Alþýðublaðið - 06.12.1974, Page 5

Alþýðublaðið - 06.12.1974, Page 5
alþýðu| Útgefandi: Blað hf. I ■ ■TTT'v Ritstjórar: Freysteinn Jóhannsson (ábm.) ItjhHHH Sighvatur Björgvinsson Auglýsingastjóri: Fanney Kristjánsdóttir Aðsetur ritstjórnar: Skipholti 19, sími 28800 Auglýsingar: Hverfisgötu 8—10, sími 28660 og 14906 Afgreiðsla: Hverfisgötu 8—10, sími 14900 Prentun: Blaðaprent STOLNAR FJADRIR Bæði fyrir og eftir siðasta landsfund Samtaka frjálslyndra og vinstri manna var það básúnað út af forystumönnum þeirra, að á landsfundin- um stæði til að sameina innan vébanda SFV þá þrjá aðila, sem stóðu að framboðum F-listanna i siðustu kosningum — þ.e.a.s. stuðningsmenn Karvels og Magnúsar Torfa, Möðruvellinga Ólafs Ragnars Grimssonar og Samtök jafnaðar- manna. Var tilkynnt, að á fundi hinna tveggja siðarnefndu samtaka — Möðruvellingahreyf- ingarinnar og Samtaka jafnaðarmanna — hefði verið samþykkt, að þau gerðust aðilar að SFV og hefði þeim verið fagnað með lófataki sem nýjum flokksaðilum á landsfundi Samtaka frjálslyndra og vinstri manna. Nú hefur komið i ljós, að hér er um grófa fréttafölsun að ræða — helber ósannindi að þvi er varðar Samtök jafnaðarmanna. Samtök jafn- aðarmanna héldu aldrei fund um þetta mál, þau óskuðu aldrei eftir aðild að Samtökum frjáls- lyndra og vinstri manna og hafa aldrei sam- þykkt að ganga þar inn. Einn af helstu tals- mönnum Samtaka jafnaðarmanna, Helgi Sæmundsson, ritstjóri, staðfesti þetta i viðtali við Alþýðublaðið i gær og harðneitaði þvi, að Samtök jafnaðarmanna hefðu tekið þátt i lands- fundi Samtaka frjálslyndra og vinstri manna eða á nokkurn hátt gerst þar aðilar að. Fullyrð- ingar forsvarsmanna SFV og blaðs þeirra, Nýrra Þjóðmála, um hið gagnstæða, eru þvi uppspuni frá rótum. 1 örvæntingu sinni hafa þau gripið til þess ráðs, að ljúga opinberlega um að- ild stjórnmálahreyfingar að SFV. Samtök jafnaðarmanna voru og eru óflokks- leg stjórnmálasamtök manna, sem ýmist geta verið flokksbundnir i einhverjum stjórnmála- flokkum eða eru utanflokka. Markmið þeirra var tilgreint i fjórum stefnuatriðum i yfirlýs- ingu, sem þau sendu frá sér skömmu eftir stofn- unina. Einu afskipti Samtaka jafnaðarmanna af flokkapólitik hafa verið þau, að i bæjar- og sveitarstjórnakosningunum lýstu þau yfir fylgi við framboð J-listanna viðs vegar um land og i þingkosningunum i vor lýstu þau fylgi við fram- boð F-listanna. Ef til hefði staðið að tengja Samtök jafnaðar- manna formlegum böndum við einhvern stjórn- málaflokkanna þá hefði það falið i sér grund- vallarbreytingu á eðli þeirra og auðvitað orðið að samþykkjast á fundi þeirra. Enginn slikur fundur hefur hins vegar verið haldinn og engin slik samþykkt gerð. Einn af félögunum i Sam- tökum jafnaðarmanna var að visu kosinn i framkvæmdastjórn SFV á landsfundinum, en þangað var hann ekki kosinn sem fulltrúi Sam- taka jafnaðarmanna heldur eftir að hann hafði gengið i SFV. Hann er þar félagi á nákvæmlega sama hátt og annar félagsmaður Samtaka jafn- aðarmanna, Helgi Sæmundsson, er félagi i Al- þýðuflokknum. Það er út af fyrir sig skiljanlegt, að SFV finni þörf hjá sér til þess að skreyta sig með stolnum fjöðrum. En