Alþýðublaðið - 20.11.1975, Blaðsíða 5
Rætt við Geir Björnsson, hótel-
stjóra um hótelrekstur að vetri til
__ Gcir Hjörnsson,
Ferðafólk þarf undirstöðu-
góðan mat og nægilega hvíld
— Njóta ekki flest félög stað-
arins fyrirgreiðslu hér, sbr.
Lion-klúbbur, Rotary o.s.frv.?
— Jú, enda má segja að þetta
sé eini hentugi staðurinn til
slikrar starfsemi. Að visu er hér
samkomuhús, en það er mjög
tekið að reskjast. Enda þótt
rekstrarörðugleikarnir séu nóg-
ir, þá höfum við mikinn hug á að
auka hér við bygginguna og þar
með starfsemina. Við litum nú
fram á, aö brú komi hér yfir
fjörðinn. Það eru 11 km hérna
upp á vegamótin. Við þá breyt-
ingu myndi umferö aukast mjög
mikið. 1 dag er fólk sifellt að
flýta sér og gefuf sér vart tima
til að æja. Það vindur sér inn á
smástaðina meðíram vegunum
og fær sér gosdrykk og súkku-
laðikex i stað þess að nevta
undirstöðurikrar fæðu og hvila
sig nóg. Fólk virðist ekki gel'a
sér tima til að skoða landið
nægilega. svo rik er spennan
orðin i þjóðfélaginu i dag.
— Það má sjá hér á öllu. að þú
hefur kappkostað að lagfæra
margt á hótelinu. Er ekki næg
vinna i viðhaldinu einu saman?
Auðvitað er sá þáttur erfið-
astur að halda húsi og husbún-
aði við, en hlutina verður að
hafa i formi og endurnýja þá.
Við leggjum aðeins harðar að
okkur, þvi það er litið gaman að
sjá allt drabbast niður i kring-
um sig.
— Hvað vildir þú nú segja. áð-
ur en við ljúkum þessu tali okk-
ar?
Það er þá helzt það, að við
höfum verið sérstaklega heppin
með starfsfólk. Án góðs mann-
afla er svona rekstur útilokað-
ur. Matsveina hef ég ávallt haft
mjög góða og sumar starfs-
stúlkurnar hafa lagt hér hönd á
plóginn allt frá byrjun. Samhent
fólk og skyldurækið er okkur
fyrír öllu.
Þó samtalinu við Geir hali
lokið þarna. þá hnýtur maður
um orð hans varðandi þaö að
leggja meira á sig. Hann hefur
sannarlega lagt hart að sér. Auk
þess að annast hvers konar fé-
lög að vetrinum. hefur hann
gert þorramat hótelsins. að svo
eftirsóttri vöru, að hann hefur
mátt færa á þorrablót mat allt
frá enda Snæfellsness til
Reykjavikur. Hann hefur tvö-
faldað sölu á þorramat á tveim-
ur árum. Þannig fer þessi si-
vakandi, ötuli athafnamaður að
l'levta hótelinu yfir daufustu
mánuði ársins. l>að yar ánægjh
að koma i Hótel Rorgarnes
Hafið þökk fvrir. 111’.
Alþýóublaöið A
B HEIMSÆKIR BORGARNES
Þegar ferðafólk kemur i
Borgarnes, er það sjálfsagður
hlutur að koma við á hótelinu.
Hótel Borgarnes er með þægi-
legustu og best reknu gisti-
húsum landsins, enda er hótel-
stjórinn, Geir Björnsson, á
þönum svo til allan sólar-
hringinn án þess að tapa nokkru
sinni alúðinni og hinu hlýja við-
móti sinu. Allt er i röð og reglu.
Snyrtimennskan ber hús-
bóndanum vitni, hvert sem litið
er.
1 byr jun nóvember gisti
fréttamaður Alþýðublaðsins
Hótel Borgarnes, þar sem hann
fékk höfðinglegar móttökur.
Ekki vildi frú Hanna, kona
Geirs, gefa honum uppskrift á
uppáhaldsrétti manns sins, en
það barg málum, að Geir var
fáanlegur til smá-viðræðna.'
— Var hann fyrst spurður að,
hvernig væri að reka hótel úti á
landi nú i dag? —
Það er að sjálfsögðu mjög erf-
itt eftir, hvar það er, en yfirleitt
er það mjög örðugt. Timinn er
of stuttur, sem við byggjum
rekstur okkar á. A þetta einkum
við um þá, er halda gistihúsum
sinum gangandi allt árið. Oðru
máli gegnir um t.d. Edduhótel-
in, sem hefja starfsemi sina,
þegar ferðamannastraumurinn
hefst og loka siðan, er honum
lýkur. Þannig fleyta þessi gisti-
hús, raunverulega, rjómann of-
an af. Það hafa verið rekin
Edduhótel hér i Borgarfirðinum
undanfarin sumur og það hefur
komiðniðurá gistirýmisnýtingu
hér, en þvi er ekki að leyna, að
hún gefur mest af sér. Og þessi
timi er það stuttur, sem fólk er
verulega á ferð, að það er ekki
gott að gistihús séu of nærri
hvort öðru. Hvað öðru viðkem-
ur, þá er ekki auðvelt að láta
enda ná saman, þar eð örar
verðhækkanir og dýrara vinnu-
afl gera allar langtimaáætlanir
að engu. Það er ekki beisið að
horfa hér á vetrum allt niður i
þrjá matargesti á dag, þegar
hótel i Reykjavik metta hundr-
uð manna. Þrátt fyrir þennan
mismun verðum við að halda
okkar starfsfólki — Nú býr fjöl-
skylda þin hér á hótelinu. Eruð
þið ekki sivinnandi hér góðan
hluta sólarhringsins?
Það fer ekki hjá þvi, að marg-
Hótel Borgarnes.
ir dagar verða okkur fremur
langir, enda að mörgu ieyti ó-
hentugt fyrir okkur að búa hér á
vinnustað. Oft er kallað á mann
af ýmsum ástæðum, sem ekki
myndi gert, ef við byggjum á
öðrum stað. En I byrjun ákváð-
um við að búa hérna, svo betra
væri að halda um stjórnvölinn.
Auðvitað væri það betra fyrir
fjölskylduna að vera á öðrum
stað, en þetta hefur samt orðið
svona, að hér höfum við verið i
rösk 10 ár.
*
*
*
*
*
*
*
*
*
★★★★★★★★★★★★★★★★★ ★★★★ ★ ★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★
VERZLUNIN STJARNAN ★ \
BORGARBRAUT4
BORGARNESI
GJAFAVÖRUM
* SÉRSTAKT ÚRVAL AF
M
*
*
*
*
*
*
*
*
■k
*
SKÓLAVÖRUM
¥
HÚSGÖGNUM
^ 0G MARGT FLEIRA
ÞAÐ BORGAR SIG
AÐ VERZLA í
STJÖRNUNNI
BORGARBRAUT4
BORGARNESI
jf *********************** * ****
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
Fimmtudagur 20. nóvember 1975.