Alþýðublaðið - 10.10.1974, Page 7
mmmaHmmtmmmam
■■■■BBHIDIBIBBBHHHHBBBHHBHBHnBBBnBai
■■■■■■■■■■■■■
and
yröi látin duga, þá myndi þurfa
100%varaafl á Austurlandi, ef
linan bilaði. Astandiö á Horna-
firöi s.l. vetur hefur gefiö það
ótvirætt til kynna. Hugsanlegt
er, að komast megi af meö um
40% varaafl, ef ný virkjun kæmi
i Austurlands f jóröung og linu-
leiöir yröu valdar eins og linu-
kortið sýnir. Mismunurinn yrði
þvi um 30 MW i disil- eöa gas-
túrbínuafli, sem myndi vart
kosta minna, en um 600 mkr.
Tengingin milli norður- og aust-
urlands myndi hafa þann kost,
aö hægt væri að fá dýrmætar
kilówattstundir að norðan, þeg-
ar vatnsskortur er fyrir austan
og virkjanir fyrir norðan og
austan gætu hjálpað til ef bilan-
ir yrðu i virkjunum á öðrum
hvorum staðnum.
Smávirkjanir á
Austf jörðum:
Miðað við markað Austur-
landsveitu eru 5 til 8 MW virkj-
anir nú litlar. Slikar virkjanir
hafa verið athugaðar á eftirfar-
andi stöðum:
a) Viðbótarvél i Lagarfossvirkj-
un
b) Geithellnaá i Alftarfirði
c) Sandvatn á Fljótsdalsheiði
d) Fjarðará Syeðisfirði
Vegna vatnsleysis á vetrum i
Lagarfljóti þá gefur viðbótarvél
i Lagarfossvirkjun einungis um
4 til 5 GWh á ári i aukinni fram-
leiðslugetu. Aukin vatnsmiðlun i
Lagarfljóti gæti bætt úr þessu,
en hún er ekki fyrirsjáanleg.
Viðbótarvél i Lagarfossvirkjun
er þvi ekki timabær. Virkjun
Geithellnaár hefur sérstaklega
verið athuguð vegna nálægðar
við Hornafjarðarsvæðið og eins
sem hugsanlegt millistig þang-
að til stórvirkjun kæmist i gagn-
ið. Geithellnaárvirkjun hefur
verið áætluð með 5,5 MW afl og
30 GWh á ári framleiðslugetu.
Ef litið er á Hornafjarðarsvæðið
sem einangrað svæði, þá er
þessi virkjun heppileg fyrir það
svæði, en ef litið er á samtengda
Austurlandsveitu, þá er þessi
virkjun of litil til þess að anna
eftirspurninni.
Virkjun úr Sandvatni hefur
verið áætluð um 7,5 MW með um
30GWh framleiðslugetu á ári og
yrðu þá byggð mikil miðlunar-
mannvirki við Sandvatn. Sú
miðlun hefði þann kost að koma
Lagarfossvirkjun einnig til
góða. Þessar ráðstafanir næðu
samt skammt til þess að metta
eftirspurnina á Austurlands-
veitu. Sama má segja um virkj-
un Fjarðarár, en hana þyrfti
liklega að virkja i tvennu lagi. 1
fyrsta lagi ofan af heiði og niður
á neðri staf og siöan frá neðri
staf niður i Fjarðarselsvirkjun.
Miðlunarmannvirki yrði að
byggja uppi á heiði. Hugsanleg-
ar virkjanir yrðu 5 til 6 MW og
þvi of litlar fyrir markaðinn.
Kannaðir hafa verið lauslega
virkjunarmöguleikar úr Ódáða-
vötnum með stórri miðlun þar,
en þeir möguleikar eru á frum-
stigi könnunar, og verða þvi
ekki ræddir hér.
Bessastaðaárvirkj un
í Fljótsdal
Gerð hefur verið frumáætlun
um virkjun Bessastaðaár i
Fljótsdal i um 30 MW orkuveri
með um 185 GWh á ári fram-
leiðslugetu og verða inntaks- og
miðlunarmannvirki i Gilsár-
vötnum og Hólmavatni á Fljóts-
dalsheiði. Eins og áður er sagt
þá er mismunur á varaaflsþörf
um 30 MW, ef tenging við
Kröfluvirkjun i Mývatnssveit
hefði verið látin duga, og er þvi
Bessastaðaárvirkjun af sömu
stærðargráðu. Aætlanadeild
telur að Bessastaðaárvirkjun
i Húsavik
Laxdrvirkjun
Voprwfjc
Kraf/a
Seydisfjördur
\Grfmsdrvirkjun
’skifjðrdur
Stödjbrfjördur
Höfn i Bakkafirdf
^gerwjardarstrðnd
Djúpivoaur
Skýringor:
Vatnsorkuver i eigu rikis og bœjarfétaga
-----"------ —baejar og sveitoféiaga
------------ —.— rafmagnsveitna rikisins
Vormoorkuver — ■— rikis og bcejarféiaga
------------ -------baejar og sveitafétaga
------------ —»— rafmagnsveitna rikisins
Adveitustödvar —• —---------------------------
verði mun hagkvæmari fyrir
Austurlandsveitu, en bygging 30
MW disil- eða gastúrbinustöðva.
