn og hagnýta hann. Listamenn hafa reynt að kenna mannin- um að þekkja sjálfan sig og skilningsmun góðs og ills, fegurðar og ljótleika. En hver hefur orðið árangur baráttunnar? Þeir, sem heitast hafa trúað, hafa háð heilög strið hver gegn öðrum. Blóði lituð er þeirra slóð. í nafni mannúðarstefnu hafa mestu glæpa- verkin oft verið framin. Flekkaður er skjöldur mannvinanna. Stjórnmálamennirnir hafa tekið svipu og hlekki i þjónustu sina, arðrænt og kúgað þjóðir sinar og notað fólk sitt sem fallbyssufóður. Grimmdin er skugginn þeirra. Visindamennirnir kveikja ekki ljós, heldur elda, sem eytt geta öllu lifi i heimi okkar á einni örskotsstundu. Með gáfum sinum smiða þeir vopn fyrir aðra menn að beita og sjálfa heims- menninguna að deyja fyrir. Slóðin þeirra er sviðin jörð. Listin hefur orðið sterkasta vopn lyginnar. Ómannúðlegustu kenndir og stefnur hafa verið rómaðar af mætustu listamönnum heims og þeir hafa hlaðið hásætin undir grimmustu ógnar- stjórnir veraldarsögunnar. Gyðja sannleikans er ekki i för með listamönnunum og fegurðin þeirra er oft aðeins griman á ljótleikanum. Þetta er þvi miður árangurinn af baráttu mannkynsins fyrir sjálfsfrelsun. Eftir alla hina ströngu baráttu árþúsunda hefur mannkyninu aldrei verið meiri hætta búin en einmitt nú. Þó lifir vonin enn. Vonin um það, að öll barátt- an verði þrátt fyrir allt ekki unnin fyrir gig. Vonin, sem er eins og hátið kyrrðar mitt i upp- lausn og ringulreið, eins og hátið friðar i heimi, þar sem ófriður bálar og brennur, eins og hátið ljóss i svartasta skammdegismyrkri, eins og j hátið sannleika i veröld lygi. Vonin, sem er eins og jólahátiðin. Og eina bjargræði mannkyns er, ' að einhvern tima komi að þvi, að sú jólahátið taki ekki endi. Gleðileg jól FRA ALÞINGI PAPPIRSFJARLOG AFGREIDD Eins og skýrt hefur verið frá i fréttum var fjárlagafrumvarp rikisstjórnarinnar afgreitt frá Alþingi i fyrradag meö 31 at- kvæði gegn 29 — atkvæðum stjórnarsinna gegn atkvæðum þingmanna stjórnarandstöðu- flokkanna beggja og atkvæði Bjarna Guðnasonar. Það er mjög óvanalegt, að stjórnarandstaða greiöi atkvæði gegn fjárlögum. Yfirleitt hafa stjórnarandstöðuflokkar látið sér nægja að sitja hjá við loka- afgreiðslu þeirra, en i fyrra greiddu þingmenn Alþýðu- flokksins atkvæði gegn fjárlög- um yfirstandandi árs og settu með þvi fram hörðustu mót- mæli, sem stjórnarandstöðu- flokkur á völ á, gegn fjárlagaaf- greiðslu. Þá sátu Sjálfstæðis- menn hjá og Bjarni Guðnason taldist þá enn til stjórnarþing- manna. Nú greiddu þessir aðilar báðir atkvæði gegn fjárlögunum með Alþýðuflokknum. Þannig eru fjárlög ársins 1974 afgreidd frá alþingi gegn þeim hörðustu mótmælum, sem stjórnarand- staða getur haft uppi, enda vantar i fjárlögin allar ráð- stafanir til þess að mæta þeirri miklu útgjaldaaukningu, sem þau gera ráð fyrir — en hún nemur hartnær 50% frá yfir- standandi ári. AFTUR REYNT VIÐ SKATTAHÆKKANIR EFTIR ÁRAMÓTIN Eins og ljóst má vera öllum þeim, sem fylgst hafa með fjár- lagaafgreiðslunni að þessu sinni, þá var tekjuhlið fjárlag- anna skilin eftir óafgreidd þótt óraunhæfar tölur hafi verið sett- ar þar inn rétt til þess að sýnast. Skattahækkununum, sem