Alþýðublaðið - 17.12.1975, Page 12

Alþýðublaðið - 17.12.1975, Page 12
Útgefandi: Blað hf. Framkvæmda- stjóri: Ingólfur P. Steinsson. Kit- stjóri: Sighvatur Björgvinsson. Ritstjórnarfulltrúi: Bjarni Sigtryggsson. Auglýsingar og af- greiðsla: Hverfisgötu 10 — simar 14900 og 14906. Prentun: Blaða- prent hf. Askriftarverð kr. 800.- á mánuði. Verð i lausasölu kr. 40.-. KÓPAVOGS APÓTEK Opiö öll kvöld til kl. 7 i taugardaga til kl. 12 * _ , . j r Veðrrið--------- 1 dag mun fara hlýnandi ogfyrri hluta dags verður kaldi af suðaustan með snjókomu og siðan slyddu. Siðdegis mun hann snúast i suðvestan kalda með súld. Hiti verð- ur kominn yfir frostmark siðdegis. Gátan 5 UÐ - VES TANH r T / -V ________________* 'ftLObV (j)ÖLV /0/£H FftT/D SÆVÝR. ZE/"!> E'O/? ViÐ HÆTUR *) b STÓHA v'/Ðfí FÚK 3 l UHVfiN HLb/b fóron) VER'yM) F/$KO HV'Ldl _ V/i> L0f‘ hvAV /vo TfiLA % 1 SunD FÆRlÐ V PttrHR. Ranai>/ ftílKft viuR. KEVRU^ 5 V£RR/ /?o//(ý e/ÐA 7 nS/KS íiHRlHn 9 t ly/</i-oR7) * H/t'DfíaÉi- HEYRT, SÉÐ 0G HLERAÐ MEGUM VIÐ KYNNA Guðlaug Þorsteinsdóttir skákkona, er fædd i Reykjavik 2. marz 1961, en fluttist aðeins 2 ára gömul til Kópavogs, þar sem hún hefur siðan átt heima. Foreldrar Guðlaugar eru Þorsteinn Guð- laugsson, rennismiður, og kona hans Sigurlaug Sigurðardóttir. Guðlaug á 3 systkini, Sigurð 18 ára, Ragnheiði Elvu 7 ára, og Ólaf Þór, sem er á öðru ári. Guðlaug byrjaði snemma að tefla, enda er mikill skákáhugi í fjölskyldu hennar. Hún var aðeins 5 ára, þegar Þorsteinn, faðir hennar,sem er mikill áhugamað- urum skák, kenndi henni að tefla. Til að byrja með tefldi hún ekki mjög mikið, en nú seinni árin hef- ur áhuginn og getan vaxið hröð- um skrefum. Skemmst er að minnast hins glæsilega árangurs hennar á Norðurlandamótinu i skák, þegar hún hreppti Norður- landameistaratitil kvenna i Sandefjord i Noregi fyrst is- lenzkra kvenna. Hún er meistaraflokksmaður i Taflfélagi Kópavogs. Einnig hefur Guðlaug unnið þau skákmót, sem hún hef- ur tekið þátt i hjá hinni nýstofn- uðu kvennadeild i Taflfélagi Reykjavikur. Guölaug lauk barnaprófi hjá Kársnesskólanum i Kópavogi, sem henni likaði mjög vel við. Eftir það hóf hún nám i Kvenna- skóla Reykjavikur, þar sem hún nemur nú. Þar er Guðlaug i landsprófsbekknum 3-L og mun væntanlega ljúka landsprófi næsta vor. HLERAÐ: Að enn einu sinni séu að fara af stað harðvitugar deilur vegna úthlutunar viðbótarrit- launa, sem gerð var opinber i gær. Þá var 40 rithöfundum veitt ritlaun að upphæð 300 þúsund krónum hverjum. Umsækjendur voru margfalt fleiri, eins og áður, og nú eru ýmsir úr hópi þeirra, er ekkert fengná leið fram á ritvöll- inn. Þetta er i siðasta sinn, sem þessum viðbótarritlaunum er út- hlutað. HEYRT: Að álag á gildandi fast- eignamati hækki upp i 173% á næstaári. Þá er ráðgert að álagn- ingarstoín útsvara hækki um 26% ogsömuhækkun útsvarsálagning- ar miðað við sama álagningar- hlutfall eins og gilti á þessu ári. HLERAÐ: Að KSLM (Kommún- istasamtök Marxista-Leninista) hafi staðið