Alþýðublaðið - 06.05.1975, Side 6

Alþýðublaðið - 06.05.1975, Side 6
9. ÞING ÆSKULÝÐSSAAt HALDIÐ í REYKJAVÍK 25.-27. APRÍL 1975 Fulla atvinnu til handa sérhverjum vinnufærum manni í landinu! Fullnægjandi og mannsæmandi laun til handa hverjum þeim, sem selur vinnuafI sitt á al- mennum vinnumarkaöi! Mannsæmandi tekjutrygg- ingu til handa öllum, sem af einhverjum orsökum neyðast til að leita á náðir þjóðfélagsins um afkomu- möguleika sína! Þannig er upphafiö að þeim kafla, sem fjallar um baráttu- mál Æskulýðssambands Islands á innanlandsvettvangi næsta starfstímabil, sem er tvö ár. I greinargerð sem fylgir segir svo: 9. þing Æ.S.l. litur mjög al- varlegum augum þá kjara- skeröingu, sem orðið hefur á undanförnum mánuðum. Þingið telur að Æ.S.Í. geti alls ekki leitt hjá sér slika atburði, sem setja jafn rikan svip á þjóðlifið. Þing Æ.S.I. beinir þvi til stjórnar og fulltrúaráðs Æ.S.I., að á næsta starfstimabili leggi Æskulýðs- sambandið einkum áherslu á starf sem miðar að samstöðu með verkalýðnum og ööru launafólki með sömu stéttar- stöðu. Yfirstandandi kreppa auð- valdsheimsins og samdráttar- viðbrögðin við henni leiða óhjá- kvæmilega til mikils atvinnu- leysis, sem þegar er orðið að veruleika viða um lönd. At- vinnuleysi kemur ævinlega hart niður á þvi unga fólki, sem er að byrja að leita fyrir sér á vinnu- markaðinum. Hér er um að ræða mikilvægan starfsvett- vang fyrir Æ.S.I., en áherslu verður um fram allt að leggja á að slikt starf einkennist af sam- stöðu með verkalýð og öðrum launahópum, sem sömu hags- muna eiga að gæta i stéttarlegu tilliti. Auk þess segir um baráttumál sambandsins: 9. þing Æ.S.t. beinir þeim til- mælum til stjórnar Æ.S.Í., að hún beiti sér fyrir þvi, að sam- bandið taki upp samstarf við samtök náttúruverndarfólks ogönnur samtök, sem hafa að stefnu andóf gegn fyrirhugaðri byggingu málmblendiverk- smiðju á Grundartanga i Hval- firði. Þingið mælist ennfremur til þess, að Æskulýðssambandið standi á verði gagnvart öllum áformum um stóriðjufram- kvæmdir, sem kunna að spilla náttúru landsins, stuðla að óheillavænlegri byggðaþróun eða geta orðið til að flækja efna- hags- og atvinnulif þjóðarinnar, enn frekar en orðið er, i net er lends einokunarauðmagns. 9. þing Æ.S.I. hvetur öll að- ildarsambönd sin til að þjappa sér saman i baráttunni gegn hvers kyns samblæstri skamm- sýnna gróðaafla i landinu, sem setja skjótfenginn auð ofar öll- um mannlegum sjónarmiðum og geta þvi stefnt menningu og sjálfstæði þjóðarinnar i bráðan háska, fái þau að fara sinu fram óhindrað. 9. þing ÆSI leggur áherslu á, að áfram verði unnið að eftir- farandi baráttumálum: afnámi erlendra herstöðva á tslandi, afnámi allra hernaðar- bandalaga. 9. þingið itrekar ennfremur þá stefnu, að Æ.S.I. beiti sér fyrir auknum stuðningi islenskrar æsku og samstöðu með alþjóð- legri baráttu gegn arðráni og kúgun heimsvaldastefnunnar. 9. þing Æ.S.l. felur stjórn og utanrikisnefnd Æskulýðssam- bandsins, að sjá til þess að framangreindri stefnu, verði framfylgt i starfi samtakanna. 9. þing Æ.S.l. felur stjórn Æskulýðssambandsins, að kanna innan tiðar vilja aðildar- félaganna til að fylgja eftir könnun þeirri á neyslu fikni- efna.sem Þórunn Friðriksdóttir gerði að tilhlutan ÆSI. Þingið telur æskilegt að reynt verði að fá fram hugmyndir aðildar- félaganna um framhald á starfi Æ.S.I. i sambandi við neyslu vimugjafa og almenna af- þreyingarháttu islenskra ung- menna. Skýrsla um afstöðu aðildarfélaganna skal siöan lögð fyrir fulltrúaráðsfund Æ.S.l. til ákvörðunar um frekari stefnumótun i þessu sambandi. 