Alþýðublaðið - 06.12.1974, Side 1

Alþýðublaðið - 06.12.1974, Side 1
Hvað þarf mörg mannslíf til að fá fjárveitingu? Hve mörg óhöpp þurfa að verða til þess, að kom- ið verði á fastri lækna- vakt i lögreglustöðinni i Reykjavik og herbergin, sem sérstaklega hafa verið innréttuð fyrir læknaaðstöðu þar, verði nýtt i samræmi við það hlutverk, sem þeim er ætlað að gegna? — Alþýðublaðið spurði Ólaf Jóhannesson, dóms- málaráðherra, þessarar spurningar i gær og svar- aði hann þvi til, að vafa- laust væri rétt, sem lög- reglustjóri sagði i viðtali við Alþýðublaðið fyrir nokkrum dögum, að á lögreglustöðinni þyrfti að vera föst læknavakt. „öllu meira get ég ekki sagt um þetta mál, en þess skal getið, að aldrei hafa fengist svip- aðar þær fjárveitingar til þessara mála, þ.e. lög- reglumála, sem ástæða væri til að veita til þeirra”. Varðandi frekari upp- lýsingar um mál þetta visaði ráðherra á emb- ættismennina i dóms- málaráðuneytinu. Baldur Möller ráðu- neytisstjóri i dómsmála- ráðuneytinu sagði i sam- tali við Alþýðublaðið: „Leitað hefur verið eftir læknum til þess að anna þessu hlutverki, þ.á.m. nokkuð til borgarlæknis, en við höfum nokkra fjár- veitingu til þessa. Það er vilji okkar að koma á læknavakt á vegum lög- reglunnar I Reykjavik, án þess að það hafi tekist, og við munum sjálfsagt itreka þennan vilja okkar við lögreglustjóra á næst- unni”, sagði Baldur. „Lögreglan hefur haft aðgang að vaktlæknum og getað kallað á þá. Hins vegar leysir það engan veginn allan vanda i þessu efni. Staðreynd er, að mjög getur verið vand- greint — jafnvel fyrir lækna — hvort maður er i drykkjuvimu eða ein- hverju öðru ástandi. Vafalaust yrði af þvi mikið öryggi, ef hægt væri að hafa’ læknavakt i lögreglustöðinni allan sólarhringinn, en til þess þyrfti að minnsta kosti fjóra lækna. Okkar hugmynd I þessu efni hefur verið sú að reyna að fá lækna á vakt i lögreglustöðinni til þess að vera þar að minnsta kosti á þeim timum sólarhringsins, þegar mest er að gera Baldur Möller benti á i samtalinu við Alþýðu- blaðið, að mjög hafi reynst erfitt að fá lækna til annarra starfa en þeirra, sem i þvi eru fólg- in, að þeir sitji sem sér- fræðingar á læknastofum sinum. Þannig hafi verið mjög erfitt að fá lækna til að sinna heimilislækning- um. Jólatréssalan byrjar á laugardaginn „Æi nei,ég held ekki að ég gefi þér upp neina tölu um það, við stönd- um I samkeppni við aðra”, sagði Kristinnl Skæringsson, hjá Skógrækt rikisins i gær þegar Alþýðublaöið innti hann eftir fjölda þeirra jólatrjá sem Skógræktin flytur inn I ár, „islensku trén verða aftur á móti eitthvað á fimmta þúsund og dreifist það um allt landið.” „Við erum að fara I gang og byrjum að selja á laugardag, alveg gall- harðir”, sagði Kristinn ennfremur,” það verðaútsölustaðir frá okkur á einum 12-15 stöðum i Reykjavik en aðalsalan auðvitað I skálanum I Fossvogi. Verðið á trjánum er nokkuð misjafnt, eftir tegundum, og kostar rauðgrenitré, sem er 1 1/2 metri á hæð, einar 720 krónur. Norðmanna- hlynurinn, sem ebki fellur, er svo um þris- var sinnum riýrari.” Alþýðublaðið hafði einnig