Alþýðublaðið - 03.12.1975, Page 4
Finnsku
leðursófasettin
eru komin
Húsgagnaverzlun
Kristjóns Siggeirssonar hf
Laugavegi 13, Reykjavík, sími 25870
O P A L h/f Sœlgœtisgerð
Skipholti 29 - SÍMI24466
Auglýsing frá Áskjör
Allt í jólabaksturinn
Möndlur alls konar, Perluger, kókosmjöl,
hnetur alls konar, konfektmarsipan,
súkkat, dropar og súkkulaði núgat
essenar 12 teg. hjúpsúkkulaði.
Ódýrar sykurvörur
Púðursykur 1/2 kg 105 kr.
Flórsykur 1/2 kg 98 kr.
Strásykur 1 kg 135 kr.
Sértilboð þessa viku
Smjörliki stk. 115 kr.
Bökunarsmjörliki stk. 105 kr.
Askjör Ásgarði 22 - Sími 36960
t
Viö þökkum innilega auðsýnda samúö og hlýhug viö and-
lát og útför,
Guðmundar G. Kristjánssonar
frá isafirði.
Lára i. Magnúsdóttir,
Ólafur Guðmundsson, Hrefna Magnúsdóttir,
Kristján S. Guðmundsson, Guðmunda Guðmundsdóttir,
Páll S. Guömundsson, Unnur Agústsdóttir,
Sigrún Guömundsdóttir, Hallgrimur Arnason,
Lárus Þ. Guðmundsson, Sigurveig Georgsdóttir,
börn og barnabörn.
o
[rfiíísí&íniiunii
Kodok Pocke: 500
med Ijósmoeii sSrT
SKRIFBORBSSfn ÚR EKT>
LEORI FRA ATSON
--....... m
3.000 króttur.
Vi4 prenlum
fyrir yðnr.
Verðlauna-
Krossgáturitið
6. hefti Verðlauna-
Krossgáturitsins er nú
komið út. í þvi eru 10
heiisiðukrossgátur,
bridge-þáttur, sem
Árni AAatt. Jónsson sér
um, ennfremur stutt
saga eftir háðfuglinn
AAark Twain. Þá eru i
ritinu nöfn þeirra, sem
hlutu vinninga.í 5.hefti
Verðlauna-Krossgátu-
ritsins.
Vinsældir Verðlauna-
Krossgaturitsins fara
nú mjög vaxandi, en þó
eru nú enn til á nokkr-
um stöðum 3., 4. og 5.
hefti, en upplag þeirra
er nú senn á þrotum. 1.
og 2. hefti eru algjör-
lega ófáanleg. — Ráð-
gert er að eitt hefti
komi út i desember
fyrir jólin til afþrey-
ingar fyrir fólk í hinu
langa jólafríi.
Gleðileg jól —
útgefendur
Handritajólakort
Stofnun Árna Magnússonar á
Islandi hefur hafið útgáfu á lit-
prentuðum kortum með lýsingum
úr islenzkum miðaldahandritum,
og i þetta sinn koma út niu kort i
þremur gerðum.
A fimm kortum eru lýsingar úr
sögu heilags Nikulásar, og eru
þær öðrum þræði valdar, vegna
þess að jólahátið fer senn i hönd.
Heilagur Nikulás, erkibiskup frá
Mýra í Likia i Litlu-Asiu, var einn
vinsælasti dýrlingur kaþólskrar
kirkju á miðöldum og var dýrkun
hans mjög útbreidd á Islandi.
Mynd af Jóhannesi guðspjalla-
manni er á tveim kortum Árna-
stofnunar og er hún tekið úr
Skarðsbók postulasagna, Þá er á
einu korti lýsing úr Skarðsbók
Jónsbókarog að lokum er lýsing
úr Flateyjarbók.þar sem sýnt er
fall Ólafs helga Haraldssonar,
Noregskonungs, á Stiklarstöðum
árið 1300.
