Alþýðublaðið - 10.02.1976, Blaðsíða 16
alþýðu
Ctgefandi: Alþýðuflokkurinn.
Rekstur: Reykjaprent h.f.
Tæknil. frkvstj: Ingólfur Steins-
son. RiUtjóri: Sighvatur Björg-
vinsson Ritstjórnarfulltrúi:
Bjarni Sigtryggsson Aðsetur rit-
stjórnar Siðumúla 11, simi 8-18-66.
Prentun: Blaðaprent h.f. Askrift-
arverð: Kr.: 800 á mán. Lausa-
söluverð: Kr.: 40.-
KÓPAYOGS APÓTEK
, Opiö öll kvöld til kl. 7
i Laugardaga til kl. 12 '
Rltstjórn Slðumúla II - Slml 81866
Flokksstarfid
Félagsfundur verður
haldinn fimmtudaginn 12.
febrúar nk. að Tjarnargötu 10
og hefst ki. 8.30 stundvislega.
Alþýöuflokksfélag
Reykjavikur
boðar til almenns félagsfund-
ar, miðvikudaginn 11. febrúar,
n.k., i Félagsheimili prentara
og hefst fundurinn stund-
vislega kl. 20.30.
Pagskrá fundarins er sem hér
segir:
1. Inntaka nýrra félaga.
2. Kosning uppstillinga-
nefndar.
3. Atvinnumál. Framsögu-
menn Björn Jónsson og
Björgvin Guömundsson.
4. önnur mál.
Stjórnin.
Alþýðuflokksfélag
Kópavogs
veröur með opið hús i Félags-
heimilinu á miðvikudagskvöld
milli klukkan 18 og 19. Allt Al-
þýðuflokksfólk er hvatt til að
mæta og ræða málin.
Stjórnin.
Nýlega hefur verið
dregið i happdrætti
Alþýðuflokksfélagsins
á Akureyri.
1. verðlaun ferð til Noregs
kom á miða númer 568.
2. verðlaun ferð til Færeyja
kom á miða númer 767.
3. verðlaun ferð frá Akureyri
til RVK. og til baka kom á
miða nr. 210.
4. verðlaun ferð frá Akureyri
til RVK og til baka kom á miða
nr. 182.
Eftirfarandi númer hlutu .
5.000 kr. verðlaun: 130, 299,
416, 613, 846, 963, 1378, 1455,
1632 og 1998. -
HEYRT, SÉÐ 0G HLERAÐ
Láta Grindvfk-
ingar til skarar
skríða á ný?
gerðarleysi herliðsins af land-
helgisdeilunni og þar með til-
gangsleysi hersins hér á landi.
Við spurðum óskar hvort
búast mætti við frekari aðgerð-
um af hálfu Grindvikinga, með
tilliti til nýjustu viðburða. ,,l>ú
spyrð um aðgerðir. Það er ekk-
ert látið upp um það mál. Það
kemur allt i einu, þegar að þvi
kemur. Betra að láta ekkert
uppi um það.
En það er aldrei aö vita
hvenær við hugsum okkur til
hreyfings.” —GAS
„Þær eru nú hálf skuggalegar
fréttirnar sem okkur berast, að
freigáturnar séu enn á ný komn-
ar innfyrir 200 milurnar. Það er
þvi þungt i okkur Grindviking-
um hljóðiö eins og reyndar öll-
um landsmönnum,” sagði
Óskar Hermannsson i Grinda-
vík i samtali við blaðið i gær.
Óskar vareinn af forkólfunum i
aðgerðum þeim er Grindvik-
ingar stóðu að á dögunum,
þegar þeir lokuðu veginum að
fjarskiptastöð NATO-hersins á
IVIiönesheiði til að mótmæla aö-
Óðinn fljótlegai viðgerð
Varðskipið Óðinn hefur enn
ekki komizt i gagnið að neinu ráöi
siðan skipið kom úr endurbygg-
ingu fyrir liðlega tveimur mánuð-
um siðan. önnur vél skipsins hef-
ur verið ónothæf að mestu og þvi
ekki verið hægt að nota skipið við
gæzlustörf eins og ástandið er á
miðunum.
Pétur Sigurðsson forstjóri
Landhelgisgæzlunnar sagði I
samtali við Alþýðublaðið i gær, að
vonast væri til að þessu ástandi
færi að ljúka. Það hefði komið i
ljós að stagboltar eru farnir að
gefa sig og undirlagið orðið slitið
og skælt. Það.hefði tekið talsverö-
an tima að finna hvað væri að, en
nú þegar það iægi fyrir yrði farið i
viðgerð mjög fjótlega.