i harðvitugri baráttu við póstþjónustuna hér i Reykja- vik. Málavextir eru þeir að Marx- istarnir hafa notað póstþjónust- una til dreifingar á málgagni sinu „Stéttabaráttunni” til áskrif- enda. Siðasta tölublað var komið á póststofuna fyrir 10 dögum sið- an. Blöðin komu á eðlilegum tima til viðtakenda úti á landi, en á- skrifendur hér i Reykjavik fengu alls ekki sitt eintak. Er Marxist- arnir spurðust fyrir um blaða- bunkann á Pósthúsinu var þeim tjáð að liklegast heföi blaðapakk- inn týnzt, en hann kæmi eflaust i leitirnar. Og viti menn, 11 dögum eftir að blöðin voru sett i póst, barst áskrifendum blaðið i hend- ur. Viðmælandi blaðsins, eitil- harður Marxisti, telur að þessi töf hafi orsakast af þvi að lögreglu- yfirvöld og yfirvöld þessa kapitaliska lands hafi tekið blöðin i sinar hendur i nokkra daga til þess að fá vitneskju um nöfn og heimilisföng áskrifenda. Astæðan? Liklegast sú að vita hverjir og hvar óvinirnir eru þeg- ar KSLM gerir rauðu bylting- una!!.... SÉÐ: 1 Morgunblaðinu i gær, að brezku freigáturnar, sem gert hafa innrás i fiskveiðilandhelgi okkar, séu ekki „NATOSKIP”. Segir blaðið, að sendihcrra tslands i Brussel og hjá Atlantshafsbandalaginu hafi skýrt frá þvi, að „sendiráðið i Brussel hafi gengið úr skugga um það að engin freigátanna, sem væru á tslandsmiðum, „væri mörkuð bandalaginu.” Þvi i ósköpunumvar þá Einar að ræða þetta mál á ráðherrafundi NATO fyrst engin af freigátunum er „mörkuð bandalaginu”? SÉÐ: Að Bændaskólinn á Hvann- eyri auglýsir eftir fjósameistara. Tekið er fram i auglýsingunni að æskilegt sé að umsækjendur hafi búfræðimenntun og reynslu i hirðingu nautgripa, en slik reynsla virðist þó ekki nauðsyn- leg. Mætti ætla að hér væri um nokkurs konar „tilraunafjós” að ræða. HLERAÐ: Að margir óttist að Seðlabankinn láti framkvæma skyndikönnun á ávisunum, sem verða i umferð daginn fyrir gamlársdag. Sagt er að ekki sé óalgengt að menn fleyti sér yfór áramótin á gúmmitékkum, en vegna tiðra skyndikannana að undanförnu séu menn uggandi um að slikt verði hægt að sinni. HEYRT: Að bæjarfógetinn i Kópavogi hóti þeim atvinnurek- endum, sem standa ekki tafar- laust skil á gjöldum starfsmanna sinna, að þeir verði kærðir til sakadóms fyrir jól. Þessar innheimtuaðgerir eru sagðar hafa orðið til þess að drjúgt hefur hækkað i kassanum hjá fógeta. ÖRVAR HEFUR 0RÐIÐ Það er grátlegt hversu erfitt almenn skynsemi á uppdráttar i sambandi við skipulagningu i bygg- ingastarfsemi á Is- landi.Hér eru fram- kvæmdaraðilarnir — hús- byggjendur og bygginga- fyrirtæki — siður en svo einir i sök. Hið opinbera, bæði riki og sveitarfélög, eru ekki barnanna bezt i þessum efnum. Tökum til dæmis skipu- lagsundirbúning af hálfu sveitarfélaga. Það er mjög sjaldgæft, að fram- tiðaráætlun sé gerð um skipulagningu byggöa og málum hagað þannig, að ■.reynt sé aö láta upp- bygginguna ganga jafnt ogstöðugt fyrir sig. Þvert á móti einkennist allt skipulagið og allur undir- búningur af hálfu sveitar- félaganna