Alþýðublaðið - 14.01.1976, Síða 10
( HREINSKILNI SAGT
Alvarleg augu!
Það er ömurleg staðreynd, að
frammistaða forsætisráðherra, sem
stjórnarformanns i alvarlegustu átök-
um, sem íslendingar hafa orðið að
heyja, skuli viðbrögð hans vera efni i
kuldalega fyndni — skrýtlu. Fiskveiði-
deilan við Breta er nú komin á svo
háskalegt stig, að við getum hvenær
sem við opnum fyrir útvarp eða sjón-
varp átt von á, að tiðindi berist um
manntjón. Fólskulegar árásir Breta
með herskipum gráum fyrir járnum á
varðskipin okkar, tvö — eða þrefalt
minni og vopnuð leikfangabyssum, er
daglegt brauð, að ógleymdum tilraun-
um til að sökkva Þór inni i óumdeilan-
legri landhelgi Islands.
Hvenær svo sem fjölmiðlar reyna að
fá ráðherrann til að tjá sig um einhverj-
ar virkar aðgerðir hefur svarið við
þessu öllu verið það eitt, að hann ,liti
þetta alvarlegum augum”. stundum
mjög alvarlegum. Svo birtist máski
andlitið á skjánum, að visu ekki bros-
leitt, en einstaklega laust við nokkra
festu, þrátt fyrir yfirlýsingarnar. Það
liggur við að maður búist þá og þegar
við, að sultardropi birtist á nefinu. Onn-
ur eins frammistaða og birzt hefur hjá
forsætisráðherra i styrjöld er með full-
um eindæmum. Og ekki tekur betra við
þegar minnzt er á atferli utanrikisráð-
herra á Briisselfundinum. Hvar i viðri
veröld mundi það geta gerzt, að utan-
rikisráðherra, sem hefur i höndum
órækar sannanir fyrir grimulausu of-
beldi og beinni tilraun til morða á lög-
gæzlumönnum lands sins, fengi sig til að
setjast við veizluborð með fulltrúum of-
beldisseggjanna og gott ef ekki skála við
þá með von um framhald ,,gamallar
vináttu”!! Er nokkur furða þótt menn
taki ekki slika kavalera” alvarlega,
þrátt fyrir augnaráð forsætisráðherr-
ans?
Loks virðist þó svo komið, að smá-
skima er i sjónmáli. Þegar litið er á að-
stöðu okkar tslendinga er hún sannar-
lega hvorki svo veik né vanburða sem
ætla mætti af aðförum stjórnvalda. Við
höfum lifsréttinn meö okkur. Við höfum
einnig með okkur vilja meirihluta þjóða
frá Hafréttarráðstefnunni. Við höfum
margfaldar yfirlýsingar um þýðingu ts-
lands fyrir varnir vestrænna þjóða og
erum i bandalagi viö þær helztu. Við
höfum fyrst og fremst gengið i þetta
bandalag, til þess að forða okkur frá
Er að
rofa til?
vopnuðum árásum og geta lifað i friði.
Hvað er þá eðlilegra, þegar það hald-
reipi bregzt og meira að segja ein af
bandalagsþjóðunum sýnir okkur vopnað
ofbeldi, heldur en að gera hinum öllum
það skiljanlegt, að i þessu bandalagi
eigum við ekki sess, ef árásunum linni
ekki tafarlaust?
Það hefur lika sýnt sig, ef marka má
nýjustu fréttir frá aukafundi Nato, að'
þegar sendiherra, Tómas Tómasson,
gerði mönnum það umbúðalaust
skiljanlegt, að við mundum endurskoða
okkar afstöðu til bandalagsins og veru i
þvi, að það var tekið alvarlega. En
fleira kemur til.
Þjóðin öll stendur i órofa fylkingu um
útfærslu fiskveiðilögsögunnar og hún á
kröfu á því, að forystumennirnir, sem til
Eftir Odd A. Sigurjónsson
hafa verið kjörnir séu i fremstu röð i
baráttunni. Það er á engan hátt heppi-
legt og þaðan af siður viðfeldið, að taka
þurfi fram fyrir hendur þeirra. En hvað
eiga menn að gera, þegar forystan
bregzt jafn skemmilega og raun er á?
