Alþýðublaðið - 17.05.1974, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 17.05.1974, Blaðsíða 1
ÍSLENSKU HREINSITÆKIN EKKI NÓGU GÓÐ 3 ► 3 ► 3 ► 3 ► 3 ings við NATO „Styrkið NATO — aðrir gera það ef til vill EKKI”. Svo hljóðar niðurlag auglýsingar, sem útvarp hersins á Keflavikurflugvelli hefur sent út að undanförnu með jöfnu millibili. Eru þessar auglýsingar um það bil 30 sekúndna langar og f jalla um mik- ilvægi þess, að valdaaðstaða NATO i heiminum — og sérlega á norðurhveli jarðar — raskist ekki. íslenska rikisstjórnin hefur marg- sinnis lýst yfir, að engar meiriháttar ákvarðanir i varnarmálunum verði teknar nema af Alþingi. Þessar yfir- lýsingar hafa ráðherrar gefið bæði fyrir og eftir þingrofið. Bandarikja- stjórn hefur nú tillögur íslands i varnarmálunum til athugunar og er alls ekki búist við andsvörum þeirra bráðlega. í Ijósi þessa, svo og þvi, að um allt SV-land er hægt að ná útsendingum útvarpsins i Keflavik, sneri Alþýðu- blaðið sér til Magnúsar Torfa ólafs- sonar, menntamálaráðherra, og spurði hann álits á því, hvort hér gæti verið um að ræða póiitiskan áróður á viðkvæmu augnabliki. Menntamálaráðherra sagðist ekki hafa heyrt þessara auglýsinga getið fyrr og hann vildi ekki tjá sig um hluti, sein hann vissi ekkert um. RUSSARNIR VIÐ GÆSLUNA VOó&ÁR 60&LAH ÍÞRÓTTIR ► 10-11 Byrjað á Gjábakkavegi á mánudaginn kemur „Við reynum að leysa þetta verkefni eins og önnur, sem okkur eru fengin”, sagði Sigurður Jóhannsson, vegamála- stjóri, i viðtali við frétta- mann blaðsins i gær- kvöld. Hann kvað sam- gönguráðuneytið þegar eftir ákvörðun forsætis- ráðherra hafa tilkynnt ákvörðun um lagningu Gjábakkavegar á Þing- völlum. „Við verðum að endurskoða áætlun um framkvæmd verksins með tilliti til hins skamma tima, sem verk- inu þarf að 1 júka á. Það er alltaf erfitt að vinna undir pressu”, sagði vegamála- stjóri, „viðhefðum viljað, að unnt hefði verið að byrja fyrr, en við gerum okkar besta”. Alþýðublaðið skýrði fyrst frá þvi, að Þjóðhá- tiðarnefnd taldi það eina meginforsendu fyrir skipulegum hátiðarhöld- um á Þingvöllum, að Gjá- bakkavegur yrði lagður, en f jármálaráðherra kvað slikt „ómögulegt”. Forsætisráðherra, Ölafur Jóhannesson tók svo af skarið i gær og lagði fyrir samgönguráðherra, að láta þegar i stað hefja framkvæmdir við Gjá- bakkaveg, og að þeim yrði lokið fyrir þjóðhátið 28. júli. Vegamálastjóri sagði, að mikil áhersla yrði lögð á, að hefja framkvæmdir þegar á mánudag 20. mai. Kvað hann helgina verða notaða til þess að flytja vinnuvélar, tæki og skúra á framkvæmdastað, Ashkenazy fær sér Lincoln ► 12 ► 12 ► 12 KBVHBHa Enn færa Rússarnir út kviarnar i Reykja- vikurborg og utan þeirra húseigna, sem þeir eiga nú þegar, tóku þeir nýlega á leigu ný endurbyggt hús við Seljaveg nr. 19, en það hús er skáhallt á móti húsi Landhelgisgæsl- unnar, Sjómælinganna og Vitamálastjórnar. Endurbyggingunni er ekki fulllokið, þrátt fyr- ir leigusamninginn, og utanrikisráðuneytinu hefur ekki verið tilkynnt um fjölgun rússneskra sendiráðsstarfsmanna Er þvi annað hvort um óvænta fjölgun starfsmanna að .ræða, eða plássfrekari sfarf- semi rússneska sendi ráðsins hér. Sovét safnar húsum í vestur- bænum

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.