Alþýðublaðið - 28.10.1975, Blaðsíða 11
M'lll —«1
Flokksstarfid
Alþýöuf lokksfélögin
í Kópavogi
boða til fundar þriðjudaginn 28.
október klukkan 20:30 i félags-
heimili Kópavogs, efri sal.
Frummælendur verða:
Jón Ármann Héðinsson og
Vilmundur Gylfason.
Umræðuefni:
Fjárlögin og skattamál
Stjórnin.
Félagsvistin
Keppni i hinni vinsælu félags-
vist Alþýðuflokksfélags Reykja-
vikur heldur áfram laugardaginn
1. nóv. kl. 14 stundvislega i Iðnó
uppi, gengið inn frá Vonarstræti,
og laugardaginn 15. nóv.
Veitt verða sérstök verðlaun
fyrir hvern dag, en heildarverð-
laun fyrir þrjá daga verða afhent
29. nóvember, en þá verður fé-
lagsvist á sama tima á sama stað.
Fræðslufundir Alþýðu-
flokks
félags Reykjavikur
A fundinum annað kvöld mun
Vilmundur Gylfason ræða um
aðkallandi verkefni i flokksstarfi
og stjórnmálum. Gestur
fundarins verður Sigurð-
ur E. Guðmundsson form.
Alþýðuflokksfélags Reykjavikur.
Alþýðuflokksfólk mætið á
fundinum i Ingólfs Café. Hann
hefst stundvislega kl. 20.30.
FUJ félagar
Iþróttaæfing verður i Austur-
bæjarskóla fimmtudagskvöld kl.
19. — Stjórnin.
Stjórnar-
fundur í FUJ
Reykjavík
verður haldinn á skrifstofunni i
kvöld kl. 18.
Rauða náliri/
merki jafnaðarmanna fæst á
skrifstofu Alþýðuflokksins.
örvarnar,
merki ungra jafnaðarmanna er
til sölu á skrifstofu
Alþýðuflokksins.
Enn eitt vél-
hjólaslys
I.aust eftir hádegið i gær var
ekið á vélhjól á gatnamótum
Sólheima og Skeiðarvogs. öku-
maður og farþegi bifhjólsins
hentust tugi metra frá slysstað og
voru báðir fluttir á Slysadeild
Korgarspitalans. Að sögn lögregl-
unnar hafði hvorugur hjálm á
höfði.
SAUMASTOFAN
eftir Kjartan Ragnarsson
Frumsýning i kvöld. —
Uppselt.
2. sýning miðvikudag kl. 20.30.
SKJALHHAMRAR
fimmtudag kl. 20.30.
FJÖLSKYLOAN
föstudag kl. 20.30.
SKJALDHAMRAR
laugardag kl. 20.30.
SAUMASTOFAN
sunnudag kl 20.30.
Aðgöngumiðasalan i Iðnó er
opin frá kl. 14. Simi 1-66-20.
Eldhúsumræðurnar
Ræða Benedikts
Framhald af forsíðu
foreldrar hafa ekki sömu, frjálsu
aðstöðu til þess að velja sér störf
utan heimilis. Færði Benedikt
islenzkum konum árnaðaróskir i
jafnréttisbaráttu þeirra.
Þessu næst vék Benedikt
Gröndal að landhelgismálinu.
Mæltist hann til þess, að islenzku
stjórnmálaflokkarnir hættu að
skemmta andstæðingum sinum
með þvi' að hnotbitast um málið á
opinberum vettvangi en flyttu
þess i stað umræðurnar inn á hinn
rétta vettvang, þ.e.a.s. land-
helgisnefndina. Lagði Benedikt
áherzlu á, að þrátt fyrir allar
deilurnar væru allir landsmenn
sammála um meginstefnuna i
landhelgismálinu þótt menn
greindi á um einstök
framkvæmdaratriði útfærslunn-
ar. I þvi sambandi itrekaði
Benedikt þá stefnu Alþýðuflokks-
ins, að ekki bæri að semja um
veiðiheimildir fyrir útlendinga
innan 50 milnanna og sagði, að sú
stefna nyti ótvirætt stuðnings
meginþorra þjóðarinnar.
— Það skref, sem við nú höfum
stigið i landhelgismálinu, verður
án efa lokaaðgerð okkar i þvi
máli... sagði Benedikt. Nú
verðum við að leggja megin-
áherzlu á lagasetningu um skyn-
samlega nýtingu landhelginnar,
og við verðum að sýna og sanna
umheiminum, að við verndum
fiskistofnana og förum vel með
það mikla matarbúr sem nú er i
okkar höndum. A þetta verður
aldrei lögð nægjanlega sterk
áherzla, og landhelgisbrot mega
islenzkir skipstjórar alls ekki
gera sig seka um.
