Alþýðublaðið - 10.02.1976, Blaðsíða 13

Alþýðublaðið - 10.02.1976, Blaðsíða 13
Vítanýtingin í lágmarki og Bretar unnu báða leikina íslenzka körfuknatt- leikslandsliðið tapaði tvivegis fyrir þvi brezka i vináttulands- leik milli þjóðanna i Laugardalshöllinni um helgina. Þeim fyrri með 82 stigum gegn 76, en þeim siðari með 81 stigi gegn 74. 1 fyrri leiknum byrjuðu Is- lendingarnir mjög vel og gerðu þrjár fyrstu körfur leiksins. Bretarnir jöfnuðu sig þó fljót- lega voru búnir að jafna um miðjan fyrri hálfleik 18:18. Bretinn tók siðan forystuna og hélt henni unz yfir lauk, þó litlu munaði að Islendingunum tæk- ist að jafna á siðustu minútum leiksins. Staðan i leikhléi var 45:34 fyrir Bretann. Ekki verður annað sagt en að islenzka liðið hafi valdið nokkr- um vonbrigðum i leikjunum. Að visu voru Bretarnir betra liðið, með hærri leikmenn og meiri breidd i sinu liði, en það kom ekki eins mikið út úr mörgum okkar leikmanna eins og vitað Helga boðið á alþjóðlegt skákmót A sunnudag fór fram hrað- skákmót Reykjavikur i félags- heimili Taflfélags Reykjavikur að Grensásvegi 44-46. Niu um- ferðir voru tefldar eftir Mon- rad-kerfi og tefldar tvær skákir i hverri umferð, þar sem hver keppandi fékk 5 minútur til um- hugsunar á skák. Sigurvegari varð, eins og á sjálfu Skákþing- inu, Helgi ólafsson. Hann hlaut 14 1/2 vinning af 18 mögulegum. Annar varð gamla kempan Guðmundur Pálmason, með 13 vinninga, og Ómar Jónsson varð þriðji með 12 vinninga. Eftir Hraðskákmótið voru veitt verðlaun fyrir Haústmót T.R., Hraðskákmót T.R., Skák- þing Reykjavikur og Hraðskák- mót Reykjavikur. Er skemmst frá þvi að segja að Helgi fékk 1. verðlaun i öllum þessum mót- um, og söfnuðust svo að honum . bikararnir aðmennsögðui grini að hann hefði þurft vörubil til þess að koma öllum verðlaun- unum heim til sin. Það voru bik- arar til eigna og svo farandbik- arar sem hann fékk og voru þeir ófáir þegar verðlaunaafhend- ■ingunni lauk. Ljóst er af ár- angri Helga að undanförnu að innanfélagsmót T.R. ásamt öðr- um innlendum mótum eru orðin of þröngur vettvangur fyrir þennan mikla skákmann, og hefur þvi stjórn T.R. ákveðið að bjóða Helga að taka þátt i al- þjóðlegu skákmóti einhvern timann á næstunni. Vitað er að Helgi hefur mikinn áhuga á að taka þátt i opna bandariska meistaramótinu, sem haldið verður einhvern timann i' sum- ar. Einnig hefur stjórn T.R. á- kveðið að bjóða Margeiri Pét- urssyni, sem aðeins er 15 ára, á heimsmeistaramót unglinga 17 ára og yngri sem haldið verður nálægt borginni Lille i norður Frakklandi i sumar. er að þeir geta. Fát og fum var oft mikið þegar leikmennirnir voru komnir i dauðafæri, og mistókust þvi oft upplögð tæki- færi til þess að skora. Bretarnir voru með mun betri skot- nýtingu, bæði af færum og úr vitum, og er öruggt að Island hefði unnið ef þeir hefðu aðeins nýtt vitaköstin betur i leiknum, en prósentunýtingin i þeim hef- ur liklega aldrei verið lélegri hjá islenzku landsliði einmitt i þessum leik. Njarðvik- ingurinn Gunnar Þorvarðarson var bezti maður tslands i fyrri leiknum, einkum þó i siðari hálfleik, þó hann mætti vera hreyfanlegri og útsjónarsamari i sóknarleiknum. Hann var þó stigahæstur i leiknum á laugar- daginn með 18 stig, Jónas Jó- hannsson og Jón Sigurðsson voru báðir með 12 stig, og bræð- urnir Kristinn og Jón Jörunds- son gerðu 11 stig, aðrir voru með minna. Kanadamaöurinn Peter Sprogis var stigahæstur hjá útlendingunum með 23 stig. Sprogis þessi er mjög snjall leikmaður, og byggjast flestar sóknarlotur Breta upp á það að hann fái sæmilegt næði til þess að skjóta af færi. Annars var brezka liðið nokkuð jafnt. Siðari leikurinn sem leikinn var á sunnudag, var nánast afrit af fyrri leiknum enda voru loka- tölurnar svipaðar. Jón Sigurðs- son var stigahæstur i þeim leik með 23 stig, Jón Jörundsson gerði 14, og Kristinn Jörundsson var með 11 eins og fyrri daginn. Peter Sprogis var einnig stigahæstur i' þessum leik hjá Bretánum með 17 stig. Jón Sigurösson sýndi ágætis tilþrif gegn brezka Olympiuliðinu um helgina, þótt oft hafi maöur séð hann betri. Hann skoraði 23 stig i siðari leiknum og var þá stigahæstur allra á leikvellinum. Hér skorar hann i fyrri leiknum. V.VX'X* FULLUM GANGI □ ENN BETRI KJÖR, EN A VETRARÚTSÖLUNNI □ ALLT NÝJAR OG NÝLEGAR VÖRUR □ ÓTRÚLEGT VÖRUÚRVAL □ LÁTIÐ EKKI HAPP ÚR HENDI SLEPPA TÍZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS fa KARNABÆR y—J* Útsölumarkaöurinn, Laugavegi 66, sími 28155 Alþýðublaðið Þriðjudagur 10. febrúar 1976

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.