Alþýðublaðið - 10.12.1974, Qupperneq 8
Vikingar stöðvuðu
sigurgöngu Hauka
Markahæsti maöurinn i 1. deild,
Höröur Sigmarsson, skoraöi 500.
markiö i X. deild, og var þaö jafn-
framt fyrsta markiö i leik Vikings
og Hauka scm leikinn var á
sunnudagskvöldiö.
Tap i þessum leik hjá Viking
gerði vonir um að sigra i mótinu
að nær engu, og var þvi greinilegt
að þeir lögðu mikla áherslu á að
sigra. Haukarnir komust i 4-2, en
þá náðu Vikingar góðum kafla og
náðu að jafna 4-4 og ekki nóg með
það, heldur héldu þeir áfram að
skora án þess að Haukunum tæk-
ist að svara fyrir sig og þegar
flautað var til hálfleiks var stað-
an orðin 8-4 fyrir Viking.
f seinni hálfleik eyðilögðu dóm-
ararnir leikinn gjörsamlega með
furðulegum dómum sinum og oft
á tiðum vissu leikmennirnir ekki
á hvað þeir dæmdu. Kom það
nokkrum sinnum fyrir í leiknum
að annar dæmdi Víkingum bolt-
ann, en hinn Haukum og annar
dæmdi mark en hinn dæmdi
aukakast. En það er fremur
sjaldgæft að sjá dómara vera á
öndverðum meið svo oft hvor við
annan eins og þarna áttisér stað.
1 seinni hálfleik varð Páll
Björgvinsson fyrir þvi óhappi að
nefbrotna illa og varð hann af
þeim orsökum að yfirgefa völlinn,
en þá var staðan 12-8 fyrir Viking.
Héldu nú margir að Haukum tæk-
ist að vinna upp muninn þvi Páll
átti mjög góðan leik, fram að
þessu. Það gerðu þeir lika og þeg-
ar að munurinn var aðeins 2 mörk
14-12 mistókst Herði Sigmarssyni
vitakast, nokkuð sem ekki skeður
oft. Hefði honum tekist að minnka
muninn þarna niður i eitt mark
hefði allt getað gerst i leiknum, en
nú voru það Vikingarnir sem tvi-
efldust og náðu afgerandi stöðu,
18-14, og gerðu með þvi út um
leikinn. Lokatölurnar urðu 18-16,
og þar með töpuðu Haukar sinum
fyrsta leik og er nú FH eina liðið,
sem ekki hefur tapað leik i 1.
deild.
Lið Vikings var seint i gang að
venju og skoraði ekki mark fyrr
en á 12 minútu. Bestan leik átti
markvörðurinn Sigurgeir, en auk
hans komust þeir Viggó, Páll og
Stefán vel frá sinu. Mörkin:
Stefán Halldórsson 6 (3), Einar
Magnússon 3(1), Páll Björgvins-
son 3, Viggó Sigurðsson 3, Skarp-
héðinn Óskarsson 2 og Elias Jóns-
son 1 mark.
Lið Hauka var óvenju dauft i
þessum leik, það var aðeins einn
maður sem lék af fullum styrk-
leika, en það var markvörðurinn
Gunnar Einarsson og sýndi
oft frábæra markvörslu i leiknum
og hætt, er við að hann hafi bjarg-
að liði sinu frá stórtapi i þessum
leik. Mörkin, Hörður Sigmarsson
8 (4), Elias Jónsson 3 og þeir Logi
Sæmundsson, Stefán Jónsson,
Hilmar Larsen, ólafur ólafsson
og Guðmundur Haraldsson 1
mark hver. Mark Guðmundar var
úr viti.
Leikinn dæmdu þeir Magnús V.
Pétursson og Valur Benediktsson
og var dómgæslan likust sirkus,
eins og einum áhorfendanna varð
að orði.
0
Stefán Halldórsson átti skinandi
leik gegn Haukum, og er hann
nú orðinn markahæsti maöurinn
i Vikingsliðinu.
HAFA ÆFT HlA LIVER-
POOL OG CELTIC
1 dag eru væntanlegir til lands-
ins tveir piltar úr knattspyrnu-
deild Vikings sem hafa að undan-
förnu dvalið i Bretlandi og stund-
að æfingar hjá frægum félögum
þar i landi. En það eru þeir Óskar
Tómasson og Gunnlaugur Krist-
finnsson.
„Þeir óskar og Gunnlaugur
hafa dvalið i Bretlandi frá þvi
byrjun nóvember”, sagði Jón
Aðalsteinn Jónsson formaður
Vikings i viðtali við Alþýðublað
ið i gær.
„Fyrst fóru þeir til Celtic i
Skotlandi og dvöldu þar um tima
við æfingar. Það voru þeir séra
Robert Jack og Albert Guð-
mundsson sem aðstoðuðu þá við
að komast þangað.
