Alþýðublaðið - 06.05.1975, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 06.05.1975, Blaðsíða 3
NEIMSOKN SVISSNESKU BRIDGEMEISTARANNA Svissnesku bridgemeistar- amir, sem dvelja hér nú i boði Bridgefélags Reykjavikur, hafa nú þegar tekist á við íslenska bridgemenn. Fyrsti leikur þeirra var við sveit Hjalta Elíassonar, sem vann þann leik með 13:7. íslandsmeistararnir, sveit Þóris Sigurðssonar vann svo Svisslend- ingana með 20:0. Landsliðiö, sem Bridgesam- bandið haföi valið spilaði siðan A Akureyri hófst hátiðarfund- ur i Nýjabiói klukkan tvö þann 1. mai með leik lúðrasveitarinn- ar. Þá flutti ólöf Jónasdóttir ávarp 1. mai nefndar verkalýðs- félaganna. Aðalræðu dagsins flutti Sighvatur Björgvinsson, alþingismaður, Elin Sigurvins- dóttir söngkona söng einsöng. Auk þessa voru barnasamkom- ur á vegum félaganna. 1. mai ávarpið, sem verka- lýðsfélögin á Akureyri stóðu öll að fer hér á eftir: „Enn er kominn fyrsti mai, árlegur hátiðar- og baráttudag- ur verkafólks um heim allan. Þennan merkisdag I ár, er staða verkafólks og verkalýðssam- takanna á Islandi mjög frá- brugðin þvi, sem við höfum oftast átt að venjast siðustu fjóra áratugina. Venjulegast hefur þann 1. mai verið hægt að fagna einhverjum sigrum, sem unnisthafa Isókn alþýðu manna til betri lifskjara og bjartari framtiðar. En liðið ár hefur ekki verið um neina sókn að ræða. Ekki er þetta þó vegna þess að verkalýðshreyfingin hafi verið aðgerðalaus eða sinnt verkalýð verr en áður,heldur hafa allir kraftar hennar farið i varnar- baráttu. Baráttu fyrir að halda sem mestu af þvi, sem áður haföi unnist. Vegna erlendra og innlendra aðstæðna og aðgerða hefur verið þrengt svo mjög að kjörum fólks á liðnu ári, að með eindæmum er. Með stöðugri baráttu og starfi hefur samtök- um verkafólks tekist að endur- heimta nokkurn hlut þess, sem af fólkinu hafði verið tekið með þvi að beita löggjafarvaldinu til að ógilda áður gerða kjara- samninga. En betur má, ef duga skal og knýjandi nauðsyn að tryggt verði að gerðir samningar séu I heiðri hafðir, en gildi þeirra og framkvæmd ekki háð geðþótta misviturra stjórnmálamanna. Þá er nú full ástæða til að ótt- ast um atvinnuöryggi verka- fólks. Jafnt opinberir aðilar sem einkaaðilar boða nú mikinn samdrátt hvers konar framkvæmda, sem hlýtur að hafa i för með sér ört minnkandi eftirspurn eftir vinnuafli. Við þær aðstæður, sem nú eru verður að gera þær kröfur til rikis og sveitarfélaga að áhersla sé lögð á, að atvinna á vegum þessara aðila dragist ekki saman. En þó á móti hafi blásið I kjarabaráttunni að undan- fömu og lifskjörum verið þrýst verulega niður frá þvi, sem þau hafa best verið, skulum við jafnframt minnast þess í dag, að samt sem áður, búum við hér við betri kjör en stéttasystkini okkar viðast hvar á jörðinni. 1 fjölda landa er atvinnuleysis- vofan daglegur gestur og i kjöl- far hennar hverskonar skortur og neyð. í þróunarlöndunum svonefndu, verður fólk milljón- um saman hungurmorða. Þá er tvo landsleiki. Fyrri leikinn sniluðu að tslendinaa hálfu Þórir Sigurðsson — Hallur Slmonarson og Jakob Möller — Jón Baldursson. Þann leik unnu Svisslendingar 20:5. Siðari lands- leikinn spiluðu fyrir tslendinga Hjalti — Asmundur og Stefán Guðjohnsen og Slmon Simonarson. Þann leik unnu Is- lendingar með 11:9. Þegar