Alþýðublaðið - 29.04.1975, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 29.04.1975, Blaðsíða 1
FA STORMEISTARARNIR STARF HJA RIKINU? 3. SIÐA alþýðu STORSMYGL- MALINU Rannsókn er nú að nýju hafin I stórsmyglmáli þvl, sem upp komst á Suðurnesjum siðasta haust. Hefur Asgeir Friðjónsson, dómari við Fíkniefnadómstólinn, verið skipaður sérstakur umboðs- dómari I smyglmálinu og stýrir hann frekari rannsókn þess. Hef- ur nú þegar að minnsta kosti einn maður veriðtekinn til yfirheyrslu, en ekki er kunnugt um, hvort gæsluvarðhaldsúrskurður hefur verið kveðinn upp. Eins og frá var skýrt á sínum tima, var rannsókn þessa máls lokið við hinn venjulega héraðs- dóm, sem hafði málið með hönd-. um, Sakadóm Reykjavikur, og það sent til Saksóknara rlkisins, eins og venja er um slik mál. Við smygl þetta voru riðnir skipverjar á nokkrum íslenskum flutningaskipum og fóru fram miklar yfirheyrslur yfir þeim. Enda þótt nokkuð þætti skorta á, að þeir gerðu tæmandi grein fyrir þvi, hvað orðið hefði um það áfengismagn, sem sannanlega var smyglað inn i landið, meðal annars i plastbrúsum, þótti til þrautar á það reynt, að frekari yfirheyrslur leiddu ekki til nýrra upplýsinga, og gögn þau, sem fyrir lágu, send Saksóknara rikisins, eins og áður greinir. Meðal annars beindust yfir- heyrslur og rannsókn i málinu að þvi, hvort grunsemdir um sölu smyglsins til veitingahúsa, hefðu við rök að styðjast. Kom ekkert fram, sem renndi stöðum undir þær grunsemdir. Ekki er blaðinu kunnugt um, hvaða ástæður liggja til þess, að frekari rannsókn er nú hafin i þessu máli, en það vekur athygli að hún er ekki falin Sakadómi Reykjavikur, heldur sérstakur umboðsdómari skipaður til þess að hafa hana með höndum. FarafonovKGB^ , 1 njósnari í Stokkhólmi í 8 ár í r Nýjar upplýsingar um Farafonov: 4 Sérhæfður í að fj arstýra er- f lendum kommúnistaflokkum * 1 Tók siAan við þýðingarmeira njósnahlutverki ; «***'■ t“_£*- J*'* | 'JTi'ií’ííI | 1 sagði CL Suhberger 1 New York Times i 1 1 KGB-njósnari frá 1951 . i p „ii. | Wmr w»l>un|ir Ittl ,««• »*ní |«í»r malt. M. U •r —,"1 *“*•" h*,,* • ’y**' ! B*r™ ““'“""i**"- SENDIHERRANN KGB NJOSNARI SEGIR MORGUNBLAÐID EIGUM EKKERT SOK- ÚTT VIÐ MANNINN... - SEGIR UTANRÍKISRÁÐHERRA „Við eigum ekkert sökótt við þennan mann og þvl höfum við engar ráðstafanir gert hans vegna”, sagði Einar Ágústsson, utanrikisráðherra, þegar Al- þýðublaðið spurði hann í gær, hvort fréttaflutningur Morgun- blaðsins um hinn nýja sendi- herra Sovétrikjanna á islandi, Georgi Nikalaevich Farafonov, væri utanríkisráðuneytinu til- efni til einhverra aðgerða, eða könnunar á sannleiksgildi frétt- anna. „Við höfum að sjálfsögðu lcs- iðþetta eins og aðrir góðir borg- arar, en annað ekki. Sovéski sendiherrann er tilnefndur af Utanríkisráðherrann Sendiherrann sinni rlkisstjórn og hann hefur verið samþykktur af forseta ís- lands”, sagði utanrlkisráð- herra. Alþýðublaðið spurði ráðherra ennfremur, hvort i umræddum fréttaflutningi Morgunblaðsins, aðalmálgagni annars stjórnar- flokksins, fælist pólitlskur þrýstingur á hann sem utan- rikisráðherra. „Ég hef enga beiðnifengið um aðgerðir vegna þessa manns og ég hef ekki orðið fyrir neinum pólitiskum þrýstingi hans vegna”, sagði utanrikisráðherra. Morgunblaðið hefur að und- anförnu birt fréttir um starfs- feril hins nýskipaða sendiherra Sovétrikjanna hér á landi. Hef- ur blaðið eftir heimildum i Bandarikjunum, að sendiherr- ann hafi stundað njósnastörf alit siðan 1951. Hann sé talinn sér- fræðingur i að fjarstýra er- lendum kommúnistaflokkum. Meðan hann dvaldi i Helsinki, höfuðborg Finnlands, hafi megin verkefn i hans verið annars vegar að flytja og fylgja fram fyrirmælum miðstjórnar sovéska kommúnistaflokksins gagnvart finnska