Alþýðublaðið - 06.05.1975, Side 9

Alþýðublaðið - 06.05.1975, Side 9
íhltOTTIIt Umsjón: Björn Btöndaí íslandsmótið í badminton Haraldur Kornelíusson þrefaldur meistari íslandsmótinu i badminton lauk á sunnudaginn i Laugardalshöllinni en þá voru leiknir úrslitaleik-„ irnir i öllum flokkum. En áður hafði verið leikið á fimmtudag og laugardag. Haraldur Korneliusson TBR var maður mótsins að venju og hlaut þrjá islandsmeistaratitla, i ein- liðaleik, tviliðaleik og tvenndarkeppni. Fyrsti leikurinn á sunnudaginn var i einliöaleik I m.fl. k. þar sem Haraldur lék viö Friðleif Stefáns- son KR og var sú keppni aldrei spennandi. Haraldur sigraöi örugglega, 15-5 og 15-8. 1 tvfliöaleik karla lék Haraldur meö Steinari Petersen TBR gegn Sigfúsi Ægi Arnarsyni og Ottó Guöjónssyni TBR. Keppni þeirra virtist ætla aö veröa spennandi i fyrstu, en þeg- ar líöa tók á fyrri lotuna sigu þeir Haraldur og Steinar framúr og sigruöu 15-6. Seinni lotan var ekki eins jöfn og endaöi 15-5 og þar meö haföi Haraldur fengiö sinn' annan titil. 1 tvenndarleiknum lék Haraldur ásamt Hönnu Láru Pálsdóttur gegn Steinari Peter- sen og Lovisu Siguröardóttur. 1 fyrri lotunni sigruöu Haraldur og Hanna 15-8, en i seinni lotunni léku Steinar og Lovisa mjög vel, komust i 8-0 og sigruöu svo örugg- lega 15-8. Jóhannes skoraöi i fyrsta leiknum Jóhannes Eðvaldsson lék sinn fyrsta leik i 1. deildinni dönsku á sunnudaginn, þeg- ar lið hans Holbæk lék á Indrætsparken i Kaup- mannahöfn gegn dönsku meisturunum KB. Jóhannes skoraði glæsilegt mark i leiknum með skalla, en það dugði skammt, þvi KB sigraði 4-2. A fimmtudaginn verður Jóhannes aftur i eldlinunni á sama stað og leika þá til úr- slita i dönsku bikarkeppninni gegn Velje. Holbæk er nú i fjórða sæti i deildarkeppninni sem er ný byrjuð. Fram vann Þrótt Framarar sigruðu Þrótt 3- 1 i Reykjavikurmótinu i knattspyrnu á laugardaginn. Leikurinn var afspyrnu lé- legur af beggja hálfu og á- huginn i lágmarki. Krstinn Jörundsson skoraði fyrir Fram i fyrri hálfleik. En i seinni hálfleik bætti Steinn Sveinsson við öðru marki og Kristinn svo þvi þriðja við fljótlega. A siðustu minútum leiksins tókst svo Þrótturum öllum á óvænt að skora og var það Leifur Harðarson sem gerði markið. 1 úrslitunum byrjuðu Haraldur og Hanna mjög vel og nkðu strax forskoti sem þeim Steinari og Lovlsu tókst aldrei aö brúa og sigruðu 15-10. 1 einliðaleik kvenna lék Lovisa Sigurðardóttir TBR til úrslita viö unga stúlku úr KR, Svanbjörgu Pálsdóttur. Keppni þeirra var i fyrstu jöfn, en sfðan ekki söguna meir og Lovísa sigraði af miklu öryggi 11-6 og 11-1. 1 tviliðaleik kvenna bættu þær Lovisa og Hanna Lára viö sinum öörum Islandsmeistaratitli þegar þær sigruöu Erlu Friöriksdóttur og Ernu Franklin KR 15-3 og 15-2. t A-flokki karla varö Jóhann G. Möller TBR meistari, sigraöi Hannes Rikharösson 15-8 og 15-11. Jóhann varð lika meistari I tvi- liðaleik, þar lék hann til úrslita á- samt Axel Ammendrup Val gegn Finnbirni Finnbjörnssyni og Sigurði Jenssyni og unnu 15-4 og 15-12. t einliðaleik kvenna I A- flokki sigraði Kristin Kristjánsdóttir TBR, Bjarnaheiöi tvarsdóttur Val, 12-11 og 11-6. í tviliöaleik kvenna sigruöu María Jóhannsdóttir og Oddfrlö- ur TBS þær Auði Erlendsdóttur og Jóhönnu Ingvarsdóttur