Alþýðublaðið - 20.11.1975, Qupperneq 4
Verður þetta
landið. Utan hennar verði dreg-
in lina bundin lögum i megin-
atriðum 4 sjm. frá viðmiðunar-
linunni. Ytri togveiðilina dregin
i stórum dráttum eftir vertiðum
og landshlutum 12 sjm. utar.
Milli þessara lina verði tiltekn-
um stærðarflokkum skipa
heimilaðar veiðar samkvæmt
reglugerð. 1 aðalatriðum verði
svonefndum sérsmiðuðum tog-
skipum ætlað að halda sig utan
ytri linunnar. Gerðar yrðu til-
lögur um sérstakar undanþágur
samkv. reglugerð til togveiða
sérsmiðaðra skipa innan ytri
linunnar og um undanþágur
minni skipa að ákveðinni stærð
innan 4 sjm. markanna.
2.
Gert er ráð fyrir að togveiðiskip
allt að 75 br. rúml. 25,5mtr. að
lengd fái heimildir til veiða i til-
teknum svæðum innan 4 sjm.
markanna. Gert er ráð fyrir, að
skipum allt að 250 br. rúml. eða
36—36 mtr. að lengd verði
heimilaöar veiðar allt að 4 sjm.
mörkum, svo og stærri skipum
og sérsmiðuðum togskipum
með takmörkuðum undanþág-
um i reglugerð hverju sinni.
3.
Sérstakar reglur verði látnar
gilda um dragnótaveiðar, bæði
timabil, svæöi og stærðarmörk
báta.
Stofnar flatfiska veru nú flestir
hverjir vannýttir. Flóknar
veiðireglur hafa komið i veg
fyrir reglulegt framboð og sölu
flatfisks og flatfiskafurða.
4.
Sérstakar reglur verði látnar
gilda um veiðar á sild, loðnu,
spærling, rækju, humar og fleiri
fisktegundum.
5.
Gerðar eru tillögur um vlðtæk
friðunarsvæði bæði á uppeldis-
stöðvum og hrygningarstöðum.
Mikið verði treyst á skyndilok-
anir svæða, sérstaklega á
uppeldisstöðvunum.
6.
Fram hafa komið rökstuddar
tillögur um algjört bann á notk-
un flotvörpu. Nefndin getur ekki
fallizt á algjört bann, en leggur
til að skynsamlegum takmörk-
unum verði beitt, m.a. á
viðkvæmum fiskislóðum, sér-
staklega hrygningarstöðum.
Margskonar fisktegundir má
veiða með flotvörpu.
7.
Möskvastærðir hinna ýmsu
veiðarfæra verði háðar reglu-
gerðum, sem hingað til.
Athuganir eru nú gerðar á
áhrifum mismunandi möskva-
stærða á veiðar, svo sem á
karfa, þorski og humar. Nefndin
leggur til, að lágmarksstærð
möskva þorskaneta á svæðinu
Horn-Papey verði 6%%. Þá
leggur nefndin til verulega
stækkun á möskva dragnótar.
8.
Tillaga nefdarinnar er að lág-
marksstærð þorsks, ýsu og ufsa
við löndun verði aukin. Verði
þessi tillaga samþykkt, leggur
nefndin jafnframt til að heimil-
uð verði löndun ákveðins
hundraðshluta smáfisks Ur
hverri veiðiferð, svipað og nú
gildir um karfa (sbr. drög að
reglugerð).
6.
Nefndin leggur til að Land-
helgisgæzlunni verði gert kleift
að starfrækja skip i hverjum
landsfjórðungi til eftirlits- (og
björgunarístarfa. Hafi skip-
herra eftirlitsskipsins heimild
til að ákveða lokun svæða, þar
sem smáfiskur er áberandi i afl-
anum, samkvæmt nánar settum
reglum.Maður með skip-
stjórnarréttindi verði um borð
skipherra eftirlitsskipsins til
ráðuneytis og til að annast
stærðarmælingar á fiski- og
möskvum, svo og til annarra
eftirlitsstarfa með veiðarfærum
og búnaði fiskiskipa.
Nefndin hefur og samið drög
að reglugerð, sem lagt er til að
gildi næsta ár.
Um þessi drög að fiskveiði-
löggjöf hefur nefnin þetta helzt
að segja að lokum: 011 reglu-
gerðarákvæði um veiðitimabil
o.þ.h. verði sett með hæfilegum
fyrirvara og gildi til eins árs i
senn, nema sérstaklega standi
á. Endurskoðun verði falin
stofnunum og samtökum
sjávarútvegsins undir stjórn
sjávarútvegsráðherra.
