Alþýðublaðið - 22.03.1974, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 22.03.1974, Blaðsíða 11
■■■■■■■■■■■■■■■■■■»■■■■■■■■■ ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ íþróttir Axel Axelsson sendir knöttinn i markið i 11. skipti i þessu islandsmóti. Þetta var dæmigerð Axeisþruma, I stöng og inn. Alþ.bl. mynd Friðþjófur. Valur vann Fram og hreppti silfrið Enginn flensubragur á leiknum! Valsmenn tryggðu sér silfur- verðlaunin I íslandsmótinu i fyrrakvöld með þvi að sigra Fram 22:18. Fram hlýtur þvi bronsið. Þetta var einn besti, ef ekki besti leikur mótsins til þessa, og enginn flensubragur á mönnum! Sérstaklega léku Valsmenn vel i siðari hálfleik, og var ólafur Jónsson þar fremstur I flokki. Hann átti frá bæran leik. Ekki var byrjunin glæsileg fyrir Val, þvi fljótt varð staðan 3:0 og siðan 4:1 fyrir Fram. Leikurinn jafnaðist, en Vals- menn komust ekki framúr fyrr en is.h. og þegar forystan náðist loks, var hún mjög örugg. Valur skoraði þrjú siðustu mörkin, og sigraði 22:18, eftir að staðan hafði verið 10:9 Fram i vil i hálf- leik. Mörk Vals: Ólafur 8, Jón 5, Axel kominn í 105 mörk Axel Axelsson Fram er hinn ókrýndi markakóngur þessa Islandsmóts. Hann hefur skor- að 105 mörk og á eftir að leika einn leik. Hann hefur þvi bætt met Einars Magnússonar Vfk- ingi frá i fyrra, sem var 100 mörk. Enn vantar hann mikið i hið frábæra met Ingólfs Óskarssonar frá Hálogalands- timunum, 126 mörk i 10 leikj- um. Staðan er þannig fyrir sið- ustu umferðina: FH Valur Fram Vik. IR Haukar Arm. Þór 13 13 0 13 8 2 13 13 13 13 13 13 0 310-223 26 3 262-236 18 279-252 15 282-284 12 246-264 -11 245-280 10 192-212 9 11 234-299 3 1. Axel Axelsson Fram 105 2. Gunnar Einarsson FH 90 3. Hörður Sigurmarss. Hauk 90 4. Einar Magnúss. Vik. 89 5. Viðar Simonarss. FH 83 6. Sigtr. Guðlaugss Þór 67 7. Agúst Svavarss. IR 66 8. Björgvin Björgv.ss. F. 56 9. Gisli Blöndal Val 56 10. Vilhj. Siggeirss. IR 56 Bergur 4, Agúst 2, Gisli 2(2 v) og Gunnsteinn 1 mark Mörk Fram: Axel 7(1 v), Björgvin 5, Pétur 2, Andrés, Hannes, Ingóifur og Sigurberg- ur eitt mark hver. Ólafur Jónsson var nokkuð ó- heppinn i f.h. en i þeim siðari átti hann algjöran stórleik, skoraði hvert markið af öðru með sinum fræga skotstil. Þá átti Jón Karlsson sinn besta leik i vetur. Jón Breiðfjörð var góð- ur i markinu og Bergur drjúgur. 1 heild barðist liðið vel, sérstak- lega i vörn. Framarar náðu ekki að fylgja eftir góðri byrjun, mestmegnis vegna hörku Valsvarnarinnar. Axel komst i gang i s.h. og skor- aði þá mörg falleg mörk. Þá var Björgvin að venju drjúgur i sókninni, en i vörninni áttu skot Ólafs Jónssonar greiða leið framhjá honum og i netið. —SS. Þór vann KR! Þór sigraði KR i 1. deild kvenna i fyrrakvöld 10:9 (5:5). Leikurinn fór fram á Akur- eyri. Þetta eru fyrstu stig Þórs i mótinu. Þór á eftir einn leik, gegn Vikingi á