samband við Alaska og Blómaval sem flytja bæði inn grenitré fyrir hver jól og leitaði upplýsinga hjá þeim. Þau fyrirtæki eru ekki I eins harðri samkeppni og Skóg- ræktin, þvi upplýsingar um innflutning þeirra voru auðfáanlegar. Alaska flytur inn tæp- lega 6000 tré frá Danmörku og Blómaval rétt liðlega 6000. Ekki voru þeir búnir að reikna út verð á trján- um, enda i báðum til- vikum rétt að fá vöruna inn úr dyrunum. FER RÆKJUVINNSLA I GANG A BLONDUOSI? „Flóabardagi hinn nýi" eins og rækjustríöið við Húnaflóa hefur ver- ið nefnt, hefur nú tekið nýja stefnu. Allt bendir til þess, að rækjuvinnsla sé að fara í f ullan gang á Blönduósi, enda hafa engin lög eða reglur fundist, sem gætu bannað hana. Eins og kunnugt er fengu tveir rækjubátar, sem ætlunin var að legðu upp á Blönduósi, veiðileyfi í lok októ- bermánaðar hafa hingað til lagt upp á Hvammstanga og Skagaströnd skiptis. Nú er útlit fyrir, að bát- arnir, sem koma til með að landa á Blönduósi, verði jafnvel fleiri en upphaflega var ráðgert, en samkvæmt upplýsing- um, sem Alþýðublaðið hefur aflað sér, mun nýja rækjuverksmiðjan á Blönduósi ætla að greiða fyrir rækjuna Lsamræmi við þau kjör, sem rækju- bátar i Isafjarðardjúpi og Arnarfirði hafa, en þau eru að þvi blaðinu er tjáð hagstæðari fyrir bátana og sjómennina en þau, sem gilt hafa á Húnaflóa- svæðinu. Rækjuveiði á Húnaflóa svæðinu hefur gengið mjög vel það sem af er, en þó hefur minnstu bát- unum frá Hólmavik, sem eru um 10-12 tonn, gengið verr slðustu tvær vikurn- ar en fyrr á veiðitimabil- t i I inu og er skýringin talin sú, að svo litlir bátar séu naumast hæfir til tog- veiða. — HORFT I SNJO- MOKSTURSKRÓNUNA HJÁ VESTFIRÐINGUM „Astand vega er mjög gott, miðað við árstima, vel fært frá Reykjavik alla leið austur á firði, suðurleiðina, og meira að segja Oddsskarð og Fjarðarheiði eru fær á Austfjörðunum sjálf- RIKISSTJORNIN GEGN FJÖLMIÐLUNUM Það er sama, hvort forsætisráðherr- ann heitir Ólafur eða Geir: — rikis- stjórnin helduráfram að herða tök sin á upplýsingamiðluninni i landinu. Félag Islenskra iðnrekenda heldur félagsfund i dag, þar sem Gunnar Thoroddsen, iðnaðarráðherra, heldur ræðu. Félag islenskra iðnrekenda hafði boð- iö blaðamönnum til fundarins, en I gær var það boð afturkallað að ósk ráðherr ans, þar sem hann vildi ekki hafa full trúa frá fjölmiðlum viðstadda á fund inum. 1 minnisbréfi frá Félagi islenskra iðn rekenda, sem sent var fjölmiðlum til að Itreka boð þeirra á fundinn segir, að Gunnar Thoroddsen ætli að flytja ræðu um stefnu rikisstjórnarinnar i iðnaðar málum. um”, sagði Hjörleifur Ölafsson, hjá Vega- gerðinni, i viðtali við Al- þýðublaðið i gær,” enda hefur veðurfar verið með besta móti þar.” „Norðurlandsveginn er lika vel fært að kom- ast, alla leið á Vopna- fjörð, og fært er til Siglufjarðar og Ólafs- fjarðar”, sagði Hjör- leifur ennfremur,” en þegar áVestfirðina kemur fer að versna i þvi. Þar eru flestir fjall- vegir ófærir, nema hvað fært er fyrir stóra bila og jeppa i nágrenni Patreksfjarðar og yfir Hálfdán. Hafa Vest- firðingar mikið notað sér flóabátinn, enda komast