Rammalöggjöf i þessu efni
auki vanda sjávarútvegsráð-
herra þar sem hann verði að
ákveða með reglugerðum mörg
áður lögbundin atriði, en telur
sig ekki sjá aðra betri leið, svo
unnt sé að bregðast nægiiega
hart við örum breytingum.
Nefndin leggur til aukna
ábyrgð samtaka sjávarútvegs-
ins og stofnana hans, til að móta
stefnuna.
Tillögur um friðunarsvæði,
einkum þau hreyfanlegu,
byggjast á forsendu öflugs eftir-
lits og gæti þurft að taka skip á
leigu þar til. Framleiðslueftirlit
sjávarafurða annist nauðsyn-
lega stærðarflokkun landaðs
afla — þyrfti skyldumat að
koma til.
Uppbygging fiskiskipastóls-
ins var itarlega rædd með
hliðsjón af veiðiþoli hinna ýmsu
fisktegunda.
Fram kom hjá ýmsum að flot-
inn væri þegar of stór miðað við
niíverandi ástand og afla, en út-
lit fyrir framhaldandi aukningu,
einkum togara. Nefndin leggur
áherzlu á að varlega verði farið
i aukningu skipastólsins aö svo
komnu máli og markmiðið verði
að stærð og afkastageta flotans
miðist við langtima afraksturs-
getu miðanna, ella muni koma
til annars af tvennu: lokun
stórra svæða til friðunar eða
aflakvóta og viðtæks leyfa-
kerfis.
Loks telur nefndin miklu
skipta að i hendur haldist sam-
ræmi milli afrakstursgetu
miðanna og afkastagetu fiski-
skipaflotans hverju sinni.
Brúargerðin eitt helzta
hagsmunamál Borgnesinga
Rætt við Ásgeir Pétursson sýslumann Borgfirðinga
Blaðið hafði simasamband við
Asgeir Pétursson sýslumann
Borgfirðinga og spurði fregna úr
héraði.
Sp: Hvað er helzt að segja um
samgöngumálin?
Asgeir: Staðreyndin er sú að
umferðin er mjög mikil i héraðinu
allt árið um kring. Þessi mikla
umferð leiðir að sjálfsögðu til
mikilsálagsá vegakerfið og sam-
fara mislyndum veðrum, veldur
þetta þvi, að vegir vilja spillast,
enda eru þeir ekki byggðir fyrir
jafn mikla umferð og orðin er.
Héraðið er mikið mjólkurfram-
leiðsluhérað og hefur þar af leið-
andi net akvega, sem liggja um
allar sveitir. Þetta kerfi þolir illa
þessa miklu viðbót.
Staðreyndin er sú að Borgar-
fjörður er i vaxandi mæli orðinn
útivistarsvæði þéttbýlisins við
Faxaflóa. Ekki ber þó að skilja
þetta svo að ferðalangar séu óvel-
komnir, öðru nær.
Sp. Nú er rætt um að byggja brú
yfirBorgarfjörft.
Ásgeir: Já, og ýmsir sjá ofsjón-
um yfir þvi. En ef litið er á málin
frá sjónarhóli þeirra, sem góðs
munu njóta af brúarsmiðinni,
eins og t.d. ibúa Vesturlands og
Vestfjarða auk heimamanna, þá
er augljóslega mikið i húfi að hún
verði byggð.
1 fyrsta lagi yrði brúin geysileg •
samgöngubót. 1 öðru lagi bætir
bygging hennar aðstöðu þeirra,
sem búa norðan Hvitár, til heil-
brigðisþjónustu. Er það fólgið i
þvi að brúin myndi stytta leiðina
til Akraness um helming, og er
öllum ljóst mikilvægi þess fyrir
þá, sem þurfa i skyndingu að
komast á sjúkrahús. 1 þriðja lagi,
efbrúinyrði ekki byggð, þyrfti að
endurbyggja langan kafla vegar-
ins, sem nú er og vegna þess að á
þessum kafla eru margar brýr,
sem allar þyrfti að endurbyggja,
þá yrði endurbyggingin trúlega
dýrari en brúarsmiðin.
Hvaft er aft segja um skólamál?
Asgeir: 1 Borgarfjarðarhéraði
eru margir framhaldsskólar, t.d.
