Alþýðublaðið - 22.03.1974, Side 5
Útgefandi: Blaö hf. Ritstjóri og á-
byrgðarmaður, Freysteinn Jó-
hannsson. Stjórnmálaritstjóri,
Sighvatur Björgvinsson. Frétta-
stjóri, Sigtryggur Sigtryggsson.
Aðsetur ritstjórnar, Skipholti 19,
sími: 86666. Afgreiðsla: Hverfis-
götu 8—10, sími: 14900. Auglýsing-
ar, Hverfisgötu 8—10, sími 86660.
Blaðaprent hf.
Stjórnin skilaði ránsfengnum
Afgreiðsla Alþingis á frumvarpinu um skatt-
kerfisbreytingu var alger sigur Alþýðuflokksins
og þeirra röksemda, sem hann hafði teflt fram.
Allur málflutningur þingmanna Alþýðuflokks
ins var svo ákveðinn og vel grundvallaður, að
rikisstjórnin varð loks að gefast upp og segja:
Þið hafið rétt fyrir ykkur. Við samþykkjum ykk-
ar niðurstöður.
Strax fyrsta daginn, sem skattafrumvarpið
kom til umræðu á Alþingi, lýsti Alþýðuflokkur-
inn afstöðu sinni til allra atriða málsins og voru
þingmenn Alþýðuflokksins einu stjórnarand)-
stöðuþingmennirnir, sem þá voru tilbúnir með
afstöðu sina enda höfðu þeir þá þegar grand-
skoðað öll atriði i málinu.
i fyrsta lagi lýstu þingmenn Alþýðuflokksins
þvi yfir, að þeir myndu samþykkja skattkerfis-
breytinguna sjálfa, sem samkomulag varð um
milli ASÍ og rikisstjórnarinnar enda grund-
vallaðist hún á tillögum þingmanna Alþýðu-
flokksins um sama efni frá þvi i haust, en þeir
voru fyrstir til þess að hreyfa hugmyndum um
þá skattkerfisbreytingu, sem ASÍ svo siðar féllst
á.
i öðru lagi lýstu þingmenn Alþýðuflokksins
fylgi sinu við skattafsláttarkerfið svokallaða —
þ.e.a.s. sérstakar ráðstafanir til tekjulágs fólks
til þess að bæta þvi upp áhrif söluskattshækkun-
ar — en það nýmæli kom einnig fyrst fram i til-
lögum þingmanna Alþýðuflokksins frá i haust
með skattkerfisbreytingu.
i þriðja lagi lýstu þingmenn Alþýðuflokksins
þvi yfir, að þeir myndu ekki samþykkja 5 stiga
hækkun á söluskatti á móti þessum ráðstöfun-
um. Með einföldum útreikningum sýndu þing-
mennirnir fram á, aö með 5 stiga hækkuninni
ætlaði rikisstjórnin sér að hirða 1200 m.kr. af al-
menningi umfram það, sem skattkerfisbreyt-
ingin kostaði. Þessir útreikningar Alþýðuflokks-
ins voru byggðir á tölum rikisstjórnarinnar
sjálfrar. Hún gat ekki mótmælt þeim og varð að
lokum að samþykkja þá.
Niöurstaða málsins varð svo sú, að i fyrsta
lagi varð samþykkt sú tekjuskattslækkun, sem
Alþýöuflokkurinn hafði lýst fylgi sinu við og ASÍ
samið um.
i öðru lagi voru samþykktar þær ráðstafanir
til þess að bæta skaltalega stöðu láglaunafólks,
sem Alþýðuflokkurinn hafði sjálfur átt hug-
myndina að og ASÍ hafði siðar samið um.
