Alþýðublaðið - 22.05.1974, Blaðsíða 5
(Jtgefandi: Blað hf.
Ritstjórar: Freysteinn Jóhannsson (áb)
Sighvatur Björgvinsson
Auglýsingastjóri: Fanney Kristjánsdóttir
Útbreiðslustjóri: Þráinn Þorleifsson
Aðsetur ritstjórnar: Skipholt 19, slmi: 28800. Augiýsingar:
Hverfisgötu 8-10: sími 28660 og 14906.
Afgreiðsla: Hverfisgötu 8-10: slmi 14900, Blaðaprent hf.
Hugarfarsbreyting hjá SFV
Því miöur hefur það nú gerst, að
f ramkvæmdastjórnarmenn hjá Sam-
tökum frjálslyndra og vinstri manna
hurfu skyndilega og óvænt frá fyrri
stefnu Samtakanna um að hafa sam-
vinnu við Alþýðuflokkinn um samein-
ingu íslenskra jafnaðarmanna í einum
flokki. Þessi skyndilega og óvænta
breyting á afstöðu framkvæmdastjórn-
armanna í SFV kemur eftir að viðræðu-
nefndir flokkanna beggja hafa lagt
mikla vinnu í samningu sameiginlegrar
stefnuskrár með samvinnu flokkanna
fyrir augum og eftir að nefndirnar
höfðu orðið sammála um drög að áætl-
un um gang sameiningarmálsins. Allan
þann tíma, sem þessi undirbúnings-
vinna stóð yf ir, gætti einskis ágreinings
sem neinu máli skipti milli viðræðu-
nefndanna, enda hafa flokksþing og
flokksstjórnir bæði Alþýðuflokksins og
SFV margsinnis ítrekað sameiginlega
stefnu sína í þessum málum
En svo gerist það sem sagt nú fyrir
nokkrum dögum, að framkvæmda-
stjórnarmenn í SFV hverfa frá þessari
margyfirlýstu stefnu Samtakanna um
samvinnu við Alþýðuflokkinn. í stað
þess að halda áfram því verki, sem
unnið hefur verið í málinu nú um langt
skeið í fullri eindrægni af beggja hálfu,
kjósa þeir að hverfa frá samvinnu við
Alþýðuf lokkinn en taka þess í stað upp
kosningasamstarf við fámennan hóp
óánæðgra Framsóknarmanna. Þetta
telur f lokksstjórn Alþýðuf lokksins að sé
spor aftur á bak í baráttu fyrir eflingu
frjálslyndra umbótaafla og jafnaðar-
sfefnu á íslandi. Þessi breytta afstaða
framkvæmdastjórnarmanna í SFV hef-
ur aukið sundrungu í íslenskum stjórn-
málum í stað þeirrar sameiningar, sem
upphaflega var að stefnt.
I ályktun flokksstjórnarfundar Al-
þýðuf lokksins eru þessir atburðir ein-
læglega harmaðir. En flokksstjórnin
tekur f ram, að þrátt f yrir þá.sé Alþýðu-
flokkurinn nú sem fyrr reiðubúinn til
samstarfs við þá aðila, sem af heilum
hug vilja vinna áf ram að sameiningu og
samstarfi íslenskra jafnaðarmanna.
Alþýðuflokkurinn er því trúr þeirri
stefnu, sem hann markaði um nauðsyn
sameiningar og samstarfs íslenskra
jafnaðarmanna. Þessa stefnu markaði
flokkurinn fyrst fyrir u.þ.b. f jórum ár-
um og tók þá frumkvæði um, að- því
máli yrði unnið. Því frumkvæði hefur
flokkurinn síðan haldið. Alþýðuf lokkur-
inn hefur ávallt staðið við stefnu sína í
því máli eins og ábyrgum stjórnmála-
flokki sæmir og var ávallt reiðubúinn
fyrir sitt leyti til þess að ganga til hinn-
ar fyrirhuguðu og eðlilegu samvinnu.
Öðrum snerist hins vegar hugur á sið-
ustu stundu. Þá hugarfarsbreytingu
harmar Alþýðuflokkurinn.
Úbreytt afstaða
Þegar boðið var fram til sveitar-
stjórna fyrr í vor ríkti enn óbreytt sú
stefna um samstarf jafnaðarmanna,
sem Alþýðuflokkurinn og SFV voru
sammála um, en framkvæmdastjórn-
armenn SFV hafa nú horfið frá hvað
þingkosningum viðkemur. Því buðu
þessir tveir flokkar mjög víða fram
sameiginlega lista til sveitarstjórna,
sem víðast hvar hafa listabókstafinn J.
