Alþýðublaðið - 07.08.1975, Page 4

Alþýðublaðið - 07.08.1975, Page 4
Alþj óðlegu auðhringarnir og áhrif þeirra á alþjóðasamskipti Peningar eru oft sagöir vera afl þeirra hluta, sem gera skal. En þegar viö hugleiöum þessa staðhæfingu er trúlegt, að athyglin beinist fyrst og fremst aö takmörkuðum athöfnum, einstaklinga og hópa. Þó getum við, án efa, orðið sammála um, að staðhæfingin getur átt við heila þjóð, t.d. átak þjóðar við að draga úr atvinnuleysi, efla atvinnuvegina og bæta menntun. Oft er talað um að heimurinn sé að minnka, eftir þvi sem tækni og vlsindum fleygir fram. Óþarft er að nefna mörg dæmi þessu til staðfestingar. En hrað inn er tvimælalaust höfuðein- kenni þess tima, sem við lifum nú á. Aukin samskipti þjóða á milli beina athygli manna, I vaxandi mæli, að alþjóðlegum viðfangsefnum. Það sem er daglega að gerast, úti i hinum stóra heimi, tengist æ meir atburðarásinni i hinum ein stöku löndum og örlögum og lifi hvers einstaklings. Þegar við tslendingar ræðum um alþjóðaviöskipti eða önnur samskipti á alþjóöavettvangi beinist hugur okkar fyrst og fremst að hinum ýmsu rikjum heims. A þeim vettvangi er það rikiö eða landið, eins og svo er sagt, sem kemur fram sem samningsaðili. Þessi lönd skipa sér siöan i hópa, hagsmuna- hópa til þess að berjast fyrir sameiginlegum hagsmuna- málum. Má þar nefna Einingar- samband Afrikurikjanna, NATÓ, Varsjárbandalagið, Efnahagsbandalag Evrópu, Bandalag Oliuframleiðslurikj- anna o.s.frv. Með stofnskrá Sameinuðu þjóðanna var lagöur grund- völlur að þvi að öll aðildarrikin fengju jafnan rétt til þess að hafa áhrif á gang mála á alls- herjarþinginu. Skipti þá engu máli, hvort viðkomandi land hafði Ibúa, sem taldi tugi milljóna eða aðeins nokkur hundruö þúsund. Neitunarvald stórveldanna skipar þeim, aö sjálfsögðu, I sérstakan hóp, sér- staklega að þvi er varðar öryggismálin. Þar er um að ræða formsatriði, sem á upp- runa sinn i pólitlskum aðstæðum, sem fyrir voru við lok siðari heimsstyrjaldarinnar, er Sameinuðu þjóðirnar urðu aö veruleika. Gegnum áldirnar hefur sigurvegarinn ávallt haft afgerandi sérstöðu og hefur þannig skapast hefö, sem enn setur allmikinn svip á samskipti þjóöa i milli. En þó aö aöildarriki Sam- einuðu þjóðanna hafi öll sama réttinn til aö greiða atkvæöi á allsherjarþinginu fer ekki fram- hjá neinum, að áhrifa þeirra gætir mjög misjafnlega. Hinir fjölmörgu hagsmunahópar ganga þar ljósum logum, ekki siður þar en á vettvangi innan- rikismála og þar erum við Islendingar engir eftirbátar annarra þjóöa, nema siður sé. Én þó að hin ýmsu lönd, stór og smá, skipi sér i hagsmuna- hópa á hinum alþjóölega vig- velli stjórnmálanna er vert að vekja athygli á öðru afli, sem reyndar hefur ekki atkvæðisrétt á allsherjarþingi Sameinuöu þjóðanna, en er eigi að siður áhrifamikið vald á alþjóða vett- vangi. Hér á ég við alþjóðlega auðhringa, sem starfa, að meira eða minna leyti, i öllum löndum heims. Þjóðarframleiðsla einstakra landa er nokkur mælikvarði á það, hversu fjölmenn og umfangsmikil þau eru. Þegar ársframleiðsla einstakra auð hringa, er borin saman við þjóðarframleiðslu einstakra rikja, kemur glöggt I ljós, hversu áhrifamiklir þessir auð- hringar eru, þvi að þrátt fyrir allt eru peningarnir afl þeirra hluta, sem gera skal, eins og drepið var á i upphafi. Til þess að sýna hversu umfangsmiklir stærstu auð- hringar heimsins eru i hlutfalli við stærstu framleiösluríki heims, er hér skrá yfir viðkom- andi lönd og auðhringa, sem miðuð er við þjóðarframleiðslu (GNP) og sölu. Tölurnar eru miðaöar við árið 1970, i millj- örðum dollara: 1. Bandarikin......... 