Þá ræddi Benedikt annað meg-
inatriðið i stefnuræðu forsætis-
ráðherra, efnahgsmálin, og benti
á, hvernig ailar spár forsætisráð-
herra frá i fyrra um batahorfur
hefðu runnið út I sandinn sökum
stjórnleysis rikisstjórnarinnar.
Benedikt sagði m.a.:
Ein veigamesta aðgerð, sem
fjárlagafrumvarpið gerir ráð
fyrir, er niðurfelling á 12% gjald-
inu, er sett var á i júlimánuði, og
jafnframt niðurfelling á 1250
milljón króna niðurgreiðslum á
landbúnaðarvörum.
Alþýðuflokkurinn var að sjálf-
sögðu andvigur 12% gjaldinu á
sinum tima, enda var þvi skellt á
skömmu eftir að stjórnvöld höfðu
fullvissað verkalýðshreyfinguna
um að skattar yrðu ekki hækkað-
ir. Meira að segja Morgunblaðið
sagði, að þetta gjald væri ,,hvim-
leitt”.
Þegar gjaldið verður afnumið
er hins vegar óhjákvæmilegt að
skoða vandlega, hvaða verði
afnám þess er keypt.
1 fyrsta lagi er þess að gæta, að
það hefur engin áhrif á verðbólg-
una, þegar afnumdar eru tekjur
og um leið felld niður gjöld hjá
rikissjóði. Þessi aðgerð er ekki
nauðsynleg af þeim sökum, þó að
heildarsumman verði eitthvað
lægri.
Hitt er meginatriði, að 12%
gjaldið — sem raunar var all-
miklu hærra þegar öll kurl voru
komin til grafar — var lagt á
„miður nauðsynlegar vöru” eins
og fjármálaráðherra orðaði það
sjálfur á sinum tima. Nú á að
fella það niður, en i staðinn á að
hækka verðið á lifsnauðsynlegum
vörum, það er landbúnaðarafurð-
um, kjöti, mjólk, smjöri og svo
framvegis. Þetta hlýtur að verða
öllum almenningi miög óhag-
stætt, og alveg sésstaklega
barnafjölskyldum eða tekjulágu
fólki.
Það á til dæmis að lækka
lakkrisis og súkklaðikex og hnet-
ur og kryddvörur — en hækka
mjólkina.
Það á að lækka alls konar
skrautvörur, pappir og serviettur
og tilbúin blóm — en hækka
smjörið.
Það á að lækka ýms heimilis-
tæki, kæliskápa og afgreiðslu-
borð, en það á að hækka kjötið.
Finnstykkur, góðir hlustendur,
að þetta sé heilbrigð stefna? Er
ekki óhættaðganga feti lengra og
spyrja: Ernokkurvitglóra islikri
stefnu eins og nú erástatt i
efnahagsmálunum?
Ræða Gylfa
FramhaSd af forsíðu
nauðsyn væri á boðskap um já-
kvæðar aðgerðir af hálfu þings og
„stjórnar. Slikar ráðstafanír
taldi Gylfi tvimælalaust vera
mögulegar.
Gylfi nefndi siðan i ræðu sinni
nokkur mál, sem hann sagði vera
á valdi Alþingis og rikisstjórnar
að gera breytingar á, sem yrðu
launþegum til hagsbóta og myndu
jafnframt auka þjóðartekjur,
þegar á lengra timabil væri litið.
Gylfi sagði:
1 fyrsta lagi nefni ég nauðsyn
þess að gera gagngerar breyting-
ar á skattkerfinu. Núverandi
tekjuskattsheimta er orðin að
ranglátri skattgreiðslu launa-
fólks. Ég er þeirrar skoðunar, að
stefna eigi að algjöru afnámi
tekjuskatts til rikisins og að
sveitarfélög eigi að hluta að taka
upp aðra tekjustofna i stað út-
svara. Fyrsta skrefið i þessa átt
ætti að stiga, þegar ákvæðin um
söluskattsstigin vegna náttúru-
hamfaranna i Vestmannaeyjum
og á Norðfirði falla niður. Þá ætti
að nota tekjurnar af þeim til
lækkunar tekjuskatts á almenn-
um launatekjum.
1 öðru lagi nefni ég þann vanda,
sem mikill fjöldi fólks, einkum
ungt fólk, á við að etja vegna
þeirra lausaskulda, sem það hef-
ur efnt til i sambandi við hús-
byggingar. Þeim þarf að vera
hægt að breyta i föst lán.
