Alþýðublaðið - 28.10.1975, Page 10
í HREINSKILNI SAGT
Fór, eins og varði
Sendinefnd okkar á fund Stórbretans er
nú heim komin. Hvort hún hefur þótzt
erindi fegin, er svo önnur saga. Eitt
getum við, hvað sem öðru liður huggað
okkur við, að i þetta sinn var þó tekið i
höndina á Einari, þegar hann heilsaði,
þótt misbrestur væri á þvi, þegar hann
heimsótti Kanann, sem frægt var. Að
vísu vantar enn mynd af kveðjunum, til
þess að átta sig á, hvort handtökin hafa
verið eins vingjarnleg og við komuna,
en nóg um það. En um stund verður vist
bið á þvi, að landsmönnum gefist kostur
á að fá að vita, hvað eiginlega gerðist i
þessum viðræðum. Við erum reyndar
alin á þvi, að viðræðurnar hafi verið
„gagnlegar”, og álika kjaftæði. En
gagnlegar fyrir hvern eða hverja er
annað mál, verður máske aldrei
uppskátt. Að vonum eru íslendingar litt
þjálfaðir i „diplómatiskum” háttum. En
eitt virðast þeir þó hafa lært, að svara
einungis i hálfyrðum, ef landsmenn
þeirra eiga i hlut sem spyrjendur.
Ekki verður komizt hjá, að hnjóta um
misræmið, sem fram kemur i túlkunum
okkar manna og túlkunum Hattersleys.
Hann virðist halda þvi blákalt fram, að
Islandingar háfi gert Bretum tilboð, þó
það sé ekki frekar skilgreint. Þessu
neita okkar menn reyndar. Vissulega
höfum við mikla löngun til að trúa betur
framburði okkar manna, en hvernig
getum við verið örugg, meðan önnur
eins leynd og raun er á, hvilir yfir við-
ræðunum? Vel getur verið, að
Hattersley hafi kosið, vegna áróðurs-
gildis heima fyrir, að láta lita svo út,
sem Bretum hafi tekizt að róa nokkra
vik á Islendinga. Samt er það of hættu-
legur leikur, ef siðar kæmi i ljós, að það
væru staðlausir stafir. Þetta misræmi
vekur efasemdir, sem hljóta að naga
hugskot manna, sem nenna að hugleiða
likurnar. Þegar við virðum fyrir okkur
það litla, sem forystumenn stjórnar-
flokkanna i þessu máli hafa tjáð okkur,
er þar ekki um auðugan garð að gresja.
Forsætisráðherrann hefur sagt það eitt,
að hann vilji takmarka veiöar
Með öngulinn í
endanum?
útlendinga á tslandsmiðum sem mestog
losna við þá heðan sem fyrst. Varla
getur það kostað mikil heilabrot, að gefa
slikar yfirlýsingar. Og hvort eru menn
nær um fyrirætlanir, þeirr vegna?
Utanrikisráðherrann er sjálfsagt ekki
harðlæstur i endum i þessu máli, fremur
en siður er i flokknum, þó vissulega sé
nokkur manndómur i þvi að „rifa kjaft”
við Callaghan með þvi að ráðleggja
honum að fylgja bara fordæmi okkar
um útfærslu i 200 milur, ef það er þá rétt
eftir haft og hefur komizt til skila. Hins-
vegar gæti það vist örugglega hent
hann, hvað þá misheppnaða sauð-
bændur á ráðherrastólum flokksins, að
fylgja þvi snjallræði foringjans, að
stoppa til aö rifa þessa seglpjötlu þegar
minnst varir'
Þegar litið er yfir forystusveitir á
stjórnarstólunum er naumast von að
það skapi neina huggleði eða baráttufýsi
hinna óbreyttu. En þrátt fyrir þetta og
þrátt fyrir það, að sendinefndin kæmi
með „öngulinn i endanum ” úr hrakreisu
Eftir Odd A. Sigurjónsson
sinni til Bretlands eins og vænta mátti,
eru þó a.m.k. tvö ljósblik i sjónmáli.
Rösklegt framlag Hafrannsóknarstofn-
unar er annað þeirra. Ég vil trúa þvi
staðfastlega, að þeir mætu menn, sem
að þvi standa, hafi rökstutt það svo, að
ekki verði um villzt fyrir umheiminn, að
við áttum enga aðra kosti en útfærsluna.
Hitt er einhugur þjóðarinnar i málinu.