TBS 15-3, 15-17 og 15-10. Þar meö höföu Siglfiröingar sem ekki komust til mótsins I tæka tlö hlotiö sinn fyrsta ís- landsmeistara titil.. Þeir bættu svo öörum viö I tvenndarkeppninni I A- flokknum þegar Jóhannes Egilsson og Auð- ur Erlendsdóttir TBS sigruðu Hannes Rlkharösson og Kristinu Kristjánsdóttur TBR 15-8 og 15-6. I flokki „old Boys” báru Magnús Ellasson og Valter Hjaltested TBR, sígur úr býtum, sigruðu Matthlas Guömundsson og Halldór Þóröarson KR, 15-6 og 15-6. Lovfsa Sigurðardóttir og Steinar Petersen veittu þeim Haraldi og Hönnu harða keppnl í tvenndarlelkn- um en urðu að lokum að lúta I lægra haldi. Myndin er af þeim Steinari og Lovisu. Reykjavíkurmótið í knattspyrnu „STRÁKARNIR ÁTTU ÞETTA SKILIД sagði Tony Knapp eftir að KR hafði sigrað Val „Strákarnir áttu þetta skilið”, sagði Tony Knapp þjálfari KR eftir siðasta leikinn i Reykja- vikurmótinu I knattspyrnu sem iauk I gærkvöldi. En þá urðu KR-ingar Reykjavikurmeistarar eftir að hafa sigrað Val 2—0. „Þeir voru betri aöilinn i leikn- um”, hélt Knapp áfram „og er ég mjög ánægöur fyrir þeirra hönd og félagsins. Núna snúum viö okkur aö 1. deildarkeppninni og stefnum að sjálfsögöu aö þvi aö sigra þar”. Töluveröur vindur var I gær- kvöldi þegar leikurinn fór fram. KR-ingar léku undan vindi I fyrri hálfleik og sóttu þá mun meira. Þeim tókst samt ekki aö skora nema eitt mark og var þaö Jó- hann Torfason sem það geröi. Jó- hann átti svo tvivegis gullin tæki- færi til aö skora en brást bogalist- in I bæði skiptin. Haraldur Kornellusson og Hanna Lára Pálsdóttir voru sigursæl að venju og sjást hér með verð- launagripi sina. 1 seinni hálfleik áttu flestir von á að Völsurum tækist fljótlega að jafna leikinn. En það var öðru nær og sóknir þeirra runnu allar út I sandinn löngu áður en inn I vltateig var komið. KR-ingar áttu svo af og til hættuleg upphlaup og upp úr einu slíku skoraöi Stefán örn annaö mark KR. Besta tæki- færi Vals fékk Bergsteinn Alfons- son en hann hitti ekki markið eftir að markvöröur KR haföi misst boltann fyrir fætur hans. Dankersen tapaói og þjálfarinn var rekinn Gummersbach iilaut meistaratitilinn Gummersbach tryggði sér meistaratitilinn i handknatt- leik i Þýskalandi á sunnu- daginn þegar liðið sigraði lið Axels Axelssonar Dankersen 1 úrslitaleiknum 13-7. Mikill hasar varð eftir íeik inn meðal áhangenda Dankersen út I þjálfara liðs- ins, sem lét Axel sitja á skiptimannabekknum nær allan leikinn. Fóru þeir leikar þannig að þjálfarinn var rekinn hið snarasta. Forráðamenn fé- lagsins leggja nú mjög hart að Axel að vera áfram hjá félaginu en hann hefur nú fengið nokkur tilboð frá öðr- um félögum. I leiknum á sunnudaginn fékk Axel að koma inná þeg- ar nokkrar minútur voru eft- ir af fyrri hálfleik og skoraði hann þá strax fallegt mark og átti auk þess glæsilega linusendingu. I seinni hálfleik var hann öllum til mikillar undrunar tekinn útaf þegar aðeins munaði einu marki á liðun- um 6-5 og þá fór allt i baklás og Dankersen skoraði aðeins 2 mörk gegn 11 mörkum Gummersbach. Eiginkona Axels, Krist- björg Magnúsdóttir lék lika til úrslita i kvennahandbolt- anum og varð Þýskalands- meistari með liði sinu. Þriöjudagur 6. maí 1975. o

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.