Alþýðublaðið - 23.01.1975, Síða 1
Óveðrið olli
skemmdum í Hveragerði
Mikiö fárviðri geisaði um allt land i gær, en einna
verst mun þó ástandið hafa verið i Hveragerði. Aö
sögn Isaks Jónssonar i Hveragerði, þá urðu þar tals-
verðar skemmdir, þakplötur fuku af nokkrum hús-
um, rafmagnsstaurar féllu og fárviðri slikt, að fólk
hætti sér ekki út á götur bæjarins. Þá brotnuðu marg-
ar rúður i nokkrum gróðurhúsum, og sagðist ísak
hafa talið um fimmtiu brotnar rúður i einni álmunni.
Rúðurnar munu hafa brotnað af vöidum grjótflugs.
Þá henti það einn bilstjóra, þá er hann var að aka
yfir eina götuna, þar sein rafmagnsstaurar höfðu
fallið niður, að hann ók yfir nokkrar raflinur. Það
vildi honum þó til lifs, að búið var að taka af þeim all-
an straum, en heldur brá honum þegar Hnurnar lyft-
ust i einni hviðunni og billinn með. Hann komst þó
ferða sinna að lokum.
SJOMENN I VERK-
FALL 10. FEBRÚAR
SEMJIST EKKIFYRIR
ÞANN TIMA
22. janúar 1975 — 17. tbl. 56. árg.
Rösklega 30 krónur af hverjum bensínlítra renna í ríkissjóð.
DYPSTA
LÆGÐ Á
ÞESSUM
VETRI!
„Veðurofsinn i dag
stafar af þvi að nú geng-
ur yfir okkur ein dýpsta
lægð vetrarins og hefur
þrýstingur i lægðar-
miðju komist niður i 940
millibör”, sagði Páll
Bergþórsson, veður-
fræðingur, i viðtali við
Alþýðublaðið i gær, en
mikið hvassviðri var þá
á öllu landinu.
Páll sagði ennfrem-
ur: „Það hefur verið
austanátt um allt land
og vindur komist i 12
stig á Hornafirði, Fag-
urhólsmýri, i Æðey og
að sjálfsögðu á Stór-
höfða. Heldur virðist
veðrið vera að ganga
niður með kvöldinu, en
þó getur það stafað af
þvi að vindáttin er að
breyta sér, i norð-aust-
an, og veður gæti þvi
enn versnað sumsstað-
ar. 1 fyrramálið ætti þó
að draga úr þvi viðast
hvar og eftir hádegið
verður liklega orðið
sæmilegt að aftur.
RIKIÐ GRÆÐIR 2.600
MILUÚNIR A HÆKK-
IINUM A OLiU 0G
BENSlNI
Hinar gifurlegu
hækkanir á oliuverði, sem
dunið hafa á íslendingum
eins og öðrum þjóðum
allt siðan haustið 1973,
hafa gefið rikissjóði
drjúgan aukaskilding i
sinn hlut. Þannig munu
tekjur rikisins af bensini
og gasoliu hafa aukist um
2.600 milljónir á ári og er
þá miðað við þær oliu-
verðshækkanirnar, sem
orðið hafa frá hausti 1973
og fram til siðustu ára-
móta.
Auk þess hafa tolltekjur
rikissjóðs aukist mjög
verulega á umræddu
timabili af hvers konar
innfluttum vörum, sem i
verðlagningu eru að
meira eða minna leyti
háðar oliuverði.
Alþýðublaðið leitaði til
Onundar Asgeirssonar,
forstjóra Oliuverslunar
Islands, h.f., og spurði
hann, hve tekjur rikis-
sjóðs hafi aukist mikið
beinlinis vegna
hækkananna á oliu-
verðinu. önundur reikn-
aði út fyrir blaðið, hver
þessu tekjuaukning er, og
niðurstaðan er sú, að
vegna hækkana á bensini
(bilabensini) frá hausti
1973 og fram til siðustu
áramóta, hafa tekjur
rikissjóðs i hvers konar
opinberum gjöldum á
bensini aukist um 1.700
milljónir króna á árs-
grundvelli, en um 800
milljónir af gasoliunni.