Aðspurður um skuttogarann
Baldur sagði Pétur að hann stæði
fyrir sinu við gæzlustörfin. Hins
vegar væri ekkert hægt að full-
yrða á þessu stigi hvort heppilegt
væri að fá fleiri skuttogara til af-
nota fyrir Landhelgisgæzluna.
Astandið á miðunum gæti breytzt
á skömmum tima en útgerðar-
kostnaður væri mikill. —SG.
TEKIÐ EFTIR: í grein Flosa
Ólafssonar i Þjóðviljanum s.l.
sunnudag að hann fer að dæmi
þeirra Visis-manna og gripur
orðabókina sér til aðstoðar til
þess að skilgreina dómsmálaráð-
herra. Flettir Flosi upp á orðinu
„kauði” og kemst m.a. að þeirri
niðurstöðu að það þýði búralegur
eða álappalegur maður. Dregur
Flosi af þvi þá ályktun, að
„kauði” hljóti að vera i Fram-
sóknarflokknum.
TEKIÐ EFTIR: 1 leiðara Tim-
ans nú um helgina og hjá Stein-
grimi Hermannssyni i sjónvarp-
inu, að Framsóknarmenn virðast
ætla að snúast þannig við að-
finnslunum á dómsmálaráðherra
vegna afskiptanna af margum-
ræddri rannsókn afbrotamála, að
þeir, sem aðfinnslurnar gera, séu
með þvi að reyna að spilla fyrir
tslendingum i landhelgismálinu.
M.ö.o. að það jaðri við landráð að
finna að embættisfærslu ólafs Jó-
hannessonar.
HEYRT: Að skömmu fyrir
helgina hafi samninganefnd at-
vinnurekenda i vinnudeilunni
gert út sérstaka nefnd til að vita,
hvort rikisstjórn væri i landinu og
ef svo væri að leita þá að henni.
HLERAÐ: Að það sé viðar maðk-
ur i mysunni i sambandi viö fjár-
málaumsvif Sigfinns Sigurðsson-
ar heldur en rætt hefur verið um
til þessa. Mest allt sem við kemur
Vestmannaeyjabæ mun þó vera
komið fram, en hins vegar er talið
að ýmis umsvif á meginlandinu
eigi eftir að koma i ljós sem ekki
hafa farið hátt enn sem komið er.
SYcÐ: 1 fundargerð borgarráðs,
að dagana 19. og 20. febrúar verði
haldin ráðstefna um málefni
aldraðra i Hasselbyhöll. Fulltrú-
ar Reykjavikurborgar á þessari
ráðstefnu verða Páll Gislason,
Kristján Benediktsson og Sveinn
Ragnarsson félagsmálastjóri.
HEYRT: Það haft eftir framá-
mönnum i Framsóknarflokknum,
að Kristján Pétursson, deildar-
stjóri tollgæzlunnar á Keflavikur-
flugvelli, sé „kauði” sá, sem
Ólafur Jóhannesson sagði að
stæði að baki öllum „árásunum”
á sig. Kristján Pétursson mun
vera eini rannsóknarlögreglu-
maðurinn, sem átti hlut að rann-
sókn allra þriggja málanna —
Klúbbmálsins, spiramálsins og
Geirfinnsmálsinsi en hann átti
lika drýgstan þátt i þvi, að upp
komst um oliumálið svonefnda
fyrir tæpum tVeimur tugum ára.
SÉÐ: í dagblaðinu Visi fyrir
helgina, að orkumálastjóri stað-
festir þær upplýsingar, sem
Valdimar Jóhannesson, blaða-
maður, grundvallaði á spurning-
ar sinar til Jóns Sólnes i Kast-
ljóssþætti um Kröflumálið i
haust. Þá sagði Jón Sólnes, að
upplýsingarnar, sem Valdimar
studdist við en hafði ekki fengið
staðfestingu á, væri með öllu úr
lausu lofti gripnar og ef þær væru
sannar bæri að endurskoða ýmis-
legt varðandi Kröflu. Nú hefur
orknmálastjóri seint og um siöir
staðfest ummæli Valdimars — og
hvað gerir þá Jón Sólnes*
að nú sé hafin barátta fyrir þvi
meðal ákveðinna útgerðar-
manna, að hinu illræmda sjóða-
kerfi sjávarútvegsins verði ekki
breytt þar eð þeir telja, að breyt-
ingar myndu verða til þess að
rýra mjög hlut þeirra?
