Alþýðublaðið - 29.04.1975, Page 5
Útgefandi: Blaö hf.
Framkvæmdastjóri: Ingólfur P. Steinsson
Ritstjóri: Sighvatur Björgvinsson
Fréttastjóri: Helgi E. Helgason
Auglýsingastjóri: Fanney Kristjánsdóttir
Afgreiðslustjóri: örn Halldórsson
Ritstjórn: Siðumúla 11, simi 81866
Auglýsingar: Hverfisgötu 8-10, slmar 28660 og 14906
Afgreiðsla: Hverfisgötu 8-10, simi 14900
Prentun: Blaðaprent hf. Verð i lausasölu kr. 40.
Sigur fyrir lýöræöið
Kosningarnar i Portúgal um s.l. helgi urðu
stórsigur fyrir jafnaðarmenn — sem raunar eru
ávallt kallaðir sósialistar i útvarpsfréttum.
Þeir urðu langstærsti flokkur landsins, fengu
um38% greiddra atkvæða. Helstu andstæðingar
þeirra — kommúnistar — sem siðustu vikurnar
hafa bóksaflega beitt jafnaðarmenn ofsóknum,
biðu alvarlegt afhroð. Þeir fengu aðeins um 17%
atkvæða og fengu t.d. mun minna fylgi en
Miðdemókratar, sem fengu næst mest fylgi i
kosningunum. Fylgi kommúnista reyndist
miklu minna, en almennt var haldið, og i sum-
um kjördæmum, þar sem þeir höfðu verið taldir
öruggir með yfirburðasigur, tókst þeim rétt að-
eins að merja meirihluta. Er það einkar at-
hyglisvert þegar á það er litið, að kommúnista-
flokkurinn var eini flokkur landsins, sem til var
sem skipuleg samtök þegar einræðisstjórn
Portútgals var steypt. Þá voru t.d. aðeins um
nokkur þúsund manns i leynilegum samtökum
jafnaðarmanna, en þegar þjóðin fékk að kjósa i
frjálsum kosningum hafnaði hún samt sem áður
hinum þrautskipulagða og áhrifarika
kommúnistaflokki en valdi jafnaðarmenn. Þau
tiðindi hafa vonandi þær afleiðingar fyrir
stjórnmálaþróunina i Portúgal, að hún beinst i
átt til lýðræðis.
Þróun mála i Portúgal á siðustu mánuðum
hefur verið viðsjárverð og hlýtur að valda
áhyggjum þeim mönnum, sem vonast hafa til
þess að bylting hersins yrði til þess að innleiða
lýðræðislega stjórnarhætti i landinu. Fyrstu
vikurnar eftir að Portúgal var leyst undan oki
fasismans virtist einnig að svo ætlaði að verða.
En smátt og smátt fór að koma i ljós að i hópi
hinna nýju valdamanna i Portúgal voru áhrifa-
rikir menn, sem hugsuðu fyrst og fremst um að
tryggja sina eigin valdastöðu á kostnað frelsis
og lýðræðis. Þetta voru annars vegar herforgj-
arnir, sem fundu sætleika valdsins, og hins
vegar leiðtogar kommúnistaflokksins, sem
fundu til hins sama og óttuðust, að frjálsar kosn-
ingar myndu skerða áhrifamátt þeirra og að-
stöðu. Kommúnistar og herforingjarnir tóku þvi
höndum saman i sameiginlegri valdabaráttu.
Með stuðningi kommúnista bannaði herinn
ýmsa stjórnmálastarfsemi i landinu og bætti
gráu ofan á svart með þvi að tryggja sér áfram-
haldandi úrslitavöld i stjórnmálum landsins án
tillits til niðurstöðu frjálsra kosninga. Einnig i
þessu naut herinn fulls stuðnings kommúnista.
Leiðtogar jafnaðarmanna i Portúgal hafa
verið mjög andvigir þessari þróun og þrjóskuð-
ust við að skrifa undir ákvæðin um úrslitavöld
hersins uns ekki var um annað að ræða en ann
að hvort það eða að starfsemi flokksins yrði
bönnuð. Þá hafa portúgalskir jafnaðarmaenn
lagt mikla áherslu á, að stjórnmálin i Portúgal
fengju að þróast i átt við evrópskt lýðræði og
orðið að sæta áköfum árásum kommúnista fyrir
vikið. En jafnaðarmenn lögðu þessa stefnu sina
undir dóm kjósenda og með þvi að kjósendur
veittu þeim meira en tvöfalt fylgi á við kommú-
nistaflokkinn féll sá dómur jafnaðarmönnum
ótvirætt i vil.