Það er alger fásinna að halda, að sama
geð brenni ekki hjá öðrum en Suður-
nesjamönnum, Þorlákshafnarbúum og
Hornfirðingum, sem hafa nú hafið beina
baráttu. Finnst stjórninni það geðfellt,
að dragnast aðeins með i stað þess að
vera i fararbroddi?
öllum landsmönnum er ljóst, öðrum
en þá rikisstjórninni, að innan skamms
tima flykkjast sjómenn okkar út á hafið
til veiða á komandi vertið. Þeir fara
ekki þangað til að sitja i finum stólum og
ofnhita. Þeirra hlutskipti er að heyja
baráttu við óblið náttúruöfl með fullri
islenzkri harðfylgi. Hvernig halda
skrifstofudátarnir að aðstaðan verði við
starf þeirra, sem sækja björgina i bú, að
hafa öslandi herskip innan um veiðiflot-
ann og allt löðrandi i purkunarlausum
veiðiþjófum? Það er þetta, sem er
kveikjan i viðbrögðum fólksins nú. Allir,
sem skynja þessa bláköldu alvöru,
skynja einnig að það er tilgangslaust
lengur, að mæna út i tómið, þó menn
þykist gerá það með „alvarlegum aug-
um”!
íprcttir
Oleg Blochlin sá bezti
Franska knatt-
spyrnublaðið French
Football — eitt þaö
viðlesnasta í heimin-
um, kaus i gær sovézka
knattspy rnusnillinginn
Oleg Blochlin, knatt-
spyrnumann Evrópu.
Þessi viðurkenning er
sú önnur i röðinni, sem
þessi frábæri örfætti
knattspyrnumaöur fær
á þremur dögum, þvi
um jólin var hann einn-
ig kjörinn knatt-
spyrnumaður ársins i
Sovétríkjunum. Viður-
kenning þessi er talin
sú mesta sem nokkur
knattspyrnumaður
getur fengiö, enda hef-
ur þetta franska knatt-
spyrnublað nær haft
einkarétt á útgáfu
þessa titils. Meðal
knattspyrnusnillinga,
sem unnið hafa til
þessa titils, eru menn
eins og Bobby
Charlton, George Best,
French ' Beckenbauer
og Johan Cryuff.
Blochlin sigraði með
talsverðum yfirburð-
um i kosningunum að
þessu sinni. Hann hlaut
122 stig, annar var
Beckenbauer og þriðji
Hollendingurinn fljúg-
andi"eins og Cryuf f er
oft kallaður, ásamt
skautakóngnum fræga
Art Schenk frá Niður-
löndum Beckenbauer
fékk 42 stig, en Cruyff
27.
Oleg Blochlin er vafalaust
óþrfi að kynna fyrir is-
lenzkum knattspyrnuáhuga-
mönnum. Hann er lykilmað-
ur sovézka knattspyrnuliðs-
ins Dinamov Kiev, sem lék
gegn Akurnesingum á Mela-
vellinum i haust i Evrópu-
keppni meistaraliða. Hann
er fljótur og lipur leikmaður,
og eru þau ófá mörkin, sem
hann hefur skorað fyrir
Dinamov Kiev og sovézka
landsliðið i knattsyrnu.
Menn geta verið þakklátir
Akurnesingum fyrir það að
hafa gefið okkur tækifæri á
að sjá þennan snilling, enda
duldist engum, sem sá leik-
inn á Melavellinum, að
þarna var á ferð snillingur á
meðal snillinga i þessu
sovézka liði.