blaöið fór I prentun var fyrir tjáningarfrelsi viða ekki til og jafnvel öll mannréttindi fótum troðin. Við þurfum að hyggja vel að okkur, en megum ekki heldur, sist 1. mai, gleyma þjáðum, undirokuðum og sveltandi með- bræðrum okkar, þótt þeir búi i fjarlægð og hörundslitur sé margvislegur. Minnumst þeirra og styðjum þá eftir getu. Gleymum þvi heldur ekki að viða um lönd hafa alþjóðlegir auðhringar sogið til sin arð af vinnu þessa fátæka fólks og eiga eigi sist sök á fátækt þess og ill- um aðbúnaði. Það eru lika viti fyrir okkur að varast. Ariði f ár er að tilhlutan Sam- einuðu þjóðanna nefnt kvennaár og þvi sérstök ástæða til að vekja athygli á kjaramálum kvenna. 1 orði kveðnu hafa kon- ur hér á landi nú öðlast jafnrétti við karla I launamálum sem öðrum efnum, en mikið skortir enn á, að jafnretti riki i reynd. Þá viljum við skora á alla aðila, að keppa markvisst að þvi, að hvergi sé gerður launamunur eftir kynjum og að við ráðningu til starfa verði hæfni látin ráða en ekki það hvort umsækjandi er karl eða kona. Full ástæða er til að brýna það fyrir konum sérstaklega að vera vel á verði um rétt sinn I þessum efnum. Gera sér fullljóst að þær eiga jafnan rétt og karlar til starfa og jafnan rétt til launa. Sem endranær, l. mai, fögn- um við þvi, sem áunnist hefur á liðnum árum, og það er vissu- lega mikið. Jafnframt berum við fram kröfur okkar og setjum okkur mark og keppum að. Aðal kröfurnar I dag eru þess ar: Stjórnvöld láti af þeim ljóta leik, að ógilda frjálsa kjara- samninga verkalýðsfélaganna og atvinnurekenda. Bætt verði kjaraskerðingin undanfarna mánuði. Samiö verði um visitölubætur, er tryggi óskertan kaupmátt láglauna. Fullt jafnrétti karla og kvenna I öllum kjara- og launa- málum. Tryttð verði næg innlend orka til notkunar á islenskum heimil- um og I Islenskum fyrirtækjum. Islenska rikið og sveitarfélög- in hafi forgöngu um að tryggja næga atvinnu. Akveðið verði 200 milna fisk- veiðilögsaga. Þess sé gætt að auðlindir lands og sjávar séu nýttar i hófi, en ekki með rányrkju. Staðið sé á verði gegn ásælni og ofurvaldi erlendra auð- hringa, en á alþjóðavettvangi beiti islendingar áhrifum sinum jafnt til stuðnings fátækum þjóöum og þróunarlöndunum. Stöndum saman um kröfur okkar fylgjum þeim eftir til sig- urs. 1 samstöðu og samheldni er afl okkar fólgið.” hendi kappleikur við gestina og spila 4 pör af íslands hálfu, 16 spila leiki hvor tvö. Fyrst mun mæta þeim Þórarinn Sigþórsson —■ Hörður Arnþórsson, Helgi Jónsson — Helgi Sigurðsson. í siðari leiknum verða Guðmundur Pétursson — Karl Sigurhjart- arson og Jón Hjaltason — Jón Asbjörnsson. Leikur þessara 8 Islendinga mun verða reiknaður sem einn 32 spila leikur. J. Ostiz-Patino. Vortónlist í Kópavogi Tónlistarskóli Kópavogs gekkst fyrir vortónleikum sl. sunnudag, en á morgun verða burtfarar- prófstónleikar Margrétar Bóas- dóttur og hefjast þeir kl. 20.30. Margrét lýkur prófi i einsöng og er hún nemandi Elisabetar Erlingsdóttur. Undirleikari á tón- leikunum verður Guðmundur Jónsson. Hljómsveit Tónlistarskóla Kópavogs heldur sérstaka tónleika sunnudaginn 11. mai kl. 14.00, en stjórnandi hennar er Páll Gröndal. Skólanum verður slitið laugar- daginn 17. mai kl. 16.00. Allir tónleikar, svo og skólaslit fara fram i húsakynnum skólans að Alfhólsvegi 