Alþýðublaðið - 07.08.1975, Side 6
Slr William Stephenson, einhver stórhrotnasti afreksmaður
af íslenskum ættum, senf uppi hefur verið
N. Mnt(»iri Hjdt I >?•'«!• HtrtUlu Piljsmr
DULARFULLI Tl
KANADAMAÐURINN
önsku ræðismannsskrifstofuna í New York og San Fransískó, og af skýrsl-
nm þaðan, er komu heim við upplýsingar frá öðrum heimildum, var aug-
ljóst nokkrum mánuðum áður en árásin var gerð á Pearl Harbor, að
hemaðarsinnar í Tokyo vom staðráðnir í að leggja út í styrjöld. Atvik,
sem gerðist á miðju ári 1941, sýndi, að Japanir vom að undirbúa flutn-
ing aðalnjósnastöðvar sinnar í Vesturheimi, sem starfrækt var í skjóli
sendiráðsins, frá Bandaríkjunum til Argentínu, ef styrjöld við Banda-
ríkin skylli á. Stephenson frétti frá heimildarmanni innan utanríkis-
ráðuneytis Argentínu, að tveir minni háttar, japanskir sendimenn mundu
verða fluttir frá Washington til Buenos Aires, og hafði Stephenson æma
ástæðu til að ætla, að aðalstarf þeirra væri njósnir. Mennimir vom raunar
lagðir af stað ásamt föruneyti, og annar þeirra, Hirasawa að nafni, var
þekktur fyrir að hafa átt þátt í því, þegar Kichisaburo Nomura varð að
segja af sér sem utanríkisráðherra 1939, og möndulveldavinir urðu alls-
ráðandi í utanríkisráðuneyti Japana.
Vegna skjótra viðbragða Stephensons vom Hirasawa og vinir hans
fluttir af skipsfjöl, þegar það kom við í Barbados, og sendir flugleiðis
til Trinidad, þar sem fulltrúi Stephensons hafði gert hæfilegar ráðstaf-
anir til móttöku þeirra. Við komuna til Port of Spain vom Japanir
yfirheyrðir, Ijósmyndaðir og leitað á þeim, en jafnframt vom tekin fingra-
för þeirra. Þeir reyndust hafa í fórum sér fjölda brezkra og bandarískra
tæknitímirita, sem gildi höfðu við leynistarfsemi, landabréf, þar sem sýnd
var staðsetning brezkra og bandarískra flotabækistöðva í Vesturheimi,
skrá yfir menn, sem Hirasawa hafði samband við, og um það bil 40 þús-
und dollara í Bandaríkjaseðlum, og vom 15 þúsund dollarar faldir innan
við fóðrið í handtösku frú Hirasawa.
Japanir bám vitanlega fyrir sig, að þeir nytu forréttinda stjómar-
erindreka. Er boraar vom brigður á það, þar sem gengið hafði verið úr
skugga um, að argentínska stjórnin hafði neitað að viðurkenna þá, að
því er virtist af því að tala starfsmanna allra sendisveita í Buenos Aires
var takmörkuð. Til að smjúga framhjá þvi ákvæði tilkynntu Japanir þá
hiklaust, að þeir hækkuðu sendisveit sína í fyrstu gráðu, og xun síðir féll-
ust Argentínumenn á að veita umræddum Japönum viðtöku. En þá var
svo komið, að hvorki Bretar né Bandaríkjamenn, sem Stephenson hafði
látið vita, höfðu í hyggju að láta þá lausa. Eftir miklar umræður vora þeir
fluttir sjóleiðis til Halifax undir ströngu eftirliti. Þar vom þeir yfir-
heyrðir af kanadísku riddaralögreglunni, sem naut aðstoðar F.B.I., en
eftir mótmæli frá japönsku stjóminni vora þeir loks sendir heim til
Japans ásamt 47 ferðatöskum — en án 40 þúsund dollaranna, landa-
bréfanna og tækniritanna.
Um miðjan nóvember 1941 kom klækjarefurinn japanski, hinn sér-
legi erindreki Saburo Kusum, til Washington. Hann hafði undirritað
þríveldasáttmálann við Þýzkaland og Ítalíu, meðan hann var sendiherra
Japana í Berlín. Tilgangurinn með þessari sendiför hans var að reyna
að þröngva Bandaríkjunum til að fallast á yfirdrottnun Japana í Austur-
löndum, en ef og þegar það misheppnaðist, átti liann að svæfa Banda-
ríkjamenn með friðarhjali, láta þá halda, að öllu væri óhætt, unz hús-
bændur hans í heraum væm reiðubúnir til að láta til skarar skríða. I
þessu naut hann stuðnings Nomuras, hins veikgeðja sendiherra Japana,
sem áður hefði verið utanríkisráðherra þeirra.