974,10 2. Sovétrikin......... 504,70 3. Japan.............. 197.18 4. Vestur-Þýskal...... 186.35 Bankarán að verða daglegt brauð í USA Bankarán eru meöal þeirra glæpa, sem banda- rísk lögregla hefur lengstaf oröiðaðglíma við. Til þessa hafa bankaránin einungis verið framin í þeim tilgangi, að komast undan með stórar fúlgur f jármuna. Á siðustu árum virðist, sem glæpastarfsemi hafi færst meira og meira inn á hið pólitiska svið. Flugvélarán og mannrán hvers konar hafa færst i vöxt og þving- unum er miskunarlaust beitt af harðskeyttum hópum glæpa- manna af ýmsum toga. Frá Kaliforniu bárust þær fréttir að hópur skemmdarverka- m anna hafi ráðist á heimili aðal- bankastjóra, (Tharles de Brette- ville, við Kaliforniu Banka i San Francisco og varpað þrem sprengjum að húsinu. Engan sakaði i sprengjutilræðinu þar sem ibúar hússins voru fjarver- andi. Stafirnir NWLF höfðu verið málaðir rétt utan við húsið en það * er skammstöfun á samtökum, er nefna sig the New World Libera- tion Front (Nýja framvarðarsveit frelsissinna). Samtökin hafa viðurkennt fjölmörg sprengjutil- ræði i Norður Kaliforniu á þessu ári. r ! % L II nmmx*? 5. Frakkland 147.53 6. Bretland 121.02 7. ítalia 93.19 8. Kina 82.50 9. Kanada 80.38 10. Indland 52.92 ll.Pólland 42.32 12. Austur-Þýskal 37.61 13. Ástralia 36 .10 14. Brasilia 34.60 15.MexÍkó 33.18 16. Sviþjóö 32.58 18. Spánn 32.26 18.Holland 31.25 19. Tékkóslóvakia 28.84 20. Rúmenia 28.01 21. Belgia 25.70 22. Argentia 25.42 23. GENERAL MOTORS 24.30 24. Sviss 20.48 25.Pakistan 17.50 26. Suöur-Afrfka 16.69 27. STANDARD OIL (N.J) 16.55 23. Danmörk 15.57 29. FORD MOTOR 14.98 30. Austurriki 14.31 31. Júgóslavia 14.02 32. Indónesia 12.60 33.Búlgaria 11.82 34. Noregur 11.39 35. Ungverjaland 11.33 36. ROYAL/DUTCH/Shell 10.80 Frelsishreyfingarnar amast við erlendri afskiptasemi 1 fréttum frá Lissabon greinir frá þvi, að dr. Agostinho Neto foringi MPLA, hafi ásakað stjórnir Suður Afriku, Bandarikj- anna og Zaire um ihlutun i mál- efni Angóla og að þessir aðilar hafi reynt að stuðla að sundrung Þráskák um aðild að S.Þ. og upplausn i landinu. Dr Neto segir að MPLA muni koma i veg fyrir hverskonar ihlutun erlendra afla, þar meö talið Bandalag Af- riku rikjanna (OAU) og Sameinuðu þjóðirnar. Úrhinum andstæða armi hinna striðandi afla i Angóla, FLNA, er haft eftir innanrikisráðherran- um, Ngola Kabanku, að Sovétrik- in, Pólland og Tékkóslóvakia hafi reynt að hafa afskipti af átökun- um i Angóla. Það ástand, sem nú hefur skapast i landinu á trúlega eftir að hafa ófyrirsjáanlegar af- leiðingar og gæti ef til vill orðið þess valdandi að erfitt reyndist að ganga frá sjálfstæði þessarar portúgölsku nýlendu nú i haust, eins og ákveðið haföi verið. Sadat treystir Kissinger Anwar Sadat forseti Egypta- lands sagði i gær, að hann bæri mjög mikið traust til Henry Kissinger, sem iegði sig allan fram við að koma á sáttum i deil- um Araba og ísraelsmanna. Sadat sagði að „andlit Bandarikj- anna’’ hefði áður verið mjög ljótt, en óeigingjarnt starf dr. Kissingers hefði endurvakið trú hans á Bandarikjunum. Þegar Sadat var spurður að þvi hvort hann hefði trú á þvi að Kissinger