Alþýðublaðið - 07.08.1975, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 07.08.1975, Blaðsíða 1
149. TBL. - 1975 - 56. ARG. SKIPTIR HANN UM FLOKK? BAKSÍÐA FIMMTUDAGUR 7. ÁGUST * Ritstjórn Siöumúla II - Simi 81866 HEYRT SÉÐ OG HLERAÐ BAKSÍÐA LAUNÞEGASIÐA í opnu blaðsins HEIMSMYND Á blaðsíðum 4 og 5 Bretar vilja viðræður — af fullri hörku Að sögn Reuter-fréttastofunnar lét utanrikisráðherra Breta, Roy Hettersley, þau orð falla i breska þinginu i gær, að Bretar myndu ganga til viðræðna um land- helgismálið við Islendinga af fullri hörku og einbeittni eftir þvi, sem unnt væri. Lét ráðherrann i ljós þá skoðun, að íslendingum væri vel kunnugt um hagsmuni MLSMUNUN - sumir greiða strax, aðrir á þrem árum Ibúar oliukynntra húsa i Kópavogi, Garðahreppi og Hafnarfirði, sem fengið hafa eða munu fá hitaveitu á næst- unni, eiga þess kost að greiða heimtaugargjaldið til Hitaveitu Reykjavikur i þrennu lagi, þriðjung þegar heita vatninu er hleypt á, þriðjung að ári og af- ganginn að tveim árum liðnum. Frá þeim degi, þegar vatninu er hleypt á hjá þeim, reiknast 15% ársvextir á eftirstöðvar gjalds- ins. Tii þess er aftur á móti ætlast, að Reykvikingar hafi greitt tengigjöld húsa sinna að fullu við tengingu, en hafa þeir þó notið nokkurrar fyrirgreiðslu hjá Hitaveitunni, sem liðkað hefur til fyrir þeim með skammtima lánum. Heimtaugagjald fyrir hús- næði allt að 400 rúmmetra að stærð, er 109.310 krónur, en fyrir hvern rúmmetra þar fram yfir, allt að 2000 rúmmetrum,er 87.50 krónur. Fyrir 2000 rúmmetra húsnæði er gjaldið 249.230 krón- ur og fyrir hvern rúmmetra þar fram yfir, allt að 6000 rúm- metrum, er gjaldið 74.50 krónur. Breta i málinu og nauðsyn þess, að þeir gætu stundað veiðar á Islandsmiðum. Það var i fyrirspurnatima i breska þinginu, sem ráðherrann lét þessi orð falla. Greindi hann þingheimi frá þvi, að Bretar hafi óskað eftir þvi við rikisstjórn Islands, að viðræður um endur- nýjun á veiðiheimildum innan 50 milnanna yrðu teknar upp svo fljótt sem tök væru á. Viðlagasjóðshúsin seld undir kostnaði? Ibúðarhús þau, sem Viðlaga- sjóður keypti og reist voru i Garðahreppi, alls 35 að tölu, hafa að likindum öll verið seld á al- mennum markaði töluvert undir kostnaðarverði. Er mismunur söluverðs og kostnaðarverðs talið allt að 1.6 milljón krónur islenskar. 1 fyrstu voru hús þessi seld á 6,5 Ný kjaradeila flug- freyja og Flugleiða Ágreiningur hefur risið milli Flugleiða h.f. og Fugfreyjufélags tslands um túlkun á samningi þeim um kaup og kjör flugfreyja, sem gerður var milli þessara aðila i vor. Stendur ágreiningur- inn um þá grein samnings flug- freyja, sem fjallar um verðlags- bætur, og vilja flugfreyjur túlka aðtriðið á þann veg, að launþeirra eigi að hækka til samræmis við þá samninga, sem ASt og vinnuveit- endur gerðu með sér i júni siðast- liðnum, en Flugleiðir h.f. neita að viðurkenna það viðhorf þeirra. Grein sú i samningnum, sem deilt er um, hljóðar á þann veg, að laun flugfreyja skuli hækka til samræmis við þau verðtrygg- ingaákvæði, sem ASt komi til með að semja um og vilja flug- freyjur túlka ákvæðið á þann veg, að laun þeirra skuli nú hækka um 5.300 krónur vegna ASt samn- inganna i júni og i haust svo um 2.100 krónur. Flugleiðir h.f. hafa neitað að greiða flugfreyjum laun sam- kvæmt þessum skilningi á samn- ingum og hafa flugfreyjur þegar tilkynnt félaginu, að meðan ágreiningur riki um þessi atriði gildandi samninga muni þær ekki undirrita frekari samninga við félagið. Að sögn Erlu Hattle- mark, formanns Flugfreyju- félagsins, koma þar meðal ann- ars til samningar milli deiluaðil- anna vegna fyrirhugaðs leigu- flugs Flugleiða með pilagrima milli Jakarta og Jedda i vetur. Frekari samræður milli deilu- aðila hafa ekki farið fram, en fundir hafa verið haldnir vegna deilunnar i stjórn og trúnaðar- mannaráði Flugfreyjufélagsins, svo og hefur verið haldinn félags- fundur, þar sem flugfreyjum var kynnt um hvað deilurnar stæðu. milljónir króna, en við samantekt á kostnaði vegna þeirra húsa hef- ur komið i ljós, að kostnaðarverð þeirra er liklega um 8,1 milljón króna. A siðasta ári var verð á þeim húsum.sem óseld voru þá, hækk- að tvivegis, vegna hækkunar á visitölu byggingarkostnaðar. Fyrst voru