Alþýðublaðið - 26.02.1975, Page 7

Alþýðublaðið - 26.02.1975, Page 7
við líkamlega ti I- hneigingu til að fá sjúk dóma séu þrenns konar manngerðir, sem sjáist á því, hvernig fólk bregst við vissum aðstæðum. Hann skiptir sjúklingun- um í mikil viðbrögð", „lítil viðbrögð" og „inni- lokaðir". Sjúklingurinn er t.d. spurður: — Ef þú sætir á bekk í almenningsgarði og það kæmi maður, sem þú ekki þekktir, jafngamall þér, jaf nþungur og jaf nstór og sparkaði í sköflunginn á þér — hvað myndirðu gera? Þeir, sem höfðu „mikil viðbrögð" sögðust lú- berja hann. Það voru þeir, sem þjáðust af liða- gigt, æxli í meltingafær- um og æðahnútum. And- stæðan við þessa mann- gerð voru þeir sjúklingar, sem sögðust alls ekki gera neitt. Það eru þeir, sem dr. Ring kallar „lítil viðbrögð". Þeir höfðu til- hneigingu til að bæla niðri tilfinningar eins og ótta og reiði, og þegja yfir hugsunum sínum. í þessum hópi voru menn með gigt og ristilbólgu. Loks er það „inni- iokaði" hópurinn, sem veit, að hann finnur til ótta og reiði, en lætur það sjaldnast í Ijósi. Þessir sjúklingar svöruðu: — Það gæti verið að ég lemdi hann, eða „Ég yrði víst reiður". í þessum hópi voru flestir þeir, sem þjáðust af astma, mígrenu og sykursýki. rvö kerfi Vísindamenn og lækn- ar, sem vinna að rann- sóknum innan psyko- somatíkur standa and- spænis miklum og erfið- um vandamálum. Það veit enginn, hvað fram- undan er, ea vísinda- mönnum hefúrHékist að sanna, að tvö kerfi í mannslíkamanum geti gefið flest svörin: „kirtlakerfið" og limbíska-kerfið". Kitlakerfið nær yfir kirtla líkamans, sem spýta efni beint í blóðið. Efnið, sem þeir gefa frá sér eru hvatar, sem virka beint á líffærin og önnur líffæri, annað hvort með því að örva þau eða draga úr starfsemi þeirra. Hvatar eru mjög sterk efni og það er því, sem læknar hafa í mörg ár gert tilraunir með hvata á mörgum sviðum — allt frá tilraunum til að laga kynferðislegar truflanir til þess að reyna að gera gamlar Hollywoodstjörn- ur unglegri. Það er með þessum hvötum og kirtlastarf- seminni, sem því er stjórnað, hvort við getum brugðist við þeim kröf- um, sem breytingar á umhverfi gera til okkar eða ekki. Þegar við erum t.d. hrædd eða reið sendir adrenalínkirtillinn (sem er einn mikilvægasti lokuðu kirtlanna) andrenalín í blóðið og nær því á stundinni slær hjartað hraðar, vöðvarnir spennast og aðrar inn- vortis breytingar eiga sér stað, sem gera likaman- um unnt annað hvort að berjast við orsökina fyrir reiði eða ótta nú eða flýja. Þegar við erum undir streitu i einhverri mynd heldur adrenalínkirtillinn áfram að spýta hvötum sinum inn í blóðið og likaminn bregst við þeim, án þess að leysa orku úr læðingi, en það myndi gerast, ef líkaminn gerði annað hvort árás eða legði á flótta. Truflanir á hvatastarfseminm Adrenalín eins og noradrenalin, ACTH og aðrir hvatar líkamans er ótrúlega sterkt efni. Að- eins fáeinir krystallar af því, sem leystir eru upp á móti 100 þúsund eining af vatni og sprautað í kött gera hann