9. þing Æ.S.I. leggur rika áherslu á,að öll kynning á starf- semi sambandsins og baráttu- málum þess verði stórefld á næsta starfstfmabili, og að jafn- an verði leitast við að halda sem nánustu sambandi við fjölmiðla og almenning i landinu. 9. þing Æskulýðssambands Is- lands var sett i Templarah. viö Eiriksgötu 25. april af vara- formanni þess, Jónasi Sigurðs- syni. Siðan flutti Hafsteinn Þor- valdsson, formaður Æskulýðs- ráðs rikisins ávarp. Starfsmenn þingsins voru kjörnir þessir: Þingforseti Rúnar Bachmann, varaforseti Eirikur Valsson og ritarar Vilberg Sigurjónsson og Sveina Sveinbjörnsdóttir. Til þingsins mættu fulltrúar niu aðildarsambanda, en Fylkingin og LIM sendu ekki fulltrúa. Þá voru lagðar fram skýrslur stjórnar og utanrikisnefndar svo og reikningar sambandsins. Verður hér getið helstu atriða úr skýrslum þessum: NATO herinn 8. þing ÆSI ákvað að brottför Nato hersins frá Islandi og úr- sögn íslands úr Nato skyldu verða höfuðbaráttumál tima- bilsins. Um það segir i skýrslu stjórnar,, ,,Þegar þingið markaði þessa stefnu voru aðstæður taldar mjög heppilegar til þess að úr þvi yrði að herstöðin yrði flutt af landi brott. I landinu sat vinstri stjórn sem hafði gefið yfir- lýsingu um brottför hersins. Eigi að siður voru á þeim tima allir sammála um að ætti úr brottförinni að verða yrðu öll samtök er létu sig þessi mál varða, aö taka höndum saman og knýja á rikisstjórnina með öllum hugsanlegum ráðum. Stjórn Æ.S.I. tók strax upp samstarf við Samtök herstöðva- andstæðinga og Vietnam- hreyfinguna um þetta mál. Haldnir voru allmargir sam- eiginlegir fundir fyrra starfsár stjórnarinnar þar sem með málinu var fylgst og frekari að- gerðir skipulagðar. Einn minnisstæðasti atburður I starfi stjórnarinnar er án efa þegar þessar þrjár hreyfingar stóðu að kröfugöngu og útifundi I tilefni fundar þeirra Nixons og Pompidu I mai 1973. Þær að- gerðir sönnuðu_fremur en nokkuð annað hversu miklu fylgi þessi málstaður á að fagna á meðal ungs fólks, þvi langt er siðan svo fjölmenn og vel heppnuð aðgerð hefur verið framkvæmd gegn dvöl hins erlenda hers á Islandi. Um þetta leyti þegar brottför hersins var i brennidepli i Islenskum stjórnmálum, lagði stjórnin ýmislegt af mörkum. Sendar voru baráttukveðjur á fundi út um land, formaður Æ.S.Í. Gunnlaugur Stefánsson tók þátt I nokkrum almennum fundum þar sem hann kynnti stefnumörkun Æ.S.l. I ræðum sinum. Stjórn og fulltrúaráðs- fundir sendu út ályktanir um málið. Þá skal þess getið að stjórnin . tók þátt I sameiginlegri blaðaút- gáfu með Vietnamhreyfingunni og Samtökum herstöðvaandr stæðinga. Sumarið 1974 breytist stjórn- málaástandið i landinu, þvi til valda kom ný rikisstjórn er boðaði áframhaldandi veru hersins. Þetta varð til þess að drepa niður allt sem unnið hafði verið enda hefur ekki heyrst hósti né stuna siðan frá Viet- namhreyfingunni og Samtökum herstöðvaandstæðinga i þessu mali. Stjórn Æ.S.I. hægði íika á baráttustarfi sinu og þarf það án efa endurskipulagningar við.” Fíknilyf 1 mai 1973 skipaði stjórn Æ.S.t. nefnd, er skyldi sjá um starf Æ.S.