Alþýðublaðið - 17.05.1974, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 17.05.1974, Blaðsíða 2
• • • PUNKTAR AÐ SEGJA ÓSATT Þaö er með eindæmum, hvernig sú rikisstjórn, sem enn- þá situr, hefur leikið islenska vinstri stefnu. begar þingmenn tóku að flýja hina sökkvandi skútu og Ólafur Jóhannesson greip til þess óyndisúrræðis að senda þingið heim, þá betur en nokkru sinn fyrr rann það upp fyrir mönnum, i hvers konar óefni málefni þjóðarinnar eru komin. Látum vera að það sem gerst hefur er harmleikur rikis- stjórnar Ólafs Jóhannessonar. Hitt er alvarlegra, að þetta er harmleikur þjóðarinnar. En ryk þingrofsins — og svo kosningabaráttunnar að undan- gengnum framboðsmálum allra flokka getur reynst hættulegt. Hitt er kjarni málsins að þessi rikisstjórn hefur reynst ger- samlega ófær um að ráða fram úr vandamálum islenskrar þjóðar. Við blasir, eftir þvi sem rikisstjórnin sjálf segir, að nauðsynlegt verður að stór- skerða kjör landsmanna. At- vinnuvegir, og ekki hvað sist sjávarútvegur, eru að hruni komnir. Rekstrargrundvöllur skuttogaranna er að bresta. Þetta eru þær meginstaðreyndir sem blasa við hverju manns- barni. Þó ekki væri nema af þessum ástæðum, þá veröur þessari rikisstjórn veitt rækileg ráðning i þeim tvennum kosn- ingum semfyrir dyrum standa. Harmieikurinn bak við harmleikinn Vist er að þessir menn, reikulir Framsóknarmenn og trúaðir kommar, hafa reynst duglitlir og úrræðalausir stjórnendur. En bak við þann harmleik býr annar harmleikur, ekki eins al- varlegur en sýnu ógeðfelldari. Eitt meginvandamál þessarar rikisstjórnar eru slik innbyrðis óheilindi, að nánast engu tali tekur. Menn skyldu rifja upp þegar Þjóðviljinn ætlaði að reka rýting i bak Ólafi Jóhannessyni vegna samnings i landhelgis- málinu. Menn skyldu rifja upp mál austur-þýsku verksmiðju- skipanna og framkomu Lúðviks Jósepssonar i þvi máli — og' samskipti hans við utanrikis- ráðuneytið. Og siðast en ekki sist skyldu menn rifja upp hvernig fall stjórnarinnar bar að. Allir vita' að i samsteypustjórn er það1 drengskaparregla að þar kemuri ekki til stjórnarslita, nema þvi' aðeins að allir flokkar séu þvi samþykkir. Fyrsti atburðurinn i atburðakeðjunni sem leiddi til falls stjórnarinnar — að visu að undangengnum óendanlegum hörmungum — var sá, að Magnús Kjartansson kom i fréttatima útvarps og tilkynnti þjóðinni að það væri samþykkt innan rikisstjórnarinnar að ganga þegar i stað til kosninga. En ráðherrann beinlinis sagði ó- satt og enn hefur ekki fengist birt sú bókun sem hann studdist við. 1 fýrsta lagi er það ekki verk þessa manns að gefa út slikar tilkynningar og i öðru lagi hafði slikt ekki verið samþykkt i rikisstjórninni. En hvað vakti fyrir manninum? Sennilega það, að stór hluti þjóðarinnar horfði á það þegar Ragnar Arn- alds var opinberlega gerður að ósannindamanni og ráðherrar Alþýðubandalagsins að ómerk- ingum. Mál stóðu illa og nú þurfti að komast i sviðsljósið, þó svo að öll drengskaparorð væru brotin. Þetta gerði þessi ein- kennilegi maður, hann sagði ó- satt, hann braut drengskap og vegna linku forsætisráðherrans komst hann upp með það. En þó að Ólafur Jóhannesson sé mað- ur litilla sanda og litilla sæva, þá getur enginn maður látið leika sig svona i það óendan- lega. En getur verið að einmitt þarna sé að finna eina megin- skýringuna á þvi, af hverju rikisstjórn með kommum hefur aldrei náð þvi að verða þriggja ára gömul? Kosningðskrifstofa J-iistans er að Laugavegi 33 Símar 28718-28765 1 Utank/örstaSaatkvœSagreiSsla fer fram daglega frá 1 1 kl. 10—12, 14—18 og 20—22, á helgum dögum kl. jj 1 14-18. I 1 KosiS er í HafnarbúSum viS Tryggvagötu. 1 SjálfboSaliSar óskast til starfa. 1 Þeir, sem lána vilja bíla á kjördegi, vinsamlegast 8 1 hafi samband viS skrifstofuna aS Laugavegi 33, — 1 I simar 28718 og 28765. 1 Alþýðuflokkurinn S.F.V. | Listi jafnaðarmanna í Reykjavík er J-listinn GERUM KOSNINGAHATIÐ J-LISTANS AÐ SIGURHATIÐ! KOSNINGAHÁTIO J-LISTANS r r I HASKOLABIOI SUNNUDAGINN 19. MAI KL. FJÓRIR EFSTU MENN J-LISTANS FLYTJA STUTT ÁVÖRP. SKEMMTIEFNI FLYTJA: CHANGE, 14 FÓSTBRÆÐUR, LÍTIÐ EITT, ÓMAR RAGNARSSON 21 KYNNIR Á FUNDINUM ER HAUKUR MORTHENS Hafnarfjarðar Apótek Opið öll kvöld til kl. 7 Laugardaga til kl. 2 Helgidaga kl. 2 til 4. HÚSEIGNIR VEUUSUNOO O. ClfliS SIMI2S444 ttt 9H|r _________ BLÓMAHÚSIÐ suni83070 Skipholti 37 Opið til kl. 21.30. Einnig laugardaga og sunnudaga. ÞAÐ BORGAR SIG AÐ VERZLA i KRON DUflA í GlfEflBflE /ími 84900 o Föstudagur T7. maí 1974.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.