Alþýðublaðið - 26.02.1975, Blaðsíða 12
lalþýduj HaslM liF KÓPAVOGS APÓTEK
11KVFI PLASTPOKAVERKSMIÐJA Símar 82&39-8265S Opið öll kvöld til kl. 7
liMiIIil VatnagSrbum 6 Box 4064 — Reykjovík Laugardaga til kl. 12
^SEND/BIL ASrODINHf
Rætt við tvo hafnarverkamenn
o
Bjart veður — dekkra útlit
„Það hefur ekkert verið unnið
hér undanfarna fjóra laugar-
daga, og suma daga vikunnar
hefur aðeins verið unnið til
klukkan fimm undanfarið,”
svaraði Finnbogi Finnbogason
spurningu okkar um, hvort nóg
væri að gera við höfnina.
Þetta svar lýsir þvi sennilega
betur en margt annað, hversu
langt við erum frá þvi, að fjöru-
tiu tima vinnuvika sé i reynd
þaö, sem þarf til að lifa af á Is-
landi.
Ljósmyndari og blaðamaður
Alþýðublaðsins lögðu leið sina
niður að höfn i gær i góða veðr-
inu. Fyrir eyland háð sjávarafla
aö uppistöðu til og ónógt sjálfu
sér um margt, eru hafnirnar og
umsvifin þar eins konar púlsar
mannlifsins. Aflahrota, aukinn
útflutningur, aukinn innflutn-
ingur, allt herðir þetta slögin,
eykur umsvifin hvergi eins á
einum stað og niðri við höfn.
Aflatregða, sölutregða útflutn-
ingsafurða eða minnkandi inn-
flutningur koma glögglega i ljós
við höfnina.
Þegar við komum niður að
höfn i gær virtist fátt vera um-
leikis. Fyrir þann, sem kemur
þar sjaldan segir það ekki mikið
af sögunni. Þeir, sem eru þar
daglega til vinnu eða sem gestir
þekkja betur til og geta ráðið af
gangi margra daga, með sam-
anburði til lengri tima, hvað er
eölilegt og hvað ekki.
Verið var að skipa freðfiski út
i Hofsjökul. Einn hásetanna
sagði okkur, að þeir færu frá
Reykjavik um sjöleytið til Vest-
mannaeyja og þaðan til Mur-
mansk i Rússlandi. Fiskurinn
kom viða aðfrá Suðurnesjum og
austan yfir fjall. Þó var „Jök-
ullinn” búinn að vera i Keflavik.
I kössunum, sem hurfu hver af
öðrum niður i lestar Hofsjökuls
voru mest ufsa- og karfaflök.
A bryggjunni hittum við Kára
Gislason, verkamann og inntum
hann eftir þvi, hvort breytinga
væri vart á innflutningi.
„Það er greinileg minnkun
innflutnings, það, sem af er
þessu ári, skipin koma oft hálf-
tóm, en það er i reynd ekkert
nýtt á þessum árstima. Megin-
breytingin er þó sú, að hve mikil
minnkun hefur oróið i innflutn-
ingi bfla og heimilistækja”.
Við spurðum Kára einnig um
viðbrögð manna við ráðstöfun-
um stjórnvalda.
„Menn biða helst eftir þvi,
hverjar hliðarráðstafanir verða
gerðar til að draga úr áhrifum
þess, sem yfir hefur dunið. Ég
vona nú að ekki þurfi að koma
til verkfalla. Þau gefa nú ekki
alltaf af sér það sem til er ætl-
aát. Hins vegar er rétt að athuga
gaumgæfilega, hvernig megi
koma á réttlátari skiptingu
tekna i þessu þjóðfélagi. Það er
Finnbogi Finnbogason
P-* ’ "4 \
létt verk að tala, tala um sparn-
aö, allir þurfi að leggja eitthvað
af mörkum, en þeir ættu þá þeir
góðu ráðherrar að sýna fordæmi
á annan hátt en nú er. Kaup-
hækkun i krónum á þó ekki að
vera einhliða baráttuefni laun-
þegasamtakanna, það má fá
fram kjarabætur á ymsum öðr-
um sviðum, eins og til dæmis
meö skattabreytingum.”
Að loknu spjallinu við Kára
lögðum við leið okkar um borð.
A lúgunni var Finnbogi Finn-
bogason, sá sem við vitnuðum
til i byrjun. Við spurðum hann
einnig hvort hann ætti von á
verkföllum. „Ég veit ekki, hvað
skal segja. Svarið yrði ekkert
annað en ágiskun, hvort eð er,
þegar forysta verkalýðshreyf-
ingarinnar getur ekki svarað
þessari spurningu, þá er varla
við þvi að búast hjá mér. Ég er
annars gamall baráttumaður úr
verkföllum frá fyrri tið, og þá
var barist, skal ég segja þér. Ég
er núna hættur i sjálfri barátt-
unni, en að sjálfstöðu styð ég fé-
laga mina, ef farið verður af
stað. Nóg eru vandræðin samt
meö það, hvað staðið er illa
saman I kjarabaráttunni.”
Meðan við stöldruðum um
borð I Hofsjökli sigldi Grjótjöt-
unn frá bryggju. Verið var að
skipa vörum um borð I Esjuna,
annars hvildi ró yfir höfninni.
Það segir sina sögu, en klukkan
var langt á sjötta timanum, svo
það segir ekki alla sögu.
Kári Gislason
PIMM á f örnum vegi'
Ert þú farin(n) að hugsa fyrir sumarleyfinu?
Birgitta Thorsteinson, nemi:
Já. Ég ætla að reyna að fara
með vinkonu minni til Mallorca
um miðjan ágúst.
Þórhaliur Fiiipusson: Nei, ég er
það nú ekki. Ætli þaö verði ekki
i júli, en ekki frekar ráðgert.
Laufey Kristinsdóttir, raf-
reiknid. Landsbankans:
Ekki get ég sagt það. Kannske
fer maður hringveginn kringum
landið, ef allt gengur vel.
Rúnar Hauksson, iönnemi:
Ekkert ákveðið, en mig Iangar
til að fara til Kaupmannahafnar
og Spánar, ef nægur áhugi er
hjá 60 manna hópi, sem ég hefi
farið með þrjú undanfarin
Kristin Helgadóitir, Ijósmynda-
st. Hans Petersen:
Nei, ekki alvarlega. En ætli það
endi ekki með þvi að fara til
Spánar i haust.