11, 3. hæð. Hinn 29. aprils.l. héldu Elisabet Erlingsdóttir söngkona og Kristinn Gestsson pianóleikari tónleika á vegum Tónlistarfélags Kópavogs i húsakynnum Tónlistarskólans. Elfsabet Erlingsdóttir og Kristinn Gestsson eru kennarar við Tónlistarskóla Kópavogs. — MÁL MALANNA HIÁ MÁLURUM Á nýafstöðnum aðaifundi Mál- arafclags Reykjavikur vöktu fé- lagsmenn athygli á þvi að at- vinnuástand I stéttinni hefði verið næsta bágborið á liðnum vetri. Hefði jafnvel orðið allt að 15% fé- iagsmanna atvinnulausir á tima- bilum. Málarar telja, að þett á- stand geti áorkað því, að menn hverfi úr stéttinni og eins að hún endurnýist naumast ef svo fari fram, þvi að nemar séu ekki ginn- keyptir fyrir námi i málaraiðn. Ástæðu telja þeir helst, að sparn- aðarráðstafanir af hálfu hins opinbera valdi þvi, að frestað sé nauðsyniegu viðhaldi fasteigna og svo hlaðist verkefni upp á sumum tlmum árs og verði þá að gripa til ófaglærðra manna, sem orsaki lélegri verkgæði. Bendir félagið á nauðsyn þess að skipu- leggja betur slika viðhaldsvinnu, svo vinnujöfnun geti fram farið nokkurn veginn eðliiega milli árs- tiða. ----1. MAÍ A AKUREYRI— ÁVARP VERKA- LVÐSFÉLAGANNA m Lausar stöður hjá ™ borgarverkfræðingi Gjaldkeri Starf gjaldkera á skrifstofu borgarverk- fræðings er hér með auglýst laust til um- sóknar. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna Reykjavikurborgar. Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf óskast sendar skrifstofustjóra borgarverkfræðings fyrir 20. mai nk. Fulltrúi Starf fulltrúa skrifstofustjóra borgarverk- fræðings er hér með auglýst laust til um- sóknar. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna Reykjavikurborgar. Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf óskast sendar skrifstofustjóra borgarverkfræðings fyrir 20. mai nk. Tæknistarfsmaður Tæknimenntaður starfsmaður með þekk- ingu og reynslu i mælingum og kortagerð óskast til starfa á mælingadeild. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna Reykjavikurborgar. Umsóknir ásamt upplýsingum um mennt- un og fyrri störf sendist skrifstofu borgarverkfræðings fyrir 20. mai nk. Húsavík — Leiguíbúðir Bæjarsjóður Húsavikur auglýsir hérmeð eftir umsóknum um leigu á 6 ibúðum að Garðabraut 69, sem nú eru i byggingu og byggðar samkvæmt reglugerð um úthlut- un lána og byggingu 1000 leiguibúða sveitarfélaga. — Jafnframt eru boðin út skuldabréf fyrir 20% af kostnaðarverði hverrar ibúðar. Umsóknir skulu hafa borist bæjarritara fyrir 1. júni nk. á þar til gerðum eyðublöð- um, sem liggja frammi á bæjarskrifstof- unni og eru þar veittar allar nánari upp- lýsingar. Húsavik 5. mai 1975. Bæjarsjóður Húsavikur. Ferðaskrifstofustarf Varnarliðið á Keflavikurflugvelii óskar að ráða sölufulltrúa á Ferðaskrifstofu Varn- arliðsins til að annast daglega umsjón með rekstri, bókunum og tengsl við við- skiptamenn og stofnanir. Reynsla við útgáfu farseðla mjög æskileg. Upplýsingar gefur Ráðningarskrifstofa Varnarmáladeildar, Keflavikurflugvelli, simi 92-1973. Félag ÍSL. Kafara auglýsir útseld vinna kafara 1. des. 1974. Fastakaup köfunarálag dýpi 0—12 m D. 752 D. 952 E. 978 E. 1.238 N. 1.204 N. 1.523 byrjunargjald 8.215 Útkall er minnst 4 timar. Þriðjudagur 6. maí 1975. o

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.