Alþýðublaðið - 22.02.1974, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 22.02.1974, Blaðsíða 1
„Fréttin var 100% rétt" ► ► ► ► B A K Föstudagur 22. febrúar 1974 55 árg; alþýðu Bílnrófsaldurinn hækki í átián ár ,,Eitt af þvi, sem ég ætla að ræða, er til- laga um, að verði fólk með bráðabirgðaskir- teini staðið að þvi að aka yfir ieyfilegum hámarkshraða, verði ökuleyfissviptingu beitt”, sagði Pétur Sveinbjarnarson, framkvæmdastjóri Umferðarráðs, þegar Alþýðublaðið hafði tal af honum i gær. „Ég ætla lika að ræða um þá skoðun mina, að lágmarksaldur til ökuprófs eigi að hækka úr 17 árum i 18 ár til samræmis þvi, sem er á hinum Norðurlöndunum, og gildistimi bráða - birgðaskirteina verði lengdur úr einu ári i þrjú”, sagði Pétur Um þessi atriði ætl- ar Pétur Svein- bjarnarson að fjalla i erindi á I. Landsþingi ökukennarafélags ís- lands, sem veröur haldið að Hótel Loft- leiðum um helgina. Sagði Pétur, að búast megi við verulegum breytingum á fyrir- komulagi ökukennslu á næstu árum, og komi þá þessi atriði m.a. til greina. Ennfremur ætlar Pétur að ræða um stofnun ökuskóla, sem starfaði þannig, að ábyrgðin á kennsl- unni færðist úr hönd- um einstakra öku- kennara yfir á skólann Þá sagðist hann ætla að ræða um atriði eins og þau, að bilar verði merktir sérstaklega fyrstu sex mánuðina eftir að eigendur eða ökumenn hafa lokið ökuprófi, að námskeið i hjálp i viðlögum verði gert að skilyrði Ennfremur ætlar Pétur Sveinbjarnar- son að taka til umræðu tengsl ökukennslu og skólakerfisins, m.a. umferðarfræðslu sem valgrein i efsta bekk gagnfræðaskóla, sem lyki með bóklegu prófi og veitti jafnvel sömu réttindi og bóklega ökuprófið veitir nú. Menntun ökukennara verður lika til umræðu og spurningin um það, hvort hún eigi að fær- ast inn i Kennaraskóla eða iðnskóla. LISTA- MANNA- LAUN 1974 ► 4 Hvernig verður arið 1974? Sjá OPNU lBiaðið sem þorirl okkar olíulindir? Sumar- traffík í bíla- sölunni „Það er óvenju mikið af notuðum nýinnflutt- um ameriskum bilum á markaðnum núna, og reyndar öllum öðrum nýlegum og góðum bil- um, og allt virðist selj- ast þessa dagana nema ódýrustu bilarnir”, sagði Halldór Snorrason bilasali i viðtali við blaðið i gær. Yfirleitt er heldur dauft yfir bilasölu á þessum árstima, en Halldór likti sölunni nú við sumarsöluna. Al- gengustu veröin á not- uðum dýrari bilum er nú frá um 400 þúsund og upp i 700 þúsund. o Gamlir bilar i verð- flokknum innan við 100 þúsund eru hinsvegar svo til óseljanlegir, að sögn Halldórs, og ekki mikið af þeim á mark- aðnum. Svo virðist sem nýjar og nær ótak- markaðar auðlindir séu nú loks fundnar hér á íslandi/ og samkvæmt upplýs- ingum í nýútkom- inni skýrslu gos- efnanefndar iðnað- arráðuneytisins virðist þess stutt að biða, að þessar auð- lindir fari að skila arði í þjóðarbúið. Eins og Alþýðu- blaðið skýrði fyrst blaða frá i sumar munu um 32 milljón- ir rúmmetra nýtan- legs vikurs vera í Þjórsárdal einum, og eru þá ókönnuð mun auðugri svæði svo sem Mýrdals- sandur, en vikur verður nú stöðugt dýrmætara bygg- ingarefni um allan heim. Hingað til hafa menn nær eingöngu litið á vikurinn sem nýtanlegt gosefni, en samkvæmt skýrslunni eru efni svo sem basalt, hraunog perlusteinn einnig hin verðmæt- ustu efni. Það eina sem vitað er um magn þessara efna hér, er að þau er viðast hvar að finna á landinu, og víðast i mjög miklu magni. Þessi efni eru sér- staklega hentug í léttari byggingar- efni, en eru þó einn- ig nýtanleg í fleiri tilvikum. í skýrsl- unni segir einnig að miklar breytingar hafi átt sér stað i viðskiptum með létt byggingarefni að undanförnu. Tiðkist nú orðið f lutningar á þessum efnum í miklu stærri stíl og yfir meiri vega- lengdir en fyrir að- eins fáum árum. Virðist þvi öll þróun stefna i þá átt að um arðbæra og mjög stóra markaði verði að ræða fyrir íslensk gosefni í náinni framtið. Einsogáður hefur komið fram, er út- flutningur vikurs þegar hafinn, en i mjög smáum stíl, en nefndin vinnur m.a. að rannsóknþess að fullvinna bygging- arefnið hér heima og flytja síðan út, en ekki sem hráefni. Einnig stendur til að hefja markaðs- könnun á útflutningi perlusteins í ár, byggða á jákvæðum athugunum í sam- ráði við erlendar rannsóknarstofnan- ir. Þess má að lokum geta, að við vinnslu byggingarefna er alls staðar notuð olía, en möguleikar eru á að nýta jarð- hita okkar til þeirrar vinnslu, og er það i athugun. Nú á Það liðst ekki mörgum að taka víta- kast á þennan hátt, aðeins ómari Ragnarssyni og félögum hans i hinu ósigrandi liði íþróttafréttamanna. Þeir gjörsigruðu dómara enn einu sinni í fyrrakvöldi á styrktarleikkvöldi fyrir landsliðsmenn okkar i handknattleik. Laugardalshöllin var troðfull og mikil stemmning. Hundruð manna urðu frá að hverfa. Við segjum nánar frá þessu á bls. ll. biáin að vera fa.úin_ | 3. SÍÐA

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.