Alþýðublaðið - 22.02.1974, Qupperneq 5
Utgefandi: Alþýðublaösútgáfan hf.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður, Frey-
steinn Jóhannsson. Stjórnmálarit-
stjóri, Sighvatur Björgvinsson.
Fréttastjóri, Sigtryggur Sigtryggs-
son. Aðsetur ritstjórnar, Skipholti
19, sími: 86666. Afgreiðsla:
Hverfisgötu 8-10, sími: 14900. Aug-
lýsingar, Hverfisgötu 8-10, sími
86660. Blaðaprent hf.
Magnús „súperstjarna”
Miklar umræður hafa orðið um hið illskiljan-
lega frumhlaup Magnúsar Kjartanssonar á
þingi Norðurlandaráðs þar sem hann réðst með
óbótaskömmum á rikisstjórnir frændþjóða
vorra fyrir slælegan stuðning við íslendinga að
hans sögn og afskipti þeirra af islenskum innan-
rikismálum. Margir hafa átt erfitt með að skilja
hvað olli þvi, að Magnús Kjartansson brá á
þetta ráð i algerri óþökk allra samráðherra
sinna nema Lúðviks Jósepssonar og hélt þannig
á málum, að fulltrúar íslands á þinginu
dauðskömmuðust sin fyrir landa sinn og for-
sætisráðherra, Ólafur Jóhannesson, varð að
snupra ráðherra sinn opinberlega á þinginu og
lýsa allri ábyrgð á málflutningi hans af höndum
sér. En skýringin á framferði Magnúsar Kjart-
anssonar á rætur sinar að rekja fyrst og fremst
til þeirrar manngerðar, sem hann er — til þess
óhóflega sjálfsálits, sem maðurinn hefur, er
gerir það að verkum, að hann heldur, að sér
leyfist allt.
Allir, sem til þekkja,vita, að ráðherradómur-
inn hefur stigið Magnúsi Kjartanssyni mjög til
höfuðs jafnvel svo, að þess gætir mjög i sam-
skiptum hans við eigin flokksmenn. Til dæmis
að nefna um sjálfsálit mannsins, þá lét hann svo
um mælt við blaðamenn er hann kom heim af
siðasta þingi Norðurlandaráðs, að það hefði ver-
ið harla rislágt þing. Jón Ármann Héðinsson, al-
þingismaður, vakti þá athygli á þvi, að þessi orð
hefði ráðherrann látið falla vegna þess, að hann
hefði sjálfur ekki flutt þar neina tölu. Vegna
þess, að hinn voldugi islenski ráðherra, Magnús
Kjartansson, talaði ekki á þinginu, þótti honum
það harla rislágt.
Að þessu sinni hugðist islenski ráðherrann sjá
til þess, að Norðurlandaráðsþingið i Stokkhólmi
yrði ekki jafn rislágt og það siðasta. Hann ákvað
að halda þar ræðu um málefni, sem i fyrsta lagi
ekki eru i hans verkahring og i öðru lagi liggja
utan við vettvang Norðurlandaráðsþinga. Og
auðvitað þurfti veraldarsnillingurinn Magnús
Kjartansson ekki fyrir þvi að hafa að bera ræðu
sina undir smámennin i rikisstjórn íslands.
Fyrir sérstakrar vináttu sakir leyfði hann Lúð-
vik Jósefssyni að renna augum yfir handritið —
hinir máttu biða uns véfréttinni þóknaðist að
mæla af munni fram. Og þótt harkalega væri á
veraldarsnillinginn deilt af norrænum ráðherr-
um að tölu hans lokinni, þá notaði hann sér ekki
rétt sinn á þinginu til þess að svara gagnrýninni.
Magnús Kjartansson lét andsvörin fara inn um
annað eyrað og út um hitt. Magnús Kjartansson
talar ekki við seglskip.