þeir ekki öðru- visi af kjálkanum. Það er mjög erfitt um vik með snjómokstur, hann er dýr og verður allur að greiðast af þeim fjármunum sem varið er til viðhalds vega. STEFNA VEGNA TRYGGINGAFJÁR Á GJALDEYRI Landsbanka íslands var nýlega stefnt fyrir bæjarþingi Reykjavikur til endurgreiðslu á trygg- ingargjaldi, sem tekið var við gjaldeyrissölu og krafist dómsúrskurðar i þá átt, að ákvörðunar taka bankans um að krefjast tryggingar- gjaldsins hafi verið ólög- mæt. Málavextir i aöalatrið- um eru þeir, aö hinn 26. ágúst sl. keyptu stefnend- ur ferðagjaldeyri i Landsbanka Islands, Reykjavik, alls 305 ster- lingspund, og greiddu fyrir hann kr. 71.079.00 samkvæmt gengi þvi, sem skráð var hinn 21. ágúst sl„ en gjaldeyris- skráning var felld niður frá og með 22. ágúst. Auk framangreindrar upphæðar var stefnend- um gert að greiða kr. 17.770.00, sem „25% tryggingarfé” upp i vænt- anlega gengislækkun. Sú gjaldtaka er tilefni stefn- unnar. Samkvæmt tilkynningu gjaldeyrisbankanna var gjaldeyrir á þessum tima ekki afgreiddur til ferða- manna fyrr en daginn fyrir brottför. Stefnendur I máli þessu eru hjón, sem hugðust dveljast I Londin I vikutima, og var brott- för ákveðin hinn 27, ágúst. Þar sem farðseðl- ar höfðu verið keyptir og ferðin ákveðin, var ekki um annan möguleika aö ræða en að undirrita skuldbindingarskjal bankans varðandi þessi 25% og greiöa gjaldeyr- inn á þvi verði, sem kraf- ist var. Hins vegar gerðu hjónin það meö fyrirvara og mótmæltu samdægurs áskilnaði bankans sem ólögmætum, og áskildu sér rétt til að krefjast endurgreiðslu á trygging- argjaldinu, „enda töldu stefnendur sig ekki bund- in af slikumnauðungar- samningi”. öllum kröfum hjón- anna um ertdurgreiðslu hefur verið synjað. Ákvörðunin um niöur- fellingu gengisskráningar var tekin með samkomu- lagi gjaldeyrisbankanna og Seðlabankans, og hafa stefnendur skrifað Seöla- bankanum, og beöið um rök fyrir lögmæti hennar. Hefur hann fært fram ýmis rök, sem stefnendur fallast ekki á. Stefnendur telja, að sala Landsbankans á gjaldeyri á væntanlegu gengi, brjóti i bága við ákvæði laga um verö- tryggingu fjárskuldbind- inga nr. 71, 1966, og eigi við þetta tilvik þau ákvæðil. gr. þeirra, sem segja, að ekki sé heimilt að stofna til fjár- skuldbindinga með ákvæðum þess efnis, að greiðslur skuli breytast I hlutfalli við gengi erlends gjaldeyris, verðmæti gulls eða annars verð- mætis. Þá telja stefnendur, að Seðlabankann hafi brost- ið vald til þess að ákveða að fella niður gengis- skráninguna hinn 21. ágúst, án nokkurs sam- ráðs við eða með sam- þykki rikisstjórnarinnar eða bankamálaráðherra, Visa þeir um það efni til laga um Seðlabanka Is- lands nr. 10, 1961, m.a. 4. gr„ sem kveður á um skyldu Seðlabankans til náins samstarfs við rikis stjórnina, 18. gr. og 24. gr- Þá telja stefnendur, aö vegna laga um tima- bundnar ráðstafanir til viðnáms veröbólgu, nr. 75, 1974, hafi verið enn rikari ástæöa en ella fyrir Seðlabankann að leita samráðs og samþykkis rikisstjórnar, áður en gengisskráning var felld niöur.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.