Alþýðublaðið - 21.02.1975, Side 7
1
ningu
Bach. Það má ef til vill segja
með nokkrum sanni aö nUtima-
tónskáld semji af meiri tækni og
minni andgift en gömlu meist-
aramir gerðu, en það er þá
þetta með andann, hvað er hann
eiginlega. Kiljan sagðist á sin-
um tima ekki þekkja neinn
anda, heldur setjast bara niður
og skrifa. Það má ef til vill hið
sama gilda um tónlist, hún er
fyrst og fremst geðhrif, stemn-
ing sem svoliður hjá. Hún er list
stundarinnar, likt og leikhúslist
og hvað er betra, hvað verra,
hvað andagift og hvað tækni,
hlýtur alltaf að vera smekksatr-
iöi. Menn semja vissulega ekki
eins nú og fyrir nokkrum ár-
hundruðum, en ég held ekki að
við getum dæmt um hvort þeir
semji betur eða verr. Nútima-
tónlist á jafn mikinn rétt á sér
og önnur tónlist og hvað varðar
sinfóniuhljómsveitina, þá hefur
meira að segja komið til tals að
halda popptónleika”.
Afmælistónleikar Sinfóniu-
hljómsveitarinnar verða i Há-
skólabiói, fimmtudaginn 20.
febrúar klukkan 20.30. Stjórn-
andi verður Karsten Andersen,
sem nú er aðalhljómsveitar-
stjóri,og einleikari verður fiðlu-
leikarinn Itzhak Perlman. Þá
verður frumflutt verkiö Lág-
nætti eftir Jón Nordal, fluttur
verður fiðlukonsert eftir Sibeli-
us og að lokum sinfónia númer
niu i C-dúr eftir Schubert.
Frá þvi Sinfóniuhljóms.veit ts-
lands tók til starfa, hafa komið
við sögu hennar nokkuð margir
frægir og mjög færir hljómlist-
armenn, bæði hljóðfæraleikarar
og stjórnendur. Mætti þar sér-
staklega nefna til risana tvo,
André Previn og Vladimir
Ashkenazy og er skemmst að
minnast framlags hljómsveit-
arinnar til Listahátiðar, með
fulltingi þeirra tveggja.
reynst Islensku tónlistarlifi jafn traust
Hér er hann i hlutvcrki stjórnandans, en
rk einleikarans mcð sinfóniuhljómsvcit-
Sinfóniuhljómsveit tsiands við upptöku í gamia útvarpssalnum. tJtvarpið er aöili aö rekstri hennar og einn af föstum liðum dagskrár
hijómsveitarinnar er að leika i útvarpssal.
★
★
☆
★
☆
★
☆
★
STJÖRNUSPÁIN
★
VATNS-
BERINN
20. jan. - 18. feb.
GÓÐUR
Þetta er sérstaklega
góður dagur til þess að
eiga við áhrifamenn og þú
skalt nota þér velvild
þeirra i þinn garð. Per-
sónulegt framtak þitt,
heima fyrir eða i vinn-
unni, gæti opnað þér leið
að fjárhagslegum ávinn-
ingi.
TVI-
BURARNIR
21. maí - 20. júní
GÓÐUR
Haltuótrauð(ur) stefnu
þinni og gerðu hvað þú
getur til að þoka áætlun-
um þinum áfram. Ahrifa-
fólk er liklegt til að vera
þér hliðhollt i dag. Dagur-
inn er dýrmætur með til-
liti til stöðu þinnar á
vinnustað og skyndileg
stöðuhækkun möguleg.
★
VOGIN
23. sep. - 22. okt.
GÓÐUR
Dagurinn er sérlega
hagstæður til þess að
þoka áfram áætlunum
þinum i sambandi við við-
skipti og klifur i þjóðfé-
lagsstiganum. Ahrifafólk
verður fúst til að veita þér
stuöning sinn og hvatn-
ingu. Leggir þú þig sér-
lega fram, ætti árangur-
inn að koma fljótt i ljós.
FISKA-
MERKIÐ
19. feb. - 20. marz
GÓÐUR
Sköpunargáfa þin,
frumleiki og hugmynda-
flug ættu að veraj'algeru
hámarki i dag. Þar sem
dagurinn er einnig hag-
stæður gagnvart yfir-
mönnum þinum, ættir þú
að reyna að gera mikið úr
honum. Beittu ákveðni
þinni og persónutöfrum.
KRABBA-
MERKIÐ
21. júní - 20. júlí
GÓÐUR
Sérlega góður dagur til
að þoka skapandi áform-
um þinum fram á veg,
þar sem áriðandi stuðn-
ingur berst að i bæði fjár-
málum og öðrum málum.
Vertu
eins aðlaðandi og þú
getur og engan þumbara-
hátt.
SPORÐ-
DREKINN
23. okt - 21. nóv.
GÓÐUR
Dagurinn er heppilegur
fyrir persónuleg málefni
þin. Nýjar hugmyndir eða
upptaka nýrra aðferða,
gætu aukið mikið gildi
skapandi starfa þinna.
Heppni gæti orðið á vegi
þinum gegnum áhrif
mikilvægs kunningja
þins.
HRUTS-
MERKIÐ
21. marz - 19. apr.
BREYTILEGUR
Dagurinn getur orðið
hagstæður, svo framar-
lega sem þú forðast ráð-
gjöf vina þinna og fram-
kvæmir ekkert vanhugs-
að. Vertu á verði gagn-
vart freistingunni að
eyða um of. Dagurinn er
góður til að sinna málefn-
um eldri ættingja.
LJÓNIÐ
21. júlí - 22. ág.
GÓÐUR
Viöskipti þin ganga vel
i dag einkum þau sem þú
stendur i með vinum þin-
um. Astarlifið gæti breyst
mikið til hins betra,
möguiega vegna áhrifa
skilningsriks vinar. Hafi
heilsan hrjáð þig undan-
farið, ætti hún að skána i
dag.
BOGMAÐ-
URINN
22. nóv. - 21. des.
GÓÐUR
Heimilið leiku stórt
hlutverk i ánægju þeirri
sem þú getur fundið i dag.
Dveljir þú heima við og
sinnir ástvinum þinum,
verða þeir ánægðir og sú
innistæða er gulli dýr-
mætari. óvænt heppni
gæti breytt f járhagsstöðu
þinni mikið.
Jf NAUTIÐ
20. apr. - 20. maí
GÓÐUR
Viðskiptamálin halda
áfram að þróast á hag-
stæðan máta fyrir þig.
Það gæti þó hent sig að
árekstur verði milli hags-
muna fjölskyldu og vinnu,
sérstaklega þar sem þú
ert of upptekin(n) af
vinnunni.
MEYJAR-
MERKID
23. ág. - 22. sep.
GÓÐUR
Serlega góður dagur til
að leita eftir aðstoð við
þauverkefni sem krefjast
tveggja höfða eða fleiri.
Ahrifafólk verður liklega
fúst til að styðja við bakið
á þér, sérstaklega ef þú
hittir það i opinberu sam-
kvæmi. Nýjar hugmyndir
væru ekki úr vegi.
©
STEIN-
GEITIN
22. des. - 19. jan.
GÓÐUR
Sérlega góður dagur til að
blanda viðskiptum og
skemmtan saman.
Notaðu þér til fullnustu
hvert tækifæri sem þér
býðst til þess að skemmta
þér með fólki sem þú
jafnframt getur átt við-
skipti við. Samvinna við
aðra gefur bestan arð
þennan dag.
Föstudagur 21. febrúar 1975.