Það er þvi með öllu þýðingarlaust fyrir fólk að
reyna að finna einhverja málefnalega skýringu
á þvi hvernig á þvi stendur, að kommaráð-
herrarnir og þá einkum og sér i lagi Magnús
Kjartansson láta það henda sig æ ofan i æ að
vaða uppi með yfirlýsingar og málskraf um
mikilvæg málefni, sem heyra undir aðra ráð-
herra i rikisstjórninni og án þess að hafa hið
minnsta samráð við samráðherra sina um mál-
flutninginn. Eðlilegir og kurteislegir samstarfs-
hættir fyrirfinnast ekki i rikisstjórn íslands ein-
faldlega vegna þess, að Lúðvik Jósefsson og
Magnús Kjartansson eru að eigin áliti of miklir
kallar til þess að þurfa að kunna almenna
mannasiði. Þeir eru „superstjörnur” og þegar
þeir kveikja á geislaflóði sinu eiga smástirnin
að fölna.
alþýðul
HVAÐ LlÐllR FULL-
ORÐINSFRÆÐSLUNNI?
Á fundi Sameinaðs Alþingis
þann 12. feþrúar sl. spurðist Stef-
án Gunnlaugsson fyrir um það
hjá menntamálaráðherra, hvað
liði frumvarpi um Fræðslustofn-
un alþýðu, sem visað var til rikis-
stjórnarinnar i fyrra.
1 ræðunni með fyrirspurninni
sagði Stefán m.a.:
,,Á tveimur siðustu þingum hef-
ur verið lagt fram frumvarp til
laga hér á hinu háa Alþingi um
fræðslustofnun aiþýðu. Fyrsti
flutningsmaður þess, þegar það
var fyrst lagt fram, var Sigurður
E. Guðmundsson, sem hér átti
sæti á Aiþingi um tima sem vara-
þingmaður Alþýðuflokksins.
Frumvarpinu var þá visað til
menntamálanefndar Neðri deild-
ar til athugunar, og fékk það þá
ekki afgreiðslu. Við Pétur Péturs-
son tókum þetta mál upp á ný á
siðasta þingi, en þá var þvi visað
til rikisstjórnarinnar til fyrir-
greiðslu, að tillögu menntamála-
nefndar Neðri deildar. Þetta
frumvarp okkar miðaði að þvi, að
hér yrði komið á fót stofnun, sem
vinni að alhliða alþýðufræðslu og
fullorðinsmenntun, likt og sams
konar stofnanir, sem starfað hafa
um árabil á hinum Norðurlöndun-
um. Skyldi starfsemi fræðslu-
stofnunar alþýðu vera grundvöll-
ur fyrir skipulegri eflingu al-
menningsmenntunar i landinu og
fullorðinsmenntunar. Framsögu-
maður menntamálanefndar
Neðri deildar lét svo um mælt,
þegar hann talaði fyrir tillögum
hennar hér i deildinni, um, að
frumvarpinu yrði visað til ríkis-
stjórnarinnar til fyrirgreiðslu, að
þvi hefði verið mjög vel tekið i
nefndinni og þeim grundvallar-
hugmyndum, sem það byggðist á.
Hins vegar hefði verið upplýst, að
athugun færi fram i menntamála-
ráðuneytinu á þvi, hvernig þess-
um málum væri best fyrir komið.
Væri sérstök nefnd á vegum ráðu-
neytisins að störfum, sem fjallaði
lim fullorðinsmenntun á breiðum
grundvelli. Þetta var i byrjun
aprilmánaðar 1973. Þvi hef ég
beint svofelldri fyrirspurn til
hæstv. menntamálaráðherra á
þingskjali 343: Hvað liður athug-
un ráðuneytisins á þvi, hvernig
fullorðinsmenntun verði best fyr-
ir komið?”
