Alþýðublaðið - 06.05.1975, Side 7

Alþýðublaðið - 06.05.1975, Side 7
ABANDS ÍSLANDS Siöan bárust bréf frá Banda- lagi islenskra farfugla og Sam- bandi bindindisfélaga i skólum, þess efnis að þau segðu sig úr Æ.S.I. og voru þvi 11. aðildar- sambönd eftir i Æ.S.Í. Sem nokkurskonar eftirmáli gerist það i byrjun essa árs að S.U.S. sendir C.E.N.Y.C. bréf þar sem S.U.S. lætur i ljósi efa semdir um að Æ.S.I. geti talist, fulltrúi i'slenskrar æsku á vett- vangi C.E.N.Y.C. bæði hvað varðar lög C.E.N.Y.C. og að meirihluti islenskrar æsku væri utan Æ.S.l. Dróg S.U.S. á ósmekklegan hátt, U.M.F.l. inn i málið. Fyrirspurn barst frá C.E.N.Y.C. vegna bréfs S.U.S. var henni svarað ásamt bréfi frá U.M.F.t. Þótti þá, að hálfu C.E.N.Y.C. ekki ástæða til að fjalla nánar um málið. Skýrsla utan- ríkisnefndar Tengslum ÆSl utan lands má skipta i þrennt: Samnorrænt samstarf, starf innan Evrópu- ráös æskunnar, CENYC og tvi- hliða samstarf við einstök lönd. Lang viðamest er samstarfið við Norðurlöndin, bæði innan samnorræna samstarfsins og tvihliða við þau, sérstaklega norðmenn og dani. Um sam- skipti æskulýðssambandanna á Norðurlöndunum segir svo i skýrslu utanrikisnefndar: Náið semband hefur verið um nokkurra ára skeið milli Æskulýðssamband anna| á Norðurlöndum. Samstarf þetta hefur skipu- lagslega séð verið laust i reipunum, og tilraunir til að koma á ákveðnara skipulagi, jafnvel með stofnun norræns æskulýðssambands hafa ekki boriö árangur fyrr en á siðasta ári, að verulegur áfangi náðist i þvi efni. Þá var endanlega gengið frá norrænum sam- starfssamningi æskulýðssam- bandanna, og var hann undir- ritaöur s.l. sumar. Þótt þessi samningur feli ekki i sér stofn- un æskulýðssambands, þá treystir hann grundvöll þessa norræna samstarfs. Markmið samningsins er að efla norrænt samstarf æskulýðssambandanna og aðildarsambanda þeirra, stjórnmálalega og menningar- lega og auka þannig áhuga æskufólks á þýðingu jafnt nor- ræns samstarfs sem viðtækara alþjóðlegs samstarfs.” Á grundvelli þessa samnings eru haldnir 3-4 tengslafundir ár- lega. Þar koma saman fulltrúar æskulýðssambanda Islands, Danmerkur, Noregs og Svi- þjóðar og frá Æskulýðsráði finnska ríkisins, en þar er ekki starfandi æskulýðssamband. Þá mæta á a.m.k. einn þessarra funda fulltrúar æskulýðs í Fær- eyjum* Álandseyjum og Græn- imbands íslands: k sósíalista íslands jnskra menntaskólanema a námsmanna erlendis amsóknarmanna fnaðarmanna kennaranema la íslands íslands Iþýðubandalagsins iamtaka frjálslyndra og landi. ’Á siðasta atriðinu hefur þó orðið misbrestur og er það eitt af stefnumiðum islendinga i norrænu samstarfi að verði ekki i framtiðinni. Ennfremur er stefnt að þvi samkvæmt samningi þessum að halda eigi færri en eina ráð- stefnu sameiginlega á hverju ári. Þá er gert ráð fyrir þvi i samningnum, að kostnaður við framkvæmd hans greiðist af sameiginlegum ferðasjóði að þvi marki, sem norræni æsku- lýðssjóöurinn greiðir ekki þann kostnað. Það er ástæða til að vekja at- hygli á þvi, að með samstarfs- samningi þessum hefur ekki verið komið á fót neinu nýju skrifstofubákni. Þvert á móti skiptast æskulýðssamböndin á um að annast nauðsynleg störf vegna samstarfssamningsins, svo sem að undirbúa og halda tengslafundi, undirbúa ráð- stefnur o.s.frv. Má i þvi sam- bandi benda á, að ÆSÍ lagði fram mikið starf við