er það ekki heldur langt gengið að ljúga þvi hreinlega upp, að óflokksleg samtök manna, sem kenna sig við jafnaðarstefnu, skuli formlega hafa gengið i Samtök frjálslyndra og vinstri manna? Ef SFV hafa nokkra sjálfsvirð- ingu til að bera, þá ættu þau að leiðrétta þennan upplogna söguburð sinn og biðjast afsökunar á ósannindunum. BJÖRGVIN GUÐMUNDSSON SKRIFAR FRÁ ÞINGI SÞ HVERS VEGNA GREIDDIÍSLAND ATKVÆÐI A MÚTI TILLÖGUM ARABARÍKJANNA? Björgvin Guðmundsson, borgarf ulltrúi, er um þess- ar mundir í sendinefnd Islands hjá S.Þ. Hann mun rita nokkrar greinar í Al- þýðublaðið um þingið. Fyrsta greinin birtist í dag. Hún heitir: „Hvers vegna greiddi Island atkvæði á móti tillögu Arabaríkj- anna". I greininni fjallar Björgvin m.a. um afstöðu sendinefndar íslands til Palestinumálsins og grein- ir f rá sinni persónulegu af- stöðu í málinu. New York 22. nóvember 1974 Við erum stödd á Allsherjar- þingi S.Þ. Klukkan er rúmlega 5 eftir staðartíma. Það er óvenju margt i þingsalnum. Andrúms- loftið er rafmagnað. Atkvæða- greiðsla er að hefjast um hina umdeildu tillögu Araba o.fl. um sjálfsákvörðunarrétt Palestlnu- Araba, en talið er, að sú tillaga þýði m.a. það, að Palestínu- Arabar megi stofna sitt eigið riki. Það rikir engin óvissa um úrslit atkvæðagreiðslu þeirrar, sem er að hefjast, en öllum er ljóst, að hér er um sögulegt mál að ræða fyrir samtök S.Þ., jafnvel örlaga- rikt, þar eð samþykkt tillögu Arabarikjanna gæti leitt til þess, að Israel hyrfi úr samtökum S.Þ. fljótlega. Það ergengið til atkvæða og úr- slitin liggja fljótt fyrir. Tillaga Arabarikjanna er samþykkt með 89 atkvæðum gegn 8. 37 ríki sitja hjá. Meðal þeirra rikja, sem greiða atkvæði á móti tillögunni, eru Island og Noregur. Onnur Norðurlönd sitja hjá. Danmörk fylgir Efnahagsbandalagslönd- unum, en þau höfðu ákveðið að sitja hjá — sumir segja til þess að lenda ekki i ónáð hjá Arabarikj- unum og verða af oliu hjá þeim, en olia virðist nú ráða miklu I heiminum og jafnvel afstöðu rikja. Afstaða Islands i máli þessu var rædd I Islensku sendinefnd- inni. Ég lýsti þvi þá yfir, að ég styddi þá afstöðu utanrikisráð- herra tslands að greiða atkvæði á móti tillögu Arabarikjanna. Min skoðun er sú, að samþykkt tillög- unnar ógni tilveru Israels sem sjálfstæðs rikis, enda fór Arafat, leiðtogi PLO, ekki i launkofa með það i ræðu sinni á Allsherjarþing- inu, að PLO stefndi að afnámi Israelsrikis og vildi endurreisa Palestinu sem riki. Það var hinn 4. október s.l., að Allsherjarþing S.Þ. samþykkti að taka Palestínumálið á dagskrá Allsherjarþingsins og jafnframt var samþykkt að bjóða Arafat að ávarpa Allsherjarþingið, en hann er leiðtogi Palestinian Liberation Organisation — þ.e.a.s. sjálfstæðishreyfingar Palestinu- manna, en þar er fyrst og fremst átt við Palestinuaraba. ísland sat hjá við atkvæðagreiðslu um það mál. Það var tekið á móti Arafat eins og þjóðhöfðingja, þegar hann kom til Allsherjarþingsins 13. nóvember s.l. Skæruliöaforinginn hafði byssu i belti sinu er hann á- varpaði Allsher jarþingiö. Ambassador tsraels hjá S.