Alþýðublaðið - 08.05.1975, Side 4
I hreinskilni
saat
w
eftir Odd Á. Sigurjónsson
Bjartara framundan?
Vaxandi umhyggju fyrir landi
og lýð virðist nú gæta hjá ýms-
um, og er gleðilegt til að vita.
Sykurinnflytjendur hafa nú á-
kveðið að axla sinn kross af
misheppnuðum innkaupum og
tapa sinum 190 milljónum
möglunarlitið. Ójá, skaðinn ger-
ir menn hyggna en ekki rika,
nema þá af reynslunni. Máske
verður útlendum spekúlöntum
trúað varlegar fyrst um sinn. Að
visu mun nú ákvörðunin hafa
fyrst verið tekin, þegar stjörn-
völd mönnuðu sig upp i að neita
tilmælum um „vernd” gegn
þeirri einstöku „spákaup-
mennsku” að flytja inn ódýrari
vöru en hinir höfðu á boðstólum.
Samt biða nú landsmenn enn-
þá eftir þvi að fá að heyra um
lækkun á timburverði, svona
eins og i kjölfar þess að Rúss-
arnir ætla að lækka sitt verð um
20-22%, eftir þvi sem blaða-
fregnirsögðu i úthallinu af reisu
utanrikisráðherrans og timbur-
salanna, sællar minningar.
Kannske einhver „vernd” sé yf-
ir byggingarvörukaupmönnum,
hver veit? Og sjálfsagt fækkar
dögunum þar til oliulækkunin
auglýsa sérstök kostakjör og
verðlækkanir á vöru sinni, ferð-
unum til sólarlanda. Auðvitað
hafa þessir gleðilegu hlutir
gerzt vegna „hagstæðari”
samninga, sem skyndilega hef-
ur opnast leið að! Heldur er nú
látið hljótt um i hverju þessir
hagstæðu samningar séu fólgnir
og hvernig stendur á, að þeir
buðust allt i einu. Liklega á að
skilja þetta svo, að einhver sér-
stök snilli ferðaskrifstofumanna
hafi verið þarna að verki.
Ekki er að efast um, að hér
„sólskin, rósir og vin?” spyr sá
sem ekki veit.
Það er annars ekki að sjá eða
heyra, að ferðaskrifstofurnar
biti neina útgarða. Auglýsingar
fyrir hundruð þúsunda glymja i
eyrum landsmanna og dansa
fyrir augum i sjónvarpi kvöld
eftir kvöld. Þar virðist ekki til
neins sparað. Það er sannarlega
allt annað hljóð en þegar verið
er að senda erlenda gesti út um
land og betla af gististöðum
bæði afslátt af mat og húsnæði.
„1 Ferði m mín og þi ín”
hans Einars sér dagsins ljós,
nema betur gangi um „vernd-
ina” en hjá sykurkaupmönnun-
um.
En hvað sem þessu liður, er
þó eitt, sem landsmenn geta
glatt sig við. Nú er sólskinið
komið á niðursett verð. Ferða-
skrifstofur vorar keppast nú
við, hver sem betur getur, að
séu snjallir kaupsýslumenn á
ferð. En vissulega er ekki óeðli-
legt, að þá verði jafnframt
spurt. Hafa þessir samninga-
möguleikar dottið skyndilega af
himnum ofan? Eða hafa þeir
máske verið fyrir hendi áður, en
ekki hirt um að hagnýta þá,
meðan landinn var ekki að súta
verðið, þegar hann langaði i
Nóg um þetta i bili, þótt málið
mætti fá lengri umræðu.
En það var eiginlega bæði illt
og broslegt að sjá og heyra við-
ureign tveggja „ferðajöfra” i
sjónvarpinu á föstudagskvöldið
var i þættinum „Kastljós”: Ef-
laust hefur verið til þess ætlast
af sjónvarpsins hálfu, að menn
yrðu eitthvað fróðari eftir en áð-
ur um ástæður fyrir þessari ein-
stöku greiðasemi, að láta menn
fá „sólarferðir með afslætti”!
En ég hygg, að þeir hafi verið
næsta fáir, sem urðu að fróðari.
Hitt kom auðvitað berlega i ljós,
að fremur er litið um ástrikið
milliþessara aðila. Þetta var nú
raunar áður vitað.
Almenningur á hinsvegar
ekki sérlega gott með að átta sig
á þvi, hvað er satt og hvað ekki,
þegar hvor fyrir sig þykist bjóða
betri kjör, án þess að rökstyðja
með öðru en fullyrðingum.
Þetta er auðvitað endemis
frammistaða, svo að af ber.
Þegar segja má að dylgjur
fljúgi svo milli keppinauta i
þessum efnum, verður málið
ekki geðslegra. Ef þessir ágætu
menn eru þess ekki umkomnir
að leggja spilm á borðið afdrátt-
arlaust, er slik viðureign og sú,
sem þarna fór fram sannarlega
ekki til þess fallin að hreinsa
loftið.
En þegar allir endar komu
saman, varð það eitt ljóst, að
báðir eru brennandi 'i andanum,
að veita sem allra bezt ferða-
kjör. Það skyldi nú ekki eiga
eftir að koma i ljós, að einhver
dularfull heppni eigi eftir að
gera þeim fært að lækka enn
prisana? Hverveit? Vilja skort-
ir ekki.