rikis- stjórnin taldi þörf á i haust, þeg- ar fjárlögin voru upphafíega lögð fram með miklu lægri út- gjöldum, en niðurstaðan loks varð, var frestað. Fullvist er talið, að rikisstjórnin muni reyna að taka þau mál aftur upp að loknu jólaleyfi þvi eins og dæmið stendur núna, þá er fyrirsjáanlegur mikill fjár- skortur hjá rikissjóði, sem auð- sjáanlega ekki getur mætt þeim mjög svo auknu útgjöldum, sem búið er að samþykkja i fjárlaga- frumvarpinu. Þvi er spáð, að rikisstjórnin muni — eftir að hún gafst upp á þvi að fá skattahækkanir sam- þykktar á alþingi — reyna að koma slikum hækkunum fyrir i sambandi við afskipti af kjara- samningamálum . verkaiýðs- hreyfingarinnar. Likur benda til þess, að hún muni bjóða verka- lýðshreyfingunni einhverja lækkun á beinum sköttum en æskja þess i staðinn að verka- lýðshreyfingin láti þvi ómót- mælt þótt söluskattur verði hækkaður og þótt sú hækkun veröi ekki látin virka til visi- töluhækkunar á kaupgjaldi, eins og núgildandi reglur mæla fyrir um. Til þess að geta mætt TOLLA- LÆKKUN FRESTAÐ Eins og fram hefur komið i fréttum hafnaði rikisstjórnin þvi að lokum að fá fram tolla lækkanir skv. EFTA/EBE- samningnum og á vélum og hrá efnum til iðnaðarins vegna þess, að stjórnarandstaðan ásamt Bjarna Guönasyni neitaði að fallast á söluskattshækkun sam fara tollalækkuninni. Tolla lækkunin sjálf naut stuðnings alls þingheims, en stjórnarand- staðan og Bjarni Guönason neit- uðu að fallast á þá ráöagerð rikisstjórnarinnar að hækka söluskattinn jafnhliða tolla lækkuninni, en þessi tvö óskyldu mál hafði rikisstjórnin hnýtt saman I eitt og neitaöi fram I rauðan dauðann að skilja þau i sundur. Eftir miklar ýfingar og ýting- ar og tvær fundafrestanir brá rikisstjórnin svo á það ráð að fresta afgreiöslu málsins alls fram yfir jólaleyfi þingmanna og verður þvi ekkert af tolla lækkuninni, sem þó átti stuðning þingheims alls. Svo mikið er rikisstjórninni i mun aö fá skattana hækkaða. þeim útgjöldum, sem rikis- stjórnin hefur látið setja inn i fjárlög, þarf hún sem sé að fá nettó-skattahækkanir og þvi ráögerir hún að hækka sölu- skattinn til muna meir en hún 'mun bjóða að lækka beinu skatt- ana um. Það er til litils fyrir verka- lýöshreyfinguna að fá fram hækkun á kaupgjaldi ef sú hækkun er jafnharðan hirt af launafólki i formi hækkaðra skatta. Almenningur i landinu ætti þvi að fylgjast vel og ná- kvæmlega með þeim skatta- lækkunartilboöum, sem rikis- stjórnin mun gera verkalýðs- hreyfingunni eftir áramótin, þvi I þvi tilboði eru jafnframt faldar óskir um hækkanir á söluskatti, sem hækka munu opinber gjöld launamanna miklu meira en lækkun beinu skattanna lækkar þau um. KENNSLA ( íþróttum FYRIK 1 FATLAÐA Við lokaafgreiðslu f járlaga voru samþykktar nokkrar minni háttar breytingartil- lögur frá einstökum þing- mönnum. Meðal þessara tillagna var ein, sem Eggert G. Þor- steinsson flutti. Sú tillaga var um að verja skyldi 425 þús. kr. til styrktar við kennara og sjúkraþjálf- ara til þess að leita sér menntunar i kennslu iþrótta fyrir fatlað fólk og lamað. 