Alþýðublaðið - 13.12.1975, Blaðsíða 13
íprcttir
NÚ SÝNIR ÚR-
VALSLIÐIÐ ÞAÐ
SVART A HVÍTU...
1 fyrsta skiptið i sögu
körfuknattleiks á íslandi
munu tveir útlendingar
leika með islenzku úr-
valsliði gegn erlendu
félagsliði. Hinn 21. des.
kemur bandariskt verk-
fræðiháskólalið frá
Indianafylki, Rose Hul-
man, til landsins og
leika einn leik um kvöld-
ið i Laugardalshöllinni
við úrval 1. deildar-
liðanna. Bandarisku
svertingjarnir Curtis
Carter úr KR og Jimmy
Rogers úr Ármanni
verða að sjálfsgöu I liði
úrvalsins og verður án
efa gaman að fylgjast
með þessum tveimur
frábæru körfuknatt-
leiksleikmönnum i
viðureign við landa sina.
Hinir leikmenn islenzka
liðsins verða valdir um
helgina.
Rose Hulman er eins og all flest
önnurbandarisk háskólalið, geysi
sterk. Þeir eru nii á förum i
Evrópuferð i 3. skiptið, og mun
þetta vera i fyrsta skiptið sem
þeir koma til islands. Þeir hafa
viðkomu aðeins einn sólarhring á
landinu, en halda siðan til Þýzka-
lands, Englands, Frakklands og
Luxemburg, áóur en þeir fara
aftur til Bandarikjanna.
„Trukkurinn” og Kristinn
Jörundsson i barattu undir körfu
KR í haust. Báðir verða þeir leik-
menn sem íslendingarnir binda
einna mestu vonir við gegn
bandariska háskólaliðinu Rose
Hulman, þegar islenzka úrvals-
liðið leikur gegn þvi 21. des nk.
% vr r 1 rrr. '-'■.7717*7:
tslenzki landsliðshópurinn sem
valinn var um siðustu helgi hefur
æftmjög velað undanförnu, og að
sögn fróðra manna þá hefur
sjaldan vereið eins mikill áhugi
fyrir æfingum og einmitt nú. I
fyrrakvöld léku Islandingarnir
ásamt bandarisku svertingjunum
Curtis og Rogers við úrvalslið
Keflavikurflugvallar. „Vallar-
liðið” hefur sjaldan verið eins
gott og einmitt nú og hefur verið
að sigra islenzku 1. deildarliðin i
æfingarleikjum. Islenzka liðið
gerði sér litið fyrir og sigraði það
með 60 stiga mun 93:33. Að sögn
Gylfa Kristjánssonar þá lék úr-
valslið okkar mjög vel og
„keyrði” vel upp hraðann, sem
Keflavikurvallarliðið réði ekkert
við.
Beztu tennis-
leikarar heims
á skerminum?
Meðal iþróttaefnis i' Sjónvarp-
inu á morgun er fimleikasýningin
sem háð var i Laugardalshöllinni,
fyrir tæpum hálfum mánuði. Sýnt
verður úr eik FH og Oppsal, og
landsliðsins i blaki gegn Færey-
ingum. Iþróttaþátturinn siðasta
mánudag var svo stuttur að
aðeins gafst tækifæri til þess að
sýna nokkrar minútur af þessum
leikjum.en verður gertbetri skil i
dag.
Sýndar verða svipmyndir af
helztu atburðum úr sænsku
iþróttalifi, og má jafnvel vænta
þess að þar fáum við að sjá hina
svo kölluðu „master”-keppni i
tennis, þar sem beztu tennis-
leikarar heims koma fram, svo
sem Sviinn Björn Bong, Arthur
Asee og fleiri.
Enski knattspyrnuleikurinn
verður leikur Stoke City og Aston
Villa sem leikinn var á Victoria
Ground i Stokeon Trent siðasta
laugardag. Bæði liðin hafa staöið
sig mjög vel að undanförnu og
sigla hraðbyrðis upp stigatöfluna.