Pétur M. Jonasson
háskólakennari frá Kaupmannahöfn held-
ur fyrirlestur i Norræna húsinu föstudag-
inn 9. mai klukkan 20:30, um Lifriki Mý-
vatns og sérkenni þess. Allir velkomnir.
Hjálpræöisherinn,
80 ára afmælishátíð
Fimmtudag kl. 20.30: Fagnaðar-
samkoma. Major Guðfinna Jó-
hannesdóttir talar. Brigader
Óskar Jónsson stjórnar. 24 gestir
frá Færeyjum og gestir frá Akur-
eyri og ísafirði taka þátt með
söng, hljóðfæraleik og vitnis-
burði.
Föstudag 9. mai kl. 20.30: Sam-
kvæmi fyrir hermenn, heimila-
sambandssystur og fleiri.
Laugardag 10. mal kl. 20.30: Há-
tlðarsamkoma I Dómkirkjunni.
Biskupinn yfir Islandi og Dóm-
prófastur flytja ávörp.
Laugardag kl. 23.00: Miönætur-
samkoma. — Verið velkomin.
NORRÆNA
HÚSIÐ
PÓSTUR OG SÍMI
Laus staða hjá
Rekstursdeild—ísafjörður
— staða loftskeytamanns eða simritara við loftskeyta-
stöðina.
Nánari upplýsingar veitir umdæmisstjóri Pósts og slma
tsafirði.
Byggiugafélag alþyöu,
Reykjavík
Þriggja herbergja ibúð i 1. byggingaflokki
til sölu. Umsóknum sé skilað til skrifstofu
félagsins, Bræðraborgarstig 47, fyrir kl.
19.00 föstudaginn 16. þ.m.
Stjórnin.
® ÚTBOÐ
Tilboð óskast I götuljósabúnað fyrir Rafmagnsveitu
Reykjavikur.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Frlkirkjuvegi 3.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 3. júnl kl.
11.00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800
ÚTIVISTARFERÐIR
Fimmtudagur 8. mai:
1. Eyrarbakki, Stokkseyri og
strönd Flóans. Brottför kl. 10.
Verð 1000 kr. Fararstjóri Eyjólfur
Halldórsson.
2. Krossfjöll — Fjallsendi (einnig
hellaskoðun). Brottför kl. 13.
Verð 600 kr. Fararstjóri Einar
Ólafsson.
Laugardagur 10. mai:
Móskarðshnúkar. Brottför kl. 13.
Verð 500 kr. Fararstjóri Þorleifur
Guðmundsson.
Sunnudagur 11. mai:
Fjöruganga viö Hvalfjörð. Brott-
för kl. 13. Verð 600 kr. Fararstjóri
Friðrik Sigurbjörnsson.
Brottfararstaður B.S.Í. Frltt fyrir
börn I fylgd með fullorðnum.
Útivist, Lækjargötu 6,
simi 14606.
______. & . .
SKIPAUTC.CRÐ RIKISINS
M/s Esja
fer frá Reykjavík
fimmtudaginn 15. þ.m.
vestur um land i hring-
ferð.
Vörumóttaka: mánudag
og þriðjudag til Vest-
fjarðarhafna, Norður-
fjarðar, Siglufjarðar,
Ólafsfjarðar,
Akureyrar, Húsavikur,
Raufarhafnar, Þórs-
hafnar, Bakkafjarðar,
V opnafjarðar og
Borgarfjarðar eystra.
Volkswageneigendur
Höfum fyrirliggjandi: Bretti — Hurðir —-
Vélarlok — Geymslulok á Wolkswagen i
allflestum litum. Skiptum á einum degi
með dagsfyrirvara fyrir ákveðið verð.
Reynið viðskiptin.
Bilasprautun Garðars Sigmundssonar.
Skipholti 25 Simar 19099 og 20988.
RÉTTINDI TIL
HÓPFERÐAAKSTURS
Þann 1. júni 1975 falla úr gildi réttindi til
hópferðaaksturs útgefin á árinu 1974.
Umsóknir um hópferðaréttindi fyrir árið
1975-76 skulu sendar til Umferðarmála-
deildar pósts og sima, Umferðarmið-
stöðinni, Reykjavik fyrir 15. mai n.k.
í umsókn skal tilgreina árgerð, tegund og
sætaf jölda þeirra bifreiða, sem sótt er um
hópferðaréttindi fyrir.
Reykjavik, 7. mai 1975
Umferðamáladeild pósts og síma
LAUSAR STÖÐUR
Auglýstar eru lausar til umsóknar stöður
yfirmatsmanna við Framleiðslueftirlit
sjávarafurða.
Yfirmatsmenn munu starfa viðsvegar um
landið.
Æskilegt er að umsækjendur hafi mats-
réttindi og reynslu i sem flestum greinum
veiða og vinnslu.
Jafnframt er auglýst laust til umsóknar
starf skrifstofustjóra stofnunarinnar.
Laun samkvæmt launakerfi opinberra
starfsmanna.
Nánari upplýsingar veitir forstjóri stofn-
unarinnar i sima 16858.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf, berist sjávarút-
vegsráðuneytinu fyrir 3. júni n.k.
Sjávarútvegsráðuneytið,
5. mai 1975.
Fimmtudagur 8. maí 1975.