tækist að miðla málum og koma á friði færðist hann undan þvi að gefa ákveðið svar. Eins og stendur erum við að biða eftir þvi að ísrael gefi svar við siðustu til- lögum Bandarikjanna þess efnis að Israel dragi til baka hersveitir sinar á Sinaiskagá. Siðustu fréttir frá Indókina herma, að Hanoi stjórnin hafi harðlega gagnrýnt tillögur Bandarikjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, þess efnis, að inntaka Norður- og Suður Vietnam i Sam- einuðu þjóðirnar verði bundnar þvi skilyrði, aö Suður Kórea fái einnig aðild aö S.þ. Bent er á að aðild Austur- og Vestur Þýskalands hafi verið samþykkt á þeim forsendum, að bæði rikin hafi verið samþykkt aðild að S.þ. Sama gildir nú um Norður- og Suöur Vietnam. Á hinn bóginn eru aðstæður i Suður- og Norður Kóreu allt aðrar, þar sem Norður Kórea óskar ekki eftir • aðild. Afstaða Norður Kóreu, i þessu máli, mótast án efa af þvi að Hanoi viðurkennir ekki Suður Kóreu. Framvinda þessa máls kemur þvi til með að vekja nokkra athygli og ef til vill hafa nokkur áhrif á gang heimsmál- anna i þessum heimshluta. Hoffa. Jimmi Hoffa er enn ófundinn en mikil leit stendur nú yfir. Hverjum þeim, sem veitt getur upplýsing- ar, er ieiöi til þess að hann finnist hefur veriö heitið 3000 dollurum. Suður Kórea. öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur nú til með- ferðar ósk Suður Kóreu um aðild aö S.Þ. Bæði Sovétrikin og Kina er mótfallin aðild landsins. Hiroshima. t gær, 6. ágúst, var þess minnst i Japan, að 30 ár voru liöin frá þvi að Bandarikin vörpuðu kjarnorku- sprengju á borgina Hiroshoma og 200.000 manns létu lifið. Við minningarathöfn, sem fram fór I borg- inni, var lögð á það megináhersla, aö öllum kjarn- orkuvopnum yröi útrýmt, enda ógnuðu þau tilveru alls mannkynsins. Verkfall hjá lögreglu. Allt lögregluliðið i borginni Torreon f norðurhluta Mexikó fór I verkfall I gær til þess að mótmæla vegna þess að þeim hafði ekki veriö greidd laun. tbúar borgarinnar eru um 400 þúsund. Manntjón vegna rigninga. Miklar rigningar hafa gengið yfir norðurhluta Japan siðustu sólarhringa og hafa þegar látist 14 manns og 29 hafa særst. Fjöldi manns hefur misst heimili sfn. Japanskir skæruliðar til Libíu. Stjórnin i Libiu hefur samþykkt að taka við japönsku skæruliðunum i Kuala Lumpur. Bann við tóbaksauglýsingum. Breska stjornin er sögö hafa i hyggju að banna tó- baksauglýsingar og þar á meðal tóbaksauglýsingar á iþróttasvæðum og til styrktar iþróttum almennt. iþróttamálaráðherra, Denis Howell, hefur borið þessa frétt til baka og segir að engar slíkar ráðstaf- anir séu i uppsiglingu. Kissinger á fartinni. Aform eru uppi um, að Henry Kissinger fari enn á ný I heimsókn tii Egyptalands, Israel og Sýrlands I lok þessa mánaðar til þess að koma á sáttum milli þessara aðila. Svissneska lögreglan á verði. Svissneska lögreglan handtók i gær mann, sem gerði tilraun til að ræna frönskum diplomat og konu hans á tollstöð nálægt frönsku landamærunum. Maðurinn, sem var vopnaður hafði einnig vopn I farangri sinum. Ræninginn var afvopnaður og síðan handtekinn. Frökkum fjölgar. Samkvæmt siðasta manntali, sem gert var I Frakklandi á þessu ári eru ibúar landsins nú 52.590.000 talsins og er það fjölgun um tæplega þrjár milljónir frá þvi síðasta manntal var tekið en það var árið 1968. o Fimmtudagur 7. ágúst 1975

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.