1 liði Aston Villa mun Andy Gray
væntanlega leika, en hann lék
gegn I.B.K. með Dundee United i
Keflavik i 1. umferð U.E.F.A.
bikarkeppninnar. Er ábyggilega
fróðlegt fyrir þá sem sáu þann
leik að fylgjast vel með Gray, og
Sennilegt er að við fáum að sjá
sænska tennisleikarann Björn
Borg i fþróttaþætti Sjónvarpsins i
dag.
sjá hvernig honum gangi i viður-
eign sinni við varnarmenn Stoke.
ísland tapaði aftur
með sömu markatölu
íslenzka landsliðið í
handknattleik sem nú
dvelur í æfingabúðum á
Jótlandi lék sinn fyrsta
leik í 4 liða keppni, sem
hófst í Ulstrup í gær-
kvöldi.
Þau lið sem taka þátt i þessari
keppni eru ásamt islenzka
landsliðinu, danska landsliðið,
ungversku meistararnir
Patabanayi og Arhus
K.F.U. M. I gærkvöldi lék liðið
við Dani og lauk leiknum, æins
og fyrri leiknum kvöldið áður
með eins marks sigri Dana
17:16. Sigurmark Dana gerði
Thomas Patzyi aðeins 2 sekúnd-
um fyrir leikslok. Leikur þessi
telst ekki sem landsleikur
heldur mætti kalla hann óopin-
beran landsleik.
Að sögn Axels Sigurðssonar
eins af fararstjórum islenzka
landsliðsins, þá var þessi leikur
svipaður þeim fyrri að þvi leyti
að hann var mjög harður og
skemmtilegur á að horfa, og
börðust bæði liðin mjög vel. Is-
lendingarnir byrjuðu leikinn
mjög illa og leit á timabili út
fyrir að þeir myndu fá slæma
útreið hjá danska landsliðinu.
Þegar fyrri hálfleikur var
rúmlega hálfnaður var staðan
10:4 fyrir Dani, og aðeins nokkr-
um minútum fyrir lok hans var
staðan 12:6. Island gerði svo tvö
siðustu mörk hálfleiksins og
lauk þvi fyrri hálfleik með sigri
Dana 12:8. Þegar verst gekk hjá
tslendingunum i hálfleiknum
var vörnin mjög léleg og
opnaðist einmitt mjög illa á
miðjunni sem oftast hefur verið
þéttari en hornin, sem nú voru
aftur á móti vel lokuð.
1 siðari hálfleik gekk aftur á
móti mun betur hjá landanum
enda var vörnin þá mjög góð,
ásamt markvörzlu Guðjóns Er-
lendssonar sem varðí markið
mest allan leikinn af stakri
prýði. Danir komust fljótlega i
14:10, en þá kom góður sprettur
hjá landsliðinu og gerðu þeir 4
næstu mörk, og náðu þar með að
jafna. Danir skoruðu 15:14, en
þá komu tvö góð mörk frá
Björgvini Björgvinssyni — en
hann átti mjög góðan leik og
komust þá tslendingarnir yfir i
fyrsta skiptið i þessum tveimur
leikjum við Dani. Danir jöfnuðu
og þegar þrjár minútur voru til
leiksloka var staðan jöfn 16:16
og 3 minútur til leiksloka, og Is-
land með knöttinn. En fyrir hel-
beran klaufaskap misstu þeir
knöttinn og skoruðu Danir
sigurmakrið aðeins tveimur
sekúndum fyrir leikslok.
Að sögn Axels þá var leikur-
inn ágætur af hálfu landans
einkum i siðari hálfleik,
enda unnu þeir hann 8:5. Mikil
spenna var siðustu minúturn-
úturnar og gat leikurinn allt
eins endað með eins marks sigri
Islands. Björgvin Björgvinsson
og Jón H. Karlsson voru lang
beztu leikmenn islenzka liðsins
ásamt Guðjóni Einarssyni sem
var nær allan leikinn i marki.
Dómararnir voru Rodihl —
annar af þeim sem dæmdi FH —
Oppsal — og Sven Nilsen og
dæmdu vel. Aðeins einum leik-
manni var visað af leikvelli það
var Thomas Patzyi i 2 minútur
Leikurinn var prúðmannlega
leikinn i alla staði og sáust
sjaldan eða aldrei gróf brot i
honum.
Björgvin Björgvinsson
linumaðurinn snjalli
átti stórleik i gærkvöldi
þegar island tapaði
fyrir Dönum 16:17.