Stephenson tókst nokkum veginn að ná samböndum innan sendi-
sveitar Kusuras með aðstoð eins manna sinna, sem var brezkur þegn,
hafði verið búsettur í Japan í 50 ár og talaði japönsku reiprennandi.
Þessi starfsmaður Stephensons náði sambandi við einkaritara sendimanns-
ins, Yuki að nafni, og hitti hann oft i íbúð í Washington, sem áður hafði
verið útbúin þannig, að hægt var að hlera samtöl, sem þar fóm fram.
Hann talaði við Yuki um ást sína á Japönum og sagði^t viss um, að hann
gæti beitt áhrifum sínum til að fá Halifax lávarð og Bretastjóm til að
leggja eindregið að Bandaríkjunum að friðþægja hemaðarsinnmium jap-
önsku.
Upplýsingar þær, sem fengust í hinum hlemðu samtölum, vom
þýddar og afritaðar, og á hverjum degi sendi Stephenson Roosevelt for-
seta afrit af þeim. Forsetanum var þetta frekari staðfesting á afstöðu
Japana og fyrirætlunum þeirra, 6em urðu æ ískyggilegri með hverjum
degi sem leið, og þetta vom viðaukaupplýsingar við hin opinbem, jap-
önsku skeyti, sem fóm á milli Tokyo og Washington, sem bandarísk yfir-
völd höfðu fylgzt með um nokkurt skeið, af því að bandarískum dul-
málssérfræðingum hafði með þekkingu sinni tekizt að ráða dulmál
Japana.
Þann 27. nóvember sendi Roosevelt forseti James son sinn til Step-
hensons með sérstaka orðsendingu, og vissi hvorki utanríkisráðuneyti
Breta né brezka sendisveitin í Washington um efni hennar. Stephenson
símaði hana samdægurs til London. Skeyti hans hljóðaði svo:
Viðræðum Japana-*hætt. Her og floti búast við aðgerðum innan
tveggja vikna.
Uppi varð fótur og fit í stjómarskrifstofuip í London, er þetta skeyti
barst, og reynt var þegar að fá staðfestingu á því. Utanríkisráðherrann
sendi persónulegt hraðskeyti til sendiherrans í Washington, og spurði,
hvort hann vissi eitthvað um fregn um væntanlegar hemaðaraðgerðir
Japana, sem borizt hefði rétt í þessu. Svo vildi til, að Halifax lávarður
var á veiðum í Virginíu, þegar skeytið harst — þess má minnast, að
Þjóðverjar skírðu hann „Tallyholifaxu 1), þegar hann heimsótti Hitler
1938 — og hann neyddist til að fara af baki og hraða sér til sendiráðsins
til að aíma, að hann hefði ekki hugmynd um slíka frétt. Annað hrað-
skeyti var sent frá London, að þessu sinni til Stephensons, þar sem hon-
um var tjáð, að forsætisráðherrann og ríkisstjómin hefðu mikinn hug á
að vita, hver væri lieimildarmaður hans. Stephenson svaraði stutt og lag-
gott: „Forseti Bandaríkjanna“.
Tveim dögum síðar hitti Cordell Hull HaUfax og sagði honum opin-
berlega frá þessu. „Stjómmálaþátturinn í samhúð okkar við Japan er í
rauninni á enda,“ sagði hann við sendiherra Breta. „MáUð verður nú af-
hent yfirmönnum hers og flota.......Japan getur látið til skarar skríða
snögglega og öllum á óvænt.“
Það er nú skráð á spjöld sögunnar, hversu óvænt næsti þáttur gerð*
ist aðeins rúmri viku síðar.