Alþýðuflokkurinn hefur ekki horfið
frá þeirri stefnu um nauðsyn á sam-
vinnu jafnaðarmanna, sem réði því í
vor, að Alþýðuf lokkurinn og SFV gengu
víða til samstarfs um framboð. Alþýðu-
f lokkurinn vill ekkert síður nú, en áður,
stuðla að þvi að sú samvinna takist vel,
jafnvel þótt framkvæmdastjórn SFV
hafi hafnað henni á landsmálagrund-
velli. Þessi óbreytta og ákveðna afstaða
Alþýðuflokksins kemur m.a. fram í
ályktun, sem flokksstjórnarfundur
hans gerði s.l. mánudag, en þar segir
svo:
„Þótt Alþýðuf lokkurinn haf i ekki náð
samstarfi við SFV, um framboð til Al-
þingis lýsir flokksstjórnin yfir því, að
hún styður jafnheilshugar og áður það
samstarf, sem Alþýðuf lokksmenn víða
um land eiga við aðra um framboð til
sveitastjórna."
Guðmundur
Magnússon
skrifar:
Skólinn - Borgin - Samfélagiö
„Miklar skóla-
framkvæmdir”
Þannig hljóðar fyrir-
sögn í Morgunblaðinu í
gær.
Morgunblaðinu væri
nær að kynna sér
ástandið eins og það
raunverulega er, áður en
það hælist um yfir fram-
kvæmdum, sem eru í
algjöru lágmarki og oft á
tíðum langt fyrir neðan
það.
Litum bara á stað-
reyndir:
Hlíðaskólinn tók til
starfa árið 1958. Þar
hefur árum saman verið
lofað að reisa íþróttahús,
en efndirnar engar.
Með hálfum huga hafa
yfirvöld skólans stefnt
eldri nemendum til
íþróttakennslu í Vals-
heimilið, en þar er yfir
stórhættulega umferðar-
götu að fara og því ekki
þótt stætt á því að senda
þangað yngstu börnin.
Athugið: Skólinn er
búinn að starfa í 16 ár.
Hagaskólinn tók til
starfa 1958. Hann er
stærsti gagnf ræðaskóli
borgarinnar og þar hef ur
aldrei verið hægt að halda
uppi lögboðnu íþrótta-
námi.
Það var f yrst í s.l. októ-
ber, sem byrjað var á
framkvæmdum við
íþróttahús skólans. Menn
athugi: Skólinn er búinn
að starfa i 15 ár.
Hvassaleitisskólinn hóf
starfsemi sína 1965. Ekki
er ástandið glæsilegra
þar.
Yngstu nemendurnir
hafa enga íþróttakennslu
fengið við viðunandi
aðstæður og 10 til 11 ára
börn kannski einn tíma í
viku í yfirfullu íþrótta-
húsi Réttarholtsskólans.
Og til þess að það hafi
verið hægt, hafa þau
stundum orðið að fara í
þennan tíma kl. 8 á
laugardagsmorgni, þótt
að öðru leyti hafi engin
kennsla verið í skólanum.
Það er fyrst nú, sem
íþróttahús skólans hefur
verið teiknað og boðið út,
en allt óákveðið um
f ramkvæmdatímann.
Athugið: Skólinn er
búinn að starfa í 9 ár.
Það er ekki nema von,
að íhaldið sé hreykið af
„miklum skólafram-
kvæmdum á vegum
Reykjavíkurborgar",
eins og Mbl. orðar það.
Það er af nógu að taka
og væri Breiðholtið sér-
stakur kapituli út af f yrir
sig, en rúmið leyfir ekki
meira að sinni.
Guðmundur Magnússon
KOSNINGAHÁTÍD UNGA FOLKSINS
í SIGTÚNI FIAAMTUDAGINN 23. MAÍ
STUTT ÁVÖRP FLYTJA SIGURÐUR BLÚNDAL DG EINAR
ÞORSTEINN ÁSGEIRSSON. SÖNGFLOKKURINN TRIOLA KEMUR
FRAM OG JÖRUNDUR GUÐMUNDSSON SKEMMTIR.
HLJÖMSVEITIN ISLANDIA LEIKUR FYRIR DANSI TIL KL. 1
EFTIR MIÐNÆTTI.
Sigurður Einar Þorsteinn
ALLT UNGT FÓLK ER VELKOMIÐ
ÓKEYPIS AÐGANGUR - ENGIN BOÐSKORT
F.U.J. — Æskulýðsnefnd S.F.V.
KL. 9-1
Miðvikudagur 22. maí 1974.
o