Alþýðublaðið - 24.01.1976, Page 12
Útgefandi: Alþýðuflokkurinn
Kekstur: Keykjaprent h.f
Tæknil. frkvstj: Ingólfur Steins
son. Kitstjóri: Sighvatur Björg
vinsson Kitstjórnarfulltrúi:
Bjarni Sigtryggsson Aðsetur rit
stjórnar Stðumúla ll.simi 8-18-66
Prentun: Blaðaprent h.f. Askrift
arverð: Kr.: 800 á mán. Lausa
söluverð: Kr.: 40.-
(H)RÓS
Flokksstarf riö
Nýlega hefur verið
dregið i happdrætti
Alþýðuflokksfélagsins
'á Akureyri.
1. verðlaun ferð til Noregs
kom á miða númer 568.
2. verðlaun ferð til Færeyja
kom á miða númer 767.
3. verðlaun ferð frá Akureyri
til RVK. og til baka kom á
miða nr. 210.
4. verðlaun ferð frá Akureyri
til RVK og til baka kom á miða
nr. 182.
Eftirfarandi númer hlutu
5.000 kr. verðlaun: 130, 299,
416, 613, 846, 963, 1378, 1455,
1632 Og 1998.
Alþýðuflokksfélögin i
Hafnarfirði
halda fund um bæjarmál mið-
vikudaginn 28. janúar, kl.
20.30 i Alþýðuhúsinu.
Umræðuefni: Fjárhagsáætlun
Hafnarfjarðarbæjar. Frum-
mælendur verða bæjarfulltrú-
ar Alþýðuflokksins, Kjartan
Jóhannsson og Haukur Helga-
son. Kaffiveitingar.
Kvenfélag Alþýðuflokksins,
Félag ungra jafnaðarmanna,
Alþýðuflokksfélag Hafnar-
fjarðar.
Ráðstefna um
stefnuskrána
verður haldin á Hótel Loft-
leiðum, sunnudaginn 25.
janúar og hefst kl. 10 árdegis.
Nánari upplýsingar verða
veittar á skrifstofunni,
Hverfisgötu 6—8, simi 1-50-20.
Alþýðuflokksfélag Reykja-
vikur Kvenfélag Alþýðu-
flokksins, Rvk, Félag ungra
jafnaðarmanna, Rvk.
Fræðslunámskeið
Alþýðuflokksins
Næstu fræðslunámskeið verða
haldin i Félagsheimili prent-
ara, Hverfisgötu 21, dagana
26., 28,og29. janúarog2., 4. og
5 febrúar.
Fræðslunefndin.
(H)rós Alþýðublaðs-
ins að þessu sinni fer til
þeirra þriggja hjálpar-
sveita, sem hvað mest
hafa látið til sin taka i
björgunarstarfi
hérlendis, þ.e. Hjálpar-
sveitar skáta. Flug-
björgunarsveitarinnar
og Slysavarnarfélags
íslands. (H)rósið fá
þessir aðilar fyrir það
óeigingjarna starf, sem
þeir hafa unnið undan-
farin ár, viðleitað týndu
fólki, neyðarhjálp ýmis-
konar og almenn björg-
unarstörf.
F'órnfýsi þeirra aðila, sem
þetta ómetanlega verk vinna,
verður seint fullþakkað. Hjálpar-
sveitarmenn eru kallaðir út á
hvaða tima sólarhrings sem er, i
hvaða veðri sem er, og aldrei
bregðast þeir kallinu. Þessir
menn vinna starf sitt af hugsjón
einni saman, en ekki vegna pen-
inga eða frægðar og frama. Allt
starfiðer algjörlega unnið i sjálf-
boðavinnu.
Það er Tryggvi Páll Friðriks-
son, formaður Landssambands
hjálparsveita skáta, sem tekur
við (h)rósi Alþ.bl. fyrir hönd
fyrrnefndra aðila. Við notuðum
tækifærið og spjölluðum við hann.
„Hvert er eðli og markmið
þessara hjálparsveita?”
,,Við i hjálparsveitum skáta
höfum aðallega sérhæft okkur i
sjúkrahjálp og má nefna að við
gegnum ákveðnu hlutverki hjá
almannavörnum á þvi sviði. Þá
höldum við úti froskmannaflokk-
um i þremur af lOsveitum okkar.
FJinnig eiga hjálparsveitirnar i
Trausti Gunnarsson, dyravörður i Brian Carlile, (brezkur): ,,Já,
Þjóðleikhúsinu: ,,Já, ég borða auðvitað. Ástæðan er sú, að hann
fisk jöfnum höndum og annan er bæði ódýr og góður fcg borðaði
mat. Ég myndi sakna fisksins ekki mikinn fisk þegar ég var
mikið ef hann hyrfi af borðum um heima á Englandi en þau tvö ár
aldur og eilifð.” sem ég hef dvalizt á Islandi þá hef
• ég borðað mikinn fisk, enda er
hann mun betri og ferskari hér
en heima i Englandi.
KOPAVOGS APÓTEK
Opiö öll kvöld til kl. 7
Laugardaga til kl. 12
Rvik. og Hafnarfirði hunda, sem
notaðir eru til leitar, en leit að
fólki er eitt af meginverkefnum
okkar og annarra hjálparsveita.
