Alþýðublaðið - 23.01.1975, Blaðsíða 9
Lyftu sér upp um 4 sæti í 1. deild
Víkingur læddist í efsta
sætið eftir nauman sigur
gegn Ármanni
. Vikingar stukku upp um
4 sæti á stigatöf lunni eftir
nauman sigur yfir Ár-
manni á þriðjudagskvöld-
ið. Hafa þeir nú hlotið 11
stig og eru i efsta sætinu,
en næstu 4 lið eru með 10
stig eftir jafnmarga leiki
svo allt getur gerst ennþá.
Vikingarnir skoruöu fyrsta
mark leiksins en eftir það náöu
Armenningar forystunni i leikn-
um og léku þeir þá oft á tiðum
ágætlega. Höfðu þeir 2 mörk yfir i
hálfleik 10-12.
t seinni hálfleik juku Armenn-
ingar forskotið og komust þá i
10—14, en þá var tveim þeirra
vikið af leikveili með stuttu milli-
bili og Vikingum tókst aö jafna
14—14.
Tóku þeir þá Hörð Harðarson
úr umferð og virtist það gefa góða
raun, þvi nú jafnaðist leikurinn.
Mátti sjá tölurnar 15—15, 16—16
og 17—17. En þá var Armenningi
vikið af leikvelli i 2 minútur og á
meðan tókst Vikingum að skora
tvivegis 19—17. Armenningum
tekst að minnka muninn i 1 mark
19—18, og rétt á eftir er Vikingi
vikið af velli i 2 minútur og voru
þá eftir rétt rúmar 2 minútur af
leiknum og ljóst aö Vikingar
myndu leika einum færri það sem
eftir var leiksins nema rétt
nokkrar sekúndur i lokin.
Armenningarnir jöfnuðu 19—19
og allt virtist geta gerst i
leiknum, þar sem Vikingarnir
voru einum færri. —
En Páll Björgvinsson sem litið
hafði haft sig i frammi til þessa
með að skora mörk, en matað fé-
laga sina þess meira, skoraði fall-
egt mark 20—19. Armenningar
bruna upp, en missa boltann og
Sigfús Guðmundsson innsiglaði
svo sigur Vikings eftir hraðaupp-
hlaup.
Vikingar áttu i miklu basli með
Armannsliðið og var ekki útséð
um hvoru megin sigurinn lenti
fyrren leikurinn var flautaður af.
Ekki er hægt að segja að leikur-
inn hafi verið vel leikinn hjá lið-
inu, til þess var of mikið af villum
i leiknum. Bestir i liði Vikings
voru Stefán Halldórsson, Páll
Björgvinsson, Sigfús Guðmunds-
son og Skarphéðinn Óskarsson
sem er lika drjúgur leikmaður.
Einar Magnússon var óvenju
daufur i þessum leik enda vel
gætt.
Mörk Vikings: Stefán Halldórs-
son 7 (2), Sigfús Gúðmundsson 5,
Einar Magnússon 3, Skarphéðinn
Óskarsson 3 og Erlendur
Halldórsson, Jón Sigurðsson og
Páll Björgvinsson 1 mark hver.
Armenningar léku oft ágætlega
i þessum leik og hefðu allt eins
getaðsigraðihonum. Það var lið-
inu dýrt spaug þær brottvisanir af
leikvelli sem liðið fékk i seinni
hálfleik. Þá virtist það hafa slæm
áhrif þegar einn leikmanna liðs-
ins var tekinn úr umferð.
Af þeim Armenningum komst
Björn Jóhannsson mjög vel frá
þessum leik, en liðið er skipað
mjög jöfnum leikmönnum sem
erfitt er að gera upp á milli.
Mörk Armanns: Björn Jó-
hannsson 7, Hörður Harðarson 3,
Jón Astvaldsson 3, Pétur Ingólfs-
son 2, Hörður Kristinsson 2, Jens
Jensson og Kristinn Ingólfsson 1
mark hvor.
Leikinn dæmdu þeir Valur
Benediktsson og Hannes Þ. Sig-
urðsson.
Stefán Halldórsson átti mjög góðan leik gegn Armenningum og átti
stóran þátt Isigri Vikings Meiknum. Hann var lika markahæstur þeirra
Víkinga i leiknum.
Gagnkvæmt trygglngafélag ?
Já, Samvinnutryggingar g.t. eru
gagnkvæmt tryggingatelag.
Fimmtudagur 23. janúar 1975.
o