kommúnista- flokknum og hins vegar að sjá um flutning með leynilegum hætti á fjármagni frá Moskvu til þess að halda uppi margvislegri undirróðursstarfsemi. SÉRSTÖK EFTIRLITSDEILD STOFNUÐ AÐ TILHLUTAN ALÞJÓÐAFLUGMALASTOFNUNARINNAR VOPNA- OG SPRENGJULEIT A KEFLAVfKURFLUGVELLI Unnið er nú að þvi að setja upp á Keflavikurflugvelli sérstakan búnað til að gera vopnaleit á far- þegum úr utanlandsflugi. Búnaður sem þessi er kominn á flesta eða alla alþjóðlega flugvelli á Vesturlöndum, og verður að vera kominn i gagnið eigi siðar en 1. júni nk. samkvæmt kröfum, sem alþjóða flugmálastofnunin og alþjóðafélög flugmanna gera, ella verður ekki flogið til fslands. Sérstök deild verður stofnuð vegna þessarar vopnaleitar, og heyrir hún beint undir lögreglu- stjóraembættið á Keflavikurflug- velli, en ekki tollgæslu eða útlend- ingaeftirlit. Hér er að ræða út- búnað, sem nefndur hefur verið „screening” og miðast fyrst og fremst við leit að málmhlutum á farþegum eða i farangri þeirra. Ráðnir hafa verið menn til starfa við þessa deild og einhverjir þeirra þegar verið sendir á nám- skeið erlendis. Búist er við að alls verði fimm starfsmenn ráðnir. Ástæðan fyrir þvi, að krafist er uppsetningar leitartækja af þessu tagi og þjálfunar sérstakra manna til að starfa að leitarstörf- um sem þessum,er auðvitað hin tiðu flugrán og hótanir um að koma sprengjum fyrir i flugvél- um. Aiþjóðasamtök flugmanna hafa beitt sér mjög fyrir að settar verði strangar reglur um þessi efni og alþjóðaflugmálastofnunin, ICAO, tryggi framkvæmd þeirra. Þegar hafa verið fest kaup á tækjum, sem notuð verða við þetta eftirlit, en ekki mun vera ætlunin að gera leit á öllum far- þegum, heldur verður fyrst og fremst fylgst með farþegum af tilleknum flugleiðum. Þá mun og ráðgert að sameina að einhverju leytiþessaeftirleit og leit að fikni- efnum. Verður það m.a. gert til að sameina starfskrafta á báðum þessum sviðum. Með framkvæmd þessara reglna bætist óvænt við talsverð- ur kostnaður, þar sem islenska flugmálastjórnin eða rikissjóður þarf að bera kostnaðinn af þessu eftirlitsstarfi, en i undirbúningi mun vera að fá heimild til að taka 100 krónur af flugvallaskattinum væntanlega til að standa straum af þessu. NYJAR VÖRUVERÐSHÆKKANIR GERA LÁGLAU NABÆTU RNAR AÐ LITLU Leyfð hefur verið hækkun heildsöluálagningar um 6% og smásöluálagningar um 14%, auk þess sem leyft hefur verið að hækka vexti i verðútreikningum um 1/2%, en það jafngildir 5% aukahækkunar heildsöluálagn- ingar. Heildsöluálagning mun þvi hækka um sem nemur 11%. Þessi álagningarhækkun mun valda þvi sem næst 3—4% hækkun vöru- verðs almennt. Auk fyrrgreindrar hækkunar voru ýmsar verðhækkanir sam- þykktar nú fyrir helgi, þar á með- al 20% hækkun á aksturstöxtum leigubila, hækkun vinnuvélaleigu um 50%, hækkun hjá efnalaugum og hárgreiðslustöðum, og hækkun á allri útseldri vinnu, þar sem laun hækkuöu við siðustu kjara- samninga. Með þessum verðhækkunum hefur greiðslubyrði þeirra lág- launabóta, sem samþykktar voru við siðustu kjarasamninga aftur verið velt yfir á launþega. NÝ BÁTA- DEILA í MAÍ? ..Bátakjarasamningarnir eru nú komnir i höfn”, sagði Jón Sigurðsson formaður Sjó- mannasambandsins við blaðið i gær, „Flest félögin hafa samþykkt þá og hin munu fara eftir þeim, hvað sem form- legri samþykkt liður. Samningarnir voru sam- þykktir einróma i Ólafsvik i gær og þá, eins og vera bar að- eins af heimamönnum. Hins vegar er allra veðra von, ef nýframkomið frumvarp rikis- stjórnarinnar fær óhagstæða afgreiðslu á Alþingi. Við telj- um liklegt, að úr þessu skerist fyrir 21. mai, en þá þarf að segja samningunum upp, ef þess verður talið þörf ella framlengjast þeir til 15. sept. n.k.”

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.