I þriðja lagi nefni ég vandamál
lifeyrissjóðanna og það gifurlega
misrétti, sem þar er á ferðinni
vegna mismunandi reglna um
verðtryggingu.
f fjórða lagi er nauðsynlegt að
vekja athygli á þeirri stefnu, sem
enn er fylgt i fjárfestingarmálum
þjóðarinnar. Þar er ennþá ætt
áfram i blindni, án nokkurrar
heildarstefnu, án athugana á hag-
kvæmni þeirra verkefna, sem
lagt er út i. Samtimis þvi, sem i ár
er gert ráð fyrir yfir 30% minnk-
un fjármunamyndunar i fiskveið-
um og vinnslu sjávarafla, miðað
við sama verðlag, er gert ráð
fyrir næstum 80% aukningu á
sviði rafvirkjana og rafveitna, og
mun þó ekki öll sagan um Kröflu-
virkjunarævintýrið sögð i þvi
sambandi vegna furðulegs felu-
leiks, sem þar er leikinn, en það
er spá min og margra annarra, að
þar muni verða um að ræða mikið
fjármálahneyksli. Stefnan i fjár-
festingarmálum má ekki miðast
við það, að þjóna stjórnmála-
hagsmunum manna, sem vilja
verða smákóngar i kjördæmi
sinu. heldur verða heildarhags-
munir og heildarsjónarmið að
ráða.
i fimmta og siðasta lagi nefni
ég nauðsyn þess að gera breyt-
ingar á stefnunni i landbúnaöár-
málum til þess að gera landbún-
aðarframleiðsluna ódýrari og
fjölbreyttari. Það yrði neytend-
um til hagsbóta strax, og bænd-
um, þegar til lengdar léti. Við
verðum smám saman að hætta að
framleiða t.d. kjöt og osta fyrir
útlendinga og greiða þeim einn
milljarð á ári fyrir að borða af-
urðirnar. Og við eigum að sfefna
að þvi, að sú hagsbót, sem rikis-
sjóður veitir neytendum i formi
niðurgreiðslna, verði smám sam-
an að frjálsu ráðstöfunarfé neyt-
endanna. Þá vex verðgildi þeirra
fyrir þá.
Tilkynning
um gjalddaga sérstaks
tímabundins vörugjalds
Athygli skal vakin á þvi, að gjalddagi
sérstaks timabundins vörugjalds af inn-
lendri framleiðslu skv. lögum nr. 65/1975
fyrir timabilið júli, ágúst og september er
1. nóvember n.k.
Ber þá að skila gjaldinu til innheimtu-
manna rikissjóðs ásamt vörugjalds-
skýrslu i þririti.
F jármálaráöuneytið
24. október 1975
Skrifstofustjóri
Starf skrifstofustjóra á bæjarskrifstofum
Norðanlands er laust til umsóknar.
Húsnæði er til boða.
Umsóknir, er tilgreini menntun, aldur og
fyrri störf, sendist undirrituðum, sem
gefur frekari upplýsingar um starfið, fyrir
4. nóvember n.k.
Sveinn Jónsson,
löggiltur endurskoðandi.
íþróttamiðstöðinni i Laugardal.
Simi: 35666.
Auglýsing
NÁMSKEIÐ FYRIR STJÓRNENDUR
VINNUVÉLA
verður haldið i ölfusborgum dagana
21.—30. nóvember næstkomandi.
Námskeiðið er haldið i samræmi við
ákvæði i samningum milli almennu
verkalýðsfélaganna og vinnuveitenda, og
er þátttaka heimil stjórnendum vinnuvéla
hvaðanæva af landinu.
Væntanlegir þátttakendur þurfa að hafa
a.m.k. eins árs starfsreynslu á jarðýtu,
gröfu, krana eða aðrar stærri vinnuvélar.
Eftirtalin samtök annast skráningu þátt-
takenda:
Verkamannafélagið Dagsbrún,
Lindargötu 9, Reykjavik, simi 25633
Vinnuveitendasamband islands,
Garðastræti 41, Reykjavik, simi 18592
Verkamannasamband íslands
Lindargötu 9, Reykjavik, simi 12977
Þáttökubeiðnir þurfa að berast fyrir 12.
nóvember.
Gisting og mötuneyti á staðnum.
Nánari upplýsingar veita ofangreind
samtök.
Sljórn vinnuvélanámskeiöa.
Iimilcnar þakkir til allra þeirra sem heiðruðu minningu
systur okkar
SVÖVU THORDERSEN,
ölduslóð 4, llafnarfirði,
sein andaðist 14. okt. s.l. Sérstakar þakkir til Ragnars
Péturssonar, kauplélagsstjóra,svo og stjórnar og starfs-
fólks kaupfélags llafnfirðinga.
Sigriður Thordersen,
llelga Thordersen
Slefán o. Thordersen
og aðrir aðstandeudur.
Þriðjudagur 28. október 1975.
Alþýðublaðið