Þ. — Tekoah — kvað það hafa verið táknrænt og sagði i ræðu, að sól hinna sameinuðu þjóða væri tekin að hniga, er leiðtogi hreyfingar þeirrar, sem staðið hefði fyrir morðum og hryðjuverkum, væri heiðraður á þingi þjóðanna. Það var forseti Allsherjar- þingsins, hinn ungi utnarikisráð- herra Alsir, Bontaflika, sem ákvað að taka á móti Arafat sem þjóðhöfðingja á þinginu. Var sú ákvörðun hans mjög umdeild. I tillögu Arabarikjanna um Palestinumálið, sem Allsherjar- þingið samþykkti, segir m.a., að „Palestinuþjóðin i Palestinu” skuli hafa „rétt til sjálfsákvörð- unar án Ihlutunar annara” og „rétt til þjóöarsjálfstæðis og full- veldis”. Einnig segir I tillögunni, að „Palestinu þjóðin megi endur- heimta riki sitt með öllum ráðum, sem samrýmast markmiði og grundvallaratriðum sáttmála S.Þ.” Þá segir i tillögunni, að Palestinu-Arabar eigi „rétt á þvi að snúa aftur til heimkynna sinna og eigna” (I Israel). Hvað þýðir þessi tillaga, sem nú er orðin ályktun Allsherjar- þingsins? Hún þýðir það, að Palestinu-Arabar fái að stofna sérstakt riki, sem m.a. taki til landssvæða, sem ísrael ræður nú yfir. Hún mundi þvi i framkvæmd þýða uppskiptingu Israels milli gyðinga og araba. Þess vegna ógnar ályktunin vissulega tilveru Israelsrikis. Helst vilja Palestinu-Arabar hverfa aftur til þess ástands, er varfyrir stofnun Israelsrikis, þ.e. leggja Israel niður og stofna Palestinuriki, sem Arabar réðu, en gyðingar væru i minnihluta I. Vestur-Evrópurikin, sem sátu hjá við atkvæðagreiösluna, geröu grein fyrir afstöðu sinni. Voru greinargerðir þeirra mjög sam- hljóða og yfirleitt á þá lund, aö ekki væri unnt aö samþykkja til- lögu.Arabarikjanna, þar eð ekki væri tekið tillit til ályktunar öryggisráðsins nr. 242 frá árinu 1967 um, að tryggja bæri tsrael og nágrannarikjum þess örugg landamæri. Ingvi Ingvason, sendiherra tslands hjá S.Þ., gerði grein fyrir afstöðu tslands I stuttri ræðu á Allsherjarþinginu. Kvaö hann tsland hafa greitt atkvæði gegn tillögu Arabarikjanna þar eð I hana vantaði það mikilvæga atriði að tekið væri tillit til öryggis tsraels —og vitnaði hann i þvi sambandi til ályktunar öryggisráðsins nr. 242 frá 1967. önnur tillaga varðandi Palestinu-Araba en sú, sem þegar hefur verið fjallað um hér að framan, var tekin til afgreiðslu hér á fundi Allsherjarþingsins I dag. Það var tillaga um að veita PLO rétt til setu á Allsherjarþingi S.Þ. með réttindum áheyrnar- fulltrúa. Sú tillaga var samþykkt með 95 atkvæðum gegn 17. Nitján riki sátu hjá. Island greiddi einn- ig atkvæði á móti þeirri tillögu. 1 umræðunum um tillöguna var bent á, að aðeins riki eða rikja- sambönd gætu orðið aðilar að S.Þ. með fullum réttindum eða réttindum áheyrnarfulltrúa. Hér virðist, að sú samþykkt Alls- herjarþingsins að veita skæru- liðahreyfingu Arafats, PLO, rétt til aðildar, þótt takmörkuð sé, geti skapað mjög hættulegt for- dæmi. Mörg sambærileg samtök eru til i heiminum, sem e.t.v. vildu fá að senda áheyrnarfull- trúa til S.Þ. og gæti orðið erfitt að draga linu milli þeirra, sem fá ættu fulltrúa á þingið, og hinna, sem þeirra réttinda ættu ekki aö njóta. Eftir nokkra daga dvöl hér i aðalstöðvum S.Þ. er ljóst, hverjir Framhald á bls. 4 Föstudagur 6. desember T974.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.