að villidýri með kryppu og spenntar klær á minna en mínútu. Ef þessum hvötum er spýtt stöðugt inn í líkamann vegna við- bragða manns við hættu- ástandi eða erfiðleikum í lengri tíma, getur það valdið breytingum á líf- færum likamans. Af- leiðingarnar geta orðið þær að fólk vinni of mikið eða ekki nóg og það leiðir aftur til þess, að líffærin starfa ekki eins og þeim ber. Þetta hárfína jafn- vægi, sem er nauðsynlegt til að öll líffæri starf i rétt getur truflast og eins jafnvægið milli tveggja líffæra. Sé litið á [aetta frá öðru sjónarmiði, þá álíta sumir læknar og þar á meðal Wilhelm Reich heitinn og bandaríski geðlæknirinn Alexander Lowen, að þessir hvatar geti hlaðist upp í frumun- um og orsakað dauða bletti i vöðvunum, sem gætu leitt til bólgu og margra annarra sjúk- dóma svo sem geðtruf lana. Hitt kerfið, sem er einnig Fv rannsókn eða „limbíska : js*erf ið" er frumstæður hluti heilans. Paul D. /\AacLean frá Yale háskólánúm hefur komið með kenningu, sem er um, að„the limbic system" vinni í sjálfu sér einsog „varaheili". Hann þýðir" reynslu beint í til- finningar í stað með- vitaðra hugsana og ákvarðana (en um það sér annar hluti heilans, heilabörkurinn). „Limbíska kerfið" verð- ur fyrir miklum áhrifum af ti If inningalegum breytingum. Þetta hefur aftur áhrif á ósjálfráða taugakerfið, sem sér um lífsnauðsynleg störf í líkamanum, s.s. andar- drátt, blóðrás og efna skipti. Rannsóknir á frumstigi Vísindamenn telja, að heilaskemmdir í „limbíska" hluta heilans geti orsakað afgerandi breytingar í hegðun dýra. öskrandi tigrisdýr, sem skaddast í vissum hluta þess, breytist í malandi húsdýr. Það er hægt að láta hrædda apaketti gleyma óttanum og gera mýs að óttalausum villi- dýrum. Kenningin er a.m.k. sú, að „limbíska kerfið" hafi meiri stjórn á sómatískri starfsemi líkamans en nokkuð annað. En rannsóknir eru enn á frumstigi og psykosomatík er rétt að slíta barnsskónum. Vísindalegar rannsóknir á psykosomatík hafa nú gert okkur unnt að kenna læknum að notfæra sér hana. Hún er svo flókin og það er svo erfitt að kenna ungum og lítt reyndum læknastúdent- um að notfæra sér hana og því hafa lækna deildir látið hjá líða að kenna psykosomatík. Eftir því, sem þekktur breskur læknir á þessu sviði segir, tekur það nokkurn tíma fyrir læknavísindin að byrja að skilja hið áður misskilda samband sálar og líkama sem annað og meira en þokukenndar hugleiðing- ar. Á meðan halda rann- sóknir áfram um víða veröld til þess að sanna, hve áþreifanlegt sam- bandið er. Þangað til, segir hann, verðum við aðeins að vera okkur meðvitaðir um eigin ábyrgð og byrja að skilja, að sálarfriður, hvað erf itt svo sem er að öðlast hann, getur orðið eini grundvöllur góðrar heilsu. (þýtt úr þýsku) ★ STJÖRNUSPÁIN ★ ★ ☆ ★ ☆ ★ VATHS- BERINN 20. jan. - 18. feb. GÓÐUR Dagurinn er hagstæður til skapandi starfa, sér- staklega ef þau kalla bæði á þekkingu og hugmynda- flug. Heimsóknir til vina þinna hafa liklega góð áhrif og gætu orðið þér til mikils