húsin hækkuð i 7,5 milljónir króna, en siðar i 8,5 milljónir. Liklegt verður að telja, að kostnaður við húsin hafi ekki hækkað minna en söluverð þeirra hækkaði og má þvi áætla, að við- lagasjóðshúsin i Garðahreppi hafi verið seld með að minnsta kosti 52,5 milljón króna tapi. Viða um land gekk fremur treg- lega að selja hús þau, sem flutt voru inn á vegum Viðlagasjóðs vegna eldgossins i Heimaey. Má þar nefna til dæmis húsin á Sel- fossi og viðar, sem lengi stóðu auð, eftir að Vestmannaeyingar höföu ekki lengur þörf fyrir þau. Ekki liggur fyrir neitt uppgjör á þvi, hvernig söluverð þessara húsa stendur gagnvart kostnaðarverði ogekki er vitað til þess,aðsamantektá þvi standi tiL Loðnan líkust hornsílum Loðnan, sem undanfarið hefur verið veidd fyrir norðan land, er ákaflega smá og rýr. Lengd henn- ar er mest um 10-11 scntimetrar og fitumagn hennar ekki nema um 5 1/2 — 6 1/2%. Þær upplýsingar fengust hjá Sildarverksmiðju rikisins á Siglu- fírði i gær, að loðnan væri svo smá og rýr, að einna hclst mætti iikja henni við hornsili. Hefur reynst mjög erfitt að vinna hana og litið fengist af nothæfum af- urðum úr þeim tæplega 2.500 tonnum, sem komin eru á land. 1 viðtali við Alþýðublaðið i gær sagöi Jakob Jakobsson, fiskifræð- ingur, að loðna þessi væri um 1 1/2 árs gömul og mjög vafasamt væri að veiða hana i nokkrum mæli þetta ár. Næsta sumar mætti þó veiða töluvert af ár- ganginum og mætti þannig dreifa loðnuveiðum nokkuð, i stað þess aöhlaða öiluin veiðununi á hávet- Leiguvél lækkar fargjaldið Flugfar fram og til baka milii tsiands og Færeyja er mögulegt að kaupa hjá Flugfélagi tslands á krónur 10.440 fyrir hvern farþega ef Fokker Friendship vél er tekin á ieigu hjá félaginu i stað þess að fara með áætlunarfluti þess. Þctta er tæplega 35% ódýrara en lægstu skráðu fargjöld félagsins á þessari leið, en miöað við að far- þegi fljúgi til baka innan 14 daga kostar farið fram og til baka með áætlunarflugi 16.340 krónur. Enn meiru munar ef miðað er viö lengri dvöl, þvi þá kostar flug- far meö áætlunarfluti 24.880 krón- ur. Þessum lágu fargjöldum er hægt að ná með þvi aö taka Fokk- er vél á leigu hjá Flugleiðum og fylla hana af farþegum. Leigu- gjald fyrir vélina er 105.000 krón- ur fyrir hverja klukkustund, eða um 400.000 krónur fyrir flug milli Færeyja og tslands, báðar leiöir. t utanlandsflugi taka vélarnar 40 farþega, þannig að fargjald fyrir hvern yrði rúmlega 10.000 krónur fyrir báðar leiðir. J ónas rekinn — nýtt dagblað ? Vísisveldið í rústum Baráttunni um yfirráðin yfir dagblaðinu Visi og stefnu blaðsins virðist ætla að lykta með þvi, að meirihluti stjórnar Reykjaprents h.f. reki ritstjórann, Jónas Kristjánsson, fyrirvaralaust úr starfi og hreki þá um leið Svein R. Eyjólfsson, framkvæmdastjóra, og ýmsa aðra samstarfsmenn Jónasar frá blaðinu. Þeir menn, sem stjórnarmeirihlutinn er nú að hrekja frá blaðinu, hafa staðið á bak við uppgang og velgengni Visis, sem fyrir aðeins nokkrum árum átti i miklum fjárhagsleg- um erfiðleikum en hefur að und- anförnu skilað mestum hagnaði allra islenskra dagblaða. Auk þess að sitja uppi með alla þekk- ingu og reynslu varðandi blaða- reksturinn eiga þeir Jónas, Sveinn og stuðningsmenn þeirra mikil Itök i rekstri Visis svo að við brottför þeirra frá blaðinu liggur Visisveldið i raun i rústum. Munu þeir hafa fullan áhuga á að hefja sjálfir útgáfu nýs dagblaðs og hafa i þeim efnum yfir að ráða reynslu, þekkingu, fjármagni, mannafla og allri þeirri aðstöðu, sem þeir þurfa. Eins og fram hefur komið i fréttum hafa ýmsir eigenda Reykjaprents — útgáfufyrirtækis Visis — svo og ýmsir aðrir lengi haft áhuga á að koma Jónasi Kristjánssyni frá blaðinu. Fyrir tæpum tveimur árum stóð til að setja Hörð Einarsson, lögfræðing, I sæti Jónasar, en sú atlaga mis- tókst, enda stóðu framkvæmda- stjóri blaðsins og allt starfslið FRAMHALD Á 5. SÍÐU A EINU... Dýr var hver dropi á ,,bi n d i nd is h á t iöinn i ’’ i G a11 a 1 æk ja rskógi um verslunarmannahelgina. Ein kókflaska af brennivini (1 peíi) var þar seld á fjögur þúsund krónur manna á milli. Sjálfsagt á mikil árvekni brennivinsieitenda sinn þátt i þessu fáheyrða verði. ...ANDARTAKI

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.