Alþýðublaðið - 23.01.1975, Side 2
Staðgreiðsla skatta
Alþýöublaöiö haföi þaö eftir
fjármálaráöherra i gær, aö
rikisskattstjóra heföi veriö
faliö aö semja greinargerö um
staögreiöslukerfi skatta og
semja tillögur þar aö lútandi
er lagöar veröi fyrir rikis-
stjórnina. Rikisstjórnin muni
svo taka máliö til meöferöar
og fallist hún á hugsanlegar
tillögur rikisskattstjóra um
staðgreiöslukerfi skatta muni
máliö veröa lagt fyrir Alþingi
þegar i vor til afgreiöslu.
Þá haföi Alþýöublaöiö
einnig tal af formönnum
fjögurra stjórnmálaflokka —
Alþýöubandalagsins SFV,
Framsóknarflokksins og
Alþýðuflokksins. Voru þeir
allir frekar hlynntir stað-
greiðslukerfinu.
Aðgátar þörf.
Aö sjálfsögöu er nauösyn-
legtaö gera rækilega athugun
á þvi, hvort staðgreiöslukerfi
skatta henti betur en það
kerfi, sem við nú höfum. Ekki
fer á milli mála, að staö-
greiöslukerfiö er miklu
hentugra og æskilegra en nú-
verandi „eftirákerfi” frá
sjónarmiöi þeirra atvinnu-
stétta, sem hafa sveiflu-
kenndar tekjur — t.d. sjó-
manna. En þaö er spurning,
hvort þaö sé til nokkra veru-
legra bóta fyrir þá launþega,
sem hafa nokkuö jafnar raun-
tekjur milli ára Hvað þá
varöar er staögreiöslukerfi i
rauninni i gildi sem nú stendur
vegna hinna lögboðnu fyrir-
framgreiöslna.
Rik ástæöa er þó til þess aö
vara viö einu þegar i upphafi
og þaö er, að staögreiöslu-
kerfiö sé ekki notaö sem yfir-
varp fyrir skattþyngingu.
Eins og nú standa sakir, þá
má segja, að menn borgi 45%
af umframtekjum sinum
(tekjum aö frádráttarliöum
frádregnum) i skatta. Spurn-
ingin er hins vegar ekki um,
hversu hátt þetta hlutfall sé af
tekjum álagningarárs heldur
af tekjum ársins á eftir —
þess árs, sem skatturinn er
greiddur á. A undanförnum
árum hafa ávallt átt sér staö
talsveröar kauphækkanir i
krónutölu á milli ára þannig
aö þótt segja megi, að
skatturinn taki til sin 45% af
umframtekjum álagn-
ingarársins hefur hlutur hans
af tekjum greiösluársins veriö
mun minni. Og það er auð-
vitaö það hlutfall, sem máli
skiptir.
Nú kann svo aö fara, aö
rikisstjórn freistist til þess aö
gera 45% skattheimtu af um-
framtekjum aö reglu þegar
staögreiöslukerfi yröi upp
tekiö meö tilvisun til þess, aö
þaö hlutfall hafi veriö i gildi i
„eftirákerfinu”. Slikt myndi
auövitaö fela i sér verulega
nettóaukningu á skattbyröinni
miöaö viö ástandiö, eins og
þaö hefur verið. Þótt menn
séu fylgjandi meginhugmynd
staögreiöslukerfisins ættu þeir
þvi aö vera vel á varðbergi
um framkvæmdina. Fjölmörg
viti þarf þar aö varast til við-
bótar viö þaö, sem hér hefur
verið nefnt. SB
GENGISSKRÁNING
Nr. 14 - 22. janúar 1975.
SkráS írá Eininu Kl. 13,00 Kaup Sala
30/12 1974 1 Bandarfkjadollar 118, 30 118,70
22/ 1 1975 1 SterlinEspund 280, 50 281,70 *
17/1 - 1 Kanadadollar 119, 20 119,70
22/1 - 100 Danskar krónur 2129,50 2138, 50 *
- - 100 Norskar krónur 2337, 20 2347,10 *
- - 100 Saenskar krónur 2941,40 2953, 80 *
21/1 - 100 Finnsk mörk 3353, 65 3367,85
22/1 - 100 Franskir frankar 2742,00 2753, 60 »
- - 100 BelE. frankar 337, 45 338, 85 *
- - 100 Svissn. írankar 4738, 55 4758, 55 «
- - 100 Gvllini 4858, 30 4878, 80 *
- - 100 V. -Þýfck mörk 5051, 20 5072,60 *
- - 100 Lýrur 18, 40 18,48 *
- - 100 Austurr. Sch. 712, 80 715,80 *
- - 100 Escudos 485, 35 487,35 *
17/1 - 100 Pesetar 210, 40 211, 30
22/1 - 100 Yen 39, 35 39, 52 «
2/9 1974 100 Reikningskrónur- Vöruskiptalönd 99,86 100, 14
30/12 " 1 Reikningadollar- Vöruskiptalönd 118, 30 118,70
* Breyting frá sfðuatu Bkráningu.
í hreinskilni
sagt
eftir Odd A. Sigurjónsson
Hvorum endanum á
að trúa?