Akureyri. Vinni Þór þann leik, verður auka- leikur um fallið milli Vikings og Þórs. Hinn snjalli og fjölhæfi Vilhjálmur Sigurgeirsson brennir af. W W IR vann Armann 14:11 Þessi leikur var aldrei mjög spennandi. IR-ingar áhugalausir en Armenningar ósköp slappir i sókn og vörn. ÍR-ingar byrjuðu á þvi að skora fyrsta markið, og voru yfir mest allan leikinn eitt og 2 mörk. Vilhjálmur Sigurgeirsson skoraði fyrsta mark leiksins og eftir það voru IR-ingar yfirleitt með forystuna. Hinn ungi markvörður ÍR-inga, Jens Elmarsson, stóð sig mjög vel i markinu og varði meðal annars viti frá Vilbergi Sigtryggs- syni. 1R sigraði 14:11. Vörnin hjá Armanni var afar slök eins og fyrr segir og Ágúst Svavarsson virtist geta gert mark þegar hann hafði áhuga. Gunn- laugur Hjálmarsson stóð sig vel á linunni og skoraði mjög fallegt mark, og virðist alltaf vera i gamla góða forminu sinu. Eins og fyrr segir byrjuðu ÍR ingar á að skora og um miðjan fyrri hálfleik- inn var slaðan jöfn, en i siðari fóru IR-ingar hægt og sigandi fram úr Armanni. Fyrir IR-inga skoruðu Vilhjálmur 6 (2, vitiLAgúst Svavarsson 5 Þórarinn Tyrfingsson 2.og Gunnlaugur 1. Fyrir Armenninga skoruðu Hörður Kri'stinsson 3, Vilberg 2, Jón Astvaldsson 2, Stefán Hafstein 1 og Björn Jóhannsson 1. —GK SKEMMTANIR — SKEMMTANIR HÓTEL LOFTLEIÐIR Cafeteria, veitingasalur með sjálfsafgreiðslu opin alla daga. HÓTEL LOFTLEIÐIR Blómasalur, opinn alla daga vikunnar. HÖTEL BORG við Austurvöll. Resturation, bar og dans I Gyllta salnum. Simi 11440. HÓTEL SAGA Grillið opið alla daga. Mímisbar og Astrabar, opið alla daga nema miðvikudaga. Simi 20890. INGÓLFS CAFÉ við Hverfisgötu. — Gömlu og nýju dansarnir. Simi 12826. ÞÓRSCAFÉ Opið á hverju kvöldi. Sími 23333. SKEMMTANIR — SKEMMTANIR Ingólfs-Café Gömludansarnir í kvöld kl. 9 Hljómsveit Garðars Jóhannessonar. Söngvari Björn Þorgeirsson. Aðgöngumiðasala frá kl. 8. — Simi 12826. •BíinÞJonusTiin HnmnnHRDi* Komið og gerið við sjálfir. Góð verkfæra og varahluta- j J þjónusta Opiðfrá kl. 8—22. Látið okkur þvo og bóna bilinn. Fljót og góð þjónusta. Mótor- þvottur og einnig ryðvörn. Pantanir i sima 53290. ' wn Biim>JonusTnn« Haf narf irói, Eyrartröó ó Kynnisferöir um söguslóðir Reykjavíkur 874-1974 Tveggja tima ökuferð um gamla bæinn með sögufróðum fararstjóra. Nokkrir sögulegir staðir sem skoðaðir verða og fjallað verður um: Arnarhóll, Sölvahóll, Jörundarvigi, Skuggi, Móakot, Tobiasarbær, Frosta- staðir, Skólavörðuholt, Landshöfðingja- húsið, Þingholt, Skólabrúin, Ingólfsnaust, Ingólfsbrunnur og landnámsjörðin Reykjavik. Farið verður frá Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu n.k. sunnudag 24. mars kl. 13.45. öllum heimil þátttaka. Upplýsingar i simum '15020-16724. Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur Föstudagur 22. marz 1974.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.