Það er einkar athyglisvert fyrir islenska
vinstri menn, að Þjóðviljinn hefur i þessum
málum mjög tekið upp hanskann fyrir
portúgalska kommúnista og skoðanabræður
þeirra, herforingjana. Enn virðist sama gamla
afstaðan móta skrif þessa blaðs — að það skipti
ekki máli hvernig hlutirnir eru gerðir heldur
hver geri þá.
lalþýdul
ALÞYÐUFLOKKSINS
Eins og komið hefur fram i
fréttum var Reiulf Steen kjörinn
formaður norska Verkamanna-
flokksins á þingi flokksins i sl.
viku Istað Trygve Bratteli. Reiulf
Steen hefur verið varaformaður
flokksins s.l. áratug, en þar áður
var hann forystumaður ungra
jafnaðarmanna i Noregi. Hann
hefur oft komið til íslands, m.a. i
boði Sambands ungra jafnaðar-
manna fyrir nokkrum árum.
Reiulf Steen gegndi ráðherra-
embætti i fyrri stjórn norska
Verkamannaflokksins, en tök
ekki sæti i rfkisstjórn Brattelis,
sem nú situr. Kaus hann heldur
aö helga sig flokksstarfinu og hef-
ur stjómað flokksstarfinu og upp-
byggingu þess að undanförnu.
Allt frá þvi Trygve Bratteli til-
kynnti, að hann myndi ekki gefa
kost á sér til endurkjörs sem
flokksformaður hefur Reiuif
Steen verið sá, sem helst hefur
verið nefndur sem arftaki hans.
Ýmsir aðrir hafa þó komið til
greina —m.a. Ronald Bye, fram-
kvæmdastjóri flokksins, en hann
hefur horfið i skuggann nú upp á
siðkastið og lét m.a. af starfi sem
framkvæmdastjóri fyrr i vetur.
Siðustu vikurnar var Odvar
Nordli, formaður þingflokks
Verkamannaflokksins, helst
nefndur sem keppinautur Steens
um formannsembættið og þegar
flokksþingið kom saman um næst
siðustu helgi var allt talið benda
til þess, að kosið yrði á milli
þeirra tveggja. Svo fór þó ekki. A
fundi uppstillinganefndar aðfara-
nótt s.l. miðvikudags náðist fullt
samkomulag um Steen sem eina
frambjóðandann til formanns-
kjörs. Var sú tillaga borin upp af
formanni nefndarinnar á flokks-
þinginu daginn eftir og þvi jafn-
framt lýst yfir, að nefndin ætl-
aðist til þess að Odvar Nordli tæki
við forsætisráðherraembættinu af
Trygve Bratteli þegar hann lætur
af þvi starfi, en enn hefur engin
yfirlýsing verið gefin um,
hvenær svo verður. Formaður
uppstillinganefndarinnar, Leif
Skau, lýsti þvi yfir, að hvorki
uppstillinganefnd eða flokksþing-
ið sjálft hefði i raun heimild til
þess að ganga frá þvi, hver yrði
eftirmaðurBrattelis sem forsætis-
ráöherra, en þó gengi nefndin út
frá þvi að það yrði Odvar Nordli.
Sagði hann, að uppstillinganefnd-
inliti á kjör Steens sem flokksfor-
manns og óformlegt val Nordlis
sem forsætisráðherraefni sem
heildarlausn. Þá skoðun staðfesti
þingið með langvinnu lófataki og
aðalmálgagn norska Verka-
mannaflokksins, ARBEJDER-
BLADET, gengur út frá þvi sem
gefni I leiðara s.l. fimmtudag, að
þessi verkaskipting verði milli
þeirra Steen og Nordli. Blaðið
leggur áherslu á, að enda þótt
þeir Steen og Nordli hafi ólikum
verkefnum að gegna standi þeir
pólitikst séð jafnfætis. Valið hafi
ekki staðiðum „annaðhvort eða”,
heldur „bæði og”. Lausn flokks-
þingsins hafi verið lausn, sem
flokkurinn allur standi heils hug-
ar og sameinaður að.
Bratteli heldur
eitthvað áfram.
Þá segir blaðiö einnig i sömu
forystugrein, að Bratteli hafi enn
ekki tekið ákvörðun um, hvenær
hann muni láta af embætti for-
sætisráðherra. Þeirri spurningu
verði svarað i fyllingu timans.
Hins vegar hafi það verið eðlilegt
af uppstillinganefndinni að at-
huga samtimis um eftirmann
Brattelis i flokksformennskunni
og eftirmann hans i rikisstjórn-
inni. Verkamannaflokkurinn
hefði aldrei mótað bindandi
stefnu um, hvernig þessum störf-
um ætti að skipta — hvort einn
maður ætti ávallt að fara með þau
bæði, eða hvort skipta ætti þeim á
milli manna.
Blaðið segir einnig, að þótt Rei-
ulf Steen hafi verið valinn sem
flokksformaður merki það ekki,
að Odvar Nordli hafi ekki verið
talinn hæfur til starfans. Og þótt
uppstillinganefndin hafi bent á að
hugurinn hljóti að beinast að
Odvar Nordli þegar rætt yrði um
eftirmann Brattelis sem forsætis-
ráðherra þýddi það auðvitað ekki,
að með þvi væri verið aðsegja, að
Reiulf Steen væri ekki fær um það
verkefni. Hins vegar hafi reynsla
Steens af flokksstarfinu og
reynsla Nordlis af landsmálum
og stjórnmálastarfi gert þessa
verkaskiptingu eðlilega.