I þriðja lagi féllst rikisstjórnin svo á þá kröfu
Alþýðuflokksins að launafólki yrði skilað þeim
1200 m.kr., sem útreikningar Alþýðuflokksins
leiddu í ljós, að rikisstjórnin ætlaði i upphafi að
hafa af almenningi i sambandi við skattkerfis-
breytinguna. Þessu fé skilaði rikisstjórnin
þannig, að i fyrsta lagi hopaði hún úr 5 stiga
söluskattshækkun i 4 — þar skilaði hún 800 mill-
jónum — og i öðru lagi samþykkti hún það skil-
yrði Alþýðuflokksins, að ekki yrði notuð heimild
i fjárlögum til þess að lækka niðurgreiðslur á
landbúnaðarafurðum — og þar með að hækka
verð þeirra — um 400 m.kr. Þar voru sem sé
fengnar þær 1200 m.kr. til baka til almennings,
sem rikisstjórnin i upphafi ætlaði að láta fólkið í
landinu borga með skattkerfisbreytingunni.
Sigur Alþýðuflokksins i málinu var þvi alger.
Hann svinbeygði rikisstjórnina og fékk hana til
þess að viðurkenna að hafa visvitandi beitt ASÍ
brögðum við samningana á dögunum — brögð-
um, sem áttu að kosta almenning 1200 m.kr.
SKATTAMÁLIN
ÞANNIG VAR SIGUR
ALÞÝOUFLOKKSINS:
Strax fyrsta daginn, sem frum-
varp ríkisstjórnarinnar um skatt-
kerfisbreytingu, var tekið til um-
ræðu i neðri deild Alþingis, lýstu
þingmenn Alþýðuflokksins yfir
afdráttarlausri og ákveðinni af-
stöðu sinni til allra atriða frum-
varpsins. Þingmenn Alþýðu-
flokksins voru einu stjórnarand-
stöðuþingmennirnir, sem þá
þegar höfðu gert sér fastmótaðar
skoðanir á málinu, enda höfðu
þeir grandskoðað það dagana þar
á undan og reistu alla sina út-
reikninga á tölum Hagrann-
sóknardeildar Framkvæmda-
stofnunar rikisins — tölunum,
sem rikisstjórnin sjálf lýsti yfir
að væru réttar. Þar sem allir út-
reikningar Alþýðuflokksins voru
reistir á tölum, sem rikisstjórnin
sjálf viðurkenndi, átti hún erfitt
með að hafna niðurstöðum
Alþýðuflokksins, enda fór svo, að
hún samþykkti þær sem réttar og
féll frá upphaflegum ráðagerðum
sinum.
Með þvi að knýja rikisstjórnina
til þess að falla frá upphaflegum
tillögum sinum um hækkun sölu-
skatts um 5 stig samfara þeirri
tekjuskattslækkun, sem
samkomulag varð um milli
Alþýðusambandsins og stjórnar-
innar og með þvi að knýja fram
fyrirheit um ákveðnar hliðarráð-
stafanir frá henni tókst Alþýðu-
flokknum að fá framgengt upp-
haflegum stefnumálum sinum —
þ.e.a.s. að létta viðbótarút-
gjöldum að upphæð 1200 m.kr. af
alþýðufólki i landinu, sem rikis-
stjórnin hafði ásett sér að hafa af
þvi i sambandi viö skattkerfis-
breytinguna. Jafnframt neyddist
rikisstjórnin með þvi til þess að
viðurkenna að hvert eitt einasta
atriði i afstöðu Alþýðuflokksins til
skattkerfisbreytingarinnar hefði
verið satt og rétt metið og að meö
upphaflegum tillögum sinum
hefði rikisstjórnin ætlað að sækja
sér 1200 m.kr. i vasa skattborgar-
anna i landinu uml'ram það, sem
þeir fengju i lækkuðum tekju-
skatti.
