Alþýðublaðið - 03.12.1975, Page 2
TRÉSMIÐJA
BiÖRNS ÓLAFSSONAR
REYKJAVÍKURVEGI 68 - SÍMI 51975
HAFNARFIRÐI
HÚSBYGGJENDUR!
Munið hinar vinsælu TI-
TU og Slottlistaþétting-
ar á öllum okkar hurð-
um og gluggum.
*
Ekki er ráð nema i
tíma sé tekið.
Pantið timanlega.
Aukin hagræðing
skapar lægra verð.
Leitið tilboða.
BÍO*l
Laus störf við
Alþýðublaðið
Blaðburðarfólk
óskast til að bera
blaðið út
í eftirtaldar götur
Reykjavik:
Laugarásvegur
Norðurbrún
Austurbrún
Múlahverfi
Viðimelur
Ásvallagata
Hofsvallagata
Hafið samband við afgreiðslu
blaðsins - Sími 14900
Barnafata-
verzlunin
Rauðhetta
Látið ekki verðbólguúlf-
inn gleypa peningana
ykkar, í dýrtíðinni. Vör-
ur seldar með miklum
afslætti, allt nýjar og
fallegar vörur á litlu
börnin. Litið inn og gerið
góð kaup.
Opið laugardaga
kl. 10 til 12.
Barnafataverzlunin
Rauðhetta
Iðnaðarmannahúsinu,
Hallveigarstíg 1 — Sími
28480.
Volkswageneigendur
Höfum fyrirliggjandi: Bretti — Hurðir — Vélarlok —
Geymslulok á Wolkswagen í allflestum litum. Skiptum á
einum dcgi með dagsfyrirvara fyrir ákveðið verð.
Reynið viðskiptin.
Bílasprautun Garðars Sigmundssonar.
Skipholti 25 Simar 19099 og 20988.
alþýðu
mRmm
RÖDD
JAFNAÐARSTEFNUNNAR
Húsnæðislánakerfið
á heljarþröminni
A nokkrum undanförnum árum
hefur byggingariðnaðurinn á íslandi
tekið miklum framförum. Með til-
komu stórframkvæmda i ibúðar-
húsabyggingum á vegum hins opin-
bera — fyrst með ibúðabyggingum
Framkvæmdanefndar bygginga-
áætlunar og nú upp á siðkastið með
ibúðabyggingum á vegum hins ný-
endurskipulagða verkamannabú-
staðakerfis — skapaðist grundvöllur
fyrir fjöldaframleiðslu ibúða á
íslandi. Ný tækni hélt innreið sina
og fyrir tilverknað hennar hefur
töluvert verið hægt að halda aftur af
hækkun byggingakostnaðar þótt
mun betur megi gera i þeim efnum.
Á þvi er enginn vafi, að fyrir til-
verknað hins opinbera hefur bygg-
ingastarfsemi i landinu mjög fleygt
fram. Byggingasjóður rikisins og
Húsnæðismálastjórn hafa átt
drýgstan þáttinn i þvi. Ef þetta
opinbera lánakerfi til ibúðarhúsa-
bygginga hefði ekki verið til svo og
aðrir þeir þættir i fyrirgreiðslu hins
opinbera við húsbyggjendur, sem
fylgt hafa i byggingariðnaði hefðu
ekki orðið og að íslendingar væru
mun verr settir i húsnæðismálum,
en þeir nú eru.
