Alþýðublaðið - 11.03.1975, Qupperneq 5

Alþýðublaðið - 11.03.1975, Qupperneq 5
Útgefandi: Blað hf. Framkvæmdastjóri: Ingólfur P. Steinsson Ritstjórar: Freysteinn Jóhannsson (ábm) Sighvatur Björgvinsson : Auglýsingastjóri: Fanney Kristjánsdóttir Afgreiðslustjóri: örn Halldórsson Ritstjórn: Siðumúla 11, simi 81866 Auglýsingar: Hverfisgötu 8—10, sími 28660 og 14906 Afgreiðsla: Hverfisgötu 8—10, simi 14900 Prentun: Blaðaprent hf. Arabar á íslandi? Orkukreppan hefur haft geigvænleg áhrif á þróun efnahagsmála i heiminum. Hún hefur einnig valdið okkur íslendingum talsverðum bú- sifjum vegna þess, hve háðir við erum innflutt- um orkugjöfum, s.s. eins og oliu til húsahitunar. Við höfum þó gjarna huggað okkur með þvi, að við værum þó ekki jafn illa staddir til frambúðar i þessum málum og ýmsar aðrar þjóðir i Vest- ur-Evrópu. Vestur-Evrópa verður að flytja inn langmestan hlutann af þeirri orku, sem hún þarfnast, en á Islandi er griðarlega mikil orka óbeisluð i jarðhita og fallvötnum. Við höfum getað huggað okkur með þvi, að þarna eigum við þó mikla möguleika til þess að verða sjálfum okkur nógir á sama tima og við hörmum það fyrirhyggjuleysi, að ekki skuli fyrir löngu verið búið að taka virkjunar- og hitaveitumálin föst- um tökum á landi okkar þjóðinni til framdrátt- ar. Það leikur ekki nokkur vafi á þvi, að þegar rætt hefur verið um jarðhita og orku fallvatna á íslandi, þá hefur almenningur litið svo á, að þessar náttúruauðlindir hlytu að vera eign allr- ar þjóðarinnar — fólksins, sem landið byggir. En eftir siðustu fréttum að dæma kann að vera, að þeir, sem látið hafa sig dreyma um hinar miklu ónotuðu orkulindir Islendinga kunni innan skamms að vakna upp við illan draum. í ræðu á Alþingi þegar til umræðu var tillaga þingflokks Alþýðuflokksins um þjóðareign á landi og landgæðum upplýsti Benedikt Gröndal, að sú krafa hafi verið lögð fram af fulltrúum landeiganda, sem standa i samningaviðræðum við sveitarfélag úti á landi um að veita sveitar- félaginu nýtingarrétt á jarðvarma til húsahitun- ar, að heita vatnið yrði metið að gangverði oliu eins og það er á hverjum tima. Með öðrum orð- um að sveitarf élaginu væri ætlað að greiða þeim einstaklingi, sem hitunarréttinn ætti, álika mik- ið fé fyrir heita vatnið og væri sveitarfélagið að skipta við arabiskan oliufursta um kaup á brennsluoliu. Það má vel vera, að slik krafa sé gerð að lög- um,enþað er vist, að hún ýtir óþyrmilega við Is- lendingum, brýtur gersamlega i bága við al- menna réttlætiskennd i landinu og þau viðhorf, sem rikja hjá öllum almenningi til nýtingarrétt- ar á auðæfum landsins, svo sem eins og orku fallvatna og hita úr iðrum jarðar. Er það rétt- læti, að örfáir einstaklingar skuli geta talið sig eiga slikar náttúruauðlindir þess lands, sem við byggjum og aðeins verða nýttar af samfélag- inu? Ef svo er um jarðhitann og orku fallvatn- anna, hvað þá um önnur náttúrugæði eins og t.a.m. fiskimiðin við strendur landsins? Geta einhverjir einstaklingar komið einn góðan veð- urdag, gert tilkall til þess að þeir eigi þessi mið og heimtað