Lið Blochlin, Dinamov
Kiev, er i dag á hátindi
frægðar sinnar, og er það álit
flestra iþróttaunnenda i
Evrópu að liðið eigi eftir að
vinna stóra sigra á næstu ár-
um, og verði arftaki félags-
liös, eins og Real Madrid,
Benfic, Inter Milan, Ajax og
Bayern Munchen. Þeir unnu
á siðasta ári Evrópukeppni
bikarhafa. Sigruðu siðan
Bayern Munchen i hinum
svokallaða „Supercup”, sem
var komið á i fyrsta skipti á
þessu ári. Þá unnu þeir
Munchen 1:0 á Olympiuleik-
vanginum i Munchen og 2:0 i
siðari leiknum i Kiev. Er
skemmst frá þvi að segja að
Oleg Blochin gerði öll mörk
liðs sins.
Raggi rólegí
FJalla-Fúsi
Alþýðublaðið
iíóin
STJÐRNUBÍÓ
Simi 1H9JK
CHDRLBB BR0n90n
I
i en MICKfif l WINNf BIIIM
síone KiLLen
ISLENZKUR TEXTI.
Æsispennandi og viöburöarik
ný amerisk sakamólamynd I
litum.
Leikstjóri: Michael Vinner.
Aöalhlutverk: Charles Bron-
i, Martin Balsam.
Mynd þessi hefur allsstaöar
slegiö öll aösóknarmet.
Bönnuö börnum.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Allra siöustu sýningar.
TÚNABÍÓ
Simi 31182
Borsalino og Co.
Spennandi, ný frönsk glæpa-
mynd meö ensku tali, sem
gerist á bannárunum. Myndin
er framhald af Borselino sem
sýnd var i Háskólabió.
Leikstjóri: Jacques Deray.
Aöalhlutverk: Alain Delon,
Riccardo Cucciolla, Catherine
Rouvel.
tSLENZKUR TEXTI.
Bönnuö börnum innan 16 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
lÁSKdLABÍÓ
Sími ZZ140
Jólamyndin i ár
Lady sings the blues
VÝIA BiO s,mi 1154.Ý
Einhver allra skemmtilegasta
og vinsælasta gamanmyndin
sem meistari Chaplin hefur
gert. ógleymanleg skemmtun
fyrir unga sem gamla.
Einnig hin skemmtilega gam-
anmynd
llundalif
Höfundur, leikstjóri, aöalleik-
ari og þulur Charlie Chaplin.
ÍSLENZKUR TEXTI
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.15.
Skólaiíf í Harvard
ISLENZKUK TEXTl
Skemmtileg og mjög vel gerö
verölaunamynd um skólalif
ungmenna.
Leikstjóri: James Bridges.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Simi 16444
Jólamynd 1975
Gullæðið
mynd um frægöarferil og
grimmileg örlög einnar fræg-
ustu blues stjörnu Bandarikj-
anna Billie Holliday.
Leikstjóri: Sidney J. Furie.
tSLENZKUR TEXTI.
Aöalhlutverk: Hiana Ross,
Billy Hee Williams.
Sýnd kl. 5 og 9.
AUGARASBIÓ s.m~
Frumsýning i Evrópu.
Jólamynd 1975.
ökindin________
rJAVi-4
PG ...MAY Bi 100 INTENSt I0R YOUNGIR CHILDREN
Mynd þessi hefur slegiö öll aö-
sóknarmet i Bandarikjunum
til þessa. Myndin er eftir sam-
nefndri sögu eftir Peter
Benchley, sem komin er Ut á
islenzku.
Leikstjóri: Steven Spielberg.
Aöalhlutverk: Roy Scheider,
Robert Shaw, Richard Drey-
fuss.
Bönnuö innan 16 ára
Sýnd kl. 5, 7.30 og 10.
Ath. Ekki svaraö i slma fyrst
um sinn.
VIPPU - BltSKORSHURÐIN
Lagerstærðir miðað við jnúrop:
ldæð;210 sm x breidd: 240 sm
240 - x - 270 sm
Aðror slaorðir. imlOaðar eftir betðnc
QLUÍ^ASMIÐJAN
Síöumúla 20. slmi 38220
TROLOFUNARIIRINGAR
Fljót afgreiösla.
Sendum gegn póstkröfu
GUÐM. PORSTEINSSON
gullsmiöur, Bankastr. 12
Alþýðublaðið á hvert heimili )
Miðvikudagur 14. janúar 1976.