ávinnings. Skrif- aðu hjá þér allar nýjar hugmyndir FISKA- MERKIÐ 19. feb. - 20. marz GÓÐUR Stuttar ferðir og ráð- stefnur eru undir hag- stæðum áhrifum i dag og þU gætir hraðað þér ofur- litið upp þjóðfélagsstig- ann, ef þú hefur eyrun op- in fyrir upplýsingum að tjaldabaki. Börn valda engum vandkvæðum i dag HRUTS- MERKID 21. marz - 19. apr. BREYTILEGUR Vinir og ættingjar veröa hjálpfúsir i dag, en starfsfélagar aftur ósam- vinnuþýðir og gætu átt til að hindra þig. Þú gætir mætt einhverri mótstöðu frá maka þinum, en dag- urinn er hagstæður til að sinna nánum ættingjum. Láttu ástarmálin i friði. NAUTIÐ 20. apr. - 20. maí BREYTILEGUR Baktjaldamakk getur allt orðið þér til ágóða i dag og þolinmæðisleg leit að smávægilegum upp- lýsingum, getur leitt til athyglisverðrar niður- stööu. Truflanir eru þó mögulegar, sérstaklega i vinnunni. TVI- BURARNIR 21. maí - 20. júní GÓÐUR Dagurinn er góður til að sinna bréfaskiptum og málefnum þeirra sem eru fjarlægir. Hann er einnig hagstæður til að sinna lagalegum málefnum og maki þinn eða ástvinur reynist samstarfsfúsari en þig grunaði. Það getur orðið rólegt KRABBA- MERKIÐ 21. júní - 20. júlí VIÐBURDALÍTILL Þér ætti að takast að hreinsa upp og festa alla þessa lausu enda sem ein- kenna lif þitt svo mjög. Breytingarnar einar færa þó liklega litla ánægju, úthald verður einnig að koma til. Haltu aftur af hugmyndaflugi þinu i fjármálum LJONID 21. júlí - 22. ág. GÓÐUR Einhver náinn og kær er liklegur til að gefa þér þá hvatningu sem þú þarfnast, til þess að halda áfram skapandi störfum þinum. Þér gæti gefist tækifæri til að gera samn- ing, sem gæti aftur hjálp- að þér mikið i starfi. MEYJAR- MERKIÐ 23. ág. - 22. sep. GÓÐUR Ef þú reynir að beita þér ofurlitið meir, gætir þú komið persónulegum áætlunum þinum á rek- spöl i dag. Dugnaður ætti að vera einkenni dagsins hjá þér og ekkert sérstakt að standa i vegi þinum. ★ ★ VOGIN 23. sep. - 22. okt. GÓÐUR Leggðu það á þig sem þörf reynist á, til þess að komast yfir vitneskju þá sem þér er nauðsynleg i listrænum og skapandi tómstundastörfum þinum. Vertu ekki hrædd- (ur) við að nota imyndun- arafl þitt, jafnt og tækni- lega hæfileika þina. 0S DREKINN 23. okt - 21. nóv. GÓÐUR Fjölskyldumálefni og sameiginleg átök þeirra sem nánir eru, gætu or- sakað upprisu daufs fjárhags þins. Þú býrð yfir hugmynd sem er vel nothæf og gæti minnkað húshaldsútgjöldin til muna. BOGMAÐ- URINN 22. nóv. - 21. des. GÓÐUR Ef þér hættir til dag- drauma, skalt þú athuga hugmyndir þinar vand- lega i dag, þvi þær eru liklega betur nothæfar nú en endranær og einhver þeirra gæti jafnvel reynst bráðsnjöll. © STEIN- GEITIN 22. des. - 19. jan. GÓÐUR Sinntu hcilsu þinni og ef þér finnst þú þarfnast einhverrarmeðhöndlunar eða aðgerðar hikaðu þá ekki að leita til læknis eða sjúkrahúsa, þar sem þér verður tekið af samúð og þér veitt bót meina þinna. Sinntu persónulegum áætlunum þinum. Miövikudagur 26. febrúar 1975

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.