Héraðsskóli Borgfirðinga i Reyk-
holti, Samvinnuskólinn að Bif-
röst, Búnaðarskólinn að Hvann-
eyri, Húsmæðraskólinn að
Varmalandi o.fl. Þessir skólar
tóku til starfa á tilsettum tima i
haustog eftir þvi sem ég bezt veit
gengur skólastarfið ágætlega, og
heilsufar nemenda og kennara er
UH OLI SKAHIuíilPIR
KCRNELÍUS
JÖNSSON
SKÚLAVÖRÐUSIIG8
BANKASTRÆII6
*‘-*1H‘>B0-106OO
,,Sláturhúsið hraðar hendur"
81.000 fjár slátrað
í Borgarnesi í ár
,,Sláturhús Borgfirðinga hefur
slátrað 81 þúsund f jár það sem af
er árinu, og eru það mestu ársaf-
köst eins sláturhúss á tslandi frá
upphafi, og þvi algjört metár”,
sagði Gunnar Sverrisson slátur-
hússtjóri, i viðtali við Alþýðu-
blaðið i gær. Eins og kunnugt er,
þá gengur sláturhúsið undir nafn
inu „Sláturhúsið hraðarhendur”,
eftir leikriti Hilmis Jóhannesson-
ar, og virðist sláturhúsið standa
fyllilega undir nafninu. Sláturhús
Borgfirðinga er fyrsta og stærsta
sláturhús sinnar tegundar á land-
inu, en nú eru komin hús með
svipuðu sniði viðs vegarum land-
ið. Um þessar mundir er stór-
gripaslátrun i fullum gangi hjá
sláturhúsinu, en svinum og naut-
um er slátrað öðru hvoru allan
ársins hring. Um rekstur hússins
frá upphafi sagði Gunnar.
„Þegar sláturhúsið var tekið i
gagnið, árið 1967 þurfti að breyta
ýmsu, og voru byrjunarörðug-
leikar nokktir. Nokkuð var um
huppablæðingar, sem eru eins
konar marblettir og blæðingar i
kjötið. Huppablæðingar geta staf-
að af ýmsu, t.d. ef dýrin eru mjög
spennt þegar þeim er slátrað og
einnig getur skurðurinn haft á-
hrif, en þessir tæknilegu örðug-
leikar eru nú úr sögunni, og hef ég
enga ástæðu til annars, en að vera
bjartsýnn á rekstur sláturhússins
i framtiðinni”, sagði Gunnar
Sverrisson að lokum.
gott. Þessi fjöldi skólanemenda
setur óneitanlega svip á félagslif-
ið i héraðinu.
Sp.: Hvaft er aft segja um bygg-
ingu járnblendiverksmiftjunnar
aft þvi leyti, scm hún lýtur aft ykk-
ur?
Ásgeir: Nýlega skipuðu heima-
menn hafnarnefnd fyrir Grundar-
tangahöfn og er hún skipuð eftir-
töldum mönnum:
Sigurði Sigurðssyni, oddvita,
Stóra-Lambhaga formaður,
Antoni Ottesen, bónda
Ytra-Hólmi, Valdimar Indriða-
syni, útgm., Akranesi, Daniel
Agústinussyni, forseta bæjarstj.
Akraness, og Asgeiri Péturssyni,
sýslumanni, Borgarnesi.
Nú er unnið að teikningum af
höfninni. Vonir okkar standa til
þess að höfnin verði ekki einvörð-
ungu höfn fyrir verksmiðjuna,
heldur einnig inn- og útflutnings-
höfn fyrir Borgarfjarðarhérað og
Akranes. Það kynni að verða til
mikilla bóta fyrir atvinnuhætti á
Vesturlandi.
Sp : Hvernig standa menningar-
og félagsmálin?
Ásgeir: Fyrir forgöngu sýslu-
nefndar var fyrir nokkrum árum
stofnaðtónlistarfélag i þvi augna-
miði að koma af stað starfrækslu
tónlistarskóla og efla tónlif. Nú er
málunum komið þannig, að rekin
er tónlistar- og tónfræðikennsla á
fjórum stöðum.
Með leiklistarmálin gildir það
sama ogum tónlistina, að þau eru
blómleg hér, eftir ástæðum. Þó
brestur hér i Borgarnesi húsnæði
til stærri sýninga og tónleika, en
það bætir úr skák að i uppsveitum
Borgarfjarðar eru nokkur félags-
heimili, sem vel henta til slikrar
starfsemi.
Æskulýðsstarfsemier i höndum
Ungmennasambands Borgar-
fjarðar og er þar unnið gott og
vaxandi starf.
Þó þykir mörgum að starfsemi
félagsheimilanna sé heldur ein-
hæf, þ.e. dansleikjahald að
stærstum hluta og mætti verða
breyting þar á.
Sp.: Hvernig telur þú sveitarfé-
lögin búin undir aft takast á hend-
ur meira af þeim verkum sem nú
eru í höndum rikisins?
Ásgeir: Ég hlýt að leggja á-
herzlu á það að hlutur sýslufélag-
anná hefur undanfarin ár orðið
mikill i starfi sveitarfélaganna
hér.