1 stuttu viðtali við Alþýðu- blaðið sagði Eggert G. Þor- steinsson, að erlendis væri Iþróttaþjálfun og íþrótta- kennsla snar þáttur i endur- hæfingu fatlaðs fólks og lam- aðs. — Það er sjálfsagt, að við tslendingar reynum að fylgja slikum góðum for- dæmum um endurhæfingar- mál, sagði Eggert. Vand- kvæðin hafa hins vegar verið þau, að mjög fáir ef nokkrir islenskir sjúkraþjálfarar eða kennarar fatlaðra og lam- aðra hafa átt kost á nokkurri þjálfun i Iþróttakennslu fyrir þetta fólk. Tillaga min um nokkra fjárveitingu til þess- ara hluta var flutt svo úr mætti bæta og er mér það mikil ánægja, að hún skyldi fást samþykkt. VINNINGSNUMERIN I IÓLAGJAFAHAPPDRÆTTI UNGRA IAFNAÐARMANNA Dregið hefur verið i jólagjafa- jafnaðarmanna. Vinningar féllu happdrætti Sambands ungra á þessi númer: 211 — 677 — 678 — 679 — 1213 — 1633 — 2719 — 2875 — 4226 — 4738 '4803 — 4804 — 5115 - 5379 — 6141 —6574 — 6946 — 7235— 7567 — 8006 — 8414 — 8419 — 8425 — 8575 — 8881 — 8890 — 9419 — 9801 — 10705 — 10848 — 10856 — 10865 — 10866 — 11135 — 11434 — 11590 — 11908 — 12092 — 12216 — 12689 — 13195 — 13273 — 10345 — 10502 — 10681 — 13274 — 13276 — 13459 — 13599 — 13650 — 14000 — 14395 — 14898 — 15222 — 15597 — 15599 — 15605 — 15681 — 15723— 15884 — 16504 — 17218 — 17560 — 18292 — 18293 — 18685 — 18696 — 18730 — 19026 — 19384 — 20588 — 21371 — 20763 — 21658 — 22200 — 22659 — 22669 — 23122 — 23244 — 23245 — 23246 — 25146 —25294 — 26675 — 26685 — 26856 — 27002 — 27614 — 27804 — 27875 — 27880 — 28201 — 28604 — 28694 — 29188 — 29360 — 29453 — 29864 —29907 — 680 — 802 — 1214 — 1524 — 1630 — 1632 — 3603 — 4274 — 4737 — 4801 —4802 —5039 — 5811 — 6108 — 6465 — 6565 — 7801 — 7234 7520 — 7522 — 8005 — 8415; — 8416 — 8418 — 8420 — 8424 — 8700 8751 — 8887 — 9417 — 10066— 10245— 10335 — 10684 — 10745 10839 — 10500 — 10868 —I 10999 — 11022 — 11173 — 11999 — 12704 12214,— 13156 — 13162 — 13175 — 12698 — 12700 — 12703 — 14375 14897 — 15021 — 15022 — 15122 — 15221 — 15589 — 15598. — 675 1250 — 1501 — 1584 — 1626 — 1631 — 2257 — 2804 — 3028 — 3091 — 3282 — 3517 — 3604 — 4273 — 4534 — 4800 — 4997 — 5035 — 5676 — 5795 — 5894 — 6564 — 6569 — 6698 — 7164 — 7501 — 7502 — 7509 — 7523 —7568 —7653 — 8004 — 8242 — 8417 — 8882 — 8889 — 9023 — 9418 — 9549 — 10063 — 10065 — 10324 — 10499 — 10501 — 10861 — 11000 — 11134 — 11500 — 12094 — 12691 — 12699 — 12707 — 13164 — 13438 — 13199 — 13836 — 14350 — 14499 — 14560 — 14696 — 16500— 16569— 16634 — 16721 — 15697 — 15883 — 17884 — 16635 — 16974 — 17645 — 18311 — 18459 — 18657 — 18956 — 19109 — 19390 — 19703 — 20149 — 20150 — 21589 — 20760 — 21181 — 22658 — 22370 — 23334 — 25147 — 26223 — 22670 — 25690 — 26403 — 26408 — 26507 — 26674 — 27098 — 27267 — 27519 — 27605 — 27876 — 27879 — 29600 — 29729 — 29782 — 29931 — 27989 — 29452 — 18312 — 18458 — 18614 — 18656 — 19108 — 19274 — 20151 — 20757 — 21095 — 21659 — 22406 — 22289 — 22610 — 22667 — 23072 — 23374 — 23993 — 25148 — 27097 — 27107 — 27542 — 27805 — 27827 — 27877 — 27884 — 27981 — 28923 — 29080 — 29306 — 29457 — 29657 — 29707. (Vinningsnúmerin eru birt án ábyrgðar). VINNINGARNIR VERÐA HVERFISGÖTU 8-10 ANN AFHENTIR A SKRIFSTOFU ARRI HÆÐ, I DAG, LAUGAR ALÞÝÐUFLOKKSINS, DAG, FRA KL. 3—5 E H Laugardagur 22. desember 1973. ©

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.