Alþýðublaðið - 30.12.1975, Blaðsíða 3
Sfefnuliós Kjartan Jóhannsson skrifar *
1976 örlagaríkt ár
Þá er árið 1975 senn á enda.
Ekki verður annað sagt en það
hafi verið að ýmsu leyti
viðburðarikt. Enn hefur ekki
tekizt að hafa viðunandi stjórn
á efnahagsmálum okkar,
verðbólgan hefur ætt áfram og
skuldir okkar erlendis hafa
hlaðist upp. Náttúruhamfarir
hafa verið allmiklar og ber þá
hæst hin nýjustu tiðindi af
Norð-austurlandi. Merkustu
atburðir ársins eru þó vafalit-
ið útfærsla landhelginnar og
niðurstöður nýjustu rann-
sókna um ástand fiskistofn-
anna og afkastagetu fiskveiði-
fiotans.
Árið 1975 er annað árið I röð, sem viö
búum við um 50% verðbólgu, en það er
meiri verðbólga en dæmi eru um, að
nokkurt efnahagskerfi hafi þolað. Það
hlýtur að verða eitt meginviðfangsefnið i
stjórn efnahagsmála hér á landi á kom-
andi misserum að ráðast gegn
verðbólgunni. Um það cru trúlega allir
sammála , og hafa reyndar veriö fyrr, Þær
fálmkenndu aðgerðir.sem einkennt hafa
efnahagsstjórnina á undanförnum árum,
gefa þvi miður ekki tilefni til mikillar
bjartsýni i þessum efnum.
Enn er viðskiptajöfnuður okkar gagn-
vart útlöndum mjög óhagstæöur. Það
þóttu mikil ótiðindi, þegar Ijóst varð, að
viðskiptajöfnuöurinn á árinu 1974 yrði
óhagstæöur um ca. 15 miiljarða króna. Nú
er þvi hins vegar spáð, að hann verði
óhagstæður um ca. 20 miiijarða á þvi ári,
sem senn er liðið. Er uggvænlegt aö horfa
upp á svo óhagstæða stöðu þjóðarbúsins
gagnvart útlöndum ár eftir ár. Hættan á
þvi, að við glötum fjárhagslegu sjálfstæði
með óvarlegum búskaparháttum, hefur
þannig vaxið ár frá ári á s.l. tveimur ár-
um. Ekki verður þvi um kennt, aö eyðsla
almennings hafi farið vaxandi á senn
liðnu ári, þvi að gert er ráð fyrir, að hún
hafi dregizt saman um 11 % að magni til
frá fyrra ári, sem er þrisvar til fjórum
sinnum meiri samdráttur en i
þjóðartekjunum. Á hinn bóginn hafa opin-
berar framkvæmdir aukizt um nær 19%
aö magni til á árinu 1975, þrátt fyrir sam-
dráttinn I þjóðartekjum. Þangað hefur þvi
farið enn stækkandi hluti þjóðarfram-
leiðslunnar. Itikissjóöur hefur glögglega
alls ekki sýnt sömu aðhaldssemi og
almenningur, heldur þvert á móti
spandérað enn þá meir en nokkru sinni
fyrr. Fordæmi rikissjóðs hefur þannig
ekki verið til fyrirmyndar.
Otflrsla iandhelginnar og baráttan fyrir
verndun fiskistofnanna verða vafalaust
talin meðal minnisverðustu mála á árinu
1975. Enn á ný höfum viö kynnst þvi, aö
erlend störveldi fást ekki tii þess að skilja
hvert lifshagmunamál er hér um að tefla
fyrir tslendinga. Enn á ný hafa Bretar
sent brynvarin skip á mið okkar til þess
að kúga fram vilja sinn, og byggja allan
sinn málatilbúnað á löngu úreitum ný-
lendusjónarmiöum. tsiendingar eru
orönir vanir þessum viðbrögðum. Með
þrautseigju höfum viö ævinlega unnið sig-
ur að lokum. En ástandið er að ýmsu leyti
langtum alvarlegra nú en nokkru sinni
fyrr, þvi að nú liggur ljóst fyrir sam-
kvæmt nýjustu athugunum visinda-
manna, að við borö liggur, að þorskstofn-
inum hafi verið útrýmt og veröi veiöar
ekki takmarkaðar mjög verulega á næsta
ári, kann svo að fara að þessi mikii-
vægasta auölind lslendinga veröi svo hart
leikin, að hún verði okkur ónýt um langa
framtið. Athygli vekur, að skoðanir
islenzkra og brezkra fiskifræðinga eru
næsta samhljóða i þessu efni. Engu að
siður þráast Bretar við og fást ekki til
þess aö taka nauðsynlegt tillit til þessa'á-
stands þorskstofnsins.