af stórum stökkum og stanzi á milli. Þannig er e.t.v. á einu ári úthlutað miklum fjölda byggingalóða — á næsta ári þar á eftir nánast engu. Byggðaþróunin gengur þvi öll fyrir sig i rykkjum og skrykkjum — þetta árið er ógerningur að fá iðnlærða menn til starfa vegna mikilla framkvæmda, hitt árið er svo umframframboð á vinnuafli. Allt er þetta auðvitað vegna slæmrar skipulagningar af hálfu þeirra, sem framkvæmd- unum ráða — þ.e.a.s. yf- irvalda viðkomandi sveit- arfélags eða sveitarfé- laga. Þá er það kapituli út af fyrir sig, hvernig undir- búningi sveitarfélaga er háttað i sambandi við val á lóðum undir ákveðnar húsagerðir. Tökum til dæmis hið nýja Fossvogs- hverfi i Reykjavik. Það var skipulagt þannig, að efst i brekkunni var kom- ið fyrir fjölbýlishúsum, | neðar raðhúsum og keðjuhúsum og neðst ein- býlishúsum. Þetta er svo sem gott og blessað á pappirnum — og með til- liti til útsýnis. En hvernig kom þessi ákvörðun heim og saman við gerð jarð- vegsins á hverjum stað? Þannig, að þegar farið var að byggja kom i ljós, að á þeim stað, sem fjöl- býlishúsunum var ætl- aður staður, voru ca. tveir metrar niður á fast, en þar, sem byggja átti einbýlishús fór hæð sökkla allt upp i 7-8 metra. Magur, hamingju- samur, væntanlegur ein- býlishússeigandi var þvi búinn með allt sitt fé áður en hann komst upp úr jörðinni — og bygginga- kostnaður húsanna eftir þvi. Þetta eru aðeins örfá dæmi um skipulagsgalla. Mörg fleiri dæmi mætti nefna. Kjarni þessa máls er sá, að ef eðlilega væri staðið að undirbúningi byggingaframkvæmda af hálfu sveitarfelaga og reynt væri að vanda hann eftir föngum mætti spara tslenzkum húsbyggjend- um stórfé og stuðla jafn- framt að jafnari og öruggari uppbyggingu nýrra ibúðahverfa, en nú á sér stað. FIMM á förnum vegi Anna Katrln Steinsen, gagn- fræðaskólanemi: Já, ég nota oftastendurskinsmerki. Þótt ég sé nemi, fæ ég ekki gefins endurskinsmerki og varð þvi að kaupa þaö,. Þaö geröi ég og nota vel.” Asdis Leifsdóttir, kennari: „Það eru kattaraugu á bilnum minum og það samsvarar endurskinsmerkjum, þar sem ég ferðast mest i bilum. Hins vegar á ég til endurskinsmerki ætluðu gangandi vegfarendum, ef ég skyldi þurfa að taka til fót- anna.” Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson, rakari: „Nei, ég fer aldrei út i mjólkurbúð. Konan min fer slik- ar ferðir og sér um öll innkaup. Þar af leiðandi geng ég litið og nota alltaf bilinn minn.” Notar þú endurskinsmerki? N Guðrún Sveinsdóttir, vinnur i þvottahúsinu Eimi: „Nei, þvi miður geri ég það ekki. Það er mest einberum slóðaskap að minni hálfu að kenna, en brýn nauðsyn er til þess að sem flest- ir noti endurskinsmerki.” Margrét Hallgrimsdóttir, af- greiðslust'ulka: „Já, ég nota alltaf endurskinsmerki. Það er erfittað gera sér grein fyrir þvi, hve almenn notkun endurskins- merkja er hér á landi, en ég gizka á að helmingur lands- manna noti þau að staðaldri, og er það of litið.” ✓

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.