Eins, og kunnugt er
kostar nú hver bensinlítri
kr 51.00. Samkvæmt upp-
lýsingum, sem Alþýðu-
blaðið aflaði sér hjá Val-
geiri Arsælssyni i við-
skiptaráðuneytinu, renna
rúmlega 30.00 krónur af
þessari 51.00 krónu til
rikisins, eða 59% útsöiu-
verðsins. Tekjur rikisins
af hverjum bensinlitra
eruþessar: 50% innflutn-
ingstollur, vegagjald
krónur 16.00 og siðan 19%
söluskattur.
Jón Sigurðsson, for-
maður Sjómannasam-
bands Islands skýrði
Alþýðublaðinu frá þvi i
■ gærkvöldi, að
samninganefnd sjó-
manna vegna báta-
kjarasamninga hafi á
fundi sinum i gær sam-
þykkt einróma ályktun
um að beina þeim til-
mælum til aðildarfélaga
Sjómannasambands
Islands, sem sagt hafa
upp kjarasamingum
umbjóðenda sinna á
bátaflotanum, að þau
boði til vinnustöðvunar,
er taki gildi eigi siðar en
á miðnætti 10. febrúar
næstkomandi, hafi
samningar ekki tekist
fyrir þann tima.
Jón sagði i samtali við
Alþýðublaðið, að enn
ekki verið tekin afstaða
til hugsanlegrar verk-
fallsboðunar vegna
samninga sjómanna á
togurunum.
Eins og kunngt er
hefur sjómannadeilunni
verði visað til sátta-
semjara. Hvorki hefur
gengið né rekið i við-
ræðum sjómanna og út-
gerðarmanna til þessa
og hafa nýir fundir ekki
verið boðaðir. —
Ráðuneytið
að ganga
frá kærunni
„Ekki hefur verið
formlega gengið frá
kærunni fyrir heimild-
arlausar rækjuveiðar i
Húnaflóa”, sagði Þórö-
ur Asgeirsson, ráðu-
neytisstjóri i sjávarút-
vegsráðuneytinu, „en
þetta atferli verður
kært, samkvæmt fyrri
yfirlýsingum ráð-
herra”.
Kvað ráðuneytisstjór-
inn vera um það að
ræða, að bátur hefði
verið sviftur veiðileyfi,
en þrátt fyrir það hefði
hann haldið veiðum
áfram. Það væri þvi
augljóst mál, að þettta
yrði kært, eins og áður
greinir. Þar sem ekki
hefur enn verið gengið
formlega frá kærunni,
er ekki kunnugt um,
hvernig málatilbúnaði
verður hagað.
EIGN SALTFISKDEILDAR
VERÐJÖFNUNARSJÖÐSINS
JÚKST ÚR 300 í 1000
MILLJÚNIR Á S.L. ARI
,,Þegar litið er á útf lutnings-
afurðir f iskiðnaðarins, er
Ijóst, að saltfisksalan á árinu
1974, hefur gengið vonum
framar, og staðan i saltfisk-
deild Verðjöfnunarsjósð sýnir
um 1 milljarð króna eign mið-
að við sl. áramót", sagði isólf-
ur Sigurðsson, fulltrúi, i viðtali
við Alþýðublaðið.
Verðjöfnunarsjóður fiskiðnaðarins
skiptist i þrjár deildir: 1) Freðfisk-
deild, 2) Mjöl- og lýsisdeild, 3) Salt-
fiskdeild
Undir freðfiskdeildina heyra humar
og rækja, auk þess, sem almennt er
nefnt freðfiskur. Mjöl og lýsi eru mest-
megnis afurðir sildar og loðnu. Skreið
er enn ekki komin inn i verðjöfnunar-
sjóðinn.
Eign saltfiskdeildar um áramót ’73-
’74 var tæpar 300 milljónir króna, og
hafa þvi greiðslur af sölu saltfisks árið
1974, numið um 700 milljónum króna.
Staðan hjá freðfiskdeild verðjöfnun-
arsjóðs er um 1,5 milljarður króna
eign miðað við siðustu áramót, sem er
sama staða og um áramótin 1972-73.
Til þess að mæta verðsveiflum i
mjöl- og lýsisútflutningi voru um ára-
mótin um 200 milljónir tii skiptanna.
Þrátt fyrir verðfall á mjöli, sem mætt
hefur verið með 240-50 milljónum
króna á sl. ári, hefur lýsisverðið vegið
nokkuð á móti.
Veröjöfnunarsjóður fiskiðnaðarins
er i vörslu Seðlabanka Islands.