Litlum vafa er undirorpið, að
mikilverðasta viðfangsefni komandi árs
verður að tryggja verndum fiskistofn-
anna við strendur landsins og þá sérstak-
lega þorsksins.Þettaverður erfitt verkefni
og sjálfsagt sársaukafullt einkanlega þar
sem saman fer, að ekki hefur enn tekist að
losna við veiðar útlendinga hér á
miðunum og svo hitt, að afkastageta okk-
ar eigin fiskveiðiflota er langtum meiri en
hagkvæmt er meö tilliti til þess hversu
takmarkaöan afla má veiða.
Engu aö siður byggist framtið þjóðar-
innar I landinu á þvi aö vel takist til um
takmörkun veiðanna og verndun fiski-
stofnanna. Þorskstofninn er og hefur
verið mikilvægasta náttúruauðlind
lslendinga, og á honum höfum við byggt
afkomu okkar öllum öörum
náttúruauðlindum fremur. Þessari
auðlind má undir engum kringumstæðum
eyöa. Áhrifin yröu ófyrirsjáanleg. Þess
vegna riður á, að strax I upphafi komandi
árs, verði undinn bráöur bugur aö þvl, að
koma góöu skipulagi á okkar cigin veiðar,
jafnframt þvi, sem allra ráða verði leitað
til þess aö losna við veiðar útlendinga hér
á miöunum. Framtiðarhagur okkar velt-
ur á þvi hvernig okkur tekst að nýta okkur
á árinu 1976, þá þekkingu sem við höfum
öðlast i þessum efnum á árinu 1975.
Við eigum fjárhagslegt sjálfstæði okkar
undir þvi, hvernig við stjórnum eigin mál-
um. Þar ber hæst stjórn efnahagsmála og
nýtingu og verndun náttúruauðlindanna.
Þær ákvarðanir, sem teknar veéða i þess-
um málum ,á árinu 1976 kunna að draga
langan slóða. Þvi riður á, að vel verði til
þeirra vandaðog landinu stjórnað af festu
og ákveöni.
P f Dagsími til kl. 20: 81866
• . f rettaþraounnniííí™—
Jólameyjar á því herrans ári -
eða jólasveinar á kvennaári?
Timi jólasveinanna er liðinn að sinni, þótt enn lifi vika af jólum.
Kvennaáriö liöur i aldanna skaut annað kvöld — og hvér veit nema
jólameyjar verði i framtiðinni til þess að minna okkur á það herrans
(eða meyjanna) ár, sem nú er að liöa. Þessi jólasveinamynd er frá
Osló, þar sem leikarar iklæddust jólasveinabúningum skömmu fyrir jól
og fóru með Kaupmannahafnarferjunni yfir til Hafnar til að vekja at-
hygli á jólaleikritunum.
Leikur Davíðs
og Golíats á
miðunum
Þaö var tiðindalaust á vig-
stöðvunum fyrir austan i gær, en
28 brezkir togarar voru á veiðum
út af Noröfjarðarhorni. Að sögn
Jóns Magnússonar talsmanns
Landhelgisgæzlunnar, eru þrjár
freigátur á miðunum, en þær eru
Andrómeda, sú sem sigldi á varð-
skipið Tý, Gurkha og Lowestoft.
Tvær siðarnefndu freigáturnar
hafa ekki komið við sögu i
þorskastriðinu til þessa. Einnig
eru á miðunum hjálparskipin
Hansa, Lloydsman og oliu- og
birgðaskipið Olwin. Jón tjáði okk-
ur að samkvæmt fréttum að utan,
þá væri hjálparskipið Miranda á
leiðinni til islands. Veður var
sæmilegt á miðunum i gær.