Vatnsmiðlunin i Gilsárvötnum
kemur einnig Lagarfossvirkjun
til góða og hugsanlega verður
þá kominn betri grundvöllur
fyrir þvi að setja viðbótarvél i
Lagarfossvirkjun. Bessastaða-
árvirkjun stuölar þannig að þvi
að gera Lagarfossvirkjun hag-
kvæmari og öruggari. Með til-
komu Bessastaöaárvirkjunar,
viðbótarvél i Lagarfossvirkjun
og tengingu við Kröfluvirkjun
ætti Austurlandsveitu að vera
séð fyrir nægilegri hagkvæmri
orkuöflun, langleiðina til næstu
aidamóta miðað við orkuspána.
Stórvirkjun
í Fljótsdal
Ekki er hægt að skiljast við
þetta verkefni án þess að minn-
ast á hina stóru Austurlands-
virkjun. Fyrsti áfangi hennar
eru miðlunarmannvirki við
Eyjabakka upp við Vatnajökul,
veituskurður, sem veiti vatninu
niður til Gilsárvatna og siðan
virkjað sama fall eins og fallið
við Bessastaðaárvirkjun frá
Gilsárvötnum og niöur að bæn-
um Hól i Norðurdal. Hugsanleg
virkjunarstærð er um 240 til 300
MW, sem er um tiu sinnum
stærri en Bessastaðaárvirkjun.
Slik virkjun er of stór miðað við
hinn almenna markað Austur-
landsveitu, jafnvel þótt 100%
rafhitun húsa sé tekin með. Slik
virkjun er aðeins hugsanleg, ef
um annan orkufrekan markað
er aö ræða samhliða hinum al-
menna markaði. Aætlanadeild
Rarik hefur þvi ekki lagt vinnu i
nánari athugun á þessum val-
kosti.
Niðurstöður ■
Orkuöflun
Vegna hins háa verðs á oliu til
húshitunar og raforkufram-
leiðslu i disil- eða gastrúbinum
þá liggur i augum uppi að finna
verður aðra og skjóta lausn á
aukinni orkuöflun fyrir Austur-
landsveitu. Ef litiö er á allt
samtengisvæðið frá Vopnafirði
til Hornaf jarðar og tekið er tillit
til þess, að með tilkomu Lagar-
fossvirkjunar verður uppsett
vatnsafl á svæðinu um 12,5 MW
með riflega 80 GWh á ári orku-
vinnslugetu þá er greinilegt að
það vantar um 40 MW afl og um
200 GWh á ári til þess að leysa
vandamálið fram til 1990. Hag-
kvæmasta lausnin virðist vera
að ráðast strax i Bessastaðaár-
virkjun, en hönnun og fram-
kvæmd hennar mun taka 4—5 ár
þannig að hún gæti tekið til
starfa um áramótin 1979—1980.
Samhliða færi fram tenging við
Kröfluvirkjun, en hugsanleg
innsetning hennar gæti farið
fram 1980. Siðan yrði bætt vél 1
Lagarfossvirkjun. Þaö eina sem
.gæti breytt réttlæti þessara að-
gerða er hugsanleg fljót ákvörð-
un um stórvirkjun i Fljótsdal.
Varastöðvar:
Lagarfossvirkjun verður ein-
göngu rennsiisvirkjun til ársloka
1976 og hugsanlega lengur, ef
leyfi til þess að kaupa miðlunar-
lokur, fæst ekki fljótlega. 1
miklum frostum getur rennsli
Lagarfljóts farið niður i um 7
rúmmetrar/sek og hugsan-
lega neðar. Við slikt ástand
verður virkjunin óvirk.
Vatnsleysið i Grimsárvirkjun
getur orðið þannig að einungis
er hægt að keyra virkjunina á
topptimum þ.e. i stuttan tima
um hádegiö og á kvöldin. Ef
næstum 100% varaafl er ekki
fyrir hendi á þessum vatns-
leysistimum þá verður að
skammta rafmagnið. Ef vara-
aflið ætti að vera um 100% þá
þyrfti að kaupa um 6 MW af
disilafli á næsta ári fyrir svæðið,
en það myndi kosta um 120—150
mkr. Lagarfossvirkjun er það
fjárfrek einmitt núna að ekki
hefur verið talið fært að eyða
miklu fé i disilstöðvar samtim-
is. Næsta árs áætiun gerir ein-
ungis ráð fyrir að auka disilaflið
i Höfn á Hornafirði um 2 MW og
á Seyðisfirði um 0,66 MW.
Fimmtudagur. 10. október. 1974.
■■■■■■■■■■■■EiBnni
O