Alþýðublaðið - 10.02.1976, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 10.02.1976, Blaðsíða 3
Stefnuliós Benedikt Gröndal skrifar NÝR ODDVITI í NOREGI Það urðu kynslóðaskipti i norskum stjórnmálum fyrr i þessum mánuði, er Trygve Bratteli lét af störfum sem forsætisráðherra og Odvar Nordli tók við af honum. Þar sem íslendinga skiptir miklu máli, hverjir fara með æðstu völd i Noregi, og ráðamenn okkar hafa jafnan margvis- legt samstarf við þá, er for- vitnilegt fyrir okkur að kynn- ast þessum nýja forsætisráð- herra. Hann er raunar frekar litið þekktur, nema helzt á vettvangi Norðurlandaráðs, og hefur hann komið til ís- lands á fundi þess. Nordli er ættaður frá Heiðmerkurfylki og er fólk þar mjög hreykið af því, að hafa lagt landi sinu til forsætisráðherra. Hann hefur frá æskuárum tekið þátt i störfum Jafnaðarmannaflokksins, fyrst i sveitar- stjórnum, en siðan 1961 á Stórþinginu. Hann hefur fengizt við margvislega mála- flokka i þingnefndum, og samgöngumála- ráðherra hefur einu sinni verið i ráðuneyti Brattelis. Nordli hefur orð á sér fyrir að vera „raunhæfur” stjórnmálamaður, sem eyð- ir meiri tima i að leysa aðkallandi vanda- mál en að fjalla um hugsjónir. Þó hefur hann sjálfur sagt, að hugsjónalaus stjórn- málamaður sé eins og stýrislaus bátur. Skólaganga Nordlis fór út um þúfur á I HREINSKILNI SAGT Hvað kemur næst? Heldur virðist nú gerast vandlifað fyrir andstæðinga núverandi, rikisstjórnar. En jafnframt verður að segja, að annað eins kýrhausasamsafn og hefur upp raddir sinar á stjórnarheimilinu, er vist vandfundið á þessari jörð. Látum nú vera, þótt stjórnarmálgögnin beri sig heldur illa yfir ádeilum á stjórnarathafnir, en þá tekur steininn úr, þegar harmagrát- urinn beinist ekki siðúr að þvi, að tekið sé undir ákvarðanir, rétt eins og stjórnmálaslitin við Breta! Svo var komið, að sifelldar ásiglingar brezku skipanna á löggæzluskip okkar, þóttu ekki lengur við unandi. Og Bretum var beinlinis sagt umbúðalaust, a.ð Islend- ingar neyddust til að gera úr þvi alvöru, að slita stjórnmálasambandinu, ef vig- drekarnir hyrfu ekki út fyrir 200 milurn- ar. Það var auðvitað ekki nema helming- ur þess, sem kreíjast átti. Krafan um, að veiðiþjófarnir og „verndarar” þeirra i liki dráttarbáta hyrfu einnig, var auðvit- að alveg jafn sjálfsögð. En þetta var látið undir höfuð leggjast. Hneykslismálin i sambandi við komu hr. Luns hingað, og þau boð, sem hann bar Bretastjórn, eru i fersku minni. Þvaður islenzka ambassa- dorsins i kveðjuveizlu hans i Lundúnum, er svo enn annað hneyksli, sem rikis- stjórnin kyngdi. Vera má, að svo hafi ver- ið á litið, að þetta væri drykkjuraus. En það bætir nú litið úr skák. Reyndar er bezt Allt niðri að játa, að það eru til óvægnari skýringar á þvi einstæða athæfi. Sú skýring hefur ó- neitanlega flögrað að ýmsum, að hér hafi ambassadorinn talað með vitund og vilja ráðamanna! Eitt er vist, að ekki hefur frétzt um, að þessi ambassador hafi fengið áminnipgu, hvað þá meira. En þrátt fyrir allt þetta er mér afar óljúft að trúa stjórninni til annars eins fláræðis. Þegar svo forsætisráðherrann kemur öngulsár heim aftur úr Bretlandsför sinni, en hefur þó sýnt þann manndóm aö neita þeim kostum,sem buðust, sameinast allir um að samþykkja þær gerðir hans og af- stöðu. En það er bezt að gleyma þvi þá ekki, að jafnframt er gefin út yfirlýsing, að ef herskipin fari aftur að láta til sin taka i fiskveiðilögsögunni, muni verða stjórnmálaslitaf hálfu Islendinga! Það er ekki vitað, að nokkur lifandi maður hafi verið þess umkominn að þvinga eða kreista þessar yfirlýsingar fram, að stjórninni nauðugri. Svo þegar Bretar brjóta alvarlegar af sér en nokkru sinni fyrr með þvi að stefna flotanum inn á alfriðað svæði og reyna á- siglingar á varðskipin enn einu sinni, fá- um við það eitt að heyra, að nú þurfi að sýna sérstaka stillingu! Þá eru öll á hælum! mannalætin rokin úr kýrkollum