Eins og fram hefur komiö i
fréttum, þá sigldi freigátan
Andrómeda á varðskipið Tý I
fyrramorgun um 40 milur austur
af Norðfjarðarhorni. Eftir að
hafa siglt varðskipið uppi um tiu
leytið, og skipin voru samhliða,
beygði freigátan skyndilega, með
þeim afleiðingum að afturhluti
hennar slóst I Tý.
Við áreksturinn beygðust tólf
bönd frameftir stafnshlið Týs, um
1.5 metra frá þilfari. Einnig
myndaðist 10 til 15 sentimetra
rifa, bakborðsmegin um tvo
metra frá þilfari. Skemmdir á
Andromedu urðu aðeins meiri en
á Tý. Þar fór landgangurinn all-
ur, og allt rekkverkið frá miöju
skipi og alveg aftur á skut. Engin
meiðsli urðu á mönnum viö þessa
ásiglingu Andromedu, en enginn
er öruggur gegn þeim sem
stunda slikar sjóræningjaaðferð-
ir.
Nokkuð öruggt
eftirlit með
aflamagni Þjóðveija
,,Aflamagn þýzkra togara sem
veiða á Islandsmiðum er skráð
strax við löndun skipanna i er-
lendum höfnum, og er þá nokkuð
stuðst við dagbók skipanna”,
sagði Hans G. Andersen sendi-
herra, er Alþýðublaöið spurði
hann um eftirlit á aflamagni
Þjóðverja við ísland”.
Við spurðum Hans að þvi, hvort
ekki séu brögð að því að gefiö
væri upp rangt aflamagn, og röng
veiðisvæði, t.d. með þvi að veiða
hér við land og síöan litillega við
Grænland, og segja svo að aflinn
hafi allur fengizt við Grænland.
Sagði Hans að mjög litlar likur
væru á sliku svindli, og erfitt að
standa i sliku fyrir útgerðirnar,
þar sem kvóti væri á öllum veiði-
svæðum, og þvi litið á þvi að
græða hvort dregið væri af kvót-
anum hér við land eöa annars-
staðar. Einnig eru fleiri sem
fylgjast meö aflamagninu en Is-
lendingar, og má þar nefna
þýzka skattinn. Skýrslur um afla-
magn togaranna fara svo i gegn
um alþjóða Hafrannsóknarráðið,
sem hefur eftirlit með öllum veið-
um, þannig aö svindl I þessu sam-
bandi kemur ekki til greina.
Einnig sagði Hans að það væri
alltaf fylgzt með þýzku skipunum
hér við land, og væru þau skyld til
aö tilkynna sig einu sinni á sólar-
hring.
Gefa varmarétt-
inn gegn ókeypis
varmanotkun um
aldur og ævi...
Hreppsnefnd Vatnsleysu-
strandarhrepps barst neðanritaö
bréf það sem hjálagt ljósrit er af,
fyrir skömmu. Hefur hrepps-
nefnd fjallað um málið og sent
það stjórn Hitaveitu Suðurnesja
til umfjöllunar, enda verður það
fyrirtæki framkvæmdaaðili á
svæðinu, ef af virkjun verður:
„Til hreppsnefndar
Vatnsleysustrandarhrepps,
hr. sveitarstjóri,
Guömundur Hauksson,
Vogum.
Viö undirritaðir, eigendur
Stóru- og Minni Vatnsleysu,
Vatnsleysustrandarhreppi, leyf-
um okkur að tilkynna hrepps-
nefndinni, að við erum reiðubúnir
til að afhenda hreppnum hitarétt-
indi jarða okkar viö rætur Trölla-
dyngju, þar sem Orkustofnun
hefur þegar látið bora fyrir jarð-
varma og leitt hefur i ljós, aö
nægur varmi muni vera fyrir
hendi þar til virkjunar á það stóru
landssvæði sem Suðurnes öll eru,
en tilboð okkar tekur aöeins til
notkunar jarðvarma vegna hita-
veitu fyrir Suðurnes ein. Jafn-
framt fylgir jarðnæði undir nauð-
synlega byggingu fyrir orkuver
er kann að verða byggt i þessu
sambandi.
