Alþýðublaðið - 09.03.1976, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 09.03.1976, Blaðsíða 3
alkaýdu- biaöíó Þriðjudagur 9. marz 1976 FRÉTTIR 3 Rukkað á tveggja mán- aða fresti í stað þriggja Breytt fyrirkomu- iag orkureikninga gefur góða raun „Allt frá þvi i haust, sem leið, höfum við sent út reikninga á tveggja mánaða fresti” sagði Steinar Berg, fjármálafulitrúi Rafmagnsveitu Reykjavikur, i viðtali við blaðið. „Við breyttum gagnavinnslu- kerfinu sl. sumar, m.a. vegna þess,að Skýrsluvélar stækkuðu og við það opnuðust möguleikar, sem ekki voru til áður. Nú get- um við látið prenta meira af út skýringum á seðlana, en vegna tiðra gjaldskrárbreytinga var það nauðsynlegt til þess að fólk vissi, hvað það væri að borga fyrir. Þar til sl. haust voru sendir úr sameiginlegir reikningar fyrir hita og rafmagn á þriggja mánaða fresti og voru þeir að vonum nokkuð háir. Algengt var, að fólk væri i vandræðum með að borga þá fyrir tilskilinn tima.” Það sem vannst. Fólki veitist greinilega betur að greiða reikningana nú, en var áður en breytingin átti sér stað. Alag á skrifstofur Raf- magnsveitunnar og starfsfólk hennar er minna nú en var. Og lokshefur gjaldskrárstaða okkar batnað, vegna þess að nú koma tekjurnar jafnar inn. Breytingin hefur gefizt vel og það er ánægjuefni. Eins og allir vita, er notkun rafmagns og hita mest um jóla- leytið. Fyrir breytinguna komu þá mjög háir reikningar skömmu eftir jólamánuðinn og margir lentu i erfiðleikum. Kostnaðarauki. Breytingin hefur haft i för með sér nokkurn kostnaðar- auka, sem aðallega er fólginn i þvi, að álestrum á mæla hefur fjölgað frá þvi að lesið var á 3, mán. fresti. Þá hefur kostnaður við tölvu- vinnsluna i Skýrsluvélum hækkað nokkuð, sem sá liður er þó minni en fjölgun álestra- nna”, sagði Steinar Berg að lok- um. —EB A NÆSTUNNI: ALLIR REIKN- INGAR AÆTLAÐIR OG LESIÐ AF AÐEINS EINU SINNI A ARI ,,Það er ætlun okkar að taka upp áætlunarkerfi við raf- magnsreikninga og þá verður lesið af mælum notenda einu sinni á ári”, sagði Steinar Berg, fjármálafulltrúi Raf- magnsveitu Reykjavikur, i samtali við blaðið. „Breytingin úr þvi, að senda notendum reikninga á þriggja mánaða fresti, i það að senda reikningana á tveggja mán- aða fresti eins og nú er gert.” Skýrsluvélar geyma nú !l álestra þ.e.a.s. 18 mánaða notkun og samkvæmt þeirri sögu er auðvelt að áætla með nokkurri nákvæsnni not- kunina. Við gerum slikar áætlanir núna, samhliða álestri á tveggja rnánaða fresti og ber- um þetta tvennt saman. Reynslan sýnir, að áætluðum tölum ber nokkuð vel saman við rauntölur. Það var i fáði, að þetta formyrði tekið upp á þessu ári en óvist er, hvort af þvi getur orðið. Nýtt gjaldskrárkerfi. Ástæðan til þess er sú, að við höfum verið að hugleiða að innleiða nýtt gjaldskr&rkerfi, sem yrði ntun einfaldara i sniðum en það, sem nú er notað.... Gjaldskrárflokkar yrðu þá nokkru færri en nú er, og vinnslan yrði öll auðveldari. Hefði ekki komiö til þessi fyrirhugaða gjaldskrárbreyt- ing, var i ráöi að áætlunar- reikningarnir yrðu teknir upp að loknum sumarleyfum l ár, en liklegt, er að einhver drátt- ur verði á þvi.” —EB Enn stækkar skuttogaraflotinn: ÞRJÚ SVEITAR- FÉLÖG SAMEIN- AST UM TOGARA Sveitarfélögin á Selfossi, Stokkseyri og Eyrarbakka hafa beitt sér