Það var verk Alþýðuflokksins
fyrst og fremst að byggja upp þetta
opinbera kerfi aðstoðar við islenzka
húsbyggjendur. Fyrir tilverknað
Alþýðuflokksins var Húsnæðismála-
stjórn rikisins komið á fót. Það voru
einkum og sér i lagi ráðherrar
Alþýðuflokksins, sem af hálfu þá-
verandi rikisstjórnar beittu sér fyrir
samkomulagi við verkalýðshreyf-
inguna um hinar miklu ibúðabygg-
ingar fyrir láglaunafólk á vegum
Framkvæmdanefndar bygginga-
áætlunar og það var einnig i
stjórnartið Alþýðuflokksins sem
verkamannabústaðakerfið var tekið
til endurskoðunar og það endur-
skapað i núverandi mynd. Á þeim
árum, sem liðið hafa frá þvi Alþýðu-
flokkurinn lét af stjórn húsnæðis-
mála i landinu hafa engin umtals-
verð ný átök verið gerð i þeim mála-
flokki. Aðeins hefur verið haldið
áfram við að framkvæma það, sem
Alþýðuflokkurinn hafði undirbúið —
nema hvað framkvæmdin hefur
verið að leiðast út i ógöngur þvi
vanrækt hefur verið að sjá hús-
næðismálakerfinu fyrir tekjustofn-
um i samræmi við lögskyld verkefni
þess. Það er ekki sök Alþýðuflokks-
ins, þvi ráðherrar hans lögðu fram
tillögur um nýja tekjustofna fyrir
húsnæðismálalánakerfið um leið og
þeir endursköpuðu það. Þáverandi
stjórnarandstaða lagðist hins vegar
á móti þessum fjáröflunarleiðum og
slikt hið sama gerði samstarfsflokk-
ur Alþýðuflokksins i rikisstjórn.
Saman felldu þessir aðilar svo fjár-
öflunartillögur Alþýðuflokksins og
hafa sjálfir ekki getað bent á aðrar
leiðir. Afleiðingarnar hafa svo orðið
þær, að húsnæðislánakerfið er fjár-
vana og getur ekki sinnt lögboðnum
skyldum sinum.
Eins og nú standa sakir er skortur
tekjustofna fyrir Byggingasjóð
rikisins orðinn slikur, að kerfið allt
er að komast i strand. Ekki hefur
reynzt unnt að standa við gefin
fyrirheit um lánveitingar til bygg-
ingar leiguhúsnæðis á vegum
sveitarfélaga og hafa þær
framkvæmdir dregizt úr hömlu af
þeim sökum. Þá hefur einnig reynzt
mjög erfitt um vik að standa skil á
framlögum til byggingar verka-
mannabústaða. Staða hins almenna
húsbyggjanda er jafnvel enn verri.
Húsnæðismálastjórnarlánin svo-
kölluðu hafa rýrnað að verðgildi og
mjög langur biðtimi er nú eftir lán-
veitingum.
Menn sjá þvi nú, hvaða afleið-
ingar það hafði, að andstæðingar
Alþýðuflokksins i öllum hinum
stjórnmálaflokkunum skyldu fella
tillögur Alþýðuflokksins um nýja og
öfluga tekjustofna fyrir húsnæðis-
málalánakerfið. Nú er svokomið, að
vinna verður bráðan bug að þvi að
útvega kerfinu nýja tekjustofna og
það má ekki dragast lengi ef
framþróunin i húsnæðismálum i
landinu á ekki að stöðvast með öllu.
VIPPU - BltSKÚRSHURÐIN
Lagerstaerðir miðað víð jnúrop:
Hæð;210 sm x breidd: 240 sm
210 - x - 270sm
Aðrar sk»rðir. smlðaðar eftir beiðnr.
GLUGóAS MIDJAN
Siðumúla 20. simi :IX220 ■ ■ —
BL0ÐIN
SEGJA
ökumenn forðast
umferðarljósin
Búið er að setja upp umferðar-
ljós á gatnamótum á þremur
stöðum á Akureyri og þau siðustu
voru sett upp nú i sumar, á horni
Þingvallastrætis og Þórunnar-
strætis. Reynslan hefur sýnt, að
slysatiðni á gatnamótunum hefur
minnkað við tilkomu umferðar-
ljósa og á sérstaklega við um
meiriháttar slys. Aftur á móti
hefur það lika komið i ljós að
umferð á þessum þremur gatna-
mótum hefur minnkað eftir komu
ljósanna. Athugun, sem gerð var
á gatnamótum Glerárgötu og
Strandgötu sýndi að umferð um
þau minnkaði um 5% við tilkomu
ljósanna, en á sama tima jókst
umferð i bænum um 13%. Kom
þetta fram i viðtali við Gunnar
Jóhannesson verkfræðing hjá
Akureyrarbæ.
islendingur
MUNIÐ að senda
HORNINU
nokkrar línur.
Utanáskrift:
HORNIÐ,
ritstjórn Alþýðublaðsins,
Síðumúla ll, Reykjavík.
Alþýðublaðiö
Miðvikudagur 3. desember 1975.