Alþýðublaðið - 22.03.1974, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 22.03.1974, Blaðsíða 3
„Ég llt svo á/ að stjórnin sé ekki starf- hæf/ þar sem báðir kennararnir, sem áttu sæti í henni, hafa sagt af sér. Þessvegna get ég ekki sest niður og ráð- stafað milljóninni, þótt ég feginn vildi", sagði Eyvindur Eiríksson, fulltrúi stúdenta í stjórn Rannsóknarstofnunar i norrænum málvísind- um, i samtali við Al- þýðublaðið. Eins og skýrt var frá i Al- þýðublaðinu á miðvikudaginn olli sundurlyndi i heimspeki- deild, þvi, að kennararnir Bladur Jónsson lektor og Hreinn Benediktsson prófess- HORNIÐ REYNT VERÐI AÐ SNYRTA SVÆÐIÐ EFTIR FÖNGUM Birgir fsleifur Gunnars- son, borgarstjóri, skrifar: ,,I „Horninu” á bls. 3 i Al- þýðublaðinu föstudaginn 15. marz s.l. beinir Haukur Jónsson, Stangarholti 22, þeirri fyrirspurn til min, hvort munað hafi verið eftir opna svæðinu á mótum Stangarholts, Nóatúns og Skipholts i þeirri áætlunar- gerð, sem kynnt hefur verið um ráðstöfun á opnum svæð- um i borginni. Það er rétt, sem fram kemur hjá bréfritara, að svæði þetta er ekki til fyrir- myndar og eðlilegt, að ibúar hverfisins séu óánægðir með frágang á þessu svæði. Samkv. skipulagi er gert ráð fyrir, að á þessu svæði sé dagvistunarstofnun, og þá helzt rætt um leikskóla i þessu sambandi. Bygging þessarar stofnunar hefur hins vegar dregizt, þar sem aðrar framkvæmdir á þessu sviði, einkum i nýju hverfun- um, hafa þótt þýðingarmeiri og þvi hefur bygging leik- skóla þarna orðið að þoka undanfarin ár fyrir stofnun- um i öðrum borgarhverfum. Ljóst er, að ekki verður byggt þarna i ár, og þvi finnst mér eðlilegt að reynt verði að snyrt a svæðið eftir föngum, án þess þó að leggja i það of mikinn kostnað, þar sem þarna á að verða fram- tiðarbyggingarsvæði eins og ég gat um”. SITUR EINN Á MILLJÖN EN GETUR EKKERT GERT 1 gær litu inn á ritstjórn Alþ.bl. nemendur auglýsingadeildar Myndlista- og handlðaskóla tslands, ásamt kennara sinum Óiafi Stephensen. Hópur þessi útskrifast í vor, og eitt verkefna hans að undan- förnu hefur verið að lita gagnrýnum augum á Alþ.bl. bæði hvað varðar efni og útlit. Hópurinn ræddi við mcðlimi ritstjórnar um blaðið, skoðaði ritstjórnina og Blaðaprent, en þar er Alþ.bl. prentað. Hópurinn hafði með sér skissu af Alþ.bl. eins og hann vildi aö það liti út. Hér er hópurinn með skissuna og raunverulegt Alþ.bl. Brjóstkrabbi rannsakaður hér Sérstök krabbameinsdeild innan Alþjóða heilbrigðismálastofn- unarinnar (WHO) hefur gert athuganir á tiðni hinna ýmsu tegunda krabbameins á mismunandi stöðum á jörðunni. Virðist tiðnin mis- munandi eftir stöðum, og hallast visindamenn á þá skoðun, að þetta megi beint eða óbeint rekja til ýmissa þátta umhverfisins, og þvi megi fræðilega koma I veg fyrir 80% krabbameinstilfella. Einn þáttur rannsóknanna mun fara fram á Islandi, þ.e. á brjóst- krabbameini hjá konum. Verður einn megintilgangur rannsóknar- innar