Sýslunefndir Mýra- og Borgar-
fjarðarsýslna hafa beint þeim til-
mælum til Alþingis, og reyndar
fengið samþykkta þingsályktun
þess efnis, að efla verði fjárhag
sýslufélaga, þannig að þau geti
risið undir lögboðnum útgjöldum
og svo öðrum útgjöldum, eins og
til dæmis til menningarmála að
frumkvæði heimamanna.
Menn telja það til farsældar að
efla stjórn héraða og sveitarfé-
laga i þvi miði að draga úr þvi
miðstjórnarvaldi, sem safnazt
hefur fyrir á Reykjavikursvæð-
inu.
Þá má nefna að sýslufélögin
hér hafa um langan aldur haft
forgöngu um ýmis mál. Við telj-
um óæskilegt að öll forysta drag-
isttil Reykjavikur. Afleiðing þess
er sú, að ungt fólk, sem áhuga
hefur tíl forystu í atvinnu- og fé-
lagsmálum fer þangað. Við vilj-
um að þessi forysta sé hér heima.
Hér má og nefna raforkumálin og
þá erum við komnir að þeim. Eig-
endur Andakilsárvirkjunar,
sýslufélög Mýra- og Borgarfjarð-
arsýslna og Akraneskaupstaður
hafa allt frá árinu 1964 beitt sér
fyrir þvi að Kláffoss i Hvitá yrði
virkjaður. I fyrra var flutt um
það frumvarp á Alþingi. Það
frumvarp kemur til afgreiðslu i
vetur og vona menn að það fái
eðlilegan framgang. Það er sam-
dóma álit þeirra, sem hafa kynnt
sér virkjunarstaðinn að hann sé
ákjósanlegur. Orkuverið yrði
miðsvæðis, og þvi yrði Vesturland
allt ein raforkuheild, þvi ráð er
fyrir gert að Snæfellsness- og
Dalasýslur yrðu eignaraðilar að
virkjuninni. Þarna yrði um að
ræða 15.000 kw. virkjun, sem
leysa myndi úr grunnraforkuþörf
alls Vesturlands auk þess sem
mikið raforkuöryggi skapaðist
fyrir notendur á svæðinu.
Raforkuflutningur er nú með
þeim hætti að mikill hluti rafork-
unnar, sem notuð er á Akranesi
og i Borgarfjarðarsveitum, til
viðbótar orkunni frá Andakilsár-
fossum,kemur eftireinum streng
yfir Hvalfjörð. Það sér það hver,
sem vill,að litið öryggi er i þessu
fólgið. Þetta vandamál myndi
heyra sögunni til, ef Kláffoss yrði
virkjaður.
Þessi virkjun gæti einnig lagt til
a.m.k. fyrst i stað, orku i byggða-
linuna, sem nú er verið að reisa
um sveitir Borgarfjarðar, en
henni er, eins og kunnugt er, ætl-
að að flytja Norðlendingum orku.
Aðeins þrír fastráðnir
lögreglumenn í geysi-
stóru umdæmi
„Þrir fastráðnir lögreglu-
menn i umdæmi, sem telur
3.700 manns, tel ég alls ekki
nóg, og er lögreglan einnig i
litlu húsnæði með aðeins
tveimur fangaklefum. Er
aöstaðan þvi fremur bág-
borin”, sagði Gisli Kjart-
ansson, fulltrúi sýslumanns
Borgarfjarðar, er Alþýðu-
blaðið spurði hann um störf
lögreglunnar i Borgarnesi.
„Umdæmi lögreglunnar er
mjög stórt, en það nær frá
miðri Holtavörðuheiði og inn i
Hvalfjarðarbotn, og fyrir þrjá
lögregluþjóna er það nokkuð
mikið. Til aðstoðar lög-
reglunni er þvi svokölluð
héraðslögregla, sem starfar
um helgar, og á annatimum.
Héraðslögreglan sér um eftir-
litá öllum böllum. sem haldin
eru i umdæminu, en það er eitt
ball á kvöldi um helgar frá 1.
mai til 1. nóvember. Veitir
ekki af þessari aðstoð sveita-
lögreglunnar vegna þess að
þessi böll gerast all róstursöm
oft á tiðum. í þessari lögreglu
eru heimamenn, og einnig
menn frá Akranesi”. Að
lokum sagði Gisli, að mjög
mikið hafi verið um ölvun við
akstur i sumar, og hefði slysa-
tiðni verið mjög há. Einnig
væri talsvert um innbrot i
Borgarnesi, og hefðuþað bæði
verið utanbæjarmenn sem
heimamenn, sem þar hafa
verið að verki.
Alþýðublaðið
Fimmtudagur 20. nóvember 1975.