Þaðan fóru drengirnir til Liver-
pool og hafa æft m.a. með aðallið-
inu þar að undanförnu með góð-
um árangri. Ég reikna með að
þeir hafi leikið eitthvað af æfinga-
leikjum með félaginu, en alla-
vega hafa þeir staðið sig mjög
vel, fyrst þeir fá að æfa með aðal-
liðinu þar.
Það voru þeir Ron Reese og
Antony Sanders sem aðstoðuðu
þá við að komast til Liverpool.
Núna standa yfir samningavið-
ræður milli okkar og Sanders um
að koma hingað aftur næsta sum-
ar til að þjálfa Viking og eins og
útlitið er dag, reikna ég fastlega
með þvi að við náum samningum
við hann”, sagði Jón Aðasteinn að
lokum.
Staðan
í 1. og
2. deild
Þannig
deild.
FH
Haukar
Fram
Vik.
Árm.
Valur
Grótta
er
nú staöan I 1.
4400 84:74 8
4 3 0 1 76:68 6
4220 64:57 6
4202 68:66 4
4202 66:69 4
4100 63:68 2
4013 73:81 1
4 0 1 3 69‘.80 1
menn eru:
HörðurSigmarss.
Haukum 38(15)
Björn Pétursson Gróttu 23( 9)
Viðar Simonarson FH 22( 6)
Stefán Halldórss. Vik 19( 5)
EinarMagnúss. Vik., 16( 6)
PálmiPálmason Frpm 16( 9)
AgústSvavarssonlR 15
Geir Hallsteinsson FH 15( 1)
1 2. deild er staöan nú þcssi:
KA
Þór
Þróttur
KR
IBK
UBK
Stjarnarn
Fylkir
Eiga þeir heimaleikinn fyrst og á hann
að fara fram milli 17. og 23. janúar
Um helgin var dregið um það
.hvaða lið leika saman i 8 liða úr-
slitum Evrópukeppninni i hand-
knattleik.
Mótherjar FH verða A-Þýsku-
meistararnir ASK Vorwaerts
Frankfurt og eiga FH-ingar
heimaleikinn fyrst. A sá leikur að
fara fram á milli 17. og 23. janúar,
en seinni leikurinn i A-Þýskalandi
i byrjun febrúar. Þetta þýðir að
sjálfsögðu að Ólafur Einarsson
fær að leika með i 8 liða úrslitun-
um.
Hin liðin drógust þannig sam-
an:
Arhus KFUM-Borac Banja Luka
Júgóslaviu
Gummersbach-Spartacus
Ungverjal.
Steaua Rúmeniu-Skoda Plsen
Tékkóslóvakiu.
Einn efnilegasti knattspyrnu-
maður okkar I dag, Vikingurinn
Óskar Tómasson.
-- Luton 2-0
|PíÖ&S ei Ewiion 0 2
yverpool—Berby 2-2
Manch. City Sheff. Utd. \yi
Tottenham-Newcastle ' 3-0
West Ham—Leeds 2-1
21 10 7 4 36-25 27
.. .qn 20 7 12 1 29-19 26
ManCitý 21 11 4 6 29-27 2f
t .......-—1 20 10 5 = nn ,c
Leeds 21 8 4 9 27-23 20
Birmingh. 21 8 4 9 31-32 20
Wolves 20 6 8 6 24-25 20
ToUenham2l 7 5 9 26-26 19
Coventry 21 5 8 8 28-39 18
QPR 21 6 5 10 22-30 17
Arsenal 20 6 4 10 24-27 16
Chelsea 20 4 8 8 21-35 16
Leieester 19 5 5 9 20-27 15
Carlisle 21 6 3 12 19-25 15
Luton 20 1 7 12 17-33 9
2. deiíd
Man.Utd. 21 14 4 3 38-17 32
Sunderl. 20 11 5 4 38-16 27
Norwieh 20 9 8 3 27-15 26
WBA 21 9 7 5 25-15 25
Aston Vil)a20 9 5 6 32-16 23
Hull City 21 8 7 6 26-35 23
BristolC 20 8 6 6 17-12 22
Brist.R 21 8 6 7 22-25 22
Oxford 21 9 4 8 21-33 22
Blackpool 21 7 7 7 21-17 21
NottFor. 21 8 5 8 24-28 21
NottS.Cö. 21 6 8 7 26-32 20
Bolton 20 ,7 5 821-21 19
YorkCity 21 7 5 926-28 19
Fulham 20 6 6 823-19 18
Orient 20 4 10 615-23 18
Southam. 19 6 5 8 26-29 17
Oldham 19 5 5 9 21-26 15
Cardiff 19 5 5 991-30 15
Sheff.Wed- 21 4 7 1024-33 15
Millvall 20 4 6 1020-29 14
Portsm. 21 3 8 1015-30 14
FH-ingar fengu
a-þýsku meistarana
Þriöjudagur 10. desember 1974