Í. varðandi hið svo- kallaða fiknilyfjavandamál. Nefndin ákvað að gangast fyrir könnun á fikniefnaneyslu ungs fólks i Reykjavik i sam- vinnu við námsbraut i þjóð- félagsfræðum við Háskóla ís- lands. Til að fjármagna þetta verkefni var sótt um fjárstyrk hjá fiknilyfjanefnd ráðuneytana og fékkst nægilegt fé. Þórunn Friðriksdóttir, sem var einn nefndarmanna, tók að sér að vinna þessa könnun og skilaði hún henni fullunnri siðla sumars 1974 og hafa niðurstöður hennar verið kynntar aðildar- samböndum og fjölmiðlum. Húsnæðismál ungs fólks 8. þing Æ.S.l fjallaði m.a. um húsnæðismál og beindi þeim til- mælum til stjórnar að taka málið til athugunar. Um málið var fjallað á mörgum stjórnar- og fulltrúaráðsfundum og var starfshópur skipaður i málið. Starfi hópsins er ekki lokið og hefur fallið niður að sinni a.m.k. en er áætlað að taka það upp i einhverri mynd i þvi starfi sem snerti málefni ungs verkafólks. Ljóst er að þetta er viðamikill málaflokkur og að þörf er á að vinna að máli þessu einu sér, en ekki i tengslum við aðra málsflokka, eigi að ná heildarniðurstöðum um húsnæðis mál ungs fólks. Landhelgismálið Stjórn og utanrikisnefnd stóðu sameiginlega að kynningu þess á erlendum vettvangi. Send voru áskorunarbréf og skeyti til evrópskra æskulýðssambanda þar sem skorað var á þau að styðja stefnu íslendinga I land- helgismálinu. Þá sendi stjórnin gjarnan þeim samtökum er stóðu að aðgerðum fyrir málinu, stuðnings- og baráttukveðjur. Auk þess, sem hér hefur verið getið er fjallað um fjármál , út- gáfumál, málefni þriðja heims- ins, ýmsar ráðstefnur og sam- skipti við aðildarsamböndin og aðila utan ÆSI. Úrsagnir úr ÆSÍ A áttunda þingi ÆSI varð ekki einhugur um stefnumörkun þingsins um NATO málið. Um eftirleik • þess segir i skýrslu stjórnarinnar: „Nokkur samtök lýstu þegar andstöðu sinni við samþykkt 8. þingsins og þegar þessi samtök sáu og skildu að stjórnin virti samþykktir þingsins um aðal- baráttumálið tóku úrsagnir þeirra að berast. I lok mai barst úrsagnarbréf t.S.I. en þaðhafði ekki tekið þátt I þinginu. Stjórn- in leit á ilrsögnina sem formlega viöurkenningu á þátttökuleysi I.S.I. I starfi Æ.S.I. á undanförn um árum. Stuttu siðar barst úrsagnar- bréf frá Sambandi ungra sjálf- stæðismanna og Sambandi Is- lenskra ungtemplara. Bæði þessi samtök höfðu tekið mjög virkan þátt istarfi Æ.S.I. á und- anfömum árum og leit stjórnin málið mjög alvarlegum augum. I lögum Æ.S.l. er kveðið á um rétt st jórnar til viðræðna við úr- sagnarsambönd og nýtti stjórn- in sér rétt þennan og stofnaði þvi til viðræðna við S.U.S. og I.U.T. þar sem þeir voru álitnir forystuaðilar úrsagnar sam- bandanna. Stjórnin gekk mjög langt til samkomulags og lagði til aö úrsagnarmálinu yrði skot- ið til aukaþings til lausnar. Stjórnin áleit að auka þing hefði getað leyst málið. Þessum til- lögum stjórnar höfnuðu S.U.S. og I.U.T. og töldu þessar við- ræður einungis haldnar til að fullnægja ákvæðum laga Æ.S.Í. úrsögnin væri ákveðin og engu hægt að breyta um það að sinni. Aðildarsamtök Æskulýðssé Fylkingin — baráttusamtö INSÍ — Iðnnemasamband LíM — Landssamband ísl( SÍNE — Samband íslenskr SUF — Samband ungra fr SUJ — Samband ungra ja SÍKN — Samtök íslenskra SHí — Stúdentaráð Háskó UMFI — Ungmennafélag ÆaB — Æskulýðsnefnd Al ÆSFV — Æskulýðsnefnd £ vinstri manna. Svipmynd frá 9. þingi ÆSI SAMANTEKT: CECIL HARALDSSON 0 Þriðjudagur 6. maí 1975.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.