Auðvitað ber stjórnvöldum að virkja
hann enn betur en orðið er. Það verður
bezt gert með þvi að svipta allri hulu af
gangi málsins. I þvi efni gætum við
einmitt lært af Bretum. Þeir hikuðu ekki
við að ræða á þjóðþingi sinu opinskátt
og fyrir opnum tjöldum um sinn mikla
vanda, þegar verst lét i siðari heims-
styrjöldinni. Eftir það þurfti enginn að
velkjast i vafa, hvað við lá, og allir vita
hvernig þeim hildarleik íauk. Hvers-
vegna ekki að sýna okkar þjóð viðlíka
trúnað? Þetta er okkar „heims-
styrjöld”. Látum það vera, að okkar
ráðamenn þykist sýna einhverja karl-
mennsku, með þvi að sitja sem fastast
öngulsárir i sinum finu stólum. Þjóðin á
rétt á að vita afdráttarlaust, hvort
öngullinn hefur krækst inn i bein, eða
bara i buxnabotninn. Hér er að visu eng-
inn Churchill við stjórn. En það mætti
láta reyna á, hvort islenzka þjóðin
stendur þeirri brezku að baki, þegar i
harðbakka slær.
f< lk
Forlátapipa
Forsætisráöherra Bretlands
er mikið gefinn fyrir pipu-
reykingar og sjaldan sjáum
við myndir af þeim fróma
manni, án þess að hann sé
með pipu i munninum. Enda
skal engan furöa þó þessi
pipuunnandi eigi myndarlegt
pipusafn, sumir segja eitt
það myndarlegasta i Bret-
landi, þvi hann er búinn að
safna pipum frá öllum
heimshornum i mörg ár.
Nýjasta innleggið i hans
fræga pipusafn, er gjöf frá
Ford Bandarikjaforseta. Er
þar um að ræða mjög vandað
pipusett og er kennt við
Appolo. Astæðan fyrir nafn-
giftinni er einangrun, sem er
inni pipuhausnum, en ein-
angrunin er sú sama og not-
uð er i Appolo geimförin, til
einangrunar gegn hita.
Apótekari 100 ára
Arið 1892 hóf John Edvard
Hjelt störf sem apótekari.
Nú er hann orðinn hundrað
ára og stundar enn starf sitt
af fullum krafti.
Það var árið 1901, sem
John Edvard útskrifaðist
sem útlærður apótekari og
strax árið eftir opnaði hann
sitt eigið apótek. Apótekið
sitt opnaði hann i smábænum
Forsaa, sem þá var talsvert
langt frá Helsingfors. I þá
daga hafði hann rúmt um sig
og gat horft vitt yfir akra og
engi, þó þjóðbrautin lægi
reyndar rétt við dyrnar hjá
honum, var ekki önnur um-
ferð um hana en riðandi
menn og allskyns hestvagn-
ar og sportkerrur af þeirri
tegundinni.
Nú er öldin önnur og apó-
tekið hans John Edvards er i
hjarta bæjarins og skarkali
umferðarinnar glymur i eyr-
um hans dag hvern. En það
er ekkert uppgjafarhljóð i
honum John Edvard og sjálf-
ur segir hann, að enn sé
langur starfsdagur eftir hjá
honum.
Hasarblöðin orðið
verðmæti
Ef þið eigið gömul hefti af
Andrés önd og fleiri teikni-
myndablöðum, skuluð þið
ekki láta þau lenda i rusla-
tunnunni, þau geta nefnilega
verið talsvert mikilla pen-
inga virði.
Nýlega var eintak af
Andrés önd og félögum selt
fyrir sem svarar um 100 þús.
islenzkum krónum á uppboði
iNoregi. Til frekari fróðleiks
látum við það fylgja með, að
heftið var tæplega 40 ára
gamalt.
1 Bandarikjunum hafa
menn uppgötvað, að söfnun
slikra teiknimyndablaða er
mun arðbærari en söfnun fri-
merkja og myntar. Ekki alls
fyrir löngu var eintak af
fyrsta heftinu um Superman
selt þar i landi á 10 þúsund
dollara og reiknið þið nú.
***
Raggi rólegi
Alþýðublaðið
Bíóin
IÁSKÓLABÍÓ s.mi 22,4.
Caroline
Lamb
Listavel leikin mynd um ástir
Byrons lávaröar og skálds og
eiginkonu eins þekktasta
stjórnmálamanns Breta á 19.
öld. Leikstjóri: Robert Bolt.
Tónlist eftir Richard Rodney
Bennett, leikin af Filharmón-
iusveit Lundúna undir stjórn
Marcus Dods.
ISLENZKUR TEXTI.