Flugbjörgunarsveitin hefur sér-
hæft sig i björgun flugvéla, en
Slysavarnarfélagið hins vegar i
björgun af sjó. Þessar björgunar-
sveitir fara þó mjög mikið á svið
hverrar annarrar, og er það vel.”
,,Er ekki hagkvæmara að sam-
eina þessar þrjár sveitir i eina
öfluga? ” Það yrði á ýmsan hátt
hagkvæmara. Þó fylgja slikri
sameiningu ýmsir gallar gallar.
Þá yrði sú hætta fyrir hendi, að
færri félagar samanlagt yrðu
zirkir, heldur en nú er. Samstarf-
ið mætti hins vegar vera meira á
ýmsum sviðum.
Þó er samstarfið yfirleitt gott,
þegar á hólminn er komið, en
þess á milli litið sem ekkert.”
„Hvemig tekst ykkur að reka
eins fjárfrekt fyrirtæki sem
þetta?” „Með áhuganum fyrst og
fremst. Sá misskilningur hefur
komið upp, og þá einkanlega við
aðstoð okkar i umferðinni undan-
farna óveðursdaga, að við værum
á launum hjá einhverjum opinber
um aðilum. Það er misskilningur.
all okkar vinna er sjálfboðavinna.
Það eina, sem við þiggjum af rik-
inu er 1200 þúsund kr. i styrk til
ainna 10 hjálparsveita á ári
íiverju, en það er ekki nema litill
aluti af kostnaði þeim, sem er
svona starfi samfara. Við höldum
uppi ýmiskonar fjáröflunarstarf-
semi, en áhuginn er fyrst og
fremst það, sem heldur i okkur
lifinu.”
Það er Steinunn Jóhannesdótt-
ir, simamær, sem afhendir
I'ryggva Páli rósina, sem hann
tekur á móti eins og áður sagði
fyrirhönd allra þeirra aðila, sem
að hjálparstarfi vinna.
—GÁS
KAKTUS-
0RÐAN
KAKTUSHAFAR Alþýðublaðs-
ins eru orðnir æði margir á þeim
rúmu tveim árum sem blaðið
hefur haft þann sið vikulega að
veita rós i hnappagatið fyrir
eitthvað það, sem að okkar mati
telsthrósvert hjá einstaklingum
eða hópum — og i hinn staðinn
að veita kaktus einhverjum
þeim einstaklingi eða félags-
skap manna, sem á slika plöntu
fremur skilið fyrir sin „afrek”
og glappaskot.
Kaktushafi okkar i lok þess-
arar snjóþyngstu viku Reykja-
vikurborgar um langt árabil er
gatnamálastjórinn i Reykjavik,
Ingi Ú. Magnússon, — og
heiðurinn hlýzt honum fyrir þá
snilldarlegu ráðstöfun að láta
ryðja snjó af götum borgarinnar
— og hlaða honum upp á gang-
stéttir.
Þessi ráðstöfun er svo scm
ekki vitlausari en ýmsar aðrar
sem gerðar hafa verið i
u m f e r ð a r m á I u m á
höfuðborgarsvæöinu, og
reyndar á landinu öllu, og
endurspeglar þá stefnu, eða það
stefnuleysi, ef svo má kalla það,
að borgin skuli sniðin fýrst og
fremstfyrir umferð bifreiða, en
gangandi vegfarendur, ekki
einasta réttlausir, heldur
óæskilegir þegar svo ber undir.
Viða um horgina hefur haug-
um af snjó verið mokað af göt-
um og yfir gangstéttir, svo þar
sem áður mátti þó troða snjóinn
og halda sig burtu frá götunni,
þar er ekki nokkur leið að fara
um lengur. Fólk neyðist þvi til
að ganga i þessu skyggni og
þessari færðsiðla dags eftir göt-
unni.
Gatnamálastjóra væri hollt að
lita i nýútkomnar ársskýrslur
umferðarráðs um slys og dauðs-
föll i umferðinni á siðasta ári og
iliuga hver þáttur gangandi
vegfarenda er i þeirri skýrslu.
Þegar hann hefur gert það er
liann boðinn velkominn liingað á
ritstjórn Alþýðublaðsins til að
taka á móti kaktusnum — helzt
fótgangandi.
Kenata Erlendsson, vinnur á
Ferðamiðstöðinni: ,,Já, já, ég
borða fisk svona tvisvar í viku
hverri. Ég hafði nær aldrei
smakkað fisk áður en ég kom til
tslands, en islenzkur fiskur er
ágætur og ég myndi sakna hans ef
hann hyrfi.” .
Laufey Asgeirsdóttir, vinnur i
Meitlinum: ,,Já, já. Ástæðan er
einfaldlega sú að mér finnst fisk-
ur mjög góð fæða og borða fisk
tvisvartilþrisvarsinnum i viku.”
Borðar þú fisk?
Dagfinnur Stcfánsson, flugstjóri:
,,Já, ég geri mikið að þvi. Fiskur-
inn er holl og góð fæða. Mér litist
illa á það að missa fiskinn.”