Afstaða þingmanna Alþýðu-
flokksins til frumvarpsins um
skattkerfisbreytingu, sem fram
kom strax fyrsta daginn, sem
málið var til meöferðar i þinginu,
var i stórum dráttum þessi:
i FYRSTA LAOl lýsti Alþýðu-
flokkurinn þvi yfir, að liann væri
fylgjandi þeirri skattkerfis-
brcytingu, sem frumvarpið gcrði
ráð fyrir — enda var hún grund-
völluö á hugmyndum, sem þing-
flokkur Alþýðuflokksins setti
sjálfur fram i tillöguin á Alþingi
nú i haust og voru þingmenn
Alþýðuflokksins fyrstir til þess að
hreyfa þeirri hugmynd um skatt-
kerfisbreytingu, sem verkalýðs-
hreyfingin siöar samþykkti og
nú er orðin aö veruleika.
í ÖDKU UAGI lýsti Alþýðu-
flokkurinn þvi yfir, að hann
myndi samþykkja þá tekjuskatts-
lækkun, sem frumvarpið gerði
ráð fyrir, enda þótt hún væri tals-
vert minni, en fólst i upphaflegum
skattkerfisbreytingartillögum
Alþýðuflokksins.
i ÞRIÐJA LAGI lýsti Alþýðu-
flokkurinn þvi yfir, að liann
inyndi samþykkja þær ráðstaf-
anir, sem frumvarpið gerði ráð
fyrir til þess að bæta hag þess
tekjulága fólks, scm ekki myndi
njóta mikils góðs af tekjuskatts-
lækkun en vrði liins vegar að taka
á sig auknar byrðar vegna sölu-
skattshækkunar. Ráðstafanír
þessar, sem kallaðar hafa verið
ýmist skattafsláttarkerfi eða nei-
kvæðir tekjuskattar, voru enda i
liiiium upphaflcgu tillögum þing-
fiokks Alþýðuflokksins frá i haust
um skattkerfisbreytingu og var
sú hugmynd Alþýðuflokksins þvi
lika tckin ineð i samkomulagi
rikisstjórnarinnar og ASÍ um
skattkerfisbreytingu.
1 FJÓRDA LAGI lýsti Alþýðu-
flokkurinn þvi yfir, að hann
myndi KKKI standa aðsamþykkt
5 söluskattsstiga á móti þeim
tekjuskattslækkunar- og tekju-
jöfnunarráðstöfunum, sem i
skattkcrfisbreytingarfrum-
varpinu voru. Á grundvclli talna
r i k i s s t j ó r n a r i n n a r s j á 1 f r a r
reiknaöi Alþýöuflokkurinn út, að
3,5 stiga söluskattshækkun nægði
lyllilega til þess að bæta rikis-
sjóöi tekjutapið vegna skatt-
kerfisbreytingarinnar og mcira
ælli rikissjóður ekki að fá en það,
sem lianii léti af licndi. Yrði sölu-
skatturinn hækkaður um 5 stig
þvddi það nettóskattaaukningu
um 12(10 m.kr. —en sainkvæmt
tölum rikisstjórnarinnar sjálfrar
á livert siiluskattsstig að gefa 800
m.kr. i tekjur og 1,5 stig — mis-
munurinn á 3,5 stigum og 5
stigum — þvi 1200111 .kr. Og
Alþýöul lokktirinn sagði: Við
munum ekki slanda að þvi að
gefa rikisstjórninni 120(1 m.kr.
með skattkcrfisbreytingunni.
Þetta var stefna Alþýðuflokks-
ins frá upphafi — stefnan, sem
rikisstjórnin beygöi sig loks fyrir.
Ilvert einasta atriði i afstöðu
Alþýðuflokksins náði fram að
ganga.
iVleð samþykkt skattkerfis-
breytingarinnar i fyrradag var
gerð sú stórfellda umbylting i
skattam álum, sem Alþýöu-
flokkurinn fyrstur stjórnmála-
flokka sctti fram hugmyndir um i
liaust.
Með samþykkt frumvarpsins
var ákveðin nákvæmlega sú
tekjuskattslækkun, sem ASÍ hafði
samið um við rikisstjórnina og
Alþýðuflokkurinn lýst fylgi sinu
við.