Nú var talið, að Japanir mundu ekki geta haldið uppi vemlegum
njósnum í Bandaríkjunum, þar sem leynistarfsemi þeirra fyrir árásina
á Pearl Harbor hafði byggzt algerlega á starfi sendiráðsins og ræðis-
mannaskrifstofanna, eins og sýnt hefur verið, og engar sannanir vom fyrir
því, að þeir hefðu gert ráðstafanir með tilliti til þess dags, þegar þeim
mundi verða lokað, að öðm leyti en því að flytja stjóm njósnanna til
Argentínu. Það er í rauninni merkileg staðreynd, að einungis er vitað
um einn njósnara í Bandaríkjunum, sem hélt áfram að koma upplýs-
ingum til Japana eftir árásina á Pearl Harbor.
Þetta var kona, Velvalee Dickinson að nafni, sem starfrækti brúðu-
verzlun í New York og hafði veríð njósnari Japana fyrir stríðið. Eftir
handtöku hennar árið 1944 sagði hún F.B.I., að eiginmaður hennar, sem
látinn var, hefði fengið 25 þúsimd dollara greidda hjá flotamálafulltrúa
Japana, Ichiro Yokojama, þann 26. nóvember 1941, til að sjá Japönum
fyrir upplýsingum. En öll gögn bentu í þá átt, að það væri frú Dickinson
en ekki eiginmaður hennar, sem tekið hefði við fénu, einkum af því að
hún hafði áður fengið 35 þúsund dollara fyrir störf, sem hún hafði innt
af hendi fyrir leyniþjónustu japanska flotans.
Það var Stephenson, sem fyrst kom F.B.L á slóð Velvalee, þegar
hann fékk Hoover texta eins bréfs hennar, sem ritskoðunin í Bermuda
hafði stöðvað. Hún var vön að koma upplýsingum sínum áleiðis á rósa-
máli, sem var af japönskum uppruna, eins og brúðumar, og fréttimar
vora fólgnar í bréfum til meðalgöngumanna í Argentínu. Til dæmis:
JÉg hef einmitt útvegað yndislega fagra, síamska musterisdansmær, en
hún er skemmd, rifin í miðju,“ táknaði, „ég hef einmitt aflað upplýsinga
um ágætt flugstöðvarskip, það hefur orðið fyrir tjóni, verið skotið tund-
urskeyti miðskips.“ (Þetta var flugstöðvarskipið Saratoga). Þá skrifaði
hún og: „Ég gat ekki fengið aðra brúðu eins og Síamdansmærina, svo
að ég færi bara venjulega brúðu í ný föt og geri hana að Síamsbrúðu,**
en þetta táknaði: „Þeir gátu ekki útvegað systurskip, svo að verið er að
breyta venjulegu herskipi í flugstöðvarskip.“ Til allrar óhamingju varð
ekki séð á hréfi þessu, sem stöðvað var í Bermuda, hver sendandinn var,
þar sem undirskrift var engin, ög aftan á umslaginu var heimilisfang
konu, sem vann eið að því, að hún hefði ekki skrifað það, þegar F.B.L
yfirheyrði hana, enda þekkti hún engan í Buenoe Aires. Um sama, nei-
1) Þegar brezkir veiðimenn ríða til refaveiða og hafa hunda til aðstoðar, kalla
þeir „tallyho“, þegor refur er f augsýn. — Þýð.
Iltvarp
FIMMTUDAGUR
7. ágúst
7.00 Morgunútvarp. Veöur-
fregnir kl. 7.00, 8.15og 10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Kristján Jónsson lýkur
lestri sögunnar „Glerbrots-
ins” eftir ölaf Jóhann
Sigurbsson (4). Tilkynn-
ingar kl. 9.30. Létt lög á
milli atriba. Vift sjóinn kl.
10.25: Ingólfur Stefánsson
ræftir vift Sigurstein Jó-
hannsson verkstjóra,
Borgarfirfti eystra.
Morguntónleikar kl. 10.00:
Fine Arts kvartettinn leikur
Strengjakvartett i Es-dúr
op. 12 eftir Mendelssohn /
Felicja Blumenthal og
Kammersveitin í Vín leika
Konsert fyrir planó og
hljómsveit i a-moll op. 214
eftir Carl Czerny.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veöurfregnir.
Tilkynningar. A frfvaktinni
Sigrún Sigurftardóttir
kynnir óskalög sjómanna.
14.30 Miftdegissagan: ,,t
Rauftárdalnum” eftir Jó-
hann Magnús Bjarnason
örn Eiftsson les (7).
15.00 Miftdegistónleikar
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Vefturfregnir). Tón-
leikar.
16.40 Litli barnatiminn Eva
Sigurbjörnsdóttir og Finn-
borg Scheving fóstrur sjá
um þáttinn.