1 svari menntamálaráðherra,
MagnUsar Torfa Ólafssonar, kom
það m.a. fram, að þann 26. októ-
ber árið 1971 hefði menntamála-
ráðuneytið skipað sérstaka nefnd
til þess að fjalla um skipulagn-
ingu fræðslustarfsemi fyrir full-
orðna. Ráðherrann sagði m.a.:
„Formaður var skipaður séra
Guðmundur Sveinsson skóla-
stjóri, en aðrir voru Stefán
ögmundsson prentari, tilnefndur
af Alþýðusambandi tslands, dr.
Matthias Jónasson prófessor til-
nefndur af háskólaráði, frU
Sigriður Thorlacius formaður
Kvenfélagasambands lslands,
tilnefnd af Kvenfélagasamband-
inu, Andrés Björnsson Utvarps-
stjóri, tilnefndur af rikisUtvarp-
inu, Gunnar Grimsson starfs-
mannastjóri, tilnefndur af Sam-
bandi isl. samvinnufélaga, Jónas
B. Jónsson fræðslustjóri tilnefnd-
ur af Reykjavikurborg. Nefndin
hóf þegar störf og hefur starfað
siðan og haldið fundi næsta reglu-
lega. SU breyting varð á skipan
nefndarinnar seint á árinu 1973,
að Jónas B. Jónsson lét af störf-
um, en Reykjavikurborg tilnefndi
I hans stað Ragnar Georgsson
skólafulltrUa. Nefndin hóf störf
sin með viðtækri gagnasöfnun og
heimildakönnun. Nefndin kann-
aði itarlega skipun fullorðins-
fræðslu i nágrannalöndunum og
alveg sérstaklega i Sviþjóð, þar
sem fullorðinsfræðslan er marg-
breytilegust og viðamest, i Nor-
egi, þar sem á 3. ár hefur verið
unnið að þvi að semja frumvarp
um heildarskipun fullorðins-
fræðslunnar og i Danmörku, þar
sem fullorðinsfræðslan er dreifð,
bæði i framkvæmd og lagasetn-
ingu. Loks I Finnlandi, þar sem á
siðustu árum hafa verið sam-
þykkt margs konar sérlög, sem
snerta fullorðinsfræðslu meira og
minna. Þá hefur nefndin einnig
kannað gögn um fullorðins-
fræðslu i Bretlandi og Þýska-
landi. Nefndin viðaði að sér gögn-
um frá Evrópuráðinu, bókum,
ritum og greinargerðum, en
Evrópuráðið hefur mjög látið
fræðslu fullorðinna til sin taka,
Stefán Gunnlaugsson
svo og nýtt menntakerfi, ærði
menntun, sem ætlað er að fella
saman i eina heild, hið hefð-
bundna skólakerfi annars vegar
og fræðslu fullorðinna hins vegar,
en hUn verður þannig annar þátt-
ur ævimenntunarinnar. Þá voru
og fengnar skýrslur um hinar
þrjár ráðstefnur UNESCO,
menningar- og fræðslustofnun
Sameinuðu þjóðanna um fullorð-
insfræðslu i Helsingör 1949, i
Montreal 1960 og I Tokyo 1972.
Einkanlega var itarlega fjallað
um skýrslu hinnar siðustu ráð-
stefnu, svo og könnuð gögn, sem
send höfðu verið frá hinum ýmsu
þjóðum samtakanna að vera
grundvöllur og forsenda um-
ræðna á ráðstefnunni. Þá var not-
ið margvislegrar fyrirgreiðslu
frá Centaritet og Nordisk kunter-
et samarbejde i Kaupmannahöfn.