„Þaö er ekki svo oft, sem
hún Astriöur min deyr” var
haft eftir ekkli, sem var að
hvet ja menn til aö neyta þess
sem fram var borið i erfis-
drykkju konu hans.
Þaö ber sannarlega ekki
oft viö aö kommúnistar ræði
eöa riti i léttum tón um menn
eða málefni. Til þess eru þeir
auövitaö alltof alvarlega
hugsandi, eöa taka þá sjálfa
sig alvariegar en efni standa
til.nema hvorttveggja sé. En
allt um þaö ber þó viö, aö
þessi hvitglóandi alvara
veröi einkar brosleg, þott
þeir auövitað sjái það manna
slzt sjálfir.
t nöldurhorni I fyrradag
hellir úþ úr skálum reiði
sinnar yfir ihaldið I Reykja-
vik fyrir að hafa valiö til
yfirstjórnar slökkviliösins
hér gersamlega óhæfa menn.
Þetta hafi sannazt á, þegar
REYKJAVÍKURDEILD
Rauða kross íslands
NÁMSKEIÐ:
SKYNDIHJÁLP
Þriðjudaga og fimmtudaga kl. 20-22, i sex skipti.
Byrjar 30. janúar n.k.
Hagaskóli: kennari Hafþór Jónsson,
Breiðagerðisskóli: kennari Guðjón Petersen.
Álftamýrarskóli: kennari Sigurður Sveinsson.
NÁMSKEIÐ:
Aðhlynning sjúkra
í heimahúsum
Þriðjudaga og miðvikudaga kl. 17-19, i sjö skipti.
Byrjar 29. janúar n.k.
öldugata 4: kennari Kristbjörg Þórðardóttir.
Námskeiðin eru ókeypis og öllum heimil þátttaka.
Upplýsingar og innritun i sima 2-82-22 og að öldugötu
4.
bruninn varö á Flugvellinum
um daginn. Þá hafi öll
viöbrögð slökkviliösins og
stjórn á liöinu veriö meö
hreinum endemum, sem lýst
er meö sterkum oröum. Ekki
dreg ég i efa, aö Ihaldinu séu
hér mislagðar hendur um
margt og vist var niður-
staöan af slökkvistarfinu
herfileg. Þvi má vel vera, aö
úþ hafi I þessum skrifum sin-
um hitt naglann rækilega á
höfuðiö. En svo skulum við
fletta blaðinu áfram. A
sjöundu siöu veöur svo annar
spámaður fram á ritvöllinn,
og sizt minna hneykslaður
vegna sama máls. En
hneykslun hans er reyndar
af allt öðrum toga spunnin.
Fréttamenn útvarps og sjón-
varps höfðu nefnilega, að
hans dómi gengið ákaflega
og sennilega alltof hart að
stjórnendum slökkviliðanna
meö spurningum um þennan
valega atburð og það sem
kveikti i honum var að þeim
varö á að spyrja hvort það
heföi ekki verið mistök, að
þiggja ekki aðstoð frá bruna-
liöinu á Keflavíkurflug-
velli! Hér skal ekki um þaf
dæmt, hvort þaö hefði komiö
aö haldi. En meö hliðsjón af
þvi, aö það mun vera leiöar-
ljós slökkviliöa, að freista
þess aö kæfa eld með öllum
tiltækum ráðum, voru
spumingar fréttamannanna
á engan hátt óeðlilegar, þar
sem þaö er ennfremur hlut-
verk fréttamanna að freista
þess aö upplýsa mál eftir
föngum.
Nú beinist hneykslunin
ekki siöur að því að frétta-
mennirnir skyldu ekki tafar-
laust fallast á mat hinna ger-
óhæfu slökkviliösforkólfa, aö
dómi úþ!
Upp úr þessu er svo
spunninn lopi um að hér sé
veriö að fremja ósvifinn
áróöur fyrir hersetu, sem er
auövitaö að hans dómi, mjög
óviröulegt athæfi. Ekki er nú
hægt aö segja, að seilzt sé
um hurö til lokunnar, eða hitt
þó heldur!
En séu þeir félagar lagðir
saman meö sina áfellisdóma
kemur I ljós, að annar
hneykslast mest á þvi, að
treysta ekki þvi i einu og
öllu, sem hinn telur með öllu
óhafandi. Varla verður hjá
þvi komizt, að minnast
skrýtlunnar um manninn,
sem nálgaöist hund, sem i
senn urraði og dinglaði
rófunni. Hann vissi ekki
hvorum endanum átti að
trúa. Eflaust er almenning-
ur, sem fær svipaðar
upplýsingar á sama degin-
um, likt á vegi staddur.
Auglýsið í
Alþýðublaðinu
lalþýðu
28660
'Halnartiaröar Apótek
Afgreiðslutími:
Virka daga kl. 9-18.30
Laugardaga kl. 10-12.30.
Helgidaga kl. 11-12
Eftir lokun:
Upplýsingasími 51600.
BLÖMABÚÐIN
BLBMASKREYTIN&flR
ÞAÐ B0RGAR SIG
AÐVERZLA f KR0N
Dunn
í GlHflBS
/ími 84200
©
Fimmtudagur 23. janúar 1975.