Kortin verða til sölu á almenn-
um markaði, og verzlunarstjórar,
sem óska eftir að fá þau til sölu,
geta snúið sér til Arnastofnunar.
Andvirði 10 jólakorta nægir til
kaupa á bóluefni fyrir 50 börn
Eins og kunnugt er, hefur ans, eins og hún var túlkuð af is-
Kvenstúdentafélag Islands mörg lenzkri konu á 17. öld. Kortin eru
undanfarin ár séð um sölu og til sölu i verzlunum viða um land.
dreifingu á jólakortum UNICEF,
þ.e. Barnahjálpar Sameinuðu
þjóðanna. Geta má þess að ýmis
félagasamtök, skóla- og kirkjufé-
lög um allan heim styrkja UNI-
CEF, en Kvenstúdentafélagið er i
hópi þeirra félaga, sem styrkja
Barnahjálpina með þvi að sjá um
sölu jólakorta hennar.
Þróunarlöndin eru að visu langt
frá okkur og við blessunarlega
laus við að horfa upp á þjáningar
barnanna þar. En þeim mun
meiri ástæða er að við gerum það,
sem i okkar valdi stendur, til að
draga úr þessum þjáningum, en
það gerum við með þvi að kaupa
jólakort UNICEF. Það má nefna,
að það, sem kemur inn fyrir 10
jólakort, nægir til að kaupa bólu-
efni handa 50 börnum gegn
barnaveiki, kighósta og stif-
krampa.
Kvenstúdentafélagið hvetur
alla til að kaupa jólakort Barna-
hjálparinnar og bendir um leið á
að nú er i fyrsta sinn á boðstólum
kort með islenzkri fyrirmynd, en
það er mynd af fæðingu frelsar-
Þjóðlegt jólaskraut
Meðfylgjandi mynd er teiknuð
af Þórdisi Tryggvadóttur og kom
hún á markaðinn nú fyrir jólin.
Myndin sýnir islenzku jólasvein-
ana 13. Gáttaþef, Gluggagægi,
Pottaskefil, Askasleiki, Skyrgám,
Þvörusleiki, Kertasniki, Bjúgna-
kræki, Stekkjastaur, Giljagaur,
Stúf, Ketkræki, og Faldafeyki.
Hugmyndin er sú, að myndin
verði hengd upp 13 dögum fyrir
jöl og tekin niður á þrettándan-
um.
Myndin er gerð á kartonpappir
og henni fylgja hentugar umbúðir
þannig að auðvelt er að geyma
hana óskemmda milli ára. Mynd-
in kostar 200 kr. og mun það vera
ódýrt miðað við aðrar myndir á
markaði hér.
Upphafið er það að isl. kona,
Margrét Hansen i Hveragerði
P.O. Box 130 fékk hugmyndina i
Danmörku fyrir nokkrum árum,
er hún leiddi hugann að þvi, hve
mikill hluti jólaskreytinga okkar
væri danskur. Hún lét ekki þar við
sitja heldúr hófst handa og
árangurinn er þessi mynd.
Þess má geta að á siðasta ári
fluttum við Islendingar inn jóla-
skraut fyrir 15 milljónir króna.
Þessari eftirspurn mætti hæglega
sinna með innlendri framleiðslu.
Þá má geta þess að öll vinna við
gerð myndarinnar er unnin hér á
landi.
Opnunar-
tími
verzlana í
desember
Fólki til glöggvunar verður
opnunartimi verzlana i
desember sem hér segir.
Laugardagana 6. og 13.
desember, hafa verzlanir
opnunarheimild til klukkan
18:00, en laugardaginn 20.
desember til 22:00. Á Þorláks-
messu, þriðjudaginn 23.
desember, verða verzlanir
opnar til klukkan 23:00, en á
aðfangadag jóla og á gamlárs-
dag verða þær opnar til tólf á
hádegi. Alla föstudaga mán-
aðarins hafa búðir heimild til
að hafa opið til klukkan 22:00.
oB Alþýöublaðiö
AAiðvikudagur 3. desember 1975.