t sept. 1972 var fyrir forgöngu
embættismannanefndarMKS sett
á stofn Styrensgruppe for voksen
oplæring i Norden og var formað-
ur islensku fullorðinsfræðslu-
nefndarinnar, Guðmundur
Sveinsson, tilnefndur i nefndinni
sem fulltrUi íslands. Nefndin hef-
ur sérstaklega fengið til Urlausn-
ar tvö verkefni. Annað lýtur að
tilraun með nýja kennsiuhætti i
fullorðinsfræðslu, hitt er gagna-
söfnun um fræðslu íullorðinna á
Norðurlöndum. Hið siðara verk-
efni snertir sérstaklega störf full-
orðinsfræðslunefndarinnar i is-
lensku. Gagnasöfnunin hefur nU
staðið yfir á annað ár, og er henni
að mestu lokið. Er mikinn fróð-
leik að fá um alla skipan fullorð-
insfræðslu á Norðurlöndum, svo
og reglur, er gilda nU um fram-
kvæmd fullorðinsfræðslunnar og
fjárframlög til hennar. í jUni-
mánuði 1973 hafði fullorðins-
fræðslunefndin lokið við að semja
fyrstu drög aö frumvarpi til laga,
um fullorðinsfræðslu á Islandi.
Drög þessi voru siðan i byrjun
jUlimánaðar það ár send 28 aðil-
um til umsagnar og óskað eftir
umsögnum og ábendingum varð-
andi drögin. Þessir 28 aðilar voru
þannig valdir:
1. 10 aðilar hins hefðbundna
skólakerfis.
2. 9 aðilar, er tengjast vinnu-
markaðinum, atvinnuvegum
landsmanna.
3. 9 aðilar frjálsra félagasam-
taka, er hafa bæði menningar- og
fræðslumál á stefnuskrá sinni.
Nefndin lét þá ósk i ljós. að svör
heföu borist i siðasta lagi um
miðjan sept., enda ætlunin að
halda siðar fundi með þeim aðil-
um, sem frumvarpsdrögin fengu
til umsagnar. Illa gekk þó að
heimta svör og um miðjan sept.
höfðu aðeins borist svör frá 10
aðilum af 28. Engu að siður var i
okt. tekið til við að halda boðaða
fundi með hinum 28 aðilum. Voru
3 slikir fundir haldnir, einn með
hverjum hópi: a) fulltrúum hins
hefðbundna skólakerfis bi full-
trUum vinnumarkaðarins c) full-
trUum frjálsra félagasamtaka.
Eftir umrædd fundahöld og að
fengnum margvislegum ábend-
ingum tók fullorðinsfræðslu-
nefndin til við að endursemja frv.
að lögum um fullorðinsfræðslu.
Urðu þannig til drög 2 að sliku
frumvarpi. Þau drög voru siöan
rædd itarlega á fundum nefndar-
innar og kom i ljós nokkur
skoðanaágreiningur i nefndinni
um ýmis ákvæði og atriði. Voru
þó allir nefndarmenn sammála
um, að þann skoðanaágreining
yrði að jafna og finna frumvarp-
inu það form og framsetningu,
sem allir gætu sameinast um.
Hefur þessu marki nU verið náð
og hin þriðju drög nefndarinnar
fullgerð. Er þess þvi að vænta, að
endanlegri samningu frumvarps-
ins verði lokið og nefndin skili þvi
til ráðuneytisins bráðlega. Ég
fyrir mitt leyti vona fastlega. að
frumvarp þetta komí til áfita þess
þings, sem nU situr.
Stefán Gunnlaugsson þakkaði
ráðherra svörin, lét i ljós ánægju
með, að skammt skyldi vera i
það, að nefndin lyki störfum. og
sagðist vænta þess, að frumvarp
frá henni kæmi fyrir Alþingi það,
sem nU situr.
FLOKKSSTARFIÐ
Alþýðufiokkskonur í Reykjavik:
FÉLAGSFUNDUR
Kvenfélag Alþýðuflokksins i Reykjavik
boðar til félagsfundar n.k. mánudag, 25.
febrúar, kl. 20.30 i félagsheimili prentara
að Hverfisgötu 21.
Fundarefni:
1. Venjuleg félagsfundarstörf.
2. Björgvin Guðmundsson ræðir
borgarmálin.
Félagskonur fjölmennið og mætið
stundvislega.
STJÓRNIN.
Föstudagur 22. febrúar 1974