17.00 Tónleikar
17.30 „Sýslaft i baslinu” eftir
Jón frá PálmholtiHöfundur
les (10).
18.00 Tónleikar. Tilkynn-
ingar.
18.45 Vefturfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Þættir úr jarftfræfti
Islands Stefán Arnórsson
jarftfræftingur talar um
jarftvarma á lslandi.
20.00 Einsöngur f útvarpssal
Guftmundur Jónsson kynnir
lög éTfir vestur-Islenzk tón-
skáld.
20.20 Framhaldsleikritift:
„Aftöku frestaft” eftir
Michael Gilbert Sjötti og
siftasti þáttur. Þýftandi:
Asthildur Egilson. Leik-
stjóri: GIsli Alfreftsson.
Persónur og leikendur:
Lacey yfirlögregluþjónn/-
Gunnar Eyjólfsson,
Aftstoftarlögreglustjórinn/-
Róbert Arnfinnsson.
Bridget/Anna Kristin Arn-
grimsdóttir. Harry
Gordon/Hákon Waage,
Macrae/Sigurftur Karlsson,
Harbord/Ævar R. Kvaran,
Saksóknari rikisins/Bessi
Bjarnason, Holland, dóm-
ari/Guöjón Ingi Sigurftsson,
Barret/Erlingur Glslason,
Underwood/Klemenz Jóns-
son, Tarragon/Arni
Tryggvason. Aftrir leik-
endur Knútur R. Magnús-
son, Sigurftur Skúlason,
Randver Þorláksson og
Þorgrimur Einarsson.
20.50 Frá tónlistarhátiðinni I
Dubrovnik f fyrrasumar
Pierre Fournier og Jean
Fonda leika. a. Adagio og
allegro op. 70 eftir
Schumann. b. Sónata I A~
dúr op. 60 eftir Beethoven.
c. Elegie op. 24 eftir Gabriel
Fauré.
21.30 „Þaft cr hægara sagt en
gert”, smásögur cftir Peter
Bichsel Óiafur Haukur
Simonarson þýddi og flytur
ásamt Olgu Guftrúnu Arna-
dóttur.
22.00 Fréttir
22.15 Veöurfregnir Kvöld-
sagan: „Knut Hamsun lýsir
sjálfum sér” Martin
Beheim-Schwarzbach tók
saman. Jökull Jakobsson
lýkur lestri þýftingar sinnar
(15)
22.45 Ungir pianósnillingar
Fjórtandi þáttur: John Lill.
Halldór Haraldsson kynnir.
23.40 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
Heldurðu ekki aft við ættum bara frekar aft koma seinna?
Launþegamál
Nýr fastaþáttur í Alþýðublaðim
Nú hefur göngu sína í Alþýðublaðinu þega
fastur efnisþáttur, sem hlotið hefur ræði
nafnið „LAUNÞEGAMAL" og verður þega
hann hér á 7. siðu tvo daga í viku, á heilc
fimmtudögum og laugardögum.
„LAUNÞEGAMÁL" er vettvangur Ae
kynningar á samtökum og starfi laun- helg
Hverjir skip;
forystusveit
Alþýðusamb
Núverandi forseti
Alþýðusambands Is-
lands er Björn Jónsson,
sem um langt árabil var
formaður verkalýðs-
félagsins Einingar á
Akureyri. Varaforseti
ASI og jafnframt fram-
kvæmdastjóri þess er
Snorri Jónsson, for-
maður Málm- og skipa-
smiðasambands Islands.
1 miðstjórn ASI eiga nú sæti auk
þeirra Björns Jónssonar og
Snorra Jónssonar:
félög í 8
landssam-
böndum
Atta landssambönd eiga beina
aðild að Alþýðusambandi Islands.
Þau eru Verkamannasamband
íslands, Landssamband islenskra
verslunarmanna, Landssamband
vörubifreiðastjóra, Málm- og
skipasmiðasamband Islands,
Rafiðnaðarsamband Islands,
Samband byggingamanna, Sjó-
mannasamband íslands og
Landssamband iðnverkafólks.
Innan Verkamannasambands
Islands eru samtals 40 félög
verkamanna og verkakvenna.
Aðild að Landssambandi
islenskra verslunarmanna eiga 20
félög verslunar- og skrifstofu-
fólks. í landssambandi vörubif-
reiðastjóra eru samtals 34 félög.
