Alþýðublaðið - 17.05.1974, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 17.05.1974, Blaðsíða 5
Útgefandi: Blað hf. Ritstjóri og ábyrgðar- maður, Freysteinn Jóhannsson. Stjórn- málaritstjóri, Sighvatur Björgvinsson. Aðsetur ritstjórnar, Skipholti 19, simi: 28800. Afgreiðsla: Hverfisgötu 8-10, simi: 14900. Auglýsingar, Hverfisgötu 8-10, simi: 28660 og 14906. Blaðaprent hf. BIRGIR FÆR A BAUKINN Það fór heldur illa fyrir þvi máli, sem átti að verða aðal-kosningamál ihaldsins i Reykjavik við borgarstjórnarkosningarnar i vor — „Grænu byltingunni” svokölluðu. Þegar áætlunin var rædd i borgarstjórninni nýverið, þá komu borg- arfulltrúar minnihlutaflokkanna fram með itar- lega greinargerð og úttekt á áætlun borgarstjór- ans um „Græna byltingu” þar sem þeir m.a. sýndu fram á með mörgum dæmum hversu illa og hroðvirknislega áætlunin væri unnin. Meðal dæma, sem borgarfulltrúar minnihlutaflokk- anna bentu á um þau handahófsvinnubrögð, sem rikt hafa við gerð þessarar áætlunar, má nefna, að mikið innbyrðis ósamræmi er milli einstakra uppdrátta, áætlunin stangast i mörg- um meginatriðum á við samþykkt og staðfest aðalskipulag borgarinnar, ekkert tillit er tekið til ýmissa framkvæmda, sem þegar hafa verið unnar eða verða á næstunni i sambandi við um- ferðarmál borgarinnar — látið eins og þær framkvæmdir hafi aldrei verið né verði til — og siðast en ekki sist að vinnubrögðin við gerð upp- drátta, sem kortinu fylgja, hafi verið með þeim eindæmum, að mörg byggð svæði, svo sem Landspitalalóðin, barnaskólar, gagnfræða- skólar, Umferðarmiðstöðin, lögreglustöðin og fleiri byggingar, eru á uppdrættinum lituð sem græn svæði likt og eigi á einu bretti að rifa öll þessi mannvirki niður og tyrfa yfir. Alþýðublaðið hefur nú komist yfir bréfaskipti skipulagsstjóra rikisins við borgarstjórann i Reykjavik, þar sem skipulagsstjórinn staðfestir i öllum atriðum þá gagnrýni, sem borgarfull- trúar minnihlutans settu fram á „Grænu bylt- inguna” og fer auk þess bæði hæðilegum orðum og ávitunarorðum um vinnubrögð borgarstjór- ans i málinu. í bréfum sinum bendir skipulagsstjóri borgarstjóranum i Reykjavik m.a. á, að áætlun- in um Grænu byltinguna stangist i verulegum atriðum á við staðfest Aðalskipulag Reykjavik- ur. Vitir skipulagsstjóri i einu bréfanna borgar- stjórann i Reykjavik fyrir að láta prenta og dreifa út til almennings stórt og vandað kort undir nafninu: Aðalskipulag Reykjavikur án sérstakra athugasemda þótt borgarstjóri viti, að það stangist i meginatriðum á við hið stað- festa Aðalskipulag Reykjavikurborgar. Gefi uppdrættir þessir— m.ö.o. „Græna byltingin” borgarstjórans almenningi þvi rangar upplýs- ingar, og segir skipulagsstjóri að harma beri það kæruleysi, sem þetta beri vott um. Einnig fer skipulagsstjóri i bréfi sinu heldur háðulegum orðum um þá nýbreytni borgarstjórans og starfsmanna hans að auðkenna ýmis svæði i borginni, sem á standa stórbyggingar, með grænum lit likt og þar sé búið að rifa öll hús og tyrfa yfir. í lok bréfs þessa hafnar skipulags- stjóri svo með öllu þeim tilmælum borgarstjór- ans að staðfesta áætlunina um „Grænu bylting- una” og hvetur borgarstjórann til þess að hafa betur i heiðri það skipulag borgarinnar, sem þegar hefur verið samþykkt. Öllu rækilegri ráðningu frá ábyrgum aðilum hefur enginn borgarstjóri áður fengið i sögu Reykjavikur fyrir illa unnin störf en þá, sem Birgir ísleifur Gunnarsson fékk frá skipulags- yfirvöldum landsins. alþýðu \mm 4. Sverrir Hestnes 5. Gunnlaugur Ó. Guðniundsson (;. llaukur Helgason 7. Jónas K. Helgason s. Bjarni L. Gestsson 9. Gunnlaugur Jónasson. — Birtur hefur verið sam- eiginlegur framboðslisti Al- þýðuflokksins, SFV og óháðra á isafirði og ber listinn iistabók- stafinn I. SFV tilnefndi menn i 1., 4., 7., 10., 13. og 16. sæti listans. Al- þýðuflokkurinn i 2., 5., 8., 11., 14. og 18. sæti listans, en ófiokks- bundir einstaklingar völdust i 3., 6., 9., 12., 15. og 17. sæti list- ans. Listinn er þannig skipaður: I. Jón Baldvin Ilannihalsson. Torfnesi 2. Gunnar Jónsson, Sætúni 2 3. Málfriður Finnsdóttir, Mið- túni 23 5. Gunnlaugur Ó. Guðmunds- son, Kngjav. 18 6. Ilaukur Helgason, Engja- vegi 31 Jónas K. Helgason. Ilreggnasa 3 8. Bjarni L. Gestsson, Illiðar- vegi 3 9. Gunnlaugur Jónasson, Hafnarstræti 2 10. Sturla Ilalldórsson, Hliðar- vegi 37 11. Hákon Bjarnason, Aðal- stræti 26a 12. Sigurður Th. Ingvarsson, Eyrargötu 8 13. Kristján Reimarsson, Selja- landsvegi 56 14. Jens Hjörleifsson, tsafjarð- arvegi 4 15. Stefán I)an Óskarsson, Aðalstræti 22a 16. Ingimar ólason, Skólagötu 8 17. Sigriður ,1. Ragnar, Smiðju- götu 5 18. Sigurður .1. Jóhannsson. Eyrargötu 6 Alþýðufiokksfólk í Reykjavík munið: J-LISTINN er listi jafnaðar- manna — listi Alþýðu- flokksins og Samtaka frjálslyndra og vinstri manna. Gefið ykkur fram til sjálf boðaliðsstarfa á kjördag í símum 28718, eða 15020. Blaðburðarfólk vantar nú þegar i eftirtalin hverfi: Sundin Tjarnargata Nýtt símanúmer er 28800 Alþýðuflokksfélögin í Reykjavík minnna á að framboðslisti jafnaðarmanna í Reykjavík er J-USTINN Listinn er borinn fram af Alþýðuflokkn- um og Samtökum frjálslyndra og vinstri manna. Alþýðuflokksfólk og annað stuðnings- fólk jafnaðarstefnunnar i Reykjavik. Munið, að listi jafnaðarmanna er J-listi. Föstudagur 17. maí 1974.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.