að reyna að greina á milli umhverfisþátta og ættgengi að þvi er brjóstkrabba varðar. Það sem gerir það að verkum, að ísland varð fyrir valinu til þessarar rannsóknar er sú staðreynd, að hvergi i veröldinni er eins auðvelt að afla ættfræðilegra upplýsinga langt aftur i timann eins og á fslandi. Heilbrigðisyfirvöld á tslandi hafa skráð krabbameinstilfelli allt frá árinu 1910. Verkakvennafélagið Framsókn AÐALFUNDUR Verkakvennafélagsins Framsóknar verð- ur i Iðnó, sunnudaginn 24. mars kl. 14.30. Fundarefni: 1. Venjuleg aðalfundarstörf, 2. önnur mál. Félagskonur f jölmennið og sýnið skirteini við innganginn. Stjórnin. ÚTBOÐ Þörungavinnslan h.f. A-Barð. óskar eftir tilboðum i jarðvinnu og undirstöðugerð fyrir væntanlegt verksmiðjuhús i Karlsey við Reykjaskóla i A.-Barð. Útboðsgagna má vitja i Verkfræðistofuna Virki, Höfða- bakka 9, Reykjavik frá og með mánudeg- inum 25. mars 1975, gegn kr. 3000.00 skila- tryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað, mánu- daginn 8. april 1974 kl. 16.00. Stillingar og viðgerðir á oliukyndingum. 01i©brennarinn s.f. Simi 82981 RÍKISSPÍTALARNIR lausar stöður KLEPPSSPÍTALINN: FóSTRA óskast i fast starf við dag- heimilið. Einnig óskast fóstra til sumarafleysinga á sama stað. HJÚKRUNARKONA óskast til starfa á GÖNGUDEILD, vinnutimi 9—5 virka daga. Einnig óskast hjúkrunarkonur á aðrar deildir spitalans, m.a. á kvöld- og nætur- vaktir. Hluti starfs kemur til greina. Upplýsingar veitir forstöðukona spitalans, simi 38160. KLEPPSSPÍTALINN — FLÓKADEILD: HJÚKRUNARKONA óskast til starfa á kvöld- og næturvaktir. Hluti starfs kemur til greina. Upplýsingar veitir yfirhjúkrunarkonan, simi 16630. LANDSPÍTALINN: RAFMAGNSFRÆÐINGUR óskast áEÐLISFRÆÐI-OG TÆKNIDEILD spitalans. Upplýs- ingar veitir forstöðumaður deildar- innar, simi 24160. KÓPAVOGSHÆLIÐ: STARFSMAÐUR óskast til vinnu i lóð hælisins. Nánari upplýsingar veitir Bjarni W. Pétursson, bústjóri, simi 42055. KÓPAVOGSHÆLIÐ DEILDARÞROSKAÞJÁLFI óskast til starfa nú þegar. Upplýsingar veitir forstöðumaður i sima 41500. Umsóknir, er greini aldur, menntun og fyrri störf, ber að senda til Skrif- stofu rikisspitalanna. Reykjavik, 21. marz 1974 SKRIFSTOFA RÍKISSPÍTALANNA EIRÍKSGÖTU 5, SÍM111765 or sögðu sig úr stjórninni, og sat þá Eyvindur Eiriksson, fulltrúi stúdenta, einn eftir. „Raunar get ég ekki sagt, að ég hafi verið tekinn til starfa i stjórninni, þegar hún sprakk”, sagði Eyvindur einnfremur, „þvi ég var ekki skipaður i hana fyrr en i febrúar, og auk þess álit ég, að fulltrúi stúdenta yrði siðasti maður til að taka stjórnina I sinar hend- ur, æðsti yfirstjórnandi henn- ar, sem er rektor, tekur stjórnina liklega fyrr að sér. En þetta ástand getur ekki varað lengi, þvi stjórnin sér um svo ansi margt i sambandi við þessa stofnun”, sagði Eyvindur Eiriksson að lokum. Það komu gestir Föstudagur 22. marz 1974.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.