Alþýðublaðið - 21.02.1975, Qupperneq 12
alþýðu
n Pmn:
l'lastns liF
PLASTPDKAVERKSMIOJA
Símar 82639-82655
VatnBgörðum 6
Box 4064 — Reykjavík
KÓPAVOGS APÓTEK
Opið öll kvöld til kl. 7
Laugardaga til kl. 12
SENDIBIL ASTÖD/M Hf
Hvað kosta búsáhöldin?
Viö höfum udnanfarna daga
veriö aö reyna að gera okkur
grein fyrir, hvað kostaði að
byrja búskap. í gær og fyrradag
athuguðum við raftæki og hús-
gögn. tdag eru á dagskrá búsá-
höld.
Matur er mannsins megin,
segir gamalt máltæki. Við fór-
um inn i búsáhaldaverslun og
spurðum fyrst um potta. Þeir
eru til á tólf til sautján hundruð
krónur eftir stærð, en hægt er að
fá litrik pottasett, 8 stykki mis-
stóra og 3 pönnur samstæðar, á
þrjátiu þúsund. Raunar voru til
dýrari pönnur, en þær sem
hæfðu þessu setti, með loki á
tæp sex þúsund, en ódýrastar
pönnur eru á 500 krónur. Pönnu-
kökupönnur kosta á sjöunda
hundrað.
1 pottana má sneiða matinn
með hnifum, sem kosta frá 200
krónum, færa upp úr þeim með
spöðum og ausum á svipuðu
veröi, en til að hræra-I þeim fást
sleifar, sem kosta innan við eitt
hundrað krónur.
Matarföt má fá á 2—3 hundruð
krónur hið lægsta og upp i par
þúsund krónur, og diska má fá á
verði frá 100 krónum, hnifapör
frá niutiu krónum stykkið. Það
er hægt að vera riflegri á þessi
áhöld hvað verð snertir. Algengt
Fyrir þau, sem dá heimabakað, hafa viija og getu tii að baka, fást
form, sem kosta innan við tvö hundruð krónur.
Rósir eru i tisku núna, ef marka á búsáhöldin
verð tólf manna matarstella er
um tiu þúsund krónur og hægt er
að fá hnifaparasett ætlað fyrir
sex manns á 1600 krónur. Glös
má fá á 55 krónur en til eru þau
lika á rúmar fjögur hundruð
krónur stykkið, þar er um að
ræða handskorinn kristal.
Þá er röðin komin að kaffinu
eftir matinn. Einfaldar kaffi-
könnur kosta á þriðja þúsund,
bolla með diski má fá á fimmtiu
krónur og teskeiö fyrir þrjátiðu
krónur. Hitabrúsi kostar frá 400
krónum og allt upp i fimm þús-
und krónur (hitakanna). Kaffi-
stell eru virt á 5000 krónur
venjulega, en fá má matar- og
kaffistell fyrir tólf fyrir 25.000,^
krónur.
Mjólkurkönnur kosta 200—600
krónur og kökudiskar kosta frá
300 krónum og til verðs á annað
þúsund.
Sé vilji og geta fyrir að baka
og bera heimabakaðar kökur á
borð, þá kosta form flest eitt til
tvö hundruð krónur. Til að
hræra deigið má nota allt frá ó-
dýrum plastskálum, sem kosta
eitt hundrað krónur, til mun
dýrari skála úr „betri” efnum.
Þá er röðin komin að upp-
vaskinu, þvi verkinu, sem flest-
um finnst gott að komast hjá.
Þar er verðsveiflan mest. Hægt
er að vinna þetta verk með
bursta og stykki, sem kosta
samanlagt innan við fjögur
hundruð krónur. Það má lika
„vera flott á þvi” og fá sér upp-
þvottavél, sem losar eitt hundr-
að þúsundin i verði.
Niöurstaðan er þessi: Nægju-
samt par getur látið sér nægja
fimm til sjö þúsund krónur „til
aö byrja með”, en þeir kröfu-
höröustu eiga ekki i vandræðum
með að fara á þriðja hundrað
þúsunda króna.
Hvort heldur er, þá má ekki
skilja svo við innkaup búsá-
halda, að gleymt sé þvi, sem
oftast er minnst á utan heimilis-
ins, kökukefíinu. Þau kosta frá
fjögur hundruð krónum til fjög-
ur þúsund krónur.
„Ómissandi” á hverju heimili.
Þetta kostar á fjórða þúsund,
en þau erii til ódýrari.
FIMM á förnum vegl
Hvaða búsáhöld þarf til að byrja bú?
Sigrlður Ingimundardóttir:
„Pott, pönnu, ausu, sleif og þvf
um líkt, auk tækja til að elda á.
Það er fyrir mestu að fá mat.”
Sonja Egilsdóttir, húsmóðir:
„Eðlilega dettur mér fyrst i hug
að þurfi potta, pönnu, hnifa og
gaffla.
Þorsteinn Garðarsson, nemi:
„Kaffiáhöld, þaö er að segja
allt, sem til þarf til kaffigerðar.
Auk þess þetta hefðbundna,
potta,pönnur og hnifapör.”
Sina Sigurbergsdóttir, hús-
móðir: „Það þarf margt. Mér
detta fyrst I hug pottar, hrað-
suðuketill og kaffikanna.”
Ragnar Magnússon, skrif-
stofumaður: „Þaö þarf helst
potta og pönnu, diska, hnifapör
og þess háttar.”