Innan Málm- og skipasmiða-
sambands tslands eru 22 félög. í
Rafiðnaðarsambandi Islands eru
5 félög rafiðnaðarmanna. 1 sam-
bandi byggingamanna eru 19
félög starfsmanna i bygginga-
iðnaði. Þá eiga samtals 25
sjómannafélög og sjómanna-
deildir verkalýðsfélaga aðild að
Sjómannasambandi tslands. í
Landssambandi iðnverkafólks
eru tvö félög, Iðja i Reykjavík og
Iðja á Akureyri.
Innan landssambandanna átta
eru þannig samtals 167 verka-
lýðsfélög og mynda þau stærsta
kjarnann Alþýðusambandi
tslands.
Baldur Óskarsson, Re
Eðvarð Sigurðsson, Re
Einar ögmundsson, Re
Guðmundur H. Gari
Reykjavik, Hermann
mundsson, Hafnarfirði,
urðsson, Reykjavik, Jói
Þorleifsson, Reykjavil
Guðjónsdóttir, Rey
Magnús Geirsson, Re;
Margrét Auðunsdóttir,
vik, Óðinn Rögnvi
Reykjavik, Óskar Hallg
Reykjavik, Pétur Sigi
Reykjavik, (ritari Sjó
félags Reykjavikur).
Varamenn miðstjórnai
Birgitta Guðmundí
Reykjavik, Björn Þórl
Reykjavik, Guðjón J
Reykjavik, Guðriður Eli
Hafnarfirði, Karl Steinai
son, Keflavik, Karvel Pé
Bolungarvik, Kristján
Hafnarfirði, Runólfur Pé
Reykjavik, Sveinn Gama
Reykjavik.
1 sambandsstjórn eiga
manns):
Arni Þormóðsson, Nesk
Benedikt Sæmundsson,
vik, Böðvar Pétursson,
vik, Einar Karlsson,
hólmi, Guðmunda Gunna
Vestmannaeyjum, Gunn;
mundsson, Selfossi,
Hákonarson, Akureyri
Sveinbjarnarson, Hallo
Ingimundur Gestsson,
vik, Jón Ingimarsson, P
Jón Helgason, Akurej
Karlsson, Sauðárkróki
Danielsson, Grindavik
Pétursson, tsafirði,
Sigurðsson, tsafirði, í
Sæmundsdóttir, Keflavi
Þórðarson, Akranesi,
Garðarsson, Reykjavik.
Varamenn samband:
eru (18 kosnir á sambam
Arsæll Pálsson, Re
Baldur Karlsson, Húsav
bergur Sveinsson, (
Freyja Eiriksdóttir, /
Grétar Sigurðsson, Hö
mundur Fr. Magnússo
eyri, Guðmundur V. Sif
Borgarnesi, Gunnar
mundsson, Hafnarfirf
grimur Jónsson, A
Hilmar Jónsson, Hellu
Arnórsson, Húsavik,
Snorrason, Hulda Sig
dóttir, Sauðárkróki, Jón
son, Borgarnesi,
Kjartansson, Vestman:
Kolbeinn Helgason, A
Sigurjón Pétursson, R
Sveinn Gislason, Ves
eyjum.
Þá eru tilnefndir i si
stjórnina af landssamb
átta eftirtaldir menn:
lif
PLASTPQKAVERKSMIOJA
Sfmar 82A39-82A55
Vsfndg6r6um 6
Box 4064 - R«yfc]ov(k
ÓkypiS þ'iónuste
Hlokkaóar auglýsingar
erulesendum Alþyðublaósins
aó kostnaðarlausu. Kynniö
ykkur LESENDAÞJoN-
USTUNA a blaðsiðu 11.
Hafnaríjartar Apótek
Afgreiðslutimi:
Virka daga kl. 9-18.30
Laugardaga kl. 10-12.30.
Helgidaga kl. 11-12
Eftir lokun:
Upplýsingasimi 51600.
Lausl pláss
Hér er laust auglysingapláss.
Hafið samband við auglys-
ingadeild blaðsins, Hverfis-
götu 10 —■ sími 14906.
6æUs-l 1 hópmn
Bætist í vaxandi hop nyrra
askrifenda Alþyðublaðsins.
Askrift er odýrari en lausasala
— og tryggir blaðið heim á
' hverjum morgni.