Frábærir leikarar koma fram
i myndinni m.a. Sarah Miles,
Jon Finch, Richard Chamber-
lain, John Mills, Laurence
Oliver o.m.fl.
Sýnd kl. 5 og 9.
I>etta er mynd fyrir alla, ckki
sist konur.
■AUBARASBÍÓ
ZACH/XRIAH
COIOR GP -i.i-
Ný Rock Western kvikmynd,
sú fyrsta sinnar tegundar hér-
lendis. 1 myndinni koma fram
nokkrar þekktustu sem uppi
eru i dag m.a. Country Joe and
The Fich og The James Gang
og fl.
Aðalhlutverk: John
Rubinstein, Pon Johnson,
Elvin Jones, Dough Kershaw.
Bönnuð börnum innan 12 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Harðjaxlinn
hArd negl
TOMAS MILIAN
CATHERINE SPAAK
ERNEST BORGNINE
NfRVEPIRIHNOE SKIIDRIN6
Af DE HÁROE DRENGES OPCBR,
derslAr puiukum
KNOCK-OUT!
Sýnd kl. 11.
rdwABfð Simi -.11182
T0MMY
Ný, brezk kvikmynd, gerö af
leikstjóranum Ken Russell
eftir rokkóperunni Tommy,
sem samin er af Peter Towns-
hend og The Who.
Kvikmynd þessi var frumýnd i
London i lok marz s.l. og hefur
siöan veriö sýnd þar viö gifur-
lega aösókn. Þessi kvikmynd
hefur allstaöar hlotiö frábær-
ar viötökur og góða gagnrýni,
þar sem hún hefur veriö sýnd.
Myndin er sýnd i stereo og
meö segultón.
Framleiöendur: Robert Stig-
wood og Ken Russell.
Leikendur: Oliver Reed, Ann
Margret, Roger Daltrey, El-
ton John, Eric Clapton, Paul
Nicholas, Jack Nicholson,
Keit Moon, Tina Turner og
The Who.
Sýnd kl. 5, 7.10 og 9.15.
ISLENZKUR TEXTI.
Bönnuö börnum yngri en 12
ára.
Hækkaö verö.
Kaupið bílmerki
Landverndar
Hremt,
^land I
fngurt
land
LAWDVERND
Tll sölu hjá ESSO og SHELL
bensinafgreiöslum og skrifstofu
Landverndar Skólavöróustig 25
HAFNARBÍÚ
Meistaraverk Chaplins:
SVIÐSLJÓS
Chades
ChapIMs
rt 1
Hrifandi og skemmtileg, eitt
af mestu snilldarverkum
meistara Chaplins og af flest-
um talin einhver hans bezta
kvikmynd.
Höfundur, leikstjóri, aöal-
leikari: Charli Chaplin, ásamt
Clarie Bloom, Syndey
Chaplin.
ÍSLENSKUR TEXTI
Hækkaö verö.
Sýnd kl, 3, 5.30, 8.30 og 11.
Ath. breyttan sýningartima.
)|Ý1A ffl'Ú
Sími 115-
2
Sambönd i Salzburg
rTHE SALZBURG'
islenzkur texti
Spennandi ný bandarisk
njósnamynd byggö á sam-
nefndri metsölubók eftir
Helen Mclnnes, sem komiö
hefur út i islenzkri þýöingu.
Aða1h1utverk : Barry
Newman, Anna Karina.
Bönnuð innan 14 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Bönnuö börnum
STJðRNUBÍQ Simi 18936
ISLENZKUR TEXTI.
HÖrkuspennandi ný itölsk-
amerisk sakamálamynd i lit-
um um miskunnarlausar
hefndir.
Aöalhlutverk: Henry Silva,
Richard Conte, Gianni Garko.
Antonia Santilli.
Bönnuö börnum.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
U8 U(j SKAfUtilli'IR
KC«NELÍUS
JQNSSON
SKfllAVÖROÚSiffid'
aANKAsiMne
1H*SH8-1Ö60Ó
Laus störf við
Alþýðublaðið
Blaðburðarfólk
óskast til að bera
blaðið út
í eftirtaldar götur
Reykjavik:
Bakkavör Sævargarðar
Melabraut Vallarbraut
Miðbraut Melahverfi
Nesvegur Gerðin
Skólabraut
Hafið samband við
afgreiðslu blaðsins
- Sími 14900
hefur opið
pláss fyrir
hvern sem er
HORMIÐ
simi 81866
- eða sendið greinar & ritstjórn
Alþýðublaðsins,
Siðumúla 11,
Reykjavík
Hringið í
Þriðjudagur 28. október 1975.