Alþýðublaðið - 22.02.1974, Page 12
Bókhaldsaóstoó
meó tékka-
færslum
BÚNAÐAR-
BANKINN
KOPAVOGS APÓTEK
Opið öll kvöld til kl. 7
Laugardaga til kl. 2
Sunnudaga milli kl. 1 og 3
Fram á daginn er spáð
norðan stinningskalda
eða allhvössu með
éljum. í dag er gert
ráð fyrir bjartviðri með
frosti: 2-4 stig
FRÉTTIN VAR 100% RÉTT
VERSLUNARMENN OTTUÐUST
MISNOTKUN STIÚRNARINNAR
A RIKISFJOLMIÐLUNUM
//Viö treystum þvi ekki, aö yfirgangs-
samir valdamenn gripu ekki til þess ráös
aö torvelda starfsmönnum útvarps og
sjónvarps aö rækja skyldu sina af þeirri
samviskusemi, sem þeim er eiginleg,
varðandi fréttaflutning af verkföllunum
og samningaviðræðunum, og þvi ákváöum
viðað gefa þeim VR aöilum, sem vinna aö
útkomu dagblaðanna undanþágu, til þess
aö þau komi áfram út", sagði Guómundnr
H. Garðarsson, formaöur VR, i viðtali.
,,Viö viljum aö fólk fái fréttir af gangi
mála úr öllum f jolmiólunum,'sagði hann,
’og þvi er eölilegt, aö blöðin komi áfram út,
svo lengi sem þau geta".
Krossgátukrílið
s
10 II 12.
15
113 14-
lifc
Skýringar:
LÁRÉTT:
1. Trúartákn. 5. Flissa.
6. Tiu. 8. Stilltur. 9.
Hugarburð. 10.
Lofthnoðri. 13. Fæða.
15. Neyðarkall. 16.
Minnist. 17. Glaðan.
LÓÐRÉTT:
1. Á arnarfæti. 2. Fer á
sjó. 3. Eldstæði. 4.
Bragðvond. 5. Hestur.
7. Þrautin. 11. 1 hálsi.
12. Fiskur. 13. Armæðu.
14. Heppni.
,,Þessi frétt ykkar var
hundrað prósent rétt eftir
mér höfð", sagði Guð-
mundur H. Garðarsson,
form. V.R. í viðtali við
Alþýðublaðið í gær. Á for-
síðu Tímans í gær og
framhaldi á bls. 15 er það
dregiö í efa, að blaða-
maður Alþýðublaðsins
hafi haft rétt eftir Guð-
mundi í forsíðufrétt
Alþ.bl. 20. febrúar um
ótta verslunarmanna á
misnotkun stjórnvalda á
ríkisf jölmiðlunum, ef
dagblöðin hefðu hætt að
koma út strax og verkfall
verslunarmanna skall á.
í frétt Tímans eru höfð
ummæli eftir Margréti
Indriðadóttur, frétta-
stjóra útvarpsins, þar
sem hún er látinsegja, að
hafi Guðmundur sagt
það, sem Alþýðublaðið
birti, væri hann ekki
„með fullu ráði, eða mjög
þreytturogiilasofirm Hún
taldi hins vegar, að eitt-
hvað væri í svari hans úr
iagi fært af blaðsins
hálfu".
i frétt Tímans segir, að
ekki hafi blaðamaður sá,
sem fréttina skrifaði náð
i Guðmund til að bera
frétt Alþýðublaðsins und-
ir hann, en fyrirsögnin á
frásögn af frétt Alþýðu-
blaðsins, efa blaðamanns
Tímans á réttum vinnu-
brögðum kollega hans á
Alþ.bl., og þeim ummæl-
um, sem fréttastjóra út-
varpsins eru eignuð i
Tímanum, er: „Formað-
ur V.R. þreyttur og illa
sofinn?".
Svefnleysi og þreyta
eiga kannski betur við til
skýringar á annarra um-
mælum og vinnubrögðum
en Guðmundar H.
Garðarssonar og blaða-
manns Alþýðublaðsins.
En kannski einhver önnur
orð séu þar til betur fall-
in, þegar öllu er á botninn
hvolft.
Yfirleitt nennir Alþýðublaðin ekki að elta ólar við
þau blöð önnur, sem þykjast hafa efni á því að reyna að
gera almennan fréttaflutning Alþýðublaðsins tor-
tryggilegan með þvi að velta sér upp úr efasemdum
eða afneitunum á fréttum þess. Forsiðufrétt Timans i
gær tekur þó steininn úr, þar sem blaðamaður Timans
setur fram efasemdir um heiðarleg vinnubrögð blaða-
manns Alþýðublaðsins án þess að hafa nokkurt sam-
band við nafngreindan heimildarmann Alþýðublaðsins
að umræddri frétt!
Vaxandi kaupendafjöldi Alþýðublaðsins sýnir, að
blaðið er á réttri leið I almennum fréttaflutningi sinum
og allar fréttir sannast á sinum tima, hvað sem llður
öfund þeirra blaðamanna á öðrum blöðum, sem af
fréttunum missa i það og það skiptið.
FIMM á förnum vegi
■m
Finnst þér rétt að styrkja listamenn af almannafé?
Birgir Helgason, starfsmaöur
SVR: Ekki beinlinis, en það eru
svo margir aðrir opinberir
styrktarsjóðir, svo það er ekki
sanngjarnt að vera eingöngu á
móti styrkjum til listamanna.
mi.
Bragi Bergsveinsson, tækni-
fræðingur: Listin verður að
vera til og listamenn að hafa
viðunandi lifsskilyrði án tillits
til harðrar samkeppni. Listin er
óhjákvæmilegur þáttur i menn-
ingarlifinu,'sem verður að við-
halda.
Jóhannes Guðlaugsson, út-
varpsvirki: Ég er ekki á móti
þvi, en ég hef ekki velt þessu
mikið fyrir mér, utan sem ég tel
að listin sé nauðsynleg
Axcl Eyjólfsson, húsgagna-
siniður: Ætli þeir dæju ekki
annars, eins og þeir gerðu
reyndar sumir áður fyrr. Það
væri ekki gott til þess að vita nú
árið 1974.
Benedikt Bogason, verkfræð-
ingur: Já, i skynsamlegu hófi
þó, þetta er nauðsynlegt fyrir
þvi minna þjóðfélag sem heldur
uppi sjálfstæðu menningarlifi.