Við gerum ekki kröfu til endur-
gjaldsfyrir réttindi þessi, aðra en
þá, að þegar og ef orka þessi yröi
nýtt fyrir Suðurnesjasvæðiö allt,
þar með talinn Vatnsleysustrand-
arhreppur, að hitaveita yrði lögð i
jarðarhús okkar, þ.e. á jörðunum
Stóru-og Minni Vatmsleysu, okk-
ur aö kostnaðarlausu, svo og
varmanotkun jarðanna verði án
^endurgjalds um aldur og ævi.
Þá er það skilyröi af okkar
hálfu aö Vatnsleysustrandar-
hreppur komi ekki til með aö hafa
tekjur af hitaréttindum þessum
þ.e. meö sölu á hitaréttindum
þessum til þriðja aðila.
Hins vegar teljum viö sann-
gjarnt að Vatnsleysustrandar-
hreppur komi til meö að njóta
beztu kjara vegna hitalagnar til
og um hreppinn.
Tilboð okkar stendur til 1. april
1976, en fellur þá úr gildi hafi ekk-
ert markvert, að okkar dómi,
skeð i málinu.
Virðingarfyllst,
Sæmundur Þóröarson
Stóru Vatnsleysu,
Þorvaldur Guðmundssson
Minni Vatnsleysu.
Heitir smáréttir
allan daginn
Matstofa KEA á Akureyri hefur
tekið upp þá nýbreytni að hafa á
boðstólum ýmsa heita smárétti,
svonefnda „grill” — rétti, sem
eiga vaxandi vinsældum aö
fagna. Þessa smárétti, svo sem
steikur, innbakðaða fiskrétti,
franskar kartöflur og ham-
borgara, mun Matstofan
bjóða gestum sinum þann tíma,
sem hún er opin, en það er frá kl.
8 f.h. til kl. 9 e.h. Alla rétti Mat-
stofunnar er hægt að fá
heimsenda.
Atvinnulýðræði
til umræðu
hjá samvinnu-
mönnum
Atvinnulýðræði verður á
dagskrá samvinnumanna á næst-
unni, segir i fréttabréfi
Kaupfélags Eyfirðinga, KEA-
FREGNUM. Þar segir svo:
A næsta aðalfundi Sambandsins
verður rætt um atvinnulýðræði.
Þetta efni mun þvi væntanlega
verða tekið fyrir á næsta aðal-
fundi KEA. En áður en það
verður þarf að ræða það á fundum
lélagsdeilda kaupfélagsins,
þannig að félagsmenn séu sem
bezt búnir undir umræður á aðal-
fundi.
Atvinnulýðræði hefur verið til
umræðu alllengi bæði erlendisog
hérlendis. Með atvinnulýðræði er
átt við áhrif starfsmanna á
rekstur og stjórnun fyrirtækja og
stofnana.
A flestum Norðurlöndunum
hefur starfsmönnum stærri fyrir-
tækja verið tryggður þessi réttur
til reynslu með löggjöf og hafa
samvinnufélögin viðast gengið
þar á undan öðrum aðilum.
Húsavík selur
Hverfisgötu 40
Á fundi borgarráðs þann 9. þ.m.
var samþykkt, aö heimila kaup á
Hverfisgötu 40, sem er i eigu
Safnahúss Húsavikurkaupstaðar.
Þessa húseign átti Jón Viðis.
landmælingamaöur, og arfleiddi
Safnahúsið að þvi. Borgarrit-
ari tjáði blaðinu, að
Hverfisgata 40 væri þriggja hæða
hús með risi, en það stendur
nokkuð út i götuna. Er ætlunin, þó
siðar verði, aö fjarlægja húsið,
þegar að breikkun götunnar kem-
ur. Húsið mun verða keypt á
brunabótamatsverði og lóðin á
fasteignamatsveröi án fram-
reiknings.
Þriðjudagur 30. desember 1975.
Alþýðublaðið