Alþýðublaðið - 08.05.1975, Side 2

Alþýðublaðið - 08.05.1975, Side 2
Sirrý Geirs og Þorkell Valdimarsson (Valdimars - Silla og Valda - Þórðarsonar) gefin saman í dag „Hin hávaxna og rólega is- lenska feguröardrottning stal senunni af 51 annarri stúlku á fegurðarsamkeppninni á Long Beach” sagði i fréttaskeyti UPI. Hér að neðan eru fáar svip- myndir frá keppninni. Fegurðardrottning Islands 1959, Sigrlður Geirsdóttir, Stef ánssonar, stórkaup- manns, og Þorkell Valdimarsson, Þórðar- sonar, kaupmanns, rekstrarhagfræðingur, verða gefin saman I hjónaband i dag. Séra Jón Auðuns, fyrrv. dómprófastur, gefur brúðhjónin saman, en vigslan fer fram i Dómkirkjunni i Reykjavík. Sigríður, eða Sirrý Geirs varð, eins og fyrr segir, fegurðardrottning Islands árið 1959, en i framhaldi af þvi tók hún þátt i „Ungfrú Alheimur”, „Miss Universe”-keppninni, sem haldið var á Long Beach i Californiu árið 1960. Komst hún þar i úrslit en var auk þess kjörin „besta ljósmyndafyrir- sæta” keppninnar. Sigriöur varð stúdent frá M.R. 1958. Dvaldist hún um ára- bil i Bandarikjunum, en meðal annars var hún kunn söngkona hér um skeið. Brúöguminn, Þorkell Valdimarsson, starfaði einnig i Bandarikjunum sem kauphallarstarfsmaður um árabil. Alþýðublaðið óskar brúð hjónunum allra heilla. Með þessari.mynd sagöi Los Angeles Times að Sirrý hefði þegar á þriðja degi keppninnar verið búin að vinna þrjú verðlaun: Fyrir aö vera besta fyrirsætan, fyrirbestu ræðuna og fyrir besta þjóðbúning- inn, en hún var i Islenska skautbúningnum, þegar hún kom fyrst fram og flutti ræðu sina. Þessa mynd tók Geir Stefánsson af dóttur sinni f Flugfélagsvél á leið frá Glasgow. URÐUM AF 50.000.000 farið algerlega á mis við þau kostakjör, sem Fugleiöir h.f. hafa boðið öðrum feröaskrifstofum varðandi flug til Spánar. Það, sem félagið hafði aö bjóða Al- þýðuorlofi eftir að hafa samið við aðrar ferðaskrifstofur, var á eng- an hátt taliö fullnægjandi. Gerði Alþýðuorlof þá samning við Air Viking um flug með félagsmenn sina til Spánar. Um þennan samning sagöi Kjartan Helgason, framkvæmda- stjóri Alþýöuorlofs i samtali viö Alþýðublaöið, þegar hann var spurður um lækkanir, sem boðnar hafa verið á ferðum til sólar- landa: „Það sem fólst I svörum Flug- leiða varðandi kjör á ferðum til Mallorca var þannig, að því verð- ur helst likt viö brauðmola, sem eftir voru, þegar félagið var búið aö láta aðrar feröaskrifstofur fá megnið af þvi, sem það gat látiö. Samningar við Air Viking reyndust i þessu tilviki i saman- burði viö það, sem Flugleiðir buðu, hvítt og svart. Air Viking buðu okkur þarna miklu hag- kvæmari kjör fyrir okkar fólk en Flugleiðir”. Norrænt kennara- námskeið í Reykjavík Árlega halda norrænu kennara- samtökin (N.L.S.) námskeið fyrir kennara frá öllum Norðurlöndun- um. A þessum námskeiðum eru fluttir fyrirlestrar um kennslu- og skólamál, starfshópar starfa og umræður fara fram um erindin. — Landssamband fram- haldsákólakennara og Samband islenskra barnakennara eru aðil- ar að samtökunum. Að þessu sinni verður nám- skeiðið haldið hér á Islandi og hefst laugardaginn 26. júli að Hótel Loftleiðum, en lýkur föstu- daginn 1. ágúst. Höfuðviðfangs- efni námskeiðisins verður „Skól- inn og hin norræna menningar- sameign.”. Flutt verða eitt til tvö erindi daglega auk hópvinnu og almennra umræðna. Frummæl- endur veröa frá öllum þátttöku- þjóðunum. A námskeiðinu verður m.a. rætt um kennslu i norrænu málunum, samvinnu Norðurland- nna i skóla- og kennslumálum, sameiginlega tilraunastarfsemi, samræmingu á námsskrám o.fl. Þátttökugjald fyrir tslendinga verður kr. 7.000.00 og er innifalið i verðinu ferð til Gullfoss og Geysis og lokafagnaður að Hótel Loft- leiðum. Gistingu og mat verða þátttakendur að annast sjálfir, nema þeir óski sérstaklega eftir öðru. Þátttakendur af hálfu S.l.B og L.S.F.K. geta ekki orðið fleiri en 20 samtals og óskast umsóknir um þátttöku sendar skrifstofum samtakanna fyrir 1. júni n.k., en þar eru veittar nánari upplýsing- ar um námskeiðið. NÝI SlMINN OKKAR ER 81866 tlGtHDUR LEIGUfBÚDA ATHUGID Reglusöm hjón með eitt barn óska eftir að taka á leigu 2ja-4ra her- bergja íbúð sem fyrst. Fullkominni reglusemi og bestu umgengni er heitið. Æskilegust staðsetning er í Norðurmýri, gamla miðbænum eða vesturbæ, en íbúð i öðrum borgar- hluta kemur að sjálfsögðu eins til ígreina. Þeir, sem gætu sinnt þessu eru vinsamlegast beðnir að hafa sam- band í síma 8-18-66 eða 2-80-82 í dag k eða einhvern næstu daga. A I 'Hafnaríjaröar Apótek ® Áfgreiðslutími: ^ Virka daga kl. 9-18.30 Laugardaga kl. 10-12.30. | Helgidaga kl. 11-12 Eftir lokun: Upplýsingasími 51600. I 1 AJþyóubankinn M „I A\l flmllÍDúMl 1 Sími 8-55-22. Opið allan sólarhringinn | ÞAÐ B0RGAR SIG AÐ VERZLA i KR0N DUflfl í GlflEflBflE /fmi 04900 AF FORSÍÐU 0 Fimmtudagur 8. maí 1975.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.