Alþýðublaðið - 10.10.1974, Qupperneq 12
alþýöu
mum
Bókhaldsaðstoð
með tékka-
færslum
BÚNAÐAR-
BANKINN
KOPAVOGS APÓTEK
Opiö öll kvöld til kl. 7
Laugardaga til kl. 12
Sýningin Ísland-lslendingar hefst að Kjarvalsstöðum í dag
(slandssagan sögð á annan hátt
Sýningin Island-.Islendingar,
ellefu alda sambúð lands og
þjóðar, verður opnuð að
Kjarvalsstöðum kl. 17 í dag, og
verður opin til 24. nóvember.
Sýningin er næstsiðasti liöurinn
i dagskrá þjóðhátiðarnefndar
1974, að þvi er Indriði G.
Þorsteinsson, framkvæmda-
stjóri nefndarinnar, sagði á
fundi með fréttamönnum vegna
sýningaropnunarinnar i gær.
Siðasti liðurinn á dagskrá
Þjóðhátiðarnefndar verður
sýning á þjóðháttakvik-
myndum, sem verið er að ganga
frá i London, en sýningar á þeim
hefjast væntanlega i haust,
fljótlega eftir að sýningunni að
Kjarvalsstöðum lýkur.
A fundinum með fréttamönn-
um i gær sagði Gils Guðmunds-
son, alþingismaður og formaður
sýningarnefndarinnar, að i
fyrstu hafi hugmyndin verið sú,
að þessi sýning væri að nokkru
leyti sniðin eftir sögusýningunni
1944, en þar var brugðið upp
myndum úr frelsis- og
menningarbaráttu Islendinga.
Frá þvi var þó horfið og taiið, að
kjarni sýningarinnar hlyti að
vera ellefu alda búseta
þjóðarinnar i landinu, hvernig
hún hefði lagað sig að lands-
háttum, lært að búa að lands-
nytjum, með hverjum hætti hún
heföi skynjað fegurð landsins
og sérkenni, hvernig henni heföi
vegnað i harðri baráttu við óblið
náttúruöfl á slóðum elds og isa.
Einar Hákonarson listmálari
hefur haft umsjón með
uppsetningu sýningarinnar, og
sagöi hann á fundinum, að is-
landssagan sé þarna túlkuð
öðruvisi en en i skólabókunum,
— meira sé sagt frá aðstæðum I
landinu en minna frá einstökum
persónum.
Aðgangur er kr. 200 fyrir
manninn, en sú nýbreytni
verður tekin upp, að hægt
verður að kaupa á 500 krónur
miða, sem gilda I fimm skipti,
og geta menn hvort sem þeir
vilja notað þá með þvi að fara
fimm sinnum á sýninguna eða
fara fleiri saman. Sýningin
verður opin almenningi siðdegis
alla daga nema mánudaga, en
timinn kl. 10—12 er ætlaður fyrir
hópa skólafólks undir leiðsögn
kennara.
Ekki er ástæða til að fjölyrða
meira um sýninguna, þar sem
henni voru gerð itarleg skil i
opnu Alþýðublaðsins fyrir
skömmu, en látum myndirnar,
sem Friðþjófur ljósmyndari tók
að Kjarvalsstöðum i gær segja
sina sögu.
Húsavikurbjörninn trónir á sýningunni.
A sýningunni er fjöldi skýringarkorta-og mynda, auk ijósmynda.
Likan af gamalli gufuafistöð
Þarna er veriö að koma fyrir
gömlum bókum.
Þarna er örlagakúrvan komin á sinn stað.
FIMM á förnum vegi
Rósa Sighvatsdóttir, nemi: Ég
veit þaö ekki, — en þaö var vist
eitthvert merkisár.
Jósef Jósefsson, verslunar-
maður: Þvi er alveg stoliö úr
mér. Var það ekki eitthvað i
sambandi við verkalýðinn?
Þorleifur Va ldim arsson ,
stýrimaður: Var það ekki
fullveidið?
Hvað gerðist 1. des. 1918?
Jóhanna oliversdóttir, vinnur
hjá Sláturfélaginu: Það man ég
ekki. Varð ekki tsland sjálfstætt
þá? — lýðveldi? Ég er ekki
alveg viss.
Ingólfur Þórarinsson, kennari:
Það er fullveldisdagurinn
okkar.
J