undir- búning byggðaráðstefnunnar i Reykjavik, og að sjálfsögðu eru tengslafundir haldnir reglulega hér á landi sem annars staðar. Næsti tengslafundur verður ein- mitt á Islandi i ágústmánuði n.k. Evrópuráð æskunnar Æskulýðssambandið hefur tekið virkan þátt i Evrópuráði æskunnar, CENYC. Aðild að CENYC eiga æskulýðssambönd 15 rikja Evrópu „vestan járn- tjalds”. Island átti einn stjórnarmann CENYC timabilið 1973-1975, Skúla Möller, og var hann gjald- keri þess. Það verkefni, sem ÆSI hefur átt helsta aðild að á vegum CENYC eru „Málefni ungs verkafólks”. Um það segir I skýrslu utanríkisnefndar: „I samræmi við ákvörðun 8. þingsins um aukna starfsemi Cenyc að þvi er varðar félags- lega stöðu ungs fólks i Evrópu, var ákveðið að hefja itarlega at- hugun á og umræður um, stöðu ungs verkafólks I aðildarrikjun- um. Þetta verkefni, sem hófst i maimánuði 1974, og mun standa fram á næsta ár, skiptist i raun og veru i þrennt. 1 fyrsta lagi söfnun almennra gagna um stöðu ungs verkafólks. Þessum þætti verkefnisins eru nú lokið I ööru lagi frekari athuganir, m.a. með kynnisferðum og inn- lendri starfsemi aðildarsam- bandanna. Þessi þáttur verk- efnisins stendur nú yfir. Og i þriðja lagi þrjár ráðstefnur um einstaka þætti málsins, og i framhaldi af þeim lokaráð- stefna, þar sem gengið verður frá endanlegum niðurstöðum. Stefnt er að þvi að þessar þrjár ráðstefnur verði haldnar siðar á þessu ári, og i janúar 1975, en lokaráðstefnan snemma á næsta ári. Æskulýðssambandið er eitt þeirra áðildarsambanda Cenyc, sem hefur unnið verulegt starf varðandi þetta verkefni. Utan- rikisnefnd skipaði á siðastliðnu hausti sérstaka nefnd, i sam- vinnu við Iðnnemasamband ts- lands, sem fjallar um þessi mál. Nefndin hefur unnið að gagnasöfnun, og sent þær upp- lýsingar til Cenyc. Jafnframt hefur nefndin unnið að undir- búningi ráðstefnu hér innan- lands um málefni ungs verka- fólks, og leitað eftir samvinnu við verkalýðshreyfinguna i þvi efni.” Aður er getið tvihliða sam- starfi ÆSl við norðmenn og dani. Auk þess hefur sambandið átt samskipti við KMO, æsku- lýðsnefnd Sovétrikjanna, þannig að annað hvert ár hafa sovétskir gestir komið hingað til lands sem gestir ÆSI, en hitt árið hafa islendingar farið til Sovétrikjanna. Þá tók utanrikisnefnd ÆSI að sér sumarið 1973 að vera undir- búningsnefnd hér á landi vegna heimsmóts æskunnar sem haldið var það ár i /Berlin. Ákveðið héfur verið að sami háttur eða svipaður verði hafður á með næsta heimsmót, sem haldið verður á Kúbu 1978. Þá var ÆSÍ boðið að senda fulltrúa á Eystrasaltsvikuna i fyrsta sinn. Seinni hluti þessarar samantektar um Æsku- lýðssamband íslands, starf þess og framtíðar- stefnu verður í blaðinu á morgun. í BREIÐHOLTIÐ Hamarshöggin eiga lengi enn eftir að heyrast í Breiðholti III. En þjónustustofnanir eru þegar farnar að rísa í þessu nýja hverfi. Þann 16. maí verður hverfið enn einni þjónustu- stofnun ríkari. Þá opnar Iðnaðarbankinn nýtt útibú að Völvufelli 21. Eftir það þurfa því íbúar í Breiðholti III ekki lengur að sækja bankaviðskipti sín í bæinn. Þeir geta sparað sér tíma og fyrirhöfn með því að beina viðskiptum sínum til Iðnaðarbankans að Völvufelli 21. LEITIÐ EKKI LANGT YFIR SKAMMT. Iónaðarbankínn Völvufelli 21 Breiðholti III Þriðjudagur 6. maí 1975.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.