rikis- stjórnarinnar, rétt eins og kerlingareldur úr gorkúlu á haustdegi. Og það er meira blóð i kúnni! Nú er tekið að þvæla um, að sennilega hafi hr. Luns, eða þá einhverjir aðrir þrengt svo að Betum að þeir ætli nú sjálf- viljugir að skerða fiskafla sinn hér um 30% miðað við ársafla! Slit á stjórnmála- sambandi sé svo sem ekki á neinum harðahlaupum frá okkur, og fleira i sama dúr! Svona rétt til að kóróna moðhausa- háttinn, er þvi lýst með fjálgum orðum i Reykjavikurbréfi Moggans, hvað Bretar séu nú einstaklega hart keyrðir vegna þrýstings utanfrá. Þeir hafi nú birt ein- hliða yfirlýsingu, sem næst i samræmi viö striðsárunum, af þvi að kennarar hans voru handteknir af nazistum og skólanum lokað. Hann lauk þó stúdentsprófi eftir strið og hefur lagt fyrir sig viðskiptafræði. Skömmu eftir að Nordli hafði myndað rikisstjórn sina — og valið með sér miklu fleiri nýja menn en almennt var búizt viö — bauð hann öllu ráðuneytinu til dvalar á herragarði, sem norska rikiö á skammt frá Hamar. Þar var rætt i ró og næði um starf og stefnu stjórnarinnar. Ekki fékk þó forsætisráðherrann alveg frið, þvi að hann mætti á fjöldafundi i Hamarshöllinni og flutti þar fyrstu stefnuræðu sina. Þótti vel til fundið, að hann gerði það i heima- borg sinni. Stjórn Nordlis er minnihlutastjórn, sem þó situr fastar en ella af þvi að ekki má leysa Stórþingið upp og efna til kosninga nema á reglulegum tima i Noregi. Það gerir stjórnarskipti erfiðari en þó engan veginn útilokuð milli kosninga. Hægri- flokkarnir hafa ekki heldur meirihluta, en klofningsmenn á vinstri hlið ráöa úrslit- um. Nordli hefur þá stefnu að leita sam- vinnu við hina flokkana til skiptis eftir þeim málum, sem við er að fást hverju sinni. 1 ræðu sinni i Hamarshöllinni bauð hann öðrum flokkum til samstarfs um málefni á grundvelli eftirfarandi meginstefnu: 1) Trygging öryggis og frelsis þjóðarinn- ar i vestrænu samstarfi. 2) Hlutdeild i alþjóða friðvæðingu og af- vopnun. 3) Stuðningur við fátækar og kúgaðar þjóðir. 4) Náttúru- og umhverfisvernd á öllum sviðum. 5) Sterkari stjórn samfélagsins á vernd og nýtingu náttúruauðlinda. 6) Aukið lýðræði i stjórnmálumog at- vinnulifi. 7) Dreifing á valdi og viðfangsefnum rikisins. 8) Trygging atvinnunnar og jafnrétti til handa launþegum. 9) Jafnrétt og jöfn virðing allra lands- manna. 10) Aukin átök i menningarmálum, vörn trúfrelsis og umburðarlyndis. 11) Réttlát tekjuskipting og fullkomnar tryggingar. 12) Samkeppnishæft atvinnulif meö sam- starfi hins opinbera og einkaaðila. 13) Oflug byggðastefna og stjórn á fjár- festingu, þar sem byggð þéttist mest. 14) Efling undirstöðuatvinnuveganna, landbúnaðar og fiskveiða. 15) Oliuhagnaður hagnýtist i þágu allrar þjóðarinnar. 16) Aukinn þáttur rikisins i oliuiðnaðin- um. Eftir Odd A. Sigurjónsson hugmyndir Wilsons, sem fram hafi komið i viðræðunum við Geir um daginn!! Ja, hvilikur ofboðsþrýstingur hlýtur það að vera, sem neyðir Breta til að gefa yfirlýsingar i samræmi við sinar eigin hugmyndir!! Og þessu gat hr. Luns áork- að. Já, það er enginn smákall hann herra Luns. Það ætti nú að fara að verða full- komlega timabært, að fá þennan sama hr. Luns til að setja svolitinn þrýsting á Geir og Co, ef það mætti verða til þess að þeir: 1) færu að hissa upp um sig og lýsa yfir i áheyrn alþjóðar, hvað þeir i raun og veru meina, 2) bæru ekki fram hótanir um eitt og annað, sem eru svo meira en mark- lausar þegar á hólminn er komið, 3) hætta að bera á borð þá erkififlsku, að það hljóti að spretta af einstöku ábyrgðarleysi stjórnarandstæðinga, ef þeir taka undir, þegar stjórnin reynir að manna sig upp, i orði. Það er meira en meðal krossgáta, hvernig stjórnin ætlast til, að almenning- ur fylgi forystu, sem alltaf er að missa buxurnar niður á hæla, og skynjar aldrei næsta skref i jafn alvarlegu máli og hér um ræðir. Þriðjudagur 10. febrúar 1976 Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.