offjár af þjóðinni fyrir að leyfa henni að nýta þau? Krafan um oliupris á heita vatninu er i mörgu sambærileg við þetta. Mikill meirihluti íslendinga, sem samkvæmt þessum túlkunum er nánast hálfgerður útlaga- hópur á eigin landi, getur auðvitað ekki fellt sig við slikt og þvilikt. Þvi vex þeirri skoðun stöðugt fylgi, að brýna nauðsyn beri til þess að eignar- ráð á landi og landgæðum séu tekin til endur- skoðunar, eins og þingsályktunartillaga Alþýðu- flokksins gerir ráð fyrir. lalþýduj \wm FRÁ ALÞINGI Jón Ármann um söluskattshækkunina: Oþörf og ábyrgðarlaus Látið hefur verið að þvi liggja i Morgunblaðinu og Þjóðviljanum undanfarna daga, að þingmenn Alþýðuflokksins hafi ekki allir verið á móti söluskattshækkun- inni. Var forsætisráðherra þó greint frá þeirri einróma afstöðu þingflokksins af formanni flokks- ins, Benedikt Gröndal, þegar for- sætisráðherra oröaði þá leið áður en hann fór utan til Kanada á sin- um tima. Málið var rætt i þing- flokki Alþýðuflokksins alla tið siðan og einnig viö ýmsa forystu- menn flokksins i verkalýðshreyf- ingunni og var það sameiginleg niðurstaða allra, bæði allra þing- mannanna og verkálýðsmann- anna, að Alþýðuflokkurinn væri eindregið á móti hinni óþörfu Jón Arm. Héðinsson. söluskattshækkun. Kom þessi af- staða flokksins glögglega fram bæði i umræðum og i nefndarálit- um i báðum deildum þingsins. Þetta kemur m.a. glöggt fram i ræðu þeirri, sem Jón Armann Héðinsson flutti i efri deild Al- þingis 28. febrúar sl. og hér fer á eftir. Jón sagði: Eins og þegar hefur komið fram vilja allir að sé staðið við þau fyrirheit, sem gefin voru er það óhapp, sem þjóðinni er kunn- ugt, henti á Neskaupstað, svo um það er raunverulega ekki deilt, að bjarga þvi sem bjargað verður og mannlegur máttur ræður yfir. En við deilum um þær leiðir, sem á að fara til þess að geta komið sem best til hjálpar. Nú var það á sin- um tima svo, að þegar lög um Viðlagasjóð voru sett, þótti það réttmætt að leggja á 1% sölu- skattsstig sérstaklega til þess að mæta þeim vanda sem skapaðist i Vestmannaeyjum, en einnig þótti það lika réttmætt að draga úr rikisútgjöldum nokkuð — ef ég man það rétt — 100 til 200 millj. a.m.k. Það hefur verið boðað núna, að það eigi að draga úr rikisútgjöldum en eftir þvi sem ég veit best, þá neita þeir i hagsýsl- unni að þeir hafi nokkuð fengið um það að vita. Einnig neita full- trúar hæstv. rikisstjórnar I fjár- veitinganefnd að þeir hafi nokkuð fengið um málið að vita. Samt sem áður hefur hæstv. forsætis- ráðherra látið hafa eftir sér i töl- um talað, að það geti numið rúm- um þremur milljörðum, sem um er aö ræða. Það væri þess vegna nokkuð fróðlegt að vita hvar á að höggva á fjárlög og búa til þetta svigrúm. Ég vona að þessar tölur séu aðeins meira en talnaleikur, einsog hafður var i frammi i fyrravetur, þegar fram komu til- lögur að hálfu núverandi hæstv. fjármálaráðherra og annars ráð- herra um að vinstri stjórnin gæti þá eða skyldi þá lækka fjárlög um 4,6miljarða. Miðað við núverandi fjármagnshreyfingu ætti það að vera um 7 milljarðar, en aldrei sáum við