Með samþykkt frumvarpsins
voru ákveðnar þær ráðstafanir til
þess að liæta bag lægst launaöa
fólksins i skattamálum, sem
Alþýöuflokkurinn átti hugmynd-
ina að i tiilöguin sinuni i haust og
ASÍ samdi um viö rikisstjórnina.
Og með samþykki frumvarps-
ins og samþykki á skilyrðum
Alþýðuflokksins um hliðarráð-
stafanir léllst rikisstjórnin á að
skila launþegum aftur þeim 1200
m.kr., sem hún upphaflega ætlaði
að hafa af þeim — scm hún upp-
haflega ætlaði að láta þá gefa
með skattkerf isbrey tinguiiiii.
Þessari miklu fjárhæð skílaði
rikisst jórnin launafólkinu nieð
tvennum liætti. i fyrsta iagi nieð
þvi aö hopa úr 5 stiga söluskatts-
ba'kkuu niður i t — þar skilaði hún
800 m.kr. i öðru lagi með þvi að
fallast á það skilyrði Alþýðu-
llokksins að ekki yrði notuð
heimild i fjárlögum til þess að
lækka niðurgreiðslur á land-
búnaðarafurðum —- og hækka
verð þeirra að sama skapi — um
400 m.kr. Þannig fékk Alþýðu-
flokkurinn sem sé rikisstjórnina
til þess aöskila launafólkinu aftur
1200 m.kr. — þeirri sömu fjárhæð
og liann liafði frá upphafi ásett
sér að fá rikisstjórnina til þess að
gefa eftir. Kn þar að auki féllst
rikisst jórnin á annað skilvrði
Alþýðuflokksins — seni sé það að
beita sér fyrir miklum sparnaði i
rikisrekstrinum og niðurskurði á
útgjöldum.
Þannig fór Alþýðuflokkurinn
með algeran sigur af hólmi —
sigur. sem Alþýðuflokksmenn
geta vetið hreyknir af og launa-
fólkið mun þakksamlega þiggja.
enda varhann unninn i þess þágu.
■— Alþýðuflokkurinn auglýsir:
SKATTARÁÐSTEFN A
Framkvæmdastjórn Alþýöuflokksins boöar til ráöstefnu um skattamál á
morgun, laugardag. Ráöstefnan veröur haldin i Ingólfscafé, uppi, oghefst kl.
10 fyrir hádegi.
Dagskrá ráöstefnunnar verður á þessa leið:
Kl 10-12: A) Yfirlitserindi: Gylfi Þ. Gislason, formaður Alþýðullokksins. Jón Sigurðsson hagrann
sóknarstjóri.
B) Panelumræður: 1 panelunum verða auk framsögumanna, Magnús Guðjónsson.
framkvæmdastjóri Sambands islenskra sveitarfélaga og Jón Sigurðsson, ráðuneytisstjóri.
Kl. 13.30-15.30: Nefndarstörf. Þrjár til fimm nefndir ættu að fjalla um skattamálin og m.a. taka
afstöðu til upptalinna spurninga i atriðaskrá.
Kl. 16.00 Almennar umræður. er hæfust á þvi að nefndaoddvitar gerðu grein fyrir skoöunum eins
hóps.
Kl. 18.00: Alyktanir.afstaða ráðstefnu mótuð með atkvæðagreiðslum eftir þvi hvað við ætti.
Kl. 18.30: Kosin ritnefnd, ráðstefnuslit.
Send hafa veriö út ýtarleg kynningargögn fyrir ráöstefnuna til stjórna
fiokksfélaga og fjölmargra Alþýðuflokksmanna. Gögn þessi munu einníg
liggja frammi á ráöstefnunni. öllu Alþýðuf lokksfólki er heimill aðgangur og
er þess vænst, að sem flestir geti mætt.
Framkvæmdastjórn Alþýöuf lokksins.
■--- -------^
Föstudagur 22. marz 1974.