Nóg að gera
hjá Steen
Það verður nóg að gera hjá hin-
um nýkjörna formanni norska
Verkamannaflokksins. Sveitar-
stjórnakosningar standa fyrir
dyrum i Noregi og þá mun reyna
á, hvort flokkurinn er á uppleið
aftur eftir það fylgistap, sem á rót
sina að rekja til deilnanna um
EBE-málið.
Einnig þarf flokksforystan nú
að greiða úr ýmsum fram-
kvæmdalegum vandamálum i
sambandi við tengsl þingflokks,
rikisstjórnar og flokks eftir að
þrir menn gegna nú æðstú emb-
ættum þessara stofnana i stað
tveggja áður (Bratteli formaður
og forsætisráðherra og Nordli
formaður þingflokks).
— Sú lausn, sem flokksþingið
komst að niðurstöðu um, verður
að treysta samheldnina i flokkn-
um, sagði hinn nýkjörni flokks-
formaður. — Það er nauðsynlegt
að finna starfshætti sem tryggt
getastöðugt og virktsamráð milli
flokksins, rikisstjórnarinnar og
þingflokksins. Ég mun taka það
mál til meðferðar eins fljótt og
framast er unnt.
Reiulf benti á, að ávallt væri
hætta á aðvissir hópar söfnuðust
saman um i fyrsta lagi rikis-
stjórnina, i annan stað þingflokk-
inn og i þriðja lagi miðstjórnina,
er svo kynni að leiða til ágrein-
ings milli þessara aðila.
— Þaö er eins gott að gera sér
þessa hættu ljósa frá byrjun
þannig að unnt sé að vinna gegn
henni, sagði Steen.
Steen var þá spurður að þvi,
hvort miðstjórn flokksins myndi
þá ekki öðlast algera lykilað-
stöðu. Hann sagði, að það væri
viðtekin og góð venja, að sam-
þykktir flokksstjórna væru mikils
metnar af þingmönnum, ráðherr-
um og bæjarfulltrúum flokksins,
en það merkti hins vegar ekki, að
flokksstjórnin ætti að segja rikis-
stjórn eða þingflokki fyrir verk-
um. Hins vegar bæri rikisstjórn
og þingflokki að leita góðrar sam-
vinnu við flokksstofnanirnar.
Ungur formaður
Hinn nýkjörni formaður norska
Verkamannaflokksins, Reiulf
Steen, er 41 árs að aldri og hefur
allt frá unga aldri helgað lif sitt
stjórnmálum. Hann fæddisti
Sætre i Hurum og hóf störf 17 ára
gamall sem iðnverkamaður i
Sprengiefnaverksmiðju Noregs
(Norsk Sprængestofindustri
A/S). Fjórum árum siðar gerðist
hann blaðamaður við eitt af blöð-
um Verkamannaflokksins, en
hætti blaðamennsku skömmu sið-
ar er hann var kjörinn ritari og
siðar formaður i samtökum
ungra jafnaðarmanna I Noregi.
Frá DSU (Sambandi ungra jafn-
aðarmanna i Noregi) fór hann til
■starfa hjá þingflokki norska
Verkamannaflokksins og var
kjörinn varaformaður flokksins á
þingi hans árið 1965. Allt frá þvi
hefur hann helgað flokksstarfinu
krafta sfna, nema hvað hann var
samgönguráðherra i rikisstjórn
Brattelis 1971-1972.
En það er ekki aðeins Steen
einn, sem er ungur að árum i
æðstu stjórn flokksins. Ung kona,
Gro Harlem Brundtland, var
kjörin varaformaður flokksins og
mun það vera i fyrsta skipti, sem
kona sinnir þvi starfi. Þá var ung-
ur verkalýðsmaður, Ivar Lever-
aas, kjörinn framkvæmdastjóri
fiokksins i stað Ronald Bye, en
þau þrjú skipa æðstu stjórn
flokksins þá væntanlega ásamt
Odvar Nordli eftir aö hann hefur
tekið við forsætisráðherraemb-
ættinu af Bratteli.
ARBEJDERBLADET segir frá
þvi, að þessi nýkjörna æðsta
stjórn norska Verkamanna-
flokksins sé „yngsta” æðsta
stjórn norsku stjórnmálaflokk-
anna.
Hin nýja forysta norska Verkamannaflokksins. Frá vinstri Odvar Nordli, forsætisráðherraefni, Gro
Harlem Brundtland, varaformaður, Reiulf Steen, formaður og Ivar LeversAas, framkvæmdastjóri.
Þriöjudagur 29. apríl 1975.