ÖRVAR HEFUR 0RÐIÐ 1^1
Aldrei étið á sinn
kostnað?
Það vakti talsverða at-
hygli, þegar Kristinn
Finnbogason lýsti þvi yfir
i Kastljósi s.l. föstudag,
að Framsóknarfélögin i
Reykjavik hefðu aldrei
borðað i Klúbbnum á sinn
kostnað. Nú hefur þvi
verið haldið fram — og
ekki mótmælt enda fyrir
þvi margar auglýsingar i
Timanum — að Fram-
sóknarfélögin og stofnan-
ir þeirra hafa haldið all-
nokkra hádegisverðar-
fundi i Klúbbnum á liðn-
um árum. Og hver hefur
þá borgað brúsann fyrst
„Framsóknarfélögin
hafa ekki borðað þar á
sinn kostnað" ef marka
má orð Kristins Finn-
bogasonar? Það ætti
væntanlega að koma
fram af reikningum veit-
ingastaðarins ef einhver
annar hefur borgað fyrir
bitann og væri fróðlegt að
vita, hver það hefur verið
fyrst það voru ekki þeir,
sem matarins neyttu,
eins og lá i orðum Krist-
ins Finnbogasonar — hafi
honum ekki. orðið á mis-
mæli, en allir eiga að
sjálfsögðu leiðréttingu
orða sinna.
Vitnisburður
Kristjáns
Péturssonar
Mesta athygli vakti þó
án efa vitnisburður
Kristjáns Péturssonar,
deildarstjóra hjá toll-
gæzlunni á Keflavikur-
flugvelli. Hann mun vera
einn af örfáum, jafnvel sá
eini, sem tekið hefur þátt
i rannsókn hinna þriggja
stóru mála — Klúbbmáls-
ins, stóra spiramálsins og
Geirfinnsmálsins. Og
hann fullyrti, að tengsl
væri á milli allra þessara
mála. Þá skýrði Kristján
einnig frá þvi, að þegar
hann ásamt tveimur öðr-
um rannsóknarlögreglu-
mönnum vann að rann-
sókn spiramálsins hafi
þeim borizt þau skilaboð
frá dómsmálaráðuneyt-
inu fyrir milligöngu
Bjarka Eliassonar að
hætta þegar i stað við
rannsóknina. Bjarki ber á
móti þessu, en Haukur
Guðmundsson, rannsókn-
arlögreglumaður, stað-
festir framburð
Kristjáns. Hér er þvi enn
eitt haria undarlegt mál á
ferðinni, sem skoða verð-
ur i ljósi annarra málsat-
vika af svipuðu tagi og
gera þá ósk Kristjáns
Péturssonar meira en
skiljanlega, að rannsókn
á öllum þessum málum
verði tekin upp að nýju.
FIMM á förnum vegi
A Olafur Jóhcnnesson að víkja úr embætti?
Guömundur Jóhannssnn,
verzlunarmaöur: Nei, ég tel
ekki vera neina ástæðu til þess.
Hann hefur staðið fyrir sinu og
svaraö fyrir sig.
Margrét Pétursdóttir, af-
greiðslukona: Nei,ég sé enga á-
stæðu til þess aðhann geri það.
Eg held að hann sé meö hreina
samvizku i þessum málum,
þrátt fyrir allar ásakanirnar
sem á hann hafa veriö bomar.
Ragnar H. Guðbjörnsson, bfl-
stjóri: Alls ekki að vikja. Ég er
ekki framsóknarmaður, en ég
álit að Ólafur sé einn af traust-
ustu mönnum i rikisstjórninni.
Þá leyfi ég mér að draga mjög i
efa sannieiksgildi ásakananna
sem fram hafa komið.
Dagfríður Halldórsdóttir, húsm.
m.m.: Nei, það á hann ekki aö
gera að svo stöddu. Ég held að
Ólafur hafi hreinan skjöld, hitt
kann svo að vera að farið hafi
verið á bak við hann.
Stelia Guðmundsdóttir, af-
greiöslukona: Það er erfitt að
segja til um það. þegar maður
þekkir ekki þau lög sem gilda i
svona máli. Maður yrði að vera
lögfróður til þess að geta svarað
eins og til er ætlazt af manni.
EB.
✓