fyrir stofnun hluta- félags um skuttogara- kaup. Nafn félagsins er Arborg h/f. t stjórn þess voru kosnir þeir VIPPU - BltSKORSHURÐIN Naeð',210 sm x breidd: 240 sm 2T0 - x - 270 sm AÖror sla»rðir. smíOaðar eftír beiðnc GLU^ASMIÐJAN Siðumúla 20, simi 38220 Ásgrimur Pálsson, frm- kvstj. Stokkseyri, Brynleifur Steingrims- son, héraðslæknir. Sel- fossi,og Vigfús Jónsson, Eyrarbakka. Meirihluti hlutafjárins er i höndum sveitarfélaganna þriggja, en að öðru leyti er gert ráð fyrir almenningshlutafélagi innan sveitarfélaganna. Félagið hefir samið um smiði á skuttogara i Póllandi, og verður verkefni hans að afla hráefnis fyrir fiskverkunarstöðvarnar i sveitarfélögunum, en þar er oft hráefnisskortur. Gert er ráð fyrir, að aflanum verði landað i Þorlákshöfn og hann siðan fluttur landleiðina til vinnslustaðanna. Þvi vill félagið eindregið hvetja stjórnvöld til raunhæfra framkvæmda við smiði brúar á ölfusárós og telur þessa brúargerð svo mikilvæga fyrir þessi byggðarlög, bæði atvinnulega og félagslega, að ekki megi dragast öllu lengur að hefja framkvæmdir. Þess má geta að brúarsmiði, ef af yrði, myndi stytta vegalengdina frá löndunarstað á vinnslustað frá 10 og upp i 30 km. —ES Hluti Austurbæjar- skólans innréttað- ur sem dagheimili? „Vegna mikillar þarfar fyrir skóladagheimili i austurbænum og erfiðleika félagsmálaráðs við að finna húsnæði fyrir það i þvi hverfi, og þar eð að á Iofti Austurbæjarskólans er litt nýtt ca. 500 fm húsnæði, samþykkir fræðsluráð að láta kanna, hvort þarna megi ekki innrétta og koma fyrir skóladagheimili þvi sem borgarstjórn hefir ákveðið að koma upp i austurbænum.” Þetta er úr tillögu, sem Elin Páimadóttir lagöi fyrir fund i fræðsluráði. Aðspurð kvað Elin þörfina fyrir slikt dagheimili á þessu svæði mjög brýna, þarna i nágrenninu byggju margar ein- stæðar mæður og dagheimili af þessu tagi væru fyrst og fremst ætluð til að leysa úr vanda þeirra, sem byggju við sér- stakar félagslegar aðstæður. Fjárveiting liggur fyrir Nú i haust veitti borgarstjórn fé til reksturs dagheimilisins, en hingað til hefur ekkert heppilegt húsnæði rekið á fjörur félags- málaráðs þrátt fyrir ýtarlega leit. Borgarlæknir og slökkviliðsstjóri sam- þykkir Elin tjáði okkur, að hún hefði óformlega haft samband við slökkviliðsstjóra og borgar- lækni og þeir, eftir að hafa skoð- að umrætt húsnæði, ekki séð teljandi annmarka á þvi, að það mætti innrétta og nýta á um- ræddan hátt. Tillagan samþykkt Tillaga Elinar, sem jafnframt fól i sér, að fræðsluráð kannaði. hvort ekki væri hagkvæmt að tengja skóladagheimili meira skólum i borginni, var sam- þykkt samhljóða i fræðsluráði. A u k i ð samstarf fræðslumála- og fé- lagsmálaráðs Skóladagheimili borgarinnar eru undir yfirstjórn félags- málaráðs og þvi var samþykkt fræðsluráðs kvnnt félagsmála- ráði. Það tok samþykktinni vel og rná þvi búast við aukinni samvinnu ráðanna tveggja. og skóladagheimili i austurbænum virðist vera á næsta leiti. —ES Volkswageneigendur Höfum fyrirliggjandi: Bretli — Hurðir — Vélarlok — Geymslulok á Wolkswagen i allflestum litum. Skiptum á einum degi með dagsfyrirvara fvrir ákveðið verö. Reynið viðskiptin. Bilasprautun Garðars Sigmundssonar. Skipholti 25 Simar 19099 og 20988.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.