ÆlTRiú'.:: ~T:;i ; iC: I :
íHi
Markhæstu leikmenn Islands
voru: Björgvin Björgvinsson og
Jón H. Karlsson. báðir með 6
mörk. Hin 4 mörkin sem eftir
eru skiptust niður á jafn marga
leikmenn. Pál Björgvinsson.
Stefán Gunnarsson, Axel Axels-
son og Viggó Sigurðsson, eitt
hver. Viggó lék þennan leik
allur reifaður um puttann, en
eins og komið hefur fram i frétt-
um þá meiddist hann á æfingu
fyrr i vikunni og háði það honum
greinilega. Þeir sem hvildu að
þessu sinni voru Ingimar
Haraldsson og Gunnar
Einarsson, en Gunnar var
slæmur i iljunum eftir leikinn
frá kvöldinu áður.
1 dag leikur Island við ung-
verska liðið en við Arhus Kfum
á sunnudag.
Þórarinn: FH hefur
forgang hjá mér
Mikil óánægja var innan
FH-leikmanna i fyrra þegar nú-
verandi landsliðseinvaldur Viðar
Simonarson þjálfaði 1. deildar lið
Hauka. Var það meðal annars út
af þvi að þegar FH og Haukar
léku, þá var Viðar fjarstaddur
lék hvorki með FH eða leiðbeindi
Haukum. I febrúar siðastliðinn,
nánar tiltekið þegar Geir
Hallsteinsson tók að sér þjálfun
FH, var samþykkt á fundi félags-
ins, að ekkert slikt og átti sér stað
með Viðar kæmi til greina fram-
vegis. Það kom þvi mönnum á
óvartþegar nú i vikunni Þórarinn
Ragnarsson — leikmaður FH —
tók aö sér þjálfun 1. deildarliðsins
Gróttu, i stað Gunnars Kjartans-
sonar, sem hætti sökum persónu-
legra ástæðna. Alþýðublaðið tók
Þórarin tali vegna þessa og hafði
hann eftirfarandi að segja:
„Þegar ljóst varð að Gunnar
myndi ekki geta þjálfað Gróttu i
siðariumferðinni, fór félagið þess
á leit við mig að ég tæki að mér
þjálfun liðsins. Ég vissi auðvitað
vel hverjar samþykktir urðu hjá
félagi minu i febrúar, og sagði þvi
við forráðamenn Gróttu þegar
þeir vildu fá mig sem þjálfara, að
ég myndi reyna það, en lið mitt
gengi samtfyrir þegar um leiki
eða æfingar væri að ræða. Þar eð
æfingartimar félaganna slangast
ekki á og forráðamenn Gróttu
samþykktu að ég léki með FH
þegar liðin ættu að leika saman
þá tók ég boði Gróttu, enda hef ég
þjálfað liðið áður, og kunni ágæt-
lega við mig.”
Nú eru þrir leikmenn FH
þjálfarar með öðrum liðum.
Viðar með landsliðið, Geir með
KR og Þórarinn með Gróttu.
Reynir Ólafsson þjálfari FH er
þvi fremur óskemmtilegri að-
stöðu hjá félaginu, þar eð hann er
aö þjálfa menn sem þegar eru
orðnir þekktir handknattleiks-
þjálfarar.
Þrír leikir
Þrir leikir verða ieiknir i
Islandsmótinu i körfuknattleik,
sem jafnframt eru siðustu leik-
irnir fyrir áramót. 1 dag kl. 14.00
leika Armann og Njarðvik á
Seltjarnarnesi. Strax á eftir
leika Valur og 1R. Liklegt
verður að teljast að 1R og
Ármann sigri nokkuð örugg-
lega, þótt allt geti auðvitað
í körfunni
skeð.
A sunnudaginn leika KR og
nýliðarnir Fram. Ekki er alveg
vist hvar sá leikur verður spil-
aður, þar sem Hagaskólahúsið
hefur enn ekki verið tekið i notk-
un. KR-ingar með Trukkinn i
broddi fylkingar ættu að verða
Framörum ofjarlar i þessari
viðureign.
Alþýðublaðið
Laugardagur 13. desember 1975.