neinar raunhæfar tillög- ur i þvi efni. Ég vil þess vegna fara að heyra eitthvað um þennan talnaleik. óþarfar álögur Þeir menn sem hingað til hafa fjallað um fjárveitingar og til- lögugerð fyrir Alþingi og fjárveit- inganefnd segja mér ennþá i per- sónulegum spurningum að þeir viti ekkert um málið. Þetta finnst mér ekki nógu góð latina, ef svo má segja. Það sem ég harma miðað við stefnuræðu hæstv. rikisstjórnar, er að hún skuli þurfa eða telja sig knúna til þess, að leggja nú á viðbótarsöluskatts- stig, hvort sem það gerir meira eða minna en einn miljarð eða ekki, þá eykur það skattheimtu á almenning og skapar einnig verð- bólgu. Við erum tilbúnir eins og fram hefur komið i Alþfl. og Alþýðu- blaðinu einnig að framlengja gildandi lög a.m.k. til miðs árs 1976 og persónulega gæti ég vel framlengt það út árið, ef ég réði einhverjum úrslitum til þess að tryggja að Viðlagasjóður hefði nægilegt fjármagn. Það eina vandamál, sem fyrir er, er að skapa smásvigrúm til þess að greiða út til ibúanna austur frá nokkuð fjármagn, en hver trúir þvi, að það sé ekki hægt að hreyfa 200—400 millj. kr. til með aðstoð lánasjóða og Seðlabanka i þeirri óhemju peningaveltu, sem er i þjóðfélaginu, þrátt fyrir það að yfirlýst sé nú hina siðustu daga, að harkalega skuli dregið úr allri peningaveltu i þjóðfélaginu. Ég læt segja mér það oftar en einu sinni að það sé ekki hægt. Við bjóðum þvi tekjuöflun fyrir Við- lagasjóð i framtiðinni. Hér er að- eins um það að ræða, að hreyfa til nokkuð fjármagn til að mæta knýjandi vanda strax. Og þegar upp yrði staðið, hvort sem það yröi um mitt ár 1976 eða i árslok, þá ætti sjóðurinn örugglega á annan milljarð i skuldabréfum. Þessi skuldabréf eru auðvitað ekki lausir aurar i hendi þegar i stað, en væntanlega yrði þá nokk- uð svigrúm til þess að skapa aura eða hreyfanlegt fjármagn þegar það lægi endanlega fyrir og vand- inn er þvi ekkert óviðráðanlegur. En mig grunar að hæstv. rikis- stjórn ætli með þessum hætti, að ná sér i nokkur hundruð millj. i aukatekjuöflun og þess vegna er Þingsályktunartillaga þriggja Alþýðuflokksmanna, þeirra Benedikts Gröndals, Eggerts G. Þorsteinssonar og Sighvatar Björgvinssonar, um athugun á bifreiðatryggingum var tekin til fyrstu umræðu á fundi Sameinaðs Alþingis i s.l. viku. Fyrsti flutningsmaður tillögunn- ar, Benedikt Gröndal, mætli fyrir henni og sagði m.a. i framsögu- ræðu sinni, að tillaga þessi væri ekki flutt af sérfræðingum i trygginga- málum heldur af neytendum, sem væru að leita nýrra leiða til þess að gera bif- reiðatrygg- ingar ódýrari og hagkvæmari, en tillagan er á þá lund, að sérfróð- um mönnum verði falið að athuga nýmæli i bifreiðatryggingum frá nálægum löndum, sem i senn hafa stórlækkað iðgjöld og hraðað mjög úrskurðum i tjónamálum. t framsöguræðu sinni lýsti Benedikt sérstaklega nýju kerfi, sem nefnist ,,no-fault” og tekið hefur verið upp með góðum ár- angri bæði i Bandarikjunum og i Kanada. Gat hann þess, að þing- menn Alþýðuflokksins hefðu aflað sér talsverðra upplýsinga um þetta nýja kerfi og af þeim virtist sem kerfið hefði bæði haft mikla iðgjaldalækkun i för meö sér og einnig flýtt mjög afgreiðslu tjóna- nú leikurinn gerður. En það er ömurlegt, að átakanlegt áfall fyrir þjóðina skuli vera notað til þess að búa til slika tekjuöflun. Það harma ég mjög eindregið. Á ábyrgö rikis- stjórnarinnar Ég sé ekki ástæðu til þess að fara að lengja hér umræður um þetta efni. Það breytir sjálfsagt ekki miklu, en ég itreka aðeins það, að ég tel þessa leið mjög ó- skynsamlega og sérstaklega með það i huga, þegar verkalýðs- hreyfingin hefur lýst eindreginni andstöðu við þessa aðferð. Hún stendur i samningaumleitunum. Við erum að berjast hér við vax- andi verðbólgu enn einu sinni og þá skuli hæstv. rikisstjórn hafa forgöngu um það að auka hana. Hér stingur algerlega i stúf við stefnuræðu hæstv. forsætisráð- herra á sinum tima i haust og það er auðvitað algerlega borin von og það fyrir löngu, að hiö ákjós- anlega markmið, um að verð- bólguaukning hér á ári verði nk. áramót aðeins um 15 stig. Hún verður auðvitað langtum meiri, 25—35 stig með þessum vinnubrögðum. Þvi miður þá virðast menn ekki enn geta fallist á það, að framlengja söluskatt — gildandi söluskattsstig i þágu Viðlagasjóðs. Ég segi fyrir mig, þótt að tillaga min gangi hér út á mitt árið 1976, er ég fús til þess að standa að breytingartillögu er tryggði sjóðnum sama skattstofn út árið 1976 og þá er með engu móti hægt að segja, að við viljum ekki standa að þvi, að Viðlaga- sjóður hafi nægilegt fjármagn, það er með engu móti, en ég mun ekki treysta mér til þess að fylgja frumvarpinu, mun heldur sitja hjá, vegna þess, að hér er um ó- eðlileg og óskynsamleg vinnu- brögð að ræða sem leiða af sér aukin vandamál, þar sem að hin leiðin liggur ljós fyrir að hægt er að tryggja þetta meö góðu móti með framlengingu gildandi laga. mála. Kvað Benedikt sjálfsagt að kerfi þetta yrði'tekiðtil sérstakrar athugunar ásaint með þeim nýj- ungum, sem orðiö hefðu á þessum sviðum erlendis á siðustu árum. Heimir Hannesson (F) taldi ,,no-fault” kerfið hafa bæði kosti og galla og sagði, að ekki væri vist að það hentaði við islenskar aðstæður. Þó taldi hann rétt og sjálfsagt að kanna málið svo og önnur nýmæli, sem kynnu að geta gert bifreiðatryggingar ódýrari. Sighvatur Björgvinsson sagði, að islenskir bifreiðaeigendur væru ekki aðeins óánægðir með mikla hækkun tryggingaiðgjalda heldur væru margir þeirra einnig tortryggnir á tjónaúrskurði tryggingafé- laganna. Rifj- aði hann upp mál, sem mjög var um rætt fyrir u.þ.b. tveimur árum er tveir Reykvikingar, sem lent höfðu i árekstriá bifreiðum sinum, kom- ust að þvi vegna kunningsskapar sin á milli, að báðir hefðu þeir verið úrskurðaðir i 75% órétti og hvorum umsig þvi ætlað að greiða 75% tjónsins. Fátt hefði verið um svör frá tryggingafélögunum er þau hefðu verið spurð um, hvað ylli þessum einkennilega úrskurði og væru slikar fregnir ekki til þess fallnar að auka traust al- mennings á úrskurðum trygg- ingafélaganna